Engar upplýsingar fást um hve mikil orka fer í rafmyntagröft

Hvorki stjórn­völd, orku­fyr­ir­tækin né Orku­stofnun vita eða vilja upp­lýsa hversu mikil raf­orka er nýtt til vinnslu raf­mynta hér á landi. Upp­lýs­ing­arnar liggja hjá gagna­ver­unum en eru ekki látnar af hendi vegna sam­keppn­is­sjón­ar­miða.

Að grafa eftir rafmyntum er orkufrek starfsemi sem þarfnast öflugra tölva sem uppfæra og endurnýja þarf oft.
Að grafa eftir raf­myntum er orku­frek starf­semi sem þarfn­ast öfl­ugra tölva sem upp­færa og end­ur­nýja þarf oft. Mynd: Pexels

Ekki liggja fyrir upp­lýs­ingar um hve stór hluti raf­orku­sölu er nýttur til vinnslu raf­mynta hér á landi.

Þetta eru svör sem umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neytið gáfu Andrési Inga Jónssyni, þing­manni Pírata, við fyr­ir­spurn hans um málið. Svörin byggðu á upp­lýs­ingum bæði Orku­stofn­unar og orku­fyr­ir­tækj­anna Lands­virkj­unar, Orku nátt­úr­unnar og HS orku. Fram kemur að á fimm ára tíma­bili hafi fyr­ir­tækin selt gagna­verum 3.915 GWst (gíga­vatt­stundir) af raf­orku, lang­mest árið 2019 eða 1.010 GWst.

[adspot]

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Orku­stofn­unar um sama mál og fékk sömu svör: „Þær tölur sem Orku­stofnun hefur, ná yfir notkun gagna­vera almennt. Stofn­unin er ekki með nán­ari sund­ur­liðun á orku­nýt­ingu gagna­ver­anna og þar af leið­andi ekki með gögn yfir hversu mikil orka fer til vinnslu á raf­mynt.“

Um helmingur starfseminnar tengist rafmynt

Starf­semi gagna­vera snýst um geymslu og vinnslu gagna í öfl­ugum tölvum og áætla Samtök iðn­að­ar­ins að um helm­ingur af starf­semi þeirra nú teng­ist vinnslu raf­mynta. Í frétt Kjarnans í byrjun des­em­ber síð­ast­liðnum kom fram að hlut­fallið af starf­semi sem teng­ist greftri eftir raf­myntum hafi farið minnk­andi á und­an­förnum árum en það var um 80-90 pró­sent þegar mest lét. Samtök iðn­að­ar­ins gáfu þær upp­lýs­ingar að ekk­ert þeirra fjög­urra gagna­vera sem starf­rækt eru á Íslandi væri ein­göngu í raf­myntum.

„Það er áhuga­vert að sjá að á þessu ára­bili hefur sala á skerð­an­legri orku minnkað jafnt og þétt, en sala til gagna­vera auk­ist um nán­ast það sama,“ segir Andrés Ingi í sam­tali við Kjarnann en fyr­ir­spurn hans snéri einnig að því hversu mikil raf­orka hefur verið seld sem skerð­an­leg orka und­an­farin fimm ár.

„Þetta virð­ist hafa komið aftan að fólki þegar fjar­hita­veitur gripu í tómt núna í vetur – það var ekki lengur hægt að veðja á að nóg orka væri aflögu í kerf­inu,“ heldur Andrés Ingi áfram. „Það hefur verið gríð­ar­legur vöxtur í raf­orku­notkun gagna­vera, sem eru farin að nota svipað og öll heim­ili í land­inu – um 5 pró­sent af þeirri orku sem er fram­leidd á Íslandi. Þess vegna kemur á óvart að það liggi ekki fyrir upp­lýs­ingar um það hvernig sú orka er notuð, sér­stak­lega að ekki sé vitað hversu mikið sé notað til að grafa eftir raf­myntum.“

[links]Raf­orku­notkun gagna­vera dróst nokkuð saman árið 2020 er heims­far­aldur kór­ónu­veirunnar stóð sem hæst. Hún jókst svo aftur í fyrra, nam 970 GWst eða 16 pró­sentum meira en ári á undan.

Orku­stofnun áætlar að árið 2023 verður notkun gagna­vera sem fá raf­magn beint frá flutn­ings­kerf­inu 1.250 GWst. Er þá miðað við gild­andi samn­inga og ekki gert ráð fyrir aukn­ingu.

Lands­virkjun hefur hafnað öllum nýjum beiðnum um raf­orku­kaup vegna raf­mynta, bæði til núver­andi við­skipta­vina og nýrra aðila sem hafa lýst áhuga á að hefja slíka starf­semi á Íslandi. Gagnaver á Íslandi hyggj­ast „fasa út“ raf­myntir og færa sig meira yfir í hefð­bundna við­skipta­vini, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Lands­virkj­unar.

Núver­andi samn­ingar um þessa starf­semi renna út á næstu 1-2 árum. Í frétt Kjarnans í des­em­ber kom fram að Lands­virkjun hefði ekki ákveðið hvort að samn­ing­arnir verði end­ur­nýj­aðir að hluta eða heild.

Stórnot­endur (álver, kís­il­ver, gagna­ver o.fl.) kaupa 78 pró­sent af allri raf­orku sem fram­leidd er í land­inu sam­kvæmt svari ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár