Fyrstu skrefin að breyttri gjaldtöku á bíla skili hátt í 5 milljörðum í ríkissjóð

Breyt­ingar á vöru­gjöldum og bif­reiða­gjöldum, sem eiga að koma til fram­kvæmda á næsta ári, munu skila 4,9 millj­örðum króna í við­bót­ar­tekjur fyrir rík­is­sjóð ef áætl­anir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins stemma.

Í fjárlagafrumvarpinu eru kynnt fyrstu skrefin í þeirri viðleitni stjórnvalda til að stoppa í það gat sem myndast hefur í tekjustofnum ríkisins vegna innreiðar rafbíla..
Í fjár­laga­frum­varp­inu eru kynnt fyrstu skrefin í þeirri við­leitni stjórn­valda til að stoppa í það gat sem mynd­ast hefur í tekju­stofnum rík­is­ins vegna inn­reiðar raf­bíla.. Mynd: ON

Rík­is­stjórnin gaf það út í fyrr í sumar að flýta ætti inn­leið­ingu gjald­töku til að vega á móti yfir­stand­andi tekju­tapi vegna umferðar og elds­neytis, sem meðal ann­ars hefur leitt af mik­illi fjölgun bif­reiða sem ganga fyrir öðru en jarð­efna­elds­neyti. Samkvæmt fjár­laga­frum­varp­inu sem kynnt var í dag verður ein­ungis ráð­ist í hluta þeirra breyt­inga sem fyr­ir­hug­aðar eru á næsta ári og fyrstu skrefin tekin.

Í fjár­laga­frum­varp­inu, sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti í morgun, kemur fram að breyta eigi bif­reiða­gjaldi og vöru­gjöldum á bif­reiðar, með það að mark­miði að fá fleiri krónur í rík­is­sjóð frá fleiri bíl­eig­endum, en fram kom í máli Bjarna að við þyrftum „að fara að und­ir­búa okkur“ fyrir gjald­töku á „umhverf­is­vænum bílum“.

Aukin vörugjöld hækki útsöluverð um allt að 5 prósent

Alls er áætlað að 4,9 millj­arðar króna inn­heimt­ist auka­lega vegna þeirra breyt­inga sem boð­aðar eru í fjár­mála­frum­varp­inu. Breyt­ingar á vöru­gjaldi á öku­tæki, sem fela í sér að los­un­ar­mörk vöru­gjalds verða lækkuð, skatt­pró­sentan sömu­leiðis og að lág­marks­vöru­gjöld verði 5 pró­sent, á að skila rík­inu 2,7 millj­örðum í við­bót­ar­tekjur, sam­kvæmt því sem segir í fjár­laga­frum­varp­inu.

[adspot]

Þar segir einnig að gera megi ráð fyrir því að breyt­ingin hafi þau áhrif að útsölu­verð nýrra fólks­bíla hækki um allt að 5 pró­sent. Bein áhrif þess­ara breyt­inga á vísi­tölu neyslu­verðs, verð­bólgu, eru metin um 0,2 pró­sent til hækk­unar, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu.

Breyt­ingar á bif­reiða­gjaldi, sem fela í sér að lág­marks­gjaldið verði hækkað og los­un­ar­mörk hækkuð á móti, eiga að skila 2,2 millj­örðum króna í við­bót­ar­tekjur í rík­is­sjóð á næsta ári.

Gert er ráð fyrir því að með þessum breyt­ingum verði meðal-bif­reiða­gjöldin nálægt því sem þau voru árið 2017, eða um 37 þús­und krónur. Tekjur af bif­reiða­gjöldum hafa dreg­ist hratt saman á und­an­förnum árum.

Enn ríkir hvatar til að kaupa rafbíla

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra sagði er hann kynnti fjár­laga­frum­varpið að áfram væru ríkir hvatar til þess að kaupa bíla sem ganga fyrir raf­magni að öllu leyti eða hluta, þrátt fyrir þessar breyt­ingar.

„Þó að raf­magns­bíll­inn fari að borga hærra bif­reiða­gjald á hverju ári þá er ekki hægt að bera það saman við árlegan kostnað við að halda úti bens­ín­bif­reið,“ sagði ráð­herra meðal ann­ars og birti skýr­ing­ar­myndir máli sínu til stuðn­ings.

Ekkert um kílómetragjöld, jarðgangagjöld né vegtolla í borginni

Í frum­varp­inu segir að unnið sé að heild­ar­end­ur­skoðun gjald­töku í sam­göngu­kerf­inu og að stefnt sé að því að fyr­ir­komu­lagið mið­ist í auknum mæli við notkun og hefur mátt skilja á ráð­herra að ein­hvers­konar kíló­metra­gjald sé til skoð­unar, auk ann­ars.

Þessar hug­myndir eru þó enn óút­færðar og ekki inni í fjár­laga­frum­varpi næsta árs.

Ekki er heldur fjallað neitt um jarð­ganga­gjöld þau sem Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra boð­aði í sumar að væru á borð­inu, né svokölluð flýti- og umferð­ar­gjöld á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem opin­berir aðilar hafa verið að skoða á und­an­förnum miss­erum.

Því má slá því föstu að gjöld af þessu tagi verði ekki lögð á árið 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár