Samgöngur á landi – í hinu stóra samhengi orku- og auðlindadrifins skattkerfis

Árni B. Helgason fjallar um hin ýmsu áhrif er orku- og auð­linda­gjöld myndu hafa á rekstur sam­gangna – og á hin ýmsu önnur svið þjóð­lífs og atvinnu­lífs – að hinu gam­al­gróna tekju­skatts­kerfi upp­rættu.

Grein þessi er fram­hald grein­ar­innar Sam­göngur á landi – undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi sem birt­ist í Kjarn­anum 12. nóv­em­ber s.l. Til glöggv­unar á hinu stóra sam­hengi skatt­heimtu – yfir höfuð að tala – verður litið til hinna ýmsu fleiri greina þjóð­lífs og atvinnu­rekstrar en sam­gangna einna.

Verður meðal ann­ars spurt að hinu eig­in­lega hlut­verki opin­berra álaga, hvort það snúi ein­göngu að öflun fjár til opin­bers rekstrar – per se – hvort þá sem sagt einu gildi hvað sé haft af hverjum eða hverjir séu und­an­þegnir, sama hve órétt­látar heimt­urnar kunni að vera. Eða á hinn bóg­inn hvort svo stór­felld mis­munun kunni bein­línis að vera mark­mið í sjálfu sér, að jafna mætti marg­vís­legum afleið­ingum skatt­heimt­unnar við stuld, enda helgi ein­beittur til­gang­ur­inn þá algjör­lega með­alið. Að jafn­vel svo sjálf­stæð ríki sé að finna í rík­inu að þau séu nán­ast und­an­þegin álögum, enda sé hvort eð er yfrið nóg af vel­ferð­ar­þegnum til að rísa undir byrð­unum.

Sjávarútvegsþáttur

Indriði H. Þor­láks­son, hag­fræð­ingur og fyrrv. rík­is­skatt­stjóri, rit­aði nýverið þrjár afar áhuga­verðar greinar í Kjarnann, undir sam­heit­inu Fisk­veiði­auð­lindin og þjóðin, þar sem hann fjallar um hluta­skipti í sjáv­ar­út­vegi, með höf­uð­á­herslu á þann hluta arðs­ins af sjáv­ar­auð­lind­inni sem nefndur hefur verið auð­lind­arenta. Að mati Indriða er renta þessi einn af þremur meg­in­hlutum þess virð­is­auka sem verði til í sjáv­ar­út­vegi – auk þess hlutar sem laun telji ann­ars vegar, að með­töldum launa­kostn­aði, og hins vegar þess hlutar sem feli í sér vergan hagnað fjár­magns­eig­enda. Að allur annar rekstr­ar­kostn­aður telj­ist því til aðfanga – til aðfanga­kostn­aðar – og þar af leið­andi til virð­is­auka ann­ars rekst­urs en sjáv­ar­út­vegs­ins.

Indriði kemst að þeirri nið­ur­stöðu að á árunum 2010 til 2020 hafi auð­lind­arentan numið um 47 millj­örðum króna að með­al­tali á ári, en það svarar til tæp­lega fimmt­ungs árlegs verð­mætis sjáv­ar­af­urða, sem var um 240 millj­arðar króna, til jafn­aðar reiknað yfir allt 11 ára tíma­bilið. Eða með hans eigin orðum í grein tvö, af alls þremur:

  • Á árunum 2010 til 2020 voru tekjur af sölu sjáv­ar­af­urða sam­tals 2.640 mrd. kr. [til jafn­aðar 240 millj­arðar króna á ári.] Að frá­dregnum aðfanga­kostn­aði var eftir virð­is­auki að fjár­hæð 1.709 mrd. kr. Í hlut launa komu 920 mrd. kr. Hluti fjár­magns var 270 mrd. kr. og afgang­inn alls 519 mrd. kr. var að rekja til auð­lind­ar­inn­ar. – Auð­lind­arenta í sjáv­ar­út­vegi var sam­kvæmt þessu alls 519 mrd. kr. á tíma­bilnu, 47 mrd. kr. á ári að með­al­tali, tæp 20% af sölu­verð­mæti sjáv­ar­af­urða. Nið­ur­staða þessi er í sam­ræmi við þrjár rann­sóknir sem vitnað er til. Auð­lind­arenta er óum­deil­an­lega mikil í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi. Eigna­söfnun eig­enda íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fé­laga á síð­asta ára­tug er einnig birt­ing­ar­mynd þess. (IHÞ: Fisk­veiði­auð­lindin og þjóðin, grein nr. tvö – sbr. einnig greinar IHÞ nr. eitt og nr. þrjú)

Samkvæmt þessu hefur virð­is­auk­inn numið um 155 millj­örðum króna á ári – til jafn­aðar ár hvert á tíma­bil­inu 2010 til 2020 (1.709/11 = 155). Hefði því mátt ætla að hluta­skiptin hefðu þá orðið u.þ.b. þessi, ár hvert til jafn­aðar, sam­kvæmt ofan­greindu: Laun og launa­tengdur kostn­aður um 84 millj­arðar (þar af um 26 millj­arðar í skatta, sbr. töflu hér að neðan), verg fjár­magns­renta eig­enda um 25 millj­arðar (þar af um 10 millj­arðar í skatta, sbr. töflu hér að neðan) og auð­lind­arentan, sem sagt hlutur þjóð­ar­innar, um 47 millj­arðar króna.

En svo sem Indriði lýsir í lok greina­flokks­ins, í lok þriðju greinar sinnar, þar sem hann dregur saman nið­ur­stöður sínar, þá er reyndin allt önnur, horft yfir þetta 11 ára tíma­bil, ár hvert til jafn­aðar: Laun ásamt launa­tengdum kostn­aði hafa vissu­lega numið um 84 millj­örðum króna, en verg fjár­magns­renta eig­enda hvorki meira né minna en um 65 millj­örðum króna! Auð­lind­arentan, sem sagt hlutur þjóð­ar­innar, hefur því ein­ungis numið um 7 millj­örðum króna, til jafn­aðar ár hvert…

Það er mat Indriða að 65 millj­arða króna ofur­tekjur fjár­magns­eig­enda feli í sér um 40 millj­arða króna oftek­inn hlut á kostnað rétt­mætra eig­enda auð­lind­ar­innar. Vergur hlutur fjár­magns­eig­enda skyldi því fremur hafa numið um 25 millj­örðum króna og hreinn hlutur þeirra eftir skatta þá öllu nær um 15 millj­örðum króna. Auð­lind­arentan og þar með veiði­gjöldin hefðu þá einmitt numið um 47 millj­örðum króna – en ekki ein­ungis um 7 millj­örðum…

Ef öllu hefði verið til skila haldið myndu opin­ber gjöld – tekju­skattar, trygg­inga­gjald og veiði­gjöld – því alls hafa numið um 83 millj­örðum króna í stað um 43 millj­arða. Þar af hefðu álögur vinnu­afls numið 26,3 millj­örðum, fjár­magnsálögur um 9,6 millj­örðum og auð­lind­arentan um 47 millj­örðum króna.

Svo ágætur sem greina­flokkur Indriða er, og sann­ar­lega þarft inn­legg í ann­ars afar fátæk­lega og oft á tíðum býsna ein­streng­ings­lega umræðu, þá er samt spurn­ing hvort ekki væri eðli­leg­ast að líta á auð­lind­arent­una sem aðfanga­kostnað – líkt og t.d. leigur af landi, skipum, bif­reiðum, fast­eignum eða af hvers kyns hlunn­indum, t.d. fyrir not af reka, fugla­bjargi eða æða­varpi, skyldu vera bók­færðar sem aðfanga­kostn­aður leigu­taka ann­ars vegar en sem vergur virð­is­auki leigu­sala hins vegar.

Með nákvæm­lega sama hætti og hafn­ar­gjöld, er renna til eig­enda hafn­anna, sem renta af rekstri þeirra, hljóta að vera færð sem aðfanga­kostn­aður í bók­haldi útgerð­ar­manns, til sam­svar­andi lækk­unar á virð­is­auka hans. Með sama hætti og veggjöld, t.d. af fisk­flutn­inga­bíl útgerð­ar­manns, hlytu að vera færð til bókar sem aðfanga­kostn­aður útgerð­ar­innar, þá bók­staf­lega svar­andi til virð­is­auka okkar, eig­enda sam­göngu­mann­virkj­anna, eðli­lega að frá­dregnum öllum kostn­aði okkar (hins opin­bera) við rekstur mann­virkj­anna.

Vissu­lega vaknar þá sú spurn­ing hvort skattar og yfir­leitt öll opin­ber gjöld, sama hvers kyns eru, skyldu ekki ein­fald­lega fær­ast til bókar sem hver annar aðfanga­kostn­aður hjá hverjum og einum – svo ótví­rætt sem álög­urnar einmitt mynda allan vergan virð­is­auka hins opin­bera þjóð­fé­lags­rekstrar…

Það er vissu­lega stór spurn­ing hvernig hinn vísi bók­hald­ari Luca Pacioli hefði brugð­ist við þessu álita­máli, hvað þá hag­fræð­ing­arnir Adam Smith og Karl Marx, hver og einn á sína vísu, hver og einn á sinni tíð – hvað þá ef uppi væru nú, velt­andi fyrir sér því öllu meira álita­máli, hvort jafn­vel væri ekki orðið tíma­bært að stokka upp hin ýmsu fleiri spilin…

Mögulega myndi Pacioli ein­fald­lega hafa sagt, ein­falda, ein­falda, ein­falda, en Smith ein­fald­lega spurt – hvaða opin­beri rekstur? Eðlilega, enda vart um nokkurn slíkan rekstur að ræða á hans tíð nema þá ef væri mynt­sláttan, svo algjör­lega sem slátta krún­unnar var þó og er háð afar tak­mark­aðri aðals­á­byrgð – en ekki rík­is­ins. Marx hefði þó lík­lega leyst málið á hinn allra ein­faldasta máta: Ríkið – það erum við! Við erum öll sem eitt, við þurfum því ekk­ert bók­hald… Vive la révolution!

Að væntri for­skrift Pacioli er orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi hér lýst með sem ein­földustum hætti. Smith væri mögu­lega nokkuð sáttur við mark­mið þess, væri hann uppi nú á dögum, svo algjört eitur í beinum hans sem þau voru, gömlu bræðra­lags­gildin, og hvort þá ekki væru það, ein­ok­un­ar­hringirnir nú á dögum, öll þau systra- og bræðra­lögin, svo vel sem vel­ferð­ar­ríkið kynni líka að falla að kenn­ingu hans um sið­ferð­is­kennd­irnar. Ef Marx hefði lifað allar bylt­ingar sínar, væri hann vafa­laust heldur far­inn að mild­ast, karl­inn, jafn­vel svo að hann sæti þá á rök­stólum með Smith gamla, þeir mögu­lega að bolla­leggja með Pacioli hver skyldi nú vera ein­faldasta fram­setn­ingin…

Allar opin­berar álögur – hverju nafni sem þær nefn­ast – fær­ast að lokum til gjalda hjá neyt­endum. Gildir þá einu hvers kyns álög­urnar eru – tekju­skattur, trygg­inga­gjöld, fjár­magnstekju­skattur, veiði­gjöld, orku­gjöld, kolefn­is­gjöld, umhverf­is­gjöld, virð­is­auka­skattur – allt saman fær­ist að lokum til reikn­ings í buddu neyt­and­ans. Að öðrum kosti hlyti hið opin­bera – ekk­ert síður en orku­frekur aðall­inn – að lifa sjálf­stæðu lífi, alls óháð neyt­endum og þar með alls óháð kjós­endum.

Vilji manna – vinnu­afls jafnt sem fjár­magns­eig­enda – til þátt­töku í sjáv­ar­út­vegi, ræðst af af þeim hreina virð­is­auka sem til skipt­anna er að greiddum öllum aðfanga­kostn­aði – að þar með töldum öllum opin­berum álögum. Líkt og á raunar við um öll umsvif manna, á hvaða rekstr­ar­sviði sem er.

Veiði­gjöld – fyrir aðgang að auð­lindum jarðar – myndu í raun ráð­ast af fram­boði fisk­veiði­heim­ilda, sem sagt útgefnum heim­ildum hins opin­bera, og hins vegar af eft­ir­spurn þeirra er afla veið­innar og vinna afurð­irnar. Þeim mun meiri eft­ir­spurn, miðað við ákveðið fram­boð, þvi hærri væru gjöldin. Þeim mun lægri væru þau á hinn bóg­inn sem eft­ir­spurnin væri minni.

Veiði­gjöld réð­ust því alfarið af áhuga manna á veiðum og vinnslu. Líkt og á raunar við um allan rekstur, að fram­boð vinnu­afls og fjár­magns ræðst af þeim kjörum sem rekstr­ar­arð­ur­inn – virð­is­auk­inn – felur í sér, jafnt af laun­aðri vinnu sem af vinnu fjár­magns. Þeim mun minni gróða­von, því lægri væru gjöldin – en þeim mun hærri væru þau ella.

Orku­gjöld – fyrir aðgang að orku jarðar – myndu hvetja til orku­sparn­aðar, sem er þeim mun brýnni sem orku­öfl­unin er nátt­úru­frek­ari eða óvænni líf­rík­inu. Gildir þá nán­ast einu hve hrein orkan kann að vera, hvort sem unnin er fyrir vatns­afl, vindafl eða sól­ar­afl, hún er nátt­úru­frek fyrir því og nán­ast alltaf fremur óvæn umhverf­inu, ekki síður en vinnsla jarð­varma, hvað þá þegar líf­rænt elds­neyti á í hlut, jafnt sem hver þau önnur orku­ferli sem ógna eða hamla líf­rík­inu.

Kolefn­is­gjöld – fyrir spill­ingu loft­hjúps jarðar – hamla gegn brennslu á jarð­efna­elds­neyti en hvetja til notk­unar á hreinum orku­gjöfum. Pacioli hefði hér mögu­lega viljað leggja ríka áherslu á mik­il­vægi þess í öllum reikn­ings­skilum rekstrar, að horfa ekki bara til nútíðar, heldur að horfa jafn­framt svo langt fram á veg­inn sem draga mætti lær­dóm af for­tíð­inni, jafn­vel svo langt að hin tor­skildasta þáskil­daga­tíð mætti lýs­ing­ar­hætti mögu­legra fram­tíð­ar­vona, jafn­vel þó að það flækti bók­haldið ofur­lítið um hríð, sér í lagi á meðan þessi ógn­vekj­andi spill­ing hefði ekki verið upp­rætt…

[adspot]Afnám tekju­skatta og trygg­inga­gjalda styrkir stöðu vinnu­afls gagn­vart órétt­mætri ofur­fram­leiðni, svo ofur und­an­þegin sköttum og skyldum sem mjög tækni­vædd fram­leiðni hefur löngum verið. Afnám sam­svar­andi tekju­skatta á fjár­magns­eig­endur ein­faldar alla yfir­sýn yfir rekstur og gerir því fleirum kleift að fást við og skilja rekstur en sér­fræð­inga­hirð nán­ast einni. Sérfræði skatta­laga og und­an­skota frá sköttum myndi reyndar heyra til lið­inni tíð, nán­ast, nema þá einna helst á sviði veiði­þjófn­aðar, orku­þjófn­aðar og spill­ingar nátt­úr­unnar og and­rúms­lofts­ins, auk þess vissu­lega sem varð­aði virð­is­auka­skatts­svik, svo lít­ill sem hvat­inn þó væri, gagn­vart ein­ungis 13% altækum álögum á hreinan virð­is­auka undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi.

Óvæntur virð­is­auki félli raunar vinnu­afli og fjár­magns­eig­endum í skaut á flestum sviðum þjóð­lífs og atvinnu­rekstrar – þá er litið væri til æ minni afskrifta ann­ars vegar og hins vegar til þeirrar bylt­ingar hug­ar­fars­ins sem nið­ur­brot allrar morknu laga­steypunnar leiddi af sér, sem sagt að upp­rættri allri þeirri miklu spill­ingu, enda ætti sér­fræði­hirðin þá líka fótum fjör að launa.

Rekstrarreikningur velferðarinnar… á heimsvísu… á landsvísu…

Undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi myndu afskriftir vega svo miklum mun minna í þjóð­hags­reikn­ingum, og hvort þá ekki í heim­ils­bók­hald­inu – sem öllu jöfnu er ann­ars að mestu und­an­skilið! – að hrein afkoma þjóð­anna myndi raunar batna til mik­illa muna. Enda jafn­gilti æ betri end­ing orð­inna hluta þá raunar batn­andi hag, sem sagt hag­vexti.

Ekki ein­ungis myndi nýt­ing auð­linda og allra­handa hrá­efna batna, og virð­ingin þar með vaxa fyrir nátt­úr­unni – jafnt sem fyrir orðnum hlutum – heldur myndi bættur hagur ekki síður birt­ast í mun skil­virk­ari þjón­ustu hins opin­bera, enda myndi meg­in­drag­bít­ur­inn, tekju­skattar og trygg­inga­gjöld, allar þær yfir­gengi­legu álögur hins opin­bera á sjálft sig, ekki vera lengur til staðar, heldur nær ein­ungs 13% virð­is­auka­skattur, er tæki raunar til allra sviða þjóð­ar­bú­skap­ar­ins, án und­an­tekn­inga.

Reikn­ings­leg hlut­deild hins opin­bera í heild­ar­rekstr­inum myndi reyndar skreppa svo saman – að alls óhagg­aðri en þó mun skil­virk­ari þjón­ust­unni – að hún lægi öllu nær því að telja þriðj­ung allrar heildar fremur en sem næst helm­ing, líkt og nú er þjóð­hags­reikn­ings­leg raunin í flestum vel­ferð­ar­ríkjum, með þeim afleið­ingum að bók­fært virði lands­fram­leiðslu í heild myndi lækka að skapi, þrátt fyrir veru­lega aukið raun­virði…

Um súlu­ritin tvö, sjá nánar grein höf­undar: Herra­garð­ur­inn – óðal aðals eða orkubú jarð­ar­búa?

Undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi dregur veru­lega úr þeim ofur­sköttum sem hið opin­bera leggur ann­ars á sjálft sig undir hefð­bundnu, tekju­drifnu kerfi. Marg­feld­is­á­hrif alls þess furðu­lega spuna, þar sem drýgsti hluti lands­fram­leiðsl­unnar hring­sólar lát­laust úr einum vasa hins opin­bera yfir í annan (sem sagt álögur hins opin­bera á sitt eigið skinn, sjálfu sér til fram­færslu!) myndu dvína svo mjög, að bók­fært virði lands­fram­leiðsl­unnar myndi drag­ast saman um a.m.k. fjórð­ung – frá því að vera um 3.000 millj­arðar króna í um það bil 2.250 millj­arða, án þess þó að raun­virði fram­leiðslu og þjón­ustu hefði að nokkru leyti verið skert, hvað þá heldur þjón­usta hins opin­bera…

Vogaraflið: Afnám álaga á tekjur og hagnað, ásamt lækkun virðisaukaskatts á flestum sviðum, myndar rekstrarábata til mótvægis orku- og auðlindagjöldum

Tekju­skattar (að með­töldum frest­uðum líf­eyr­is­sköttum) og trygg­inga­gjöld, nema u.þ.b. þriðj­ungi af launum og launa­tengdum gjöldum ein­stak­linga (sbr. m.a. rík­is­reikn­ing 2019 og lands­fram­leiðslu­yf­ir­lit Hag­stof­unnar sama ár, enda Covid-tíma­bilið almennt fremur vill­andi). Gróft á litið nemur hlut­fallið um 20% af allra lægsta heild­ar­launa­kostn­aði en um 40% af hinum hæsta, eða hart­nær þriðj­ungi af heild­ar­launa­kostn­aði flestra.

Þar til við­bótar nemur virð­is­auka­skattur af öllum launa­kostn­aði oft­ast 24% en ella 11% – ein­ungis að und­an­skyldum flestum greinum opin­bers rekstrar og hinum ýmsu fleiri greinum almanna­heilla, aðal­lega á sviði menn­ingar- og vel­ferð­ar­mála, sem greiða þó yfir­leitt virð­is­auka­skatt af flestum aðföngum.

Taflan hér að neðan – hér end­ur­birt, til nán­ari skýr­ingar, frá nið­ur­lagskafla fyrri greinar – gefur grófa hug­mynd um ábata sam­göngu­rekstrar í kjöl­far afnáms tekju­skatta og trygg­inga­gjalda og lækk­unar virð­is­auka­skatts úr 24% á flestum einka­reknum sviðum í 13%, sem myndi þá eiga við á öllum sviðum, án und­an­tekn­inga. Ábatinn myndi ann­ars vegar leiða til lægri kostn­aðar af sam­göngu­rekstri en hins vegar vega á móti álögðum veggjöldum og kolefn­is­gjöldum – sem ítar­lega var um fjallað í fyrri grein­inni, Sam­göngur á landi – undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi – á alveg sam­svar­andi máta og afnám álaga á tekjur myndi vega á móti álögðum gjöldum á sjáv­ar­út­veg, líkt og á öllum öðrum sviðum, allt eftir vægi gjald­anna.

Til ein­föld­unar er fyrst og fremst litið til þess hluta ábatans er lýtur að afnámi eða lækkun skatta af launum atvinnu­bíl­stjóra, að með­töldum þeim ýmsu (þá oft­ast í flokkum öku­tækja M1 og N1, sbr. fremsta dálk töfl­unnar) er bera önnur starfs­heiti en t.d. leigu­bíl­stjóri eða sendi­bíl­stjóri, sbr. t.d. hina ýmsu vega- og lög­gæslu­að­ila, pítsu­sendla, iðn­að­ar­menn í útrétt­ingum og marg­vís­lega fleiri sem starfs síns vegna verja drjúgum hluta vinnu­tíma síns undir stýri.

[adspot]Er þá reyndar ótal­inn allur sam­svar­andi ábati er lýtur að lækkun kostn­aðar af launum bif­véla­virkja og bif­reiða­sölu­manna og hinna ýmsu fleiri, er jafn­framt hefði bein áhrif til lækk­unar rekstr­ar­kostn­aðar öku­tækja, auk þess sem afnám skatta af stjórn­un­ar­á­lagi og afnám skatta af eig­infé rekstrar myndi telja – en allir rekstr­ar­þætt­irnir sam­an­lagðir, að með­töldum öllum aðfanga­kostn­aði, mynda þann grunn sem útseld vinna eða vara, fram­leiðsla eða þjón­usta, tekur ávallt mið af, að við­bættum virð­is­auka­skatti, þar á meðal útseldur akstur.

Heild­ar­á­bat­inn næmi því ekki ein­ungis þeim u.þ.b. 40 millj­örðum króna sem taldir eru fram í töfl­unni (sbr. rauð­litað), er lúta að vægi launa­kostn­aðar öku­manna fyrst og fremst, heldur öllu nær 50 millj­örðum króna ef allt væri talið, og þó að lík­indum eitt­hvað á sjötta tug millj­arða. Er þá ótal­inn sam­svar­andi ábati almennra bif­reiða­eig­enda af lækkun virð­is­auka­skatts af nýjum bif­reiðum og vara­hlutum, auk þess sem nemur lækkun skatta af sölu­á­lagn­ingu, sem og af sam­svar­andi lækkun við­halds­kostn­aðar, sem sagt af vinnu bif­véla­virkja, og þar með jafn­framt ábat­inn af lækkun trygg­inga­ið­gjalda, auk þess sem t.d. lækkun á gjald­skrám stræt­is­vagna, leigu­bíla og sendi­bíla myndi ekki síður telja gagn­vart not­endum þeirrar þjón­ustu, að sínu leyti, svo drjúgt sem launa­kostn­aður nú vegur á meðal þeirra greina.

Samkvæmt launa­yf­ir­liti Hag­stof­unnar fyrir árið 2021 námu „reglu­leg heild­ar­laun“ atvinnu­bíl­stjóra um 650 þús. kr. að með­al­tali (sbr. lið Hagstofu-yfir­lits­ins nr. 832) – sem svarar til u.þ.b. 771 þús. kr. heild­ar­launa­kostn­aðar á mán­uði en um 465 þús. kr. í útborguð laun, sam­kvæmt Payday-laun­reikn­inum.

Þegar á heild­ina er litið nemur hlutur opin­berra gjalda um 205 þús. kr. og frestaðra skatta af líf­eyr­is­greiðslum e.t.v. um 25 þús. kr. sem svarar alls til um 230 þús. króna álaga hins opin­bera á mán­uði (um 30% af allri heild), sem jafn­gildir u.þ.b. 2,7 millj­ónum króna á ári. – Hér í töfl­unni eru álög­urnar leiddar í grófum dráttum af mis­mun­andi launum bif­reiða­stjóra eftir eðli akst­urs og öku­tækja, sbr. liði nr. 8322 til 8324 í yfir­liti Hag­stof­unnar, með þeirri nið­ur­stöðu að álög­urnar sem falla myndu niður – líkt og hjá öllum laun­þegum með sam­svar­andi laun – liggi á bil­inu 2,3 til 3 millj­ónir króna á ári, til jafn­aðar. En heilt yfir allt sam­fé­lagið litið hlytu samn­ingar um laun og kjör að vera end­ur­skoð­aðir með hlið­sjón af gjör­breyttu skatt­kerfi, sem og þá ekki síður allur gjald­stofn­inn til útreikn­ings á útseldri vinnu – að því gefnu að heil­brigð sam­keppni væri lögð til grund­vallar en ekki hel­ber fákeppnin, ein­ok­unin…

Fjöldi árs­verka í hverjum flokki öku­tækja byggir ein­ungis á grófu mati, ekki síður en matið á mis­mun­andi launum. Hvað varðar öku­tækja­flokk­inn M1, fólks­bif­reiðar 8 far­þega eða færri, má ætla að árs­verk leigu­bíl­stjóra séu e.t.v. um 1.000 og að þar til við­bótar séu að minnsta kosti 1.500 árs­verk af ýmsum toga unnin að drýgstum hluta undir stýri, sbr. áður nefnt, sem er áreið­an­lega ekki ofmat – að fjöldi árs­verka í þessum flokki sé því að algjöru lág­marki um 2.500 (burt­séð frá heild­ar­fjölda ein­stak­ling­anna að baki). Má raunar ætla að árs­verkin séu van­metin í öllum flokkum öku­tækja, jafn­vel all­nokkuð.

Ekki er nú greiddur virð­is­auka­skattur af akstri leigu­bíla né af akstri t.d. opin­berra eft­ir­lits- og lög­gæslu­að­ila, né heldur af rekstri almenn­ings­vagna. Af rekstri hóp­ferða­bif­reiða er svo ein­ungis greiddur 11% en ekki 24% skattur sem er ann­ars meg­in­reglan á flestum einka­reknum sviðum. Ábati vegna lækk­unar VSK úr 24% í 13% myndi því ekki skila sér í þessum greinum hvað launin varðar heldur fyrst og fremst að því er snýr að veggjöldum og kolefn­is­gjöldum (og orku­kaupum o.fl. sem ekki er litið til á þessu stigi). Með hlið­sjón af því er ábat­inn í þessum öku­tækja­flokkum (M1, M2 og M3, sbr. dálk lengst t.v.) því áætl­aður (áætl.) að hluta hvað virð­is­auka­skatt­inn varðar (sbr. dálk lengst t.h.).

Þegar á allt er litið – á álögur veggjalda og kolefn­is­gjalda og hins vegar til ábatans sem stafa myndi af afnámi og lækkun skatta (að meðt. afnámi núv. elds­neyt­is­gjalda og kíló­metra­gjalds) – þá má nokkuð ljóst vera að heild­ar­út­gjöld vegna flestra atvinnu­öku­tækja myndu lækka svo um mun­aði, jafn­vel veru­lega, og þá þeim mun frekar sem þau eru eru létt­ari og minni (sbr. flokka M1 og N1 og raunar drjúgan hluta M2 og N2). Enda telur launa­kostn­aður þeim mun hlut­falls­lega meira af heild­ar­rekstr­ar­kostn­aði sem þyngd og fyr­ir­ferð bif­reiðar er minni – og þar með jafn­framt ábat­inn af gjör­breyttu skatt­kerfi – þrátt fyrir að launin séu þá almennt heldur lægri en fyrir stjórn hinna stærri og þyngri öku­tækja.

Engu að síður myndi ábat­inn af afnámi og lækkun skatta vega svo drjúgt á móti veggjöldum og kolefn­is­gjöldum af hinum stærri öku­tækjum, í flokkum M3 og N3, að rekstr­ar­kostn­aður í heild myndi í mörgum til­fellum lækka all­nokkuð frá því sem nú er raunin. Það væru fyrst og fremst mjög stór­virk og þung öku­tæki, þar sem launa­kostn­aður vegur að til­tölu einna minnst (alveg þver­öf­ugt við t.d. leigu­bíla og sendi­bíla), sem myndu bera svip­aðar álögur og nú, eða meiri – hvað þá mjög mikið keyrð öku­tæki. Og þá vissu­lega þeim mun frekar, eðli máls sam­kvæmt, sem miklir og þungir eft­ir­vagnar ættu í hlut, hvað þá hinar þung­lama­leg­ustu sanda- og fjalla-flutn­inga-vagn-lestir, sbr. ekki síst flokk O4, svo sára­litlar sem álög­urnar á þau öku­tæki eru nú.

Skyldi þá jafn­framt hafa í huga að allur launa­kostn­aður vegna vinn­unnar við ferm­ingu og afferm­ingu, t.d. hjá Samskip og Eimskip, myndi ekki síður lækka en kostn­að­ur­inn af launum bíl­stjór­anna, sem og ekki síður allur umsýslu­kostn­aður, verg eig­in­fjár­krafan (ath. hrein krafa = verg krafa mínus skattar) og þá raunar heild­ar­vaxta­byrðin líka (ath. hreinir vextir = vergir vextir mínus skattar).

Að því gefnu að heil­brigð sam­keppni ríki í sam­göngu­rekstri – sem og þá í öllum öðrum rekstri, hvort sem er í lofti, á láði eða á legi – hlyti ábat­inn af afnámi tekju­skatta og lækkun virð­is­auka­skatts á flestum sviðum að leiða af sér sam­svar­andi ábata við­skipta­vina, og þar með að lokum, að því er vænta mætti, á enda virð­is­keðj­unnar, að leiða myndi til bættra lífs­kjara allrar heild­ar­innar.

Að öðrum kosti væri vart um auð­legð þjóðar að ræða heldur fyrst og fremst gróða orku­að­als, sægreifa og allra­handa lorda og lafða, er litu svo á ríkið, að það sner­ist ein­ungis um ein­hver vér um oss frá oss til vor – alls án til­lits til allrar rík­is­heild­ar­innar!

Orkuþáttur

Sala olíu á Íslandi nam um einni milljón tonna á ári fyrir Covid (Hag­stofan: Olíu­notkun 1982-2020) og má raunar gera ráð fyrir, nú þegar hillir undir árið 2023, að salan sé nán­ast komin í fyrra horf. Orkan sem losnar við bruna alls þessa elds­neytis, sem sagt á árs­grund­velli, svarar til um 43 þús. terajoula, sem jafn­gildir um 12 terawattstundum (TWst). Hartnær þriðj­ungur brennsl­unnar, gróft á litið um 4 TWst, hefur verið nýttur til rekst­urs bif­reiða­flota lands­manna, sem svarar til um 4ra millj­arða kílówattstunda (KWst). Enn grófar á litið má e.t.v. gera ráð fyrir að góður þriðj­ungur þess hafi verið nýttur til rekst­urs atvinnu­bif­reiða, sem svara myndi til u.þ.b. 1,5 millj­arða KWst.

Enn sem komið er vegur raf­orku­notkun bif­reiða­flot­ans svo lítið að vart tekur því að reikna hana með. Með algjörum umskiptum yfir í hrein orku­ferli – hreint raf­magn, hreint vetni og við­líka – má hins vegar ætla að heild­ar­orku­þörf alls flot­ans muni minnka um að minnsta kosti helm­ing, eða jafn­vel allt að 2/3 hlutum. Svo miklu betri er almennt nýt­ing hreinna orku­gjafa, sem sjá má m.a. af því að orku­þörf raf­magns­bíla nemur gróft á litið vart meira en um þriðj­ungi á við sam­svar­andi bíla sem knúnir eru bruna­hreyflum – slík sem er þá líka gnótt varma­orkunnar, sem sleppur óbeisluð út í and­rúms­loftið við brun­ann, og hvort þá ekki ofgnótt koltví­ild­isauðg­un­ar­innar jafn­framt…

Með upp­töku almenns orku­gjalds – sbr. töfl­una yfir bók­halds­lykla orku- og auð­linda­drif­ins hér aðeins ofar í grein – má gera ráð fyrir að álögur á orku til marg­vís­legs rekst­urs og almennra nota, þ.á.m. til rekst­urs öku­tækja, vinnu­véla, skipa og flug­véla af öllu tagi, myndu e.t.v. nema um 5 kr/KWst (að nið­ur­felldum núv. elds­neyt­is­gjöldum). Gróft á litið myndi það fela í sér um 20 millj­arða króna gjald­töku af öku­tækjum, þar af e.t.v. um 8 millj­arða króna af atvinnu­bif­reiðum.

Í reynd myndi orku­gjald af brennslu­olíu og bens­íni vera lagt á hvern lítra eða tonn – við inn­flutn­ings- eða fram­leiðslu­dyr. Magná­lagið væri háð orku­í­gildi hinna ýmsu teg­unda, alls óháð notkun, sölu­ferli eða upp­runa (hvort sem inn­flutt væri eða heima­gert), sama hvort elds­neytið nýtt­ist flug- eða vega­sam­göngum, sigl­ingum, útgerð, iðn­aði eða hverju sem væri öðru. Andstætt við t.d. núver­andi bensín- og olíu­álögur væri gjaldið því almennt og því eigi eyrna­merkt einu eða neinu, ekki frekar en á öðrum orku­sviðum – vatns­orku, jarð­varma, vind- eða sól­ar­orku – og mætti raunar líta á gjaldið sem fram­leiðniskatt, líkt og hin ýmsu fleiri gjöld, er liggja myndu tekju­stofnum vel­ferð­ar­rík­is­ins til grund­vallar. Það væri og alveg undir selj­endum orkunnar komið, af hvaða tagi sem orkan ann­ars væri, hvaða áhrif gjaldið hefði á sölu­verð, á það end­an­lega orku­verð er öllu jöfnu ræðst jafn­framt af dreif­ing­ar­kostn­aði og þó ekki síður af kaup­vilja, stórra sem smárra kaup­enda, allt eftir eðli orku­nýt­ingar á heild­sölu- eða smá­sölu­mark­aði.

[adspot]Að loknum orku­um­skiptum, frá jarð­efna­elds­neyti til hreinnar orku (sem sagt ekki koltví­ild­isauð­g­andi orku), myndi orku­þörfin hafa skroppið svo saman á öllum þeim sviðum sem nú byggja á brennslu­olíu og bens­íni, að næmi vart nema um helm­ingi eða jafn­vel þriðj­ungi af því sem hún er nú, svo miklum mun betri er nýt­ing hreinnar orku á flestum sviðum. Til marks um það þá er varma­orka 1 lítra bens­íns um 9 KWst en dísilolíu um 10 KWst, en þar af nýta bens­ín­hreyflar vart nema um þriðj­ung orkunnar en dísil­bílar e.t.v. um 2/5 hluta hennar í allra skásta falli. Afgang­ur­inn hverfur sem ónýttur varmi – sem alls ónýtt orka – út í and­rúms­loftið. Orku­nýtni raf­hreyfla liggur á hinn bóg­inn nær því að vera algjör þegar best lætur.

Að því gefnu að orku­þörf raf­knú­inna fólks­bíla að heild­ar­þyngd um 2 tonn sé til jafn­aðar um 20 KWst pr. 100 km og að þörf sam­svar­andi bíla með bruna­hreyfli sé um 60 KWst pr. 100 km, myndi 5 króna orku­gjald pr. kílówattstund jafn­gilda um 1 kr/km fyrir raf­bíl­inn en um 3 kr/km fyrir bruna­hreyf­ils­bíl­inn, til við­bótar við um 11 kr/km í veggjöld, auk um 2ja til 3ja króna kolefn­is­gjalda fyrir síð­ar­nefnda bíl­inn (sbr. um fjallað í fyrri grein). Orku­gjald af 26 tonna vöru­bíl með bruna­hreyfli, er eyddi u.þ.b. 6-falt meiri orku en fólks­bíll með sam­svar­andi hreyfli, myndi þá vera u.þ.b. 18 kr/km – til við­bótar við um 100 kr/km í veg­gjald og um 15 kr/km í kolefn­is­gjöld.

Gjöldin er féllu á vöru­bíll­inn myndu þá nema til sam­ans um 133 kr/km, sem myndi jafn­gilda alls um 3,3 millj­ónum króna á ári miðað við 25 þús. km akstur á ári (sbr. til­vitn­aða töl­fræði Sam­göngu­stofu – um 26 tonna með­al­þyngd vöru­bíla í flokki N3 og 25 þús. km með­alakstur á ári – í töfl­unni hér að ofan, sem og í töflum í fyrri grein). En á móti kæmi u.þ.b. 3ja millj­óna króna ábati af völdum afnáms tekju­skatta og trygg­inga­gjalda og um 0,8 millj­ónir af völdum lækk­unar virð­is­auka­skatts úr 24% í 13% (sbr. töfl­una hér að ofan), alls um 3,8 millj­ónir króna.

3,3 millj­óna króna gjöldin af 26 tonna vöru­bílnum myndu sem sagt vega hálfri milljón króna minna en 3,8 millj­óna króna rekstr­ar­á­bat­inn, þá reyndar að ótöldum ábat­anum er hlyt­ist af lækk­uðu verði á þjón­ustu bif­véla­virkja og bif­reiða­sölu­manna og sam­svar­andi lækkun á umsýslu­kostn­aði og vergri ávöxt­un­ar­kröfu eign­ar­að­ila. Það væri með öðrum orðum ekki fyrr en að eknum e.t.v. um 30 til 35 þús. kíló­metrum sem gjöldin færu fyrst að telja… þó vissu­lega allt eftir því hvort um væri að ræða drátt­ar­bíl með tengi­vagni, enda myndu veggjöldin af vagn­inum þá jafn­framt telja, auk þess sem næmi gjöld­unum af við­bót­ar­orkunni sem drátt­ur­inn krefð­ist.

Leigu­bíl­stjóri á raf­bíl myndi sam­kvæmt ofan­sögðu greiða 11 kr/km í veggjöld og 1 kr/km í orku­gjöld, alls 12 kr/km, sem jafn­gilda myndi um 0,7 millj. króna króna álögum á ári miðað við 60 þús. km árlegan akstur. Sam­svar­andi bruna­hreyf­ils­bíll myndi hins vegar bera 11 kr/km í álögð veggjöld, 3 kr/km í orku­gjöld og um 3 kr/km í kolefn­is­gjöld, alls 17 kr/km, sem svara myndi til um 1 millj. króna álaga á ári miðað við jafn­mik­inn akstur, um 60 þús. km.

Á móti kæmi um 2,3 millj­óna króna ábati af völdum afnáms tekju­skatta og trygg­inga­gjalda bíl­stjór­ans, auk e.t.v. 0,2 millj­óna króna vegna lækk­aðs verðs á þjón­ustu bif­véla­virkja o.fl., sem og lægri umsýslu­kostn­aðar o.þ.h. – alls e.t.v. um 2,5 millj­ónir króna. Hins vegar myndu útgjöld aukast að álögðum 13% virð­is­auka­skatti (sem er nú 0% af akstri leigu­bíla), sem svar­aði e.t.v. til 0,9 millj­óna króna við­bót­ar­á­laga á ári, að frá­dregnum inn­skatti. Heild­ar­á­bat­inn næmi því u.þ.b. 1,6 millj­ónum króna (2,3+0,2-0,9=1,6), afar gróft á litið, sem sagt að eknum 60 þús. km á ári, á móti u.þ.b. 0,7 millj­óna króna álögum á rekstur raf­bíls­ins. Vart þarf að meta hinn kost­inn, slíkur sem hvat­inn væri fyrir eig­anda bensín- eða dísil­bíls­ins að skipta yfir á raf­bíl, þá ekki síður í ljósi þess hve hreint raf­orku­verð, að frá­dregnum opin­berum álögum, myndi vera miklum mun hag­stæð­ara en hreint bensín- eða olíu­verð, að frá­dregnum sam­svar­andi álögum.

Að því gefnu að heil­brigð sam­keppni ríki, hlytu taxtar leigu­bíla að lækka, jafn­vel all­veru­lega, sem og taxtar miðl­ungi stórra vöru­bíla all­nokkuð – m.a. að teknu til­liti til þeirra olíu­á­laga sem eru nú í gildi en falla myndu niður að upp­teknu orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi. Svo algjör sem hvat­inn væri þó jafn­framt til umskipta yfir í hreina orku, að teknu til­liti til alls.

Virði samgöngumannvirkja, rekstur þeirra og afleiddur kostnaður

Samkvæmt rík­is­reikn­ingi 2021 nam virði sam­göngu­mann­virkja í rík­i­s­eigu, að frá­töldum hafnar- og flug­mann­virkjum, um 660 millj­örðum króna. Með hlið­sjón af árs­reikn­ingi Reykja­vík­ur­borgar má ætla að virði gatna­kerfa í eigu allra sveit­ar­fé­laga lands­ins liggi gróft á litið nærri 90 millj­örðum króna (vænt­an­lega að und­an­skyldu virði drýgsta hluta veitu­kerfa, und­ir­liggj­andi í götum). Öll slík mann­virki hins opin­bera, er varða vega­sam­göngur í heild sinni, kunna því að vera um 750 millj­arða króna virði, gróft á litið, að hafðri hlið­sjón af árlegu mati stofn­ana hins opin­bera m.t.t. virð­is­rýrn­unar, sem er almennt byggt á áætl­aðu end­urstofn­virði að frá­dregnum upp­söfn­uðum afskriftum. En áætlað end­urstofn­virðið (nývirðið) liggur nærri rúmum 1.000 millj­örðum króna, svo afar var­færn­is­legt sem það mat hlýtur þó að vera – jafn­vel svo að fremur bæri að líta á það sem raun­virði.

Gatna­gerða­gjöld sveit­ar­fé­laga eru ein­greiðslur sem leiddar eru af nýbygg­ingum og er þeim ætlað að standa undir hvers­konar nýrri gatna­gerð – ekki síður en undir við­haldi allra gatna (utan brauta í eigu rík­is­ins). Af því leiðir að sveit­ar­fé­lög sem búa ekki við stöðugan vöxt (fáar sem engar nýbygg­ingar) njóta engra sér­stakra tekna til að standa undir við­haldi gatna. Hér er því gert ráð fyrir að gatna­gerð­ar­gjöld myndu ein­göngu taka til nýfram­kvæmda, en að sveit­ar­fé­lög­unum væri markað ákveðið til­lag af rík­is­tekjum, m.a. með hlið­sjón af veggjöldum og hlut sveit­ar­fé­laga í heild­ar­virði vega og gatna, til að standa straum af við­haldi og almennum rekstri sam­göngu­kerfa þeirra (eðli­lega að und­an­skyldum hlut veitu­stofn­ana).

Afskriftir ein­stakra þátta sam­göngu­mann­virkja eru æði breyti­legar – svo að numið geta allt frá 1% upp í 25% – allt eftir hinum ýmsu bygg­ing­ar­hlutum og ein­ingum, hvort taki til und­ir­bygg­ingar, jöfn­un­ar­lags eða slit­lags vega, eða til brúa eða veg­ganga og hinna ýmsu hluta þeirra, eða til vegriða, umferð­ar­merk­inga og þar fram eftir götum.

[adspot]Að teknu til­liti til alls myndu vegnar raunaf­skriftir allrar heild­ar­innar vart verða vægar reikn­aðar en um 2,5% til 3% að algjöru lág­marki – sem svara myndi til um 20 millj­arða króna á ári (eða öllu nær 25 til 30 millj­örðum króna miðað við nývirði) – sem sam­svar­aði þá jafn­framt því árlega við­haldsfé sem öllu jöfnu mætti ætla að þörf væri á til að við­halda fyr­ir­liggj­andi sam­göngu­mann­virkjum ríkis og sveit­ar­fé­laga – sem sagt að u.þ.b. 750 millj­arða króna heild­ar­virði (eða öllu nær 1.000 millj­örðum króna að nývirði) – svo góðum og nýt­an­legum, að í besta falli væru þau á hverjum tíma sem næst jafn góð og ný…

Líkt og raunar, á sinn hátt, á við um allar vel við haldnar bygg­ingar (þá jafnan að miðað er við 2% afskriftir, svo vel sem þær end­ast öllu jöfnu) – að nota­gildið er almennt óháð því hvort eign­irnar séu komnar til ára sinna eða jafn­vel alda, líkt og t.d. Húsið á Eyr­ar­bakka eða Alþing­is­húsið, eða þær séu fremur nýlegar, líkt og t.d. Harpan eða fjöld­inn allur Búseta­eigna, svo örfá dæmi séu tekin.

Til við­bótar afskrift­unum, sem jafna má sem sagt til reglu­legs við­halds, má gera ráð fyrir að árlegur rekstr­ar­kostn­aður ásamt minni­háttar skamm­tíma­við­haldi næmi að lág­marki um 20 millj­örðum króna ef allt væri reiknað – að öllu því með­töldu sem felur í sér almennan rekstur Vega­gerð­ar­innar, Sam­göngu­stofu og ann­arrar sam­göngu­stjórn­sýslu, ríkis jafnt sem sveit­ar­fé­laga, sem og allra­handa vega- og umferð­ar­eft­ir­lit, innan bæja sem utan, lög­gæslu á vegum, og raunar býsna drjúgan hluta rekst­urs björg­un­ar­sveita, sem og snjó­mokstur og annað vetr­ar­við­hald (er telur eigi lítið), við­hald girð­inga, við­hald veg­stika og skilta, gatna­hreinsun og hreinsun nið­ur­falla (er æði mörg eru nú yfir­leitt stífluð!), umsjón með umferð­ar­ljósum og allra­handa veg­stýr­ingum, sem og sem sagt allt til­fallandi skamm­tíma- og bráða­birgða­við­hald – auk þess sem stuðn­ingur við rekstur almenn­ings­sam­gangna kallar og kalla mun á, stuðlandi ekki síst að greið­ari sam­göngum allrar heildar.

Þá er eftir að líta til alls þess sam­fé­lags­lega kostn­aðar sem hlýst af umferð­ar­slysum, sem er tal­inn nema um 60 millj­örðum króna á ári, til jafn­aðar, samkv. skýrslu Sam­göngu­stofu um Umferð­ar­slys á Íslandi 2021 (bls. 85), sem vart mun ofá­ætlað (m.a. í ljósi áhrifa covid-áranna til lækk­unar). Þar af má e.t.v. ætla, m.a. með hlið­sjón af árs­reikn­ingum trygg­inga­fé­lag­anna 2021, að kostn­aður af lög­bundnum og frjálsum öku­tækja­trygg­ingum nemi um 40 millj­örðum króna. Mis­mun­ur­inn, um 20 millj­arðar króna, er þá gróft á litið það verð sem ein­stak­lingar, heil­brigð­is­kerfið og almanna­trygg­ingar gjalda fyrir allra­handa tjón og slys­farir af völdum umferð­ar­innar – til við­bótar trygg­ing­ar­ið­gjöldum – og verða alvar­leg slys, örorka og dauði þó seint metin svo til fjár að til enda verði reiknað.

Að öllum þessum þáttum athug­uðum – afskriftum, er svara myndu til um 20 millj­arða króna við­halds­kostn­aðar, almennum rekstri, er svar­aði einnig til um 20 millj­arða króna, og sam­fé­lags­legum kostn­aði af völdum slysa, er svar­aði jafn­framt til um 20 millj­arða króna (að ótöldum tjóna­trygg­ingum öku­tækja) – þá má ætla að kostn­aður hins opin­bera af umferð­inni nemi a.m.k. 60 millj­örðum króna á ári (sem sagt auk þeirra u.þ.b. 40 millj­arða króna sem fólgnar eru í öku­tækja­trygg­ingum), og er þá vissu­lega alls ótal­inn allur kostn­aður við nýfram­kvæmdir!

En væri veggjöldum öllum, þeim 60 millj­arða króna árlegu gjöldum, sem hér hefur verið gert ráð fyrir, jafn­framt ætlað að mæta kröfum um hinar ýmsu nýfram­kvæmdir og bættar sam­göngur byggða og á milli – og þá ekki síður um bætt öryggi á vegum – þá væri sem sagt ekk­ert eftir til slíkrar ráð­stöf­unar…

En nýfram­kvæmdir hafa ann­ars, hin allra sein­ustu ár, numið um 15 til 20 millj­örðum króna á ári, en þeim mun almennt minna sem lengra er skyggnst aftur í tím­ann, svo æði mörg þau eru orðin, óleystu verk­efnin, sem hafa hlað­ist upp fyrir vikið…

Skýrsla Samtaka iðn­að­ar­ins, Innviðir á Íslandi 2021 -- ástand og fram­tíð­ar­horfur, sem og ekki síður hin fyrri skýrsla sam­tak­anna frá 2017, dregur upp býsna dökka mynd af áætl­aðri upp­safn­aðri við­halds­þörf þjóð­vega, sem sagt vega og brauta í eigu rík­is­ins og vega og gatna í eigu sveit­ar­fé­laga, sbr. m.a. bls. 9 og 31 í skýrsl­unni. Áætla höf­undar að upp­söfnuð við­halds­þörf þjóð­vega nemi um 110 millj­örðum króna og að sam­svar­andi við­halds­þörf sveit­ar­fé­laga­vega sé um 50 til 70 millj­arðar – að van­rækt við­halds­þörfin í heild nemi því um 160 til 180 millj­örðum króna.

Þó að mörkin milli við­halds og nýfram­kvæmda séu iðu­lega nokkuð óljós, og að ein­hverju leyti megi því ætla að matið á við­halds­þörf­inni feli í sér a.m.k. brýn­ustu nýfram­kvæmdir, má engu að síður ljóst vera að um ræðir vega­fram­kvæmdir er kynnu að krefj­ast eitt­hvað á þriðja hund­rað millj­arða króna í fjár­veit­ingar á allra næstu árum – þá jafn­framt í ljósi brýnna nýfram­kvæmda á hinum ýmsu þétt­býl­ustu slóðum, er varða bæði almenn­ings­sam­göngur og skil meg­in­um­ferða­æða frá íbúa­byggð, sem og þó ekki síður í ljósi aðkallandi nýfram­kvæmda á vegum um land allt, að ekki sé þá minnst á hinar ýmsu afskipt­ustu byggðir sem löngum hafa setið á hak­anum.

[adspot]Það hljóta því að vera áhöld um, hvort þau veggjöld, sem hér hefur verið gert ráð fyrir, um 60 millj­arðar króna á ári, séu ekki alltof lágt metin – hvað þá í ljósi alls rekstr­ar­á­batans til mót­vægis, er leiða myndi af afnámi tekju­skatta og trygg­inga­gjalda og lækkun virð­is­auka­skatts um hart­nær helm­ing á flestum sviðum.

Hlýtur það ekki ann­ars að vera lág­marks­krafa að sam­göngu­kerfið í heild sinni, þetta eitt hið fram­leiðni­væddasta svið þjóð­ar­bú­skap­ar­ins, standi a.m.k. undir útgjöldum sjálfs sín vegna? Líkt og ekki síður er gerð krafa um gagn­vart fjar­skipta­netum, dreifi­kerfum raf­orku, hita- og kalda­vatns­veitum, frá­veitum o.fl. o.fl. – svo sem þeir sam­svar­andi reikn­ingar gefa til kynna, er allir þeir sem reka heim­ili eða fyr­ir­tæki fá yfir­leitt í hendur mán­að­ar­lega. Eða því skyldi ekki hvert og eitt slíkt kerfi standa undir sér fjár­hags­lega?

Það verður því vart annað séð en að árleg veggjöld þyrftu að nema a.m.k. 80 millj­örðum króna, að minnsta kosti á meðan verið væri að vinda ofan af stærsta kúf van­ræksl­unnar. Samkvæmt því þyrfti gjaldið fyrir hvern ekinn tonn-km að vera um 8,4 krónur – til jafn­aðar – í stað 6,3 króna, sbr. nán­ari umfjöllun um veggjöldin í fyrri grein höf­undar, Sam­göngur á landi – undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi, þ.á.m. um þá gjald­þyngd sem lögð væri til grund­vallar, og um þau áhrif til hækk­unar og lækk­unar sem breyti­legt umferð­ar­á­lag og afslátt­ar­kjör hefðu frá degi til dags, frá einum tíma til ann­ars.

Samgöngur á landi – gjaldtaka og rekstrarábati í stórum dráttum

Samkvæmt því sem í greinum þessum hefur verið um fjallað myndu álögur á sam­göngur vera um það bil þessar í heild sinni undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi, að því gefnu að fremur væri miðað við hin hærri mörk veggjalda:

80 millj­arðar króna í veggjöld, um 11 millj­arðar króna í kolefn­is­gjöld og um 20 millj­arðar króna í orku­gjöld, auk e.t.v. um 12 millj­arða króna í vöru­gjöld af inn­flutn­ingi bif­reiða, sem alls myndi svara til um 123 millj­arða króna, eða sem næst 140 millj­örðum króna að með­töldum 13% virð­is­auka­skatti.

Á móti kæmi rekstr­ar­á­bati af völdum afnáms tekju­skatta og trygg­inga­gjalda og lækk­unar virð­is­auka­skatts á flestum sviðum, er næmi e.t.v. um 40 millj­örðum króna hvað öku­menn atvinnu­bif­reiða varð­aði og um 10 millj­örðum króna er leiddar væru af öðrum sam­svar­andi ábata við rekstur atvinnu­öku­tækja, vægt áætlað, eða sem svar­aði alls til um 50 millj­arða króna, sbr. í greinum þessum marg­um­fjallað. Þar til við­bótar kæmi svo hinn ýmsi ábati almennra bif­reiða­eig­enda, þá m.a. af lækkun launa­kostn­aðar bif­véla­virkja, að trygg­inga­ið­gjöld lækk­uðu þar með einnig, sem og hin ýmsu þjón­ustu­gjöld, auk þess sem næmi lækkun virð­is­auka­skatts af nýjum bif­reiðum um 11 hund­raðs­hluta, úr 24% í 13%, sem og þá sam­svar­andi af vara­hlutum og trygg­ingum. Ef þessi ábati almennra bif­reiða­eig­enda næmi alls um 25 millj­örðum króna, vægt áætlað, væri því alls um 75 millj­arða króna ábata að ræða (50 ma kr + 25 ma kr) vegna afnáms og lækk­unar skatt­heimtu hvað sam­göngur á landi varð­aði.

Um 140 millj­arða króna heild­ar­álögur að frá­dregnum um 75 millj­arða króna ábata svarar til alls um 65 millj­arða króna, sem myndi þá jafn­gilda þeirri eig­in­legu skatt­heimtu af sam­göngum á landi undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi – er bera mætti saman við það sem nú er af sam­göngum heimt. Þeir 65 millj­arðar króna myndu þá sem sagt vera sú fjár­hags­stærð, afar gróft á litið, sem væri hæf til sam­an­burðar við það sem hið opin­bera heimtir nú af þeim sama skatt­stofni…

Samkvæmt frétt á vef Félags íslenskra bif­reiða­eig­enda í febr­úar 2019 (sjá hér), sem höf­undur vís­aði jafn­framt til í fyrri grein (sbr. kafl­ann Útúr­dúr eða hjá­leið að kjarna máls­ins…), námu skattar af bif­reiðum og umferð 80 millj­örðum króna árið 2018, og má þó svo skilja á frétt­inni að þar með sé vissu­lega ekki allt talið, jafn­vel ekki virð­is­auka­skatt­ur­inn... Hvað þá að með séu taldar him­in­gnæfar álög­urnar af völdum tekju­skatta og trygg­inga­gjalda og…

Hve dæmi­gert þetta ár kann að vera, skal ósagt um látið, svo miklar eru efna­hags­sveifl­urnar sem löngum hafa snert sam­göngur sem önnur svið þjóð­lífs, að ekki sé þá talað um áhrifin af Covid hin síð­ari ár. En nokkuð ljóst má þó vera að hrein skatt­heimta – að öllu athug­uðu – myndi sann­ar­lega ekki aukast á sviði sam­gangna undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi frá því sem hún er nú og hefur verið löngum.

Jafn ljóst má jafn­framt vera að orku- og auð­linda­drifið skatt­kerfi myndi hvetja til slíks orku­sparn­aðar á öllum sviðum þjóð­lífs og atvinnu­lífs, og hvort þá ekki til orku­skipta hvar­vetna þar sem jarð­efna­elds­neyti er nú nýtt sem orku­gjafi, að í stað hálof­legra fyr­ir­heita kæmi ein­fald­lega ríku­legur hvati til að haf­ast að. Að ekki sé þá talað um hvern og einn ein­stak­ling, hvern og einn sam­fé­lags­þegn, og þá næstum því hvern ein­asta atvinnu­rekstur, allt það hand­verk, hug­verk og vél­verk er leyst væri úr viðjum skatta­á­þjánar – hve margir fengju ein­fald­lega um frjálst höfuð strokið, lausir undan dilka­drætti, him­in­hróp­andi mis­munun og ofríki léns­drottna, allrar þeirrar ofur­með­virku hirðar frí­heit­anna. Svo mjög sem af orku­aðl­inum væri þá dregið.

Enn um hinn samfélagslega reikningsskap… á heimsvísu, á landsvísu…

Framlög til við­halds og rekstrar hins opin­bera, og þá til sam­göngu­mann­virkja þess sem hvers ann­ars, helg­ast fyrst og fremst af póli­tískum vilja – af póli­tískri stefnu­mótun við öflun fjár og útdeil­ingu fjár – sem tekur þó miklu síður mið af eig­in­legri veg­ferð vel­ferð­ar­sam­fé­lags­ins, hvað þá til langs tíma litið, en af væntri veg­ferð sjálfra póli­tíku­s­anna, svo sam­ofin sem veg­ferð sú hefur löngum verið vilja drottn­ara þeirra.

Því skyldi ann­ars réttur einna vera bor­inn fyrir borð á for­sendum arð­ráns og atkvæða­veiða, þá lík­ast því sem jafnt atkvæða­vægi sé meit­lað svo í stein eða helgað af ritn­ing­unni, að einu gildi um landið og miðin, allar auð­lind­irnar, allan fram­leiðni­gróð­ann, þegar hinir mæt­ustu félags-, hag- og þjóð­rétt­ar­fræð­ingar pré­dika slíkt jafn­ræði á alþjóða­þingum, að atkvæða­vægi ein­stakra heims­borg­ara skipti raunar alls engu máli heldur ein­ungis land­fræði­legur réttur þjóða og rík­is­heilda til áhrifa­valds á heims­vísu, sama hve muna kunni þó marg­þús­und­falt á höfða­tölu ríkja, og hvort þá ekki á fram­lögum fjár til vel­ferðar og þró­unar afskipt­ustu hluta heims­byggð­ar­innar…

Því skyldu þá ekki hinar ýmsu afskiptu byggðir, svo sem Vest­firð­inga og Grímsey­inga, helga sér sinn óskor­aða hlut í fisk­veið­lög­sög­unni og þá sam­svar­andi rétt til að ráða löndum og lýðum sér við­kom­andi – sjálfir – hvort sem varð­aði mennta­mál, heil­brigð­is­mál, almanna­trygg­ingar, almenn­ings­sam­göngur, vega­mál, vatns­afl, jarð­varma eða vind? Og þá ekki síður Mel­rakka­sléttu­búar og jafn­vel öll Langa­nes­byggð, hvort ekki gætu líka gripið tæki­færið, alveg klippt og skorið eftir ítr­ustu hug­mynda­fræði hinna göf­ug­ustu haf­réttar-, lofts­lags- og mann­rétt­inda­sátt­mála, alls án íhlut­un­ar­réttar sér óvið­kom­andi jarð­ar­búa? Og jafn­vel Vest­manna­ey­ingar, að gætu séð sér leik á borði…

Vissu­lega gæti þá verið um sjálf­stjórn­ar­héruð innan rík­is­heildar að ræða, en líka sjálf­stætt banda­lags­ríki afskiptra og þó mögu­lega býsna vel­meg­andi byggða – þá að sjálf­gefnu með sama atkvæð­is­rétti og hver önnur ríki á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna – sama sem sagt hvað hver ann­ars taut­aði eða raulaði um helgi atkvæða­vægis í sinni fjöl­mennu eða þétt­setnu heima­byggð…. eða þeim mun fjálg­legar um mik­il­vægi allrar efna­hags­lög­sögu, og hvort þá ekki hinnar ítr­ustu og allt­um­faðm­andi land­helgi!

Hve djúpt sokk­inn er ekki ann­ars kostn­að­ur­inn af sam­göngu­mann­virkjum öllum í heild? svo vísað sé, til orða­lags Gylfa pró­fess­ors Magn­ús­ar­sonar, sbr. áður um fjallað í fyrri grein, um fest­ingar fjár í hinum ýmsu innviðum. Að ekki væri þá minnst á her­kostn­að­inn af öllum land­helg­is­stríðum! Hver hefur ann­ars löngum verið meg­in­upp­spretta fjár­ins, burt­séð frá því hve blóm­legan útskækil fjár­veit­inga­valdið kann að hafa valið sér til síns aðset­urs? Eða heilt yfir litið – til meg­in­upp­bygg­ingar rík­is­ins í heild? Hver hafa ann­ars sótt hvað til hvers? Hvað þá á alþjóða­vísu, hver skyldu hafa ásælst mest og grætt á hinum ann­ars afskipt­ustu byggðum, þjóðum, ríkjum? Jafnvel í krafti múta gagn­vart hinum hável­born­ustu póli­tíkusum…

[adspot]Hve auð­veld­lega gætu ekki ann­ars hinar ýmsu afskiptu byggðir kom­ist af sem sjálf­stætt banda­lags­ríki – ein­fald­lega ef þær kærðu sig um? Fámenn­ustu aðild­ar­ríki Sam­ein­uðu þjóð­anna, Tuvalu og Nauru, telja ein­ungis um eða eða innan við 11 til 12 þús­und manns hvort um sig, auk þess sem hið allra fámenn­asta allra ríkja, Vatíkanið, telj­andi ein­ungis rétt um 800 manns, vermir þar sæti í krafti áheyrn­ar­full­trúa síns, haf­andi þó jafn­framt til­lögu­rétt fyrir hönd millj­arða manns, a.m.k. sam­kvæmt próta­koll­inum…

Byggðir Vest­firð­inga, Grímsey­inga, Mel­rakka­sléttu­búa og Lang­nes­inga, telja til sam­ans vart fleiri en um 11 til 12 þús­und manns, allt þó eftir því hvar línur væru nákvæm­lega dregnar, hvort t.d. með eða án Bakka­fjarðar og þá Bakka­flóa í heild. Hvað þá í öllu víð­tæk­ari, land­fræði­legri skiln­ingi, að með­töldum 200 míl­unum öllum – öllum við­bót­ar­fermíl­unum lengst út við hið ysta haf! Og þá vissu­lega líka spurn­ing með Öxar­fjörð, Tjörnes og jafn­vel Skjálf­anda, og hvort Vopn­firð­ingar myndu vilja fljóta með og Borg­firð­ingar, a.m.k. þeir eystri… Og jafn­vel Seyð­firð­ingar, Mjó­firð­ingar… Hve mjög væri þá ekki efld brjóst­vörnin þar eystra? Nema að Gerpir yrði sá grunn- og skurð­línu­punktur sem tek­ist yrði harð­ast á um frekar en Dala­tangi eða jafn­vel Flesjartangi? Sem sagt þeim megin frá séð – hvorum megin hryggjar sem Jök­ul­dæl­ingar, Héraðs- og Egils­staða­búar kysu ann­ars að lenda, nú eða á hinn bóg­inn þarna vestra, jafn­vel spurn­ing með Skarðs­strönd og Fells­strönd, að ekki væri þá talað um Flat­eyj­arnar báðar, vestra og nyrðra… Hvað svo aftur t.d. yrði um Bjarney­inga, eða yfir höfuð að tala, hver yrðu örlög Breið­firð­inga, Dala­manna og jafn­vel Hrút­firð­inga, Ásbirn­inga… Vissu­lega, eigi ólík­lega, mætti gera ráð fyrir vax­andi hrepp­aríg og ýmis­legum klofn­ingi sveit­ar­fé­laga og byggða…

Fisk­veiði­lög­saga slíks banda­lags­ríkis tæki í öllu falli yfir býsna góðan þriðj­ung núv. 200 mílna land­helgi íslenska rík­is­ins, og þó öllu nær helm­ingi, að hafðri hlið­sjón af hlut­falls­legu vægi feng­sælla fiski­miða, þannig séð, þá vissu­lega, eigi ólík­lega, að und­an­skil­inni smá bleiðu undan Norð­ur­landi, er helg­að­ist af grunn­línu­punktum skaga og táa móð­ur­lands­ins frá aust­an­verðum Húnaflóa að Axar­firði (eða frekar Skjálf­anda?) u.þ.b. miðjum. Í ljósi land­fræði­legrar legu Kol­beins­eyjar og sögu­legra nytja Grímsey­inga af mið­unum þar allt um kring – raunar lengst aftur í aldir, raunar frá því löngu fyrir tíma ríkis Guð­mundar bisk­ups hins góða – helg­að­ist sá grunn­línu­punktur eðli­lega alfarið banda­lags­rík­inu, hvar sem ann­ars hinir ýmsu aðrir punktar og marka­línur nákvæm­lega féllu, er um væri samið… eða harðar yrði um barist…

Rétt­ur­inn til veiða á þessum einum gjöf­ul­ustu fiski­miðum heims, sem nú er deilt út árlega nán­ast sem gjöf væri – og um er því ævin­lega deilt þeim mun harka­legar – er í öllu falli um 60 millj­arða króna árlegrar rentu virði, að algjöru lág­marki, gróft á litið, í heild­ina tekið, slíkt van­mat sem það má þó vera, ekki síst í ljósi þeirrar eig­in­legu rentu sem sjálfir hand­hafar heim­ild­anna krefj­ast sér til handa er þeir bjóða sér úthlut­aðar gjaf­irnar falar hæst­bjóð­endum.

Að því gefnu að frekar fleiri en færri byggðir kysu að fylgja banda­lags­rík­inu og það myndi því telja a.m.k. 12 til 14 þús­und manns, og að fisk­veiði­lög­saga rík­is­ins væri eftir því víð­tæk­ari, kynni það að hafa um 25 til 30 millj­arða króna í árlegar lág­marks­tekjur af sölu veiði­heim­ilda, hámarkið þá sveifland­ist, allt eftir fiski­gengd og greiðslu­vilja sjáv­ar­út­vegs­ins hring­inn í kringum gjör­vallt skerið...

Tekjur af veiði­gjöldum einum kynnu því nema um 2 til 2,5 millj­ónum króna á hvern íbúa – sem sagt að lág­marki – sem svara myndi til um 6 til 7,5 millj­óna króna á hverja 3ja manna fjöl­skyldu. Gefur auga­leið að skatt­heimta slíks banda­lags­ríkis væri þá þegar orðin svo býsna vel mett að vænt­an­lega myndi nægja að inn­heimta orku­gjöld, kolefn­is­gjöld, veggjöld og umhverf­is­gjöld, þó ekki væri nema Sam­ein­uðu þjóð­anna vegna og skuld­bind­inga rík­is­ins gagn­vart heims­byggð­inni, auk fast­eigna­gjalda og erfða­fjár­skatts, til að endar tekna og gjalda hins opin­bera næðu örugg­lega saman. Vöru­gjöld væru þá raunar óþörf, og jafn­vel virð­is­auka­skatt­ur­inn... hvað sem þá ann­ars liði skatt­heimtu frænd­rík­is­ins, tekju­sköttum öllum, trygg­inga­gjöldum og him­in­háum Arn­ar­hóls­vöxt­unum, sem og þá tollum og vöru­gjöldum og svim­andi háum virð­is­auka­skatt­inum á flest­öllum sviðum, sem sagt þeim megin hryggjar…

Vissu­lega gætu Grímsey­ingar séð sér leik á borði og stofnað sitt eigið sjálf­stæða ríki, alveg einir og sér, er myndi þá vissu­lega verða smæsta aðild­ar­ríki Sam­ein­uðu þjóð­anna en jafn­framt örugg­lega hið mold­rík­asta – hvort sem tekið væri mið af vergri lands­fram­leiðslu á íbúa eða alls­herj­ar­þings-atkvæð­is­rétti (15-földum á við til­lögu­rétt Vatík­ans­ins og 25-millj­ón­földum á við full­gilt atkvæði Kína) – án þess þó að þá klofið banda­lags­ríkið missti endi­lega svo stóran spón úr aski sínum, slíkri gnægð feng­sælla miða sem það byggi samt sem áður að…

Þeir banda­lags­menn væru alla­vega ólíkt betur settir en Vest­mann­ey­ingar, ef þeir léku sama leik­inn og létu lang­þráðan draum greifynja sinna og greifa ræt­ast, þá sem sagt út og suður allt að þeim ystu 200 mílna mörk­unum – sbr. köku­sneið­ina á sunn­an­verðum upp­drætt­inum hér að ofan, með hlið­sjón af þeim hér fyrir neðan – greifa­dæmið þá raunar vart með sjálf­gef­inn aðgang nema að örlitlu broti feng­sæl­ustu mið­anna, jafn­vel svo sett afla­rýr­ustu árin að varla feng­ist baun í bala… hvað sem nú ann­ars líður úthlutun hart­nær tíunda hluta allra afla­heim­ilda íslenska rík­is­ins til þeirra örfáu Eyjapæja og peyja sem löngum hafa setið að fengnum…

Þarf ann­ars Sturl­unga­öld til að binda enda á margra ára­tuga arð­rán og mis­skipt­ingu þess auðs sem rík­is­vald­inu hefur þó lengstum legið til grund­vallar sem sjálf­stæðs afls í sam­fé­lagi þjóða?

Hvers virði er ann­ars slíkt ríki sem mis­munar þegnum svo gróf­lega, að hinar opin­beru álögur, til rekst­urs rík­is­ins, taka fyrst og fremst til launa og launa­tengdra gjalda, sem sagt til brauð­strits­ins, en svo miklum mun síður til ávinn­ings af orku og auð­lindum – sem sagt til ávinn­ings af fram­leiðni – að ekki sé þá talað um allan fram­leiðni­gróð­ann af koltví­ild­isauðgun jarð­ar­innar…

Fyrir vikið þríf­ast heilu frí­ríkin á meðal vor, reyndar slíkar auð­valds- og orku­stöðvar að við fátt verður líkt annað en herra­garða og léns­ríki aðals og hirðar fyrri tíma, slík sem eru skatt­fríð­indin, svo lítt sem rekstur vel­ferð­ar­sam­fé­lags kemur þá við sögu – nema sem sagt í tax-free sam­fé­lögum inn­múr­aðra frí­heit­anna.

En þyki svo sjálf­sagt að skipta skatt­tekjum af mannauði og t.d. sam­göngu­auði sem næst eftir þétt­leika byggða eða höfða­tölu – þá er að fjár­veit­ingum kemur – hvers vegna, yfir höfuð, gildir þá ekki hið sama sjón­ar­mið gagn­vart sjáv­ar­auð­lindum, orku­auð­lindum, hinum marg­vís­legu nátt­úru­auð­lindum? Sem sagt jafnt hvað varðar álögur sem fjár­veit­ingar hins opin­bera…

Því skyldu þá ekki hinar afskipt­ustu byggðir setja sér sín eigin lög og sína eigin stjórn­ar­skrá, til grund­vallar sínu eigin frí­ríki, ef þeim svo sýnd­ist, þó ekki væri nema með vísan til hinna marg­vís­leg­ustu haf­réttar-, lofts­lags- og mann­rétt­inda­sátt­mála alþjóða­sam­fé­lags­ins? Hvernig sem sjálftöku gamla móð­ur­rík­is­ins þá ann­ars reiddi af, gróða­pungum öllum og gleðipinnum, Skaups­ins stjórn­urum norðan sem sunnan heiða…

[adspot]Hver er ann­ars hvat­inn að öllum tví­skinnungnum? Liggur heilög bók ríkjum til grund­vallar? Eða því skyldu t.d. Ásbirn­ingar, nú eða þá sam­herjar þeirra, eiga sér ein­hvern einka­rétt á að ræna og rupla björgum ann­arra fram á Kol­beins­eyj­ar­hrygg eða jafn­vel lengst vestur á Hala, jafn­vel allt út á Reykja­nes­hrygg og Rauða torg, og hvort þá ekki í öllum mögu­legum smugum? Jafnvel í því augna­miði einu að fá ginið yfir sem sjálf­virkustum sjoppu­rekstri sunnan heiða, as tax-free as possi­ble, svo alltof marg­slungin sem þau eru orðin, kvóta­kaupin – og jafn­vel dýr­keypt! – jafn­vel þarna lengst suður í henni Namibíu. Ellegar ein­hverjir álgreifar fái helgað sér sinn einka­rétt á heilu og hálfu heið­unum, og hvort þá ekki heilu bæj­unum og hálfu sveit­unum, til að mala sitt gráa gull, sinn tax-free gróða, kaup­fé­lögum sínum til upp­hafn­ingar, alþjóð­leg­ustu kaup­höll­unum til lofs og dýrðar… Jafnvel skyldi heilu fjöll­unum fórnað og sönd­unum – og hvort þá ekki tax-free! – svo sjálf­sagt sem það þá líka sé að aka bók­staf­lega land­inu í burtu um nán­ast tax-free veg­ina.

Hvers virði eru ann­ars slík ríki sem bein­línis hvetja til ofur­fríð­inda á sumum sviðum en til þeim mun þyngri álaga á öðrum? Og eftir því sem fríð­inda­bú­skapnum vex ásmegin, og þá ágengnin gagn­vart nátt­úr­unni og afar tak­mörk­uðum auð­lindum jarðar á flestum sviðum, fyrir bless­un­ar­ríka náð og miskun Vatík­ans­ins – og hvort þá ekki hag­fræði- og heim­speki­deilda háskól­anna! – þeim mun æ þyngra vegur sem sagt brauð­stritið í kokka­bókum vel­ferð­ar­rík­is­ins, eðli tekju­skatt­kerf­is­ins sam­kvæmt.

Hverra eru ann­ars ríkin? Til hvers og til hverra var ann­ars til þeirra stofnað?

Sama hve megi ann­ars deila um mark­mið og leiðir, þá til­einkar höf­undur grein­arnar bar­áttu­mann­eskj­unni sem VAR, ER OG VERÐUR BIRNA (frá Borg­ar­firði eystra, sem sagt þeim eystri…)

Höf­undur er áhuga­maður um auð­fræði, mann­líf og nátt­úru­vernd

Tit­il­mynd grein­ar­innar: Sýn­is­horn bómull­ar­verka eftir Niraja Cheryl Lorenz – sjá nánar: www.saqa.com/art/juried-artists/niraja-lorenz

Fyrri hluti grein­ar­innar, Sam­göngur á landi – undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi, birt­ist í Kjarn­anum 12. nóv­em­ber 2022. Grein­arnar eru nátengdar greina­flokki höf­undar um Herra­garð­inn, sem birt­ist í Kjarn­anum á árunum 2020 til 2022 – sjá hér: 1. grein, 2. grein, 3. grein og 4. grein.

Ítarefni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár