Hvergerðingar segja Elliða tala með óábyrgum hætti um orkunýtingu í Reykjadal

Bæj­ar­stjórnin í Hvera­gerði hnýtti í orð Elliða Vign­is­sonar sveit­ar­stjóra í Ölfusi um mögu­lega orku­nýt­ingu í Reykja­dal eða nágrenni, á fundi sínum í vik­unni.

Reykjadalur er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Svæðið er innan Sveitarfélagsins Ölfuss.
Reykja­dalur er vin­sæll áfanga­staður ferða­manna. Svæðið er innan Sveit­ar­fé­lags­ins Ölfuss. Mynd: Arnar Þór

Bæj­ar­stjórnin í Hvera­gerð­isbæ setti fram nokkuð hvassa gagn­rýni á hug­myndir Elliða Vign­is­sonar, sveit­ar­stjóra í nágranna­sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi, um mögu­lega orku­nýt­ingu í Reykja­dal, í bókun á bæj­ar­stjórn­ar­fundi á fimmtu­dag.

Elliði ræddi um mögu­lega orku­vinnslu á svæð­inu, sem er innan sveit­ar­fé­laga­marka Ölfuss að mestum hluta, í sam­tali við mbl.is undir lok októ­ber­mán­aðar. Þar sagði Elliði að svæðið í kringum Reykja­dal­inn væri mjög ríkt af orku og að Ölf­us­ingar vildu „sjá fram á orku­nýt­ingu á svæð­inu“ áður en farið yrði í frið­lýs­ingar svæð­is­ins, sem er á nátt­úru­minja­skrá.

„Við höf­um lýst vilja til þess að fara í til­tölu­lega þrönga frið­lýs­ingu á Reykja­daln­um. Að skoða það að frið­lýsa frá topp­um fjall­ana niður í botn dals­ins. Við höf­um ekki viljað taka stærri skref fyrr en búið er að sjá út úr hvernig eigi að nýta ork­una á svæð­inu í kring­um Hengil­inn og Ölkeldu­háls og víðar,“ sagði Elliði við mbl.is.

Náttúran verði látin njóta vafans

Bæj­ar­stjórnin í Hvera­gerði er óhress með þessi ummæli og segir að allar rann­sóknir hafi sýnt fram á að áhrif vegna hugs­an­legrar orku­nýt­ingar á svæð­inu hefðu veru­leg áhrif á Hvera­gerði.

[adspot]

„Bæj­ar­stjórn telur afar óábyrgt af sveit­ar­stjóra Ölfuss að tala um að skoða eigi orku­nýt­ingu á svæð­inu þar sem mikil óvissa ríkir um áhrif á loft, vatns­lindir og nátt­úru og hvetur til að nátt­úran verði látin njóta vafans,“ segir í bókun Hver­gerð­inga.

Þar segir einnig að Reykja­dal­ur­inn og svæðið í kring hafi síð­ustu ár verið í frið­lýs­ing­ar­ferli, sem „því miður“ hafi verið stöðvað af Sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi fyrir um ári síðan.

„Bæj­ar­stjórn Hvera­gerð­is­bæjar hefur ætíð verið á móti orku­nýt­ingu á svæð­inu eða allt frá því að hug­myndir um Bitru­virkjun voru uppi á borð­inu,“ segir í bókun bæj­ar­stjórnar, sem telur ljóst að allar fram­kvæmdir á svæð­inu myndu draga úr gildi þess sem úti­vist­ar­svæðis fyrir þá sem vilji njóta óspilltrar nátt­úru.

„Svæðið, sem er á nátt­úru­minja­skrá, er einn vin­sæl­asti áfanga­staður erlendra sem inn­lendra ferða­manna og hafa vin­sældir þess auk­ist stöðugt und­an­farin ár,“ segir í bókun bæj­ar­stjórn­ar­innar í Hvera­gerð­isbæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár