Spá stökkbreyttu orkulandslagi á allra næstu árum

Innrás Rússa í Úkraínu og áhyggjur af orku­skorti hafa orðið til þess að fjöl­mörg ríki eru að taka risa­stór stökk í þá átt að virkja end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa á borð við sólar- og vind­orku.

Vindorkuver á landi eru í augnablikinu ódýrari valkostur en slík ver á hafi úti. Þó eru stórtæk áform um vindorkuver í hafi í pípunum víða um heim.
Vind­orku­ver á landi eru í augna­blik­inu ódýr­ari val­kostur en slík ver á hafi úti. Þó eru stór­tæk áform um vind­orku­ver í hafi í píp­unum víða um heim. Mynd: Wikipedia

Alþjóða orku­stofn­unin (IEA) spáir því að orka frá end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum, aðal­lega sólar- og vind­orku, komi til með að að aukast um 75 pró­sent á næstu fimm árum. Áhyggjur af orku­skorti eru ein helsta ástæðan fyrir þessu risa stökki.

Þessar áhyggjur eru til­komnar vegna inn­rásar Rússa í Úkraínu og hafa orðið til þess að mörg ríki, m.a. í Evrópu, hafa ákveðið að flýta orku­skiptum sínum, þ.e. umskiptum úr jarð­efna­elds­neyti í orku­gjafa sem flokk­aðir eru sem end­ur­nýj­an­legir.

[adspot]

Í nýrri spá stofn­un­ar­innar verður áherslan á end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa mjög fyr­ir­ferð­ar­mikil á næstu miss­erum. Þannig spáir stofn­unin því að 90 pró­sent af allri nýrri orku­vinnslu til raf­orku­fram­leiðslu verði frá end­ur­nýj­an­legum orku­auð­lindum á næstu fimm árum. Árið 2025 verði slíkir orku­gjafar not­aðir hlut­falls­lega meira til raf­orku­fram­leiðslu en kol.

IEA á von á því að orku­vinnsla með end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum eigi eftir að aukast um 2.400 gíga­vött á heims­vísu á næstu fimm árum, sem jafn­ast á við alla orku­fram­leiðslu Kína í dag. Þetta er 30 pró­sent meiri vinnsla en spá sem gerð var fyrir ári síðan reikn­aði með.

[links]Faith Birol, fram­kvæmda­stjóri Alþjóða orku­stofn­un­ar­innar, segir að vinnsla end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa hafi verið á góðri sigl­ingu fyrir stríðið í Úkraínu en eftir að orku­krísa skap­að­ist hafi áformin sprungið út enda vilja ríki tryggja orku­ör­yggi sitt sem aldrei fyrr. „Heims­byggðin mun afla meiri end­ur­nýj­an­legrar orku á næstu fimm árum en á síð­ustu tutt­ugu árum,“ er haft eftir henni í til­kynn­ingu frá IEA. Hún segir yfir­stand­andi orku­krísu marka sögu­legan við­snún­ing í átt að hreinni og örugg­ari orku­kerfum.

Evr­ópu­ríki hafa til þessa verið mjög háð gasi frá Rúss­landi líkt og ber­lega kom í ljós með inn­rás Rússa í Úkraínu. Stjórn­völd í álf­unni kepp­ast nú við að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja orku­fram­tíð án þess að þurfa að stóla á rúss­neska gasið.

Í Banda­ríkj­unum, Kína og á Indlandi er einnig verið að móta stefnu og gera breyt­ingar á raf­orku­mörk­uðum til að ýta undir hrað­ari þróun end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa. Í skýrslu IEA segir að um helm­ingur nýrrar orku­vinnslu úr end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum í heim­inum muni á næstu fimm árum verða í Kína.

Með öllum þessum fyr­ir­ætl­unum er að sögn IEA lík­legra að mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins í lofts­lags­málum náist, þ.e. að halda hlýnun jarðar innan við 1,5 gráðu frá því sem var við upp­haf iðn­væð­ing­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár