El Salvador ætlar að viðurkenna rafmyntina Bitcoin sem lögeyri

Eftir um þrjá mán­uði verður El Salvador fyrsta ríki heims til þess að við­ur­kenna Bitcoin form­lega sem lög­eyri. Forseti þessa fátæka lands í Mið-Ameríku hefur mikla trú á raf­mynt­inni en sér­fræð­ingar eru ekki á einu máli um ágæti ákvörð­un­ar­innar.

Nayib Bukele forseti El Salvador breytti um helgina prófílmynd sinni á Twitter og er nú með laser-augu, eins og margir þeir sem hafa kynnst heimi rafmynta og hrifist.
Nayib Bukele for­seti El Salvador breytti um helg­ina prófíl­mynd sinni á Twitter og er nú með laser-augu, eins og margir þeir sem hafa kynnst heimi raf­mynta og hrif­ist. Mynd: Samsett

Yfirvöld í El Salvador í Mið-Ameríku hyggj­ast við­ur­kenna raf­mynt­ina Bitcoin form­lega sem gjald­miðil í land­inu, til hliðar við Banda­ríkja­dal, sem hefur frá árinu 2001 verið helsti lög­eyr­ir­inn í El Salvador.

Þingmenn í land­inu sam­þykktu frum­varp þessa efnis á þriðju­dags­kvöld með auknum meiri­hluta, 62 atkvæðum af alls 84. Nayib Bukele, for­seti lands­ins, segir að þetta sé sögu­leg stund, en hann lagði frum­varpið fyrir þingið í síð­ustu viku.

Frétta­veitan AFP fjallar um málið og segir í umfjöll­un­inni að þrátt fyrir frum­varpið sé enn allt á huldu um það hvernig nákvæm­lega Salvadorar hyggj­ast inn­leiða raf­mynt­ina Bitcoin sem lög­eyri. Lögin taka þó gildi eftir um þrjá mán­uði og þá verður öllum fyr­ir­tækjum skylt að taka á móti raf­mynt­inni, nema fyr­ir­tækin séu hrein­lega ófær um að verða sér úti um þá tækni sem til þarf.

[adspot]

Um fjórir af hverjum tíu íbúum í El Salvador búa við fátækt og margir Salvadorar hafa flust búferla­flutn­ingum, ekki síst til Banda­ríkj­anna, í von um efna­hags­leg tæki­færi sem heima­landið hefur ekki haft upp á að bjóða um lengri tíma.

For­set­inn Bukele segir að nýju lögin muni gera íbúum El Salvador hæg­ara um vik við að fá pen­inga senda frá ætt­ingjum og vinum á erlendri grundu, en um 22 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu El Salvador á upp­runa sinn í pen­inga­send­ingum erlendis frá. Um sjö­tíu pró­sent lands­manna eru ekki með banka­reikn­inga.

Einn Bitcoin jafn­gildir í dag yfir 34 þús­und Banda­ríkja­dölum, eftir að virðið hafði farið yfir 63 þús­und dali þegar það var hæst um miðjan apríl.

Þessar miklu sveiflur á geng­inu hafa valdið því að myntin hefur verið vin­sæl hjá áhættu­fjár­festum sem sjá mögu­leika á skjót­fengnum gróða, en einnig vakið upp spurn­ingar um hversu fýsi­legt sé að nýta Bitcoin til þess að stunda við­skipti með vörur og þjón­ustu dag frá degi.

Bukele for­seti er þó sann­færður um ágæti raf­mynt­ar­innar og segir að hag­nýt­ing hennar til fram­tíðar muni koma í veg fyrir að miklir fjár­munir sitji eftir hjá þeim milli­ðum sem í dag senda pen­inga til íbúa El Salvador.

Stjórn­mála­menn sem eru honum sam­mála segja sumir hverjir að lög­gjöfin muni koma El Salvador á kortið og að landið verði áhuga­verð­ari val­kostur fyrir erlenda fjár­festa.

Gætu verið að skjóta sig í fótinn

Í frétt Reuters segir að áætl­anir Salvadora um að gera Bitcoin að lög­eyri hafi vakið upp ýmsar spurn­ingar á meðal sér­fræð­inga, sem telji meðal ann­ars að þessi ákvörðun gæti flækt og seinkað áformum rík­is­stjórnar Bukele um að leita á náðir Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins um fyr­ir­greiðslu. AGS var sagður fylgj­ast náið með fram­vind­unni, í aðdrag­anda atkvæða­greiðsl­unnar.

Reuters hafði eftir einum sér­fræð­ingi í fjár­mála­geir­anum að mögu­lega væri Bukele að skjóta sig í fót­inn, þar sem með því að veita Bitcoin lög­mæti yrði hugs­an­lega erf­ið­ara að inn­heimta skatta. Bitcoin væri jú rétt eins og aðrar raf­myntir ein­föld leið til þess að forð­ast afskipti hins opin­bera, þar sem kerfið væri ekki mið­stýrt. Því væri pen­inga­þvætti og skatta­snið­ganga lítið mál, fyrir þá sem hefðu áhuga á að standa í slíku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

elsalvador

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár