Tækifæri í rafmyntaiðnaði til staðar meðan rafmyntir halda velli að mati ráðherra

Líklega mun hið opin­bera nýta sér bálka­keðju­tækni þegar fram líða stundir sam­kvæmt svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn um raf­myntir. Ekki er þó enn útlit fyrir að raf­myntir taki við af hefð­bund­inni greiðslu­miðlun í bráð.

Tækifæri til að nýta orku í raf­mynta­iðn­aði hér á landi eru til staðar á meðan mark­aður fyrir raf­myntir heldur velli að mati Bjarna Bene­dikts­sonar, efna­hags- og við­skipta­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þetta kemur fram í svari Bjarna við fyr­ir­spurn um raf­myntir sem Bryndís Har­alds­dóttir, sam­flokks­maður Bjarna, lagði fram á Alþingi.

Í svari fjár­mála­ráð­herra segir að raf­orku­notkun vegna raf­mynta sé orðin gíf­ur­lega mikil á heims­vísu. Þar af leið­andi fylgi mik­ill kostn­aður slíkum myntum, sem fyrst og fremst sé fólgin í tölvu­bún­aði og í orku. Jákvætt sé að orkan sem notuð er af íslenskum gagna­verum sé lofts­lagsvæn, eins og það er orðað í svar­inu.

Framtíð raf­mynta sé þó óljós. „Að því sögðu eru ekki mörg jákvæð teikn á lofti varð­andi áfram­hald­andi vöxt ómið­stýrðra raf­mynta til lengri tíma þar sem ekki er a.m.k. enn útlit fyrir að slíkar raf­myntir taki við af hefð­bund­inni greiðslu­miðlun. Engu að síður er mark­aður fyrir raf­myntir nú þegar nokkuð stór og á meðan að hann heldur velli verða til staðar tæki­færi til að nýta ódýra og umhverf­is­væna orku hér landi í raf­mynta­iðnað,“ segir í svar­inu.

Líklegt að hið opinbera geti nýtt bálkakeðjutækni

Einn liður fyr­ir­spurn­ar­innar sneri að því hvort bálka­keðju­tæknin geti nýst hinu opin­bera á veg­ferð sinni til raf­rænnar stjórn­sýslu og þjón­ustu. Í svar­inu segir að tæknin sé ekki komin nógu langt á veg til þess að hægt sé að taka hana í notkun hjá hinu opin­bera. Hins vegar sé lík­legt að tæki­færi mynd­ist til að nýta tækn­ina hjá hinu opin­bera þegar tæknin verður orðin útbreidd­ari og traust almenn­ings og skiln­ingur á henni hafi auk­ist. „Stafrænt Ísland, fylgist vel með þróun nýrrar tækni á borð við bálka­keðju­tækn­ina og mun nýta slíka tækni þegar færi gef­ast í fram­tíð­inni.“

Bryndís spurði meðal ann­ars út í áskor­anir varð­andi skatt­fram­kvæmd og skatta­eft­ir­lit þegar kemur að raf­myntum og sýnd­arfé. Í svar­inu kemur fram að álita­efni séu til staðar varð­andi skatt­lagn­ingu tekna sem fólk kann að hafa af við­skiptum með raf­myntir. Þá geta einnig komið upp álita­mál í tengslum við við­skipti með raf­myntir með til­liti til virð­is­auka­skatts­laga.

Þá kemur einnig fram í svar­inu að þó að sýnd­arfé sé mikið notað í lög­mætum til­gangi sé það oft vel fallið til notk­unar í ólög­legum við­skiptum. Þó svo að fá mál og ábend­ingar hafi borist emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra vegna við­skipta og notk­unar sýnd­ar­fjár sé engu að síður ástæða til að kanna umfang þess. „Vegna eðlis sýnd­ar­fjár og ósýni­leik­ans getur verið erfitt að finna það og rekja. Þörf er á að meta umfangið og finna leiðir til að hvetja aðila til að telja fram eignir og við­skipti með sýnd­arfé þar sem hvergi er hægt að afla þeirra upp­lýs­inga með beinum hætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rafmyntir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár