Ísland hvergi nærri óhult gagnvart þeim hættum sem felast í peningaþvætti

Áhættu­mat rík­is­lög­reglu­stjóra 2019 um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka birt­ist í gær.

Í heimi þar sem alþjóðavæð­ing fer sívax­andi er Ísland þó hvergi nærri óhult gagn­vart þeim hættum sem fel­ast í pen­inga­þvætti og fjármögnun hryðju­verka, né und­an­þegið þeirri skyldu að grípa til við­eig­andi og nauð­syn­legra aðgerða til að koma í veg fyrir að slíkt fái þrif­ist innan áhrifa­svæðis þess.

Þetta kemur fram í Áhættu­mati rík­is­lög­reglu­stjóra 2019 um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka sem birt­ist í gær.

[links]Samkvæmt skýrsl­unni taldis greind ógn varð­andi pen­inga­þvætti vera mikil þegar kom að frum­brotum skattsvika, pen­inga­send­ingum, einka­hluta­fé­lögum, raun­veru­legum eig­endum, flutn­ingi reiðu­fjár til og frá land­inu, starf­semi sem stundar reiðu­fjár­við­skipti, lög­mönnum, spila­kössum og aflétt­ingu fjár­magns­hafta.

Þá tald­ist greind ógn vera veru­leg þegar kom að inn­lánum, útgáfu raf­eyris, greiðslu­þjón­ustu, skráðum trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lögum, sjóðum og stofn­unum sem starfa sam­kvæmt stað­festri skipu­lags­skrá, öðrum almanna­heilla­fé­lögum, reiðufé í umferð, end­ur­skoð­endum, fast­eigna­sölum, vöru og þjón­ustu og kerfis­kenni­tölum.

Aftur á móti var ógn talin miðl­ungs í til­viki útlána, sýnd­ar­fjár, rekstri sjóða, hluta­fé­laga, sjálfs­eign­ar­stofn­ana og sam­lags­fé­laga, við­skipta og þjón­ustu með fjár­mála­gern­inga, veð­mála og við­skipta með eðal­málma og -steina. Ógn var hins vegar metin lítil þegar kom að líf­eyr­is­sjóðum, líf­trygg­ingum, öðrum félögum, skipa­sölum, happ­drætti, bingó, lottó, fjár­hættu­spilum á net­inu og ferða­mönnum.

Áhætta af fjár­mögnun hryðju­verka hér er talin vera lítil eða miðl­ungs­mikil. Bent er á í skýrsl­unni að þrátt fyrir veik­leika séu engin dæmi hér á landi um fjár­mögnun hryðju­verka eða tengsl við slíka hátt­semi erlendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár