Hver ekinn kílómetri á rafbíl kosti sex krónur í stað annarra gjalda

Samtök versl­unar og þjón­ustu og Bíl­greina­sam­bandið vilja sjá nýtt notk­un­ar­gjald leggj­ast á akstur bíla sem ganga fyrir raf­magni eða vetni, í stað þess að vöru­gjöld og bif­reiða­gjöld á þessa bíla hækki eins og gengið er út frá í fjár­laga­frum­varp­inu.

Aðgerðirnar sem lagðar eru til af ríkisstjórninni til þess að hafa auknar tekjur af umferð bera vott um úrræðaleysi og skammsýni, segja hagsmunasamtök bílgreinarinnar, sem telja notkunargjöld styðja betur við orkuskipti í samgöngum.
Aðgerð­irnar sem lagðar eru til af rík­is­stjórn­inni til þess að hafa auknar tekjur af umferð bera vott um úrræða­leysi og skamm­sýni, segja hags­muna­sam­tök bíl­grein­ar­innar, sem telja notk­un­ar­gjöld styðja betur við orku­skipti í sam­göngum. Mynd: Pexels

Samtök versl­unar og þjón­ustu (SVÞ) og Bíl­greina­sam­bandið leggja til við efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis að tekið verði upp nýtt notk­un­ar­gjald á akstur raf-, vetnis- og tengilt­vinn­bíla, sem felur í grunn­inn í sér að rukk­aðar verði sex krónur fyrir hvern kíló­meter sem öku­tæki er ekið. Á sama tíma leggja sam­tökin til að fallið verði að mestu frá öðrum boð­uðum breyt­ingum á vöru­gjöldum og bif­reiða­gjöldum, sem fela það í sér að slík gjöld verði lögð á bíla sem ganga fyrir raf­magni að nokkru eða öllu leyti í auknum mæli.

Í sam­eig­in­legri umsögn sam­tak­anna segir að þær breyt­ingar sem stefnt sé að muni „ekki aðeins draga úr hvötum til orku­skipta í sam­göngum heldur fela í sér að tekið verði skref aftur á bak“ og „bæði draga úr mun á kaup­verði og rekstr­ar­kostn­aði raf­magns- og tengilt­vinn­bif­reiða og eyðslu­grannra bif­reiða ann­ars vegar og hins vegar eyðslu­frekra öku­tækja sem losa mik­inn koltví­sýr­ing í notkun“.

Með öðrum orðum, að breyt­ing­arnar sem lagðar hafa verið til í frum­varpi fjár­mála­ráð­herra muni gera það fýsi­legra en áður að fjár­festa í eyðslu­frekum öku­tækjum, sem sé í senn stíl­brot og í hel­beru ósam­ræmi við þau mark­mið sem tíunduð séu í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

Í umsögn SVÞ og Bíl­greina­sam­bands­ins segir að efni þeirra frum­varps­greina sem um ræðir beri ekki aðeins með sér úrræða­leysi þegar að fjár­þörf rík­is­ins komi heldur einnig skamm­sýni. „Lang­tíma­á­ætlun orku­skipta í sam­göngum virð­ist ekki til staðar þrátt fyrir að stjórn­völd hafi sett metn­að­ar­full mark­mið og fyrir liggi á vett­vangi þeirra að í orku­skiptum í sam­göngum liggur um þessar mundir besta tæki­færið til árang­urs í lofts­lags­málum,“ segir í umsögn sam­tak­anna, sem segj­ast einnig hafa vakið athygli á því á fundum með efna­hags- og við­skipta­nefnd að við stöndum nú á ein­stökum tíma­mótum.

„Hags­munir rík­is­ins, almenn­ings og bíl­grein­ar­innar fara nær full­kom­lega saman. Stjórn­völd vilja hvetja til orku­skipta, meðal almenn­ings er eft­ir­spurn eftir hrein­orku­bif­reiðum og bif­reiðum sem eyða litlu jarð­efna­elds­neyti og fram­boðið er til staðar hjá bíl­grein­inni. For­sendur hraðra orku­skipta eru sann­ar­lega til staðar og bíl­greinin er að ganga í gegnum umfangs­mestu umbreyt­ingar sem hún hefur nokkru sinni tek­ist á við. Fjölmörg ljón eru í veg­inum en það er hins vegar óþarft að fjölga þeim þegar vel er unnt er að kom­ast hjá því,“ segir í umsögn sam­tak­anna.

Bílaleigur fái afslátt

Í drögum að breyt­inga­til­lögu sem sam­tökin sendu nefnd­inni er lagt til að vöru­gjöld verði útfærð með þeim hætti að þau hækki á eyðslu­frek öku­tæki sem losa mik­inn koltví­sýr­ing og hert verði á svoköll­uðum los­un­ar­mörkum vöru­gjalds, þannig að fleiri öku­tæki sem gangi fyrir jarð­efna­elds­neyti beri vöru­gjöld en nú er.[links]

Einnig er lagt til að áform um 5 pró­senta lág­marks­vöru­gjöld verði felld út, og sömu­leiðis að falli verði frá veru­legri hækkun lág­marks­bif­reiða­gjalds og látið verði við það sitja að verð­lags­upp­færa krónu­tölur. Í stað­inn leggja sam­tökin til áður­nefnt notk­un­ar­gjald á eig­endur raf-, vetnis- og tengilt­vinn­bíla.

Bíla­leigur ættu þó að fá afslátt af notk­un­ar­gjald­inu sökum þess hve mikið bílar þeirra eru eknir, sam­kvæmt til­lögu SVÞ og Bíl­greina­sam­bands­ins, og tengilt­vinn­bílar myndu bara greiða helm­ing notk­un­ar­gjalds­ins, en bera helm­ing álagn­ingar bif­reiða­gjalds, en það segja sam­tökin sann­gjarnt í því ljósi að gert sé ráð fyrir slíkir bílar séu eknir að helm­ingi á raf­magni og að helm­ingi á jarð­efna­elds­neyti.

Notkunargjald verði rukkað mánaðarlega

Sem áður segir leggja sam­tökin til að greiddar verði 6 krónur fyrir hvern ekinn kíló­meter, sem gert er ráð fyrir að skili 1,5-2 millj­örðum króna til rík­is­ins. Samtökin leggja til að á fyrsta árinu verði gert ráð fyrir 11 þús­und kíló­metra akstri í notk­un­ar­gjaldi allra öku­tækja, eða 66 þús­und krónur á ári, svo byrja megi að leggja gjöldin á strax. Akstur undir eða umfram þessa 11 þús­und kíló­metra komi svo til frá­dráttar eða við­bótar gjalds­ins er það verði lagt á árið 2024.

„Sá sem ekur 1.000 kíló­metra árið 2023 mun því aðeins greiða 6.000 kr. notk­un­ar­gjald árið 2024 eða sem nemur 500 kr. á mán­uði. Sá sem ekur 15.000 km sama ár mun hins vegar greiða 90.000 kr. á ári eða sem nemur 7.500 kr. á mán­uði,“ segir í umsögn sam­tak­anna, sem leggja til að notk­un­ar­gjaldið verði inn­heimt mán­að­ar­lega til að milda áhrif þeirra og auka með­vit­und um áhrif þeirra í rekstri heim­ila og fyr­ir­tækja.

Í breyt­inga­til­lögu sam­tak­anna segir að þar sem notk­un­ar­gjaldið verði tengt raun­veru­legri notkun öku­tækis hvetji það til þess að aðrir sam­göngu­mátar verði nýttir ef kostur er, sem og þátt­töku í fjár­mögnun sam­göngu­kerf­is­ins í takti við notkun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár