Vilja aukið eftirlit með stöðugleikamyntum

Bæði Banda­ríkja­stjórn og Evr­ópu­sam­bandið hafa sýnt ákveð­inni teg­und raf­mynta sem kall­aðar eru stöð­ug­leika­myntir auk­inn áhuga á síð­ustu mán­uðum. Gangi það eftir gæti eft­ir­lit með raf­myntum, sem er í lág­marki hér­lendis þessa stund­ina, auk­ist.

Nellie Liang, aðstoðarráðherra innanlandsfjármála Bandaríkjanna, til hægri.
Nellie Liang, aðstoð­ar­ráð­herra inn­an­lands­fjár­mála Banda­ríkj­anna, til hægri. Mynd: Flickr/Paul Morigi

Við­skipti með svo­kall­aðar stöð­ug­leika­myntir (e. Stablecoins) hafa verið að sækja í sig veðrið á alþjóða­vísu á síð­ustu árum, en stjórn­völd í bæði Banda­ríkj­unum og Evrópu hafa sagt að skýr­ari lag­ara­mmi í kringum þau sé nauð­syn­legur. Samkvæmt Seðla­bank­anum er ekki til staðar neitt fjár­hags­legt eft­ir­lit með raf­myntum hér­lendis þessa stund­ina, en lög­fræð­ingur hjá Monerium segir að lönd geti byggt reglu­verkið í kringum stöð­ug­leika­myntir á núver­andi lög­gjöf um raf­eyri.

Þörf á regluverki

Í byrjun mán­að­ar­ins skil­aði starfs­hópur Joe Biden Banda­ríkja­for­seta frá sér skýrslu þar sem mælt var með því að skýr­ari lag­ara­mmi ætti að vera í kringum starf­semi með svoköll­uðum stöð­ug­leika­myntum, sem sé ein teg­und raf­mynta.

Raf­mynt­irnar sem starfs­hóp­ur­inn vildi búa til betra reg­ul­verk í kringum eru gefnar út í skiptum fyrir pen­inga og er ætla að end­ur­spelga verð­gildi þjóð­ar­gjald­miðla t.d. Banda­ríkja­dal. Samkvæmt umfjöllun mið­ils­ins Coindesk um málið hefur oft verið vafa­mál um það hversu vel mynt­irnar hafa náð að end­ur­spegla virði gjald­miðl­anna, en við­skipti með þær hafa stór­auk­ist á síð­ustu tveimur árum.

Samkvæmt starfs­hópnum er mik­il­vægt að búa til skýrar leik­reglur fyrir þessa nýj­ung í fjár­mála­starf­semi. „Ég held að það sé sam­eig­in­legur skiln­ingur um að þörf sé á reglu­verki sem sé ekki of íþyngj­andi, veiti vernd og hjálpi þess­ari nýj­ungu að þró­ast,“ sagði Nellie Liang, aðstoð­ar­ráð­herra inn­an­lands­fjár­mála í fjár­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna í við­tali við Coindesk.

MiCA

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hefur einnig sýnt þess­ari teg­und af raf­myntum áhuga, en hún lagði fram til­lögu um sér­staka reglu­gerð um sýnd­ar­eignir í sept­em­ber í fyrra. Tillagan, sem ber skamm­stöf­un­ina MiCA, hefur ekki enn verið sam­þykkt af Evr­ópu­þingu, en hún er til skoð­unar í sér­stakri nefnd innan þings­ins þessa stund­ina.

Samkvæmt Jóni Gunnari Ólafs­syni, lög­fræð­ingi hjá íslenska raf­eyr­is­fyr­ir­tæk­inu Monerium, er einn til­gangur MiCA sá að tryggja að við­skipti með stöð­ug­leika­myntir falli undir núver­andi reglu­verk sem gildir um raf­eyri í Evrópu.

Rafeyrislöggjöfin góður grundvöllur

Rafeyrir (e-money) er gjald­eyrir sem geymdur er á raf­rænu formi. Þetta er ekki það sama og raf­myntir (e. cryptocurrency), sem gætu ekki haldið verð­gildi gjald­eyris án þess að tryggja sig með vara­sjóð eða öðrum leiðum.

Jón Gunnar segir við­skipti með raf­eyri í Evrópu heyra undir 20 ára gam­alli lög­gjöf, sem Monerium starfar einnig undir, en fyr­ir­tækið öðl­að­ist starfs­leyfi á þeim grund­velli árið 2019. Hann sé þeirrar skoð­unar að ríki utan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins ættu að nota þessa lög­gjöf sem fyr­ir­mynd við laga­setn­ingu þegar setja á útgef­endum stöð­ug­leika­mynta leik­reglur, þar sem hún tryggi neyt­endum góða vernd og sé ekki of íþyngj­andi.

Han bætir við að fyr­ir­huguð MiCA-reglu­gerð muni ekki hafa nein fyr­ir­séð áhrif á starf­semi Monerium, þar sem félagið hafi nú þegar öðl­ast starfs­leyfi sem raf­eyr­is­fyr­ir­tæki. Hún gæti hins vegar haft áhrif á starf­semi kaup­halla og raf­rænna veskja. Einnig gæti hún auð­veldað þjón­ustu­veit­endum sýnd­ar­fjár sem fengið hafa starfs­leyfi á grund­velli reglu­gerð­ar­innar í sínu heima­ríki að bjóða uppá þjón­ustu á öllu Evrópska efna­hags­svæð­inu.

Ekkert fjárhagslegt eftirlit með rafmyntum

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans um hvernig eft­ir­lit með raf­myntum væri háttað hér­lendis. Samkvæmt svari bank­ans gilda engar sér­stakar reglur um raf­myntir á Íslandi, nema að þjón­ustu­veit­endur sem bjóða upp á við­skipti með þær þurfi að skrá sig hjá Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­bank­ans vegna laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Þrátt fyrir þessa skrán­ing­ar­skyldu er ekk­ert fjár­hags­legt eft­ir­lit með slíkri þjón­ustu né eft­ir­lit með neyt­enda­vernd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rafmyntir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár