Gjaldtaka í jarðgöngum yrði „talsverð byrði“ fyrir íbúa smárra sveitarfélaga

Pró­fessor í félags­fræði spyr hvers vegna íbúar á land­svæðum þar sem jarð­göng eru brýn nauð­syn ættu að greiða fyrir sam­göngu­bætur ann­ars staðar á land­inu, umfram þá veg­far­endur sem fara um önnur kostn­að­ar­söm mann­virki á borð við brýr eða mis­læg gatna­mót.

Þóroddur Bjarnason telur rétt að staldra við fyrirætlanir um að fjármagna uppbyggingu samgönguinnviða með gjaldtöku í jarðgöngum.
Þóroddur Bjarna­son telur rétt að staldra við fyr­ir­ætl­anir um að fjár­magna upp­bygg­ingu sam­göngu­inn­viða með gjald­töku í jarð­göngum. Mynd: Samsett/Kjarninn

Ástæða er til að fagna fyr­ir­ætl­unum um flýt­ingu upp­bygg­ingu sam­göngu­inn­viða en að sama skapi er ástæða til að staldra við og spyrja hvers vegna veg­far­endur á land­svæðum þar sem jarð­göng eru nauð­syn ættu að greiða fyrir sam­göngu­bætur ann­ars staðar á land­inu. Þetta er meðal þess sem Þóroddur Bjarna­son, pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands og rann­sókna­pró­fessor í byggða­fræði við Háskól­ann í Akureyri segir í umsögn við áform um frum­varp til laga um heim­ild til að stofna opin­bert hluta­fé­lag um upp­bygg­ingu og rekstur sam­göngu­inn­viða sem finna má á Sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Í umsögn sinni segir Þóroddur að rann­sóknir sýni að ódýrar, fljót­legar og öruggar sam­göngur hafi jákvæð áhrif á sam­fé­lög og byggða­þróun. „Raunar virð­ast slík jákvæð áhrif tals­vert van­metin í mati á áhrifum frum­varps­ins, en margar rann­sóknir hafa sýnt fram á veru­leg jákvæð áhrif sam­göngu­bóta á fram­boð versl­unar og þjón­ustu, aðgengi að menntun og gæði heil­brigð­is­þjón­ustu,“ ritar Þóroddur. [adspot]

Engu að síður telur Þóroddur að til­efni sé til að staldra við fyr­ir­ætl­anir um að fjár­magna upp­bygg­ingu sam­göngu­inn­viða með gjald­töku í jarð­göngum sem nú þegar eru í rekstri. For­sendur veggjalda í Hval­fjarðar- og Vaðla­heið­ar­göngum hafi til að mynda verið að þau myndu greiða fram­kvæmda­kostnað en svo verða hluti af almennu vega­kerfi lands­ins. Nú sé ætl­unin að fara allt aðra leið með því að leggja gjöld á veg­far­endur og nýta til fjár­fest­inga í sam­göngu­innviðum ann­ars staðar á land­inu.

„Spyrja mætti hvers vegna veg­far­endur á land­svæðum þar sem jarð­göng eru brýn nauð­syn ættu að greiða fyrir sam­göngu­bætur ann­ars staðar umfram þá sem fara t.d. um brýr, mis­læg gatna­mót, 2+2 vegi, hafnir, flug­velli eða önnur kostn­að­ar­söm sam­göngu­mann­virki,“ ritar Þóroddur.

Sjöttungur komi frá Akranesi þar sem tvö prósent þjóðarinnar býr

Í umsögn sinni skoðar Þóroddur hvernig fyr­ir­huguð gjald­taka gæti lagst á íbúa og gesti ýmissa byggð­ar­laga í grennd við jarð­göng.

Um helm­ingur umferðar um jarð­göng á Íslandi er um Hval­fjarð­ar­göng. Um þriðj­ungur ferða um Hval­fjarð­ar­göngin eru farnar milli Akraness og höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Samkvæmt útreikn­ingum Þórodds, sem gera ráð fyrir 300 króna veggjaldi, myndu ferðir farnar milli Akraness og höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins skila 285 millj­ónum króna á ári í formi veggjalda eða um 4,3 millj­örðum á 15 ára tíma­bili.

„Með gjald­tök­unni yrði því um sjötti hluti allra fyr­ir­hug­aðra jarð­ganga­gjalda inn­heimtur af íbúum, fyr­ir­tækjum, ferða­mönnum og öðrum sem leið ættu til eða frá bæ með tæp­lega átta þús­und íbúa eða sem sam­svarar 2% þjóð­ar­innar. Vandséð er hvers vegna Akranes ætti að bera ábyrgð á flýtifram­kvæmdum í sam­göngu­kerf­inu víða um land umfram önnur byggð­ar­lög, jafn­vel þótt leiðin til höf­uð­borg­ar­innar liggi um jarð­göng,“ ritar Þóroddur.

Í þessu sam­hengi nefnir hann einnig Bol­ung­ar­vík­ur­göng en um þau eru farnar 1.650 ferðir á dag að með­al­tali og eng­inn annar vegur er fær til eða frá bænum. „Um 300kr veg­gjald myndi því fela í sér 180 millj­óna króna árlegt fram­lag íbúa, ferða­fólks og fyr­ir­tækja í Bol­ung­ar­vík til flýtifram­kvæmda í vega­málum ann­ars staðar á land­inu eða 2,7 millj­arða yfir 15 ára tíma­bil. Þetta væri fram­lag 956 íbúa Bol­ung­ar­víkur, fyr­ir­tækja og ferða­fólks vegna þess að hættu­legur vegur um Óshlíð til Ísa­fjarðar var aflagður árið 2010, en sér­staks fram­lags væri ekki kraf­ist af t.d. íbúum Ísa­fjarðar eða Súða­víkur nema þeir ættu leið til Bol­ung­ar­víkur eða um Hval­fjarð­ar­göngin til Reykja­víkur.“

„Talsverð byrði“ fyrir íbúa og gesti smárra sveitarfélaga

Sömu sögu er að segja af Trölla­skaga. „Miðað við 300kr veg­gjald í Héð­ins­fjarð­ar­göng­unum myndu íbúar, ferða­fólk og fyr­ir­tæki í Fjalla­byggð greiða rúm­lega 100 millj­ónir króna á ári og 1,5 millj­arða á 15 árum vegna ferða innan Fjalla­byggðar. Til við­bótar yrðu greiddar tæp­lega 80 millj­ónir á ári og 1,2 millj­arðar á 15 árum vegna ferða til og frá Fjalla­byggð um Stráka­göng og Múlagöng. Sérstaks fram­lags til flýtifram­kvæmda ann­ars staðar á land­inu yrði hins vegar ekki kraf­ist af íbúum ann­ars staðar í Eyja­firði svo sem á Dalvík eða Akureyri nema þeir ættu leið til Fjalla­byggðar eða Reykja­víkur.“

Að lokum nefnir hann Norð­fjarð­ar­göng sem dæmi en þau tengja Nes­kaup­stað við önnur byggð­ar­lög á Aust­ur­landi og er eina leiðin í og úr bænum. 300 króna veg­gjald þar myndi skila 87 millj­ónum króna á ári eða 1,3 millj­örðum á 15 árum. „Þetta fram­lag íbúa, ferða­manna og fyr­ir­tækja í 1.100 manna sam­fé­lagi til flýtifram­kvæmda ann­ars staðar yrði aug­ljós­lega tals­verð byrði.“

Farsælt geti verið að taka upp kílómetragjald

Í umsögn sinni segir Þóroddur að mörg þeirra byggð­ar­laga sem búa við jarð­ganga­teng­ingu, til að mynda á norð­an­verðum Vest­fjörðum, á Trölla­skaga og á Mið-Aust­ur­landi, séu á svæðum sem „búið hafa við land­fræði­lega ein­angrun, ein­hæfni í atvinnu­lífi, tak­mark­aða þjón­ustu og langvar­andi fólks­fækkun.“ Með jarð­göngum hafi tek­ist að draga úr vanda sam­fé­laga sem stóðu höllum fæti, til að mynda með auknum tæki­færum í atvinnu­lífi og efl­ingu opin­berrar þjón­ustu.

Fram kemur í umsögn­inni að ríkið inn­heimti nú þegar mun meira fé af veg­far­endum í formi gjalda en sam­svarar kostn­aði við nýfram­kvæmdir og við­hald. Vísar Þóroddur í mat FÍB frá árinu 2019 en í mat­inu var áætlað að gjöld af bif­reiðum og elds­neyti næmu sam­tals 80 millj­örðum króna, til sam­an­burðar við 29 millj­arða sem varið var til nýfram­kvæmda og við­halds. Þóroddur segir veg­far­endur því greiða nú þegar nóg til rík­is­ins til þess að „koma vega­kerf­inu í við­un­andi horf“.

Hug­myndir um að inn­heimta sér­stakt gjald fyrir akstur um jarð­göng muni aftur á móti fela í sér auknar byrðar á herðar þeim sem aka um Hval­fjarð­ar­göng, sem nú þegar hafa verið greidd að fullu, og hins vegar á herðar veg­far­endum á svæðum „sem búið hafa við land­fræði­lega ein­angrun, ein­hæfni í atvinnu­lífi, tak­mark­aða þjón­ustu og langvar­andi fólks­fækkun.“

Þóroddur nefnir að lokum að ef fram­kvæmdir í vega­kerf­inu eigi að vera sam­eig­in­legt verk­efni þjóð­ar­innar geti það verið far­sæl lausn að fjár­magna flýtifram­kvæmdir með öðrum hætti, til dæmis með kíló­metra­gjöldum sem gætu leyst af hólmi elds­neyt­is­gjöld í yfir­vof­andi orku­skiptum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár