Nær öllum sundlaugum höfuðborgarsvæðisins lokað vegna bilunar í Hellisheiðarvirkjun

Loka þarf nær öllum sund­laugum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í dag sökum bil­unar í Hell­is­heið­ar­virkjun, sem skerðir fram­leiðslu­getu á heitu vatni fyrir hita­veitu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins um að minnsta kosti 20 pró­sent.

Laugardalslaug og öllum öðrum sundlaugum höfuðborgarsvæðisins verður lokað í dag.
Laug­ar­dals­laug og öllum öðrum sund­laugum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins verður lokað í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vegna bil­unar í Hell­is­heið­ar­virkjun er engin fram­leiðsla á heitu vatni í virkj­un­inni sem stendur, sam­kvæmt því sem segir í frétta­til­kynn­ingu frá Veitum. Það þýðir að heild­ar­fram­leiðslu­geta á heitu vatni fyrir hita­veitu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er skert um að minnsta kosti 20 pró­sent.

Í frétta­til­kynn­ingu Veitna segir að af þessum sökum þurfi að loka öllum sund­laugum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag og að von­ast sé til að lok­unin vari ein­ungis út dag­inn. Reyndar er opið í sund­laug­inni á Sel­tjarn­ar­nesi, en Hita­veita Sel­tjarn­ar­ness sér henni fyrir heitu vatni.

Fram kemur í til­kynn­ingu Veitna að teymi frá Orku Nátt­úr­unnar sé komið á stað­inn og við­gerð sé hafin.

[adspot]

Fyrsta kulda­kast vetr­ar­ins gengur nú yfir og höfðu Veitur áður gefið það út að mögu­lega yrði ein­hverjum sund­laugum lokað vegna álags á flutn­ings­kerfi hita­veit­unnar.

Þær sund­laugar sem Veitur skoð­uðu að loka vegna áskor­ana í flutn­ings­kerfum voru Sundhöll Reykja­víkur, Vest­ur­bæj­ar­laug, Dalslaug, Suð­ur­bæj­ar­laug og Ásvalla­laug, en ekki hafði enn komið til lok­ana vegna álags­ins.

Vegna bil­un­ar­innar sem nú er í Hell­is­heið­ar­virkjun hefur þó verið gripið til þess ráð að loka næstum hverri ein­ustu sund­laug á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en alls eru þær 18 tals­ins.

Fréttin var upp­færð með til­liti til þess að sund­laugin á Sel­tjarn­ar­nesi er opin í dag, en áður sagði að öllum sund­laugum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefði verið lokað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár