Herragarðurinn – orkan og almúginn

Árni B. Helgason fjallar um marg­slungin áhrif skatta og gjalda á sam­fé­lög jarð­ar­búa – hve þung­bærar álögur alls þorr­ans eru en þeim mun létt­bær­ari byrðar orku­freks aðals­ins, svo ofur­hlað­inn sem hann er skatt­fríð­indum.

Hér er fram haldið frá fyrri grein, Herra­garð­ur­inn – og vér orku­að­all­inn, er birt­ist í Kjarn­anum 14. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Fjallað hefur verið um meg­in­drætti hins tekju­drifna skatt­kerfis, það er vel­ferð­ar­ríkið hefur löngum átt allt sitt undir, og hins vegar um afleið­ingar þess að fót­unum væri bók­staf­lega kippt undan kerf­inu. Skatt­inum væri þá þeim mun fremur miðað að orku og auð­lindum jarðar, að sjálfum rótum vel­ferð­ar­innar, en að ávöxtum vel­ferð­ar­innar.

Fljótt á litið mætti ætla að í sama stað kæmi niður hvor skatt­stofn­inn væri. Svo er þó alls ekki, enda myndi vel­ferð­ar­ríkið þá eigi lengur skatt­leggja svo mjög sjálft sig – sem sagt nær­ast á eigin skinni, á eigin vel­ferð sinni – að tekju­drifnu skatt­kerf­inu aflögðu, heldur fyrst og fremst hafa tekjur af gjöldum fyrir marg­vís­leg orku- og nátt­úr­u­not, og þá einmitt ekk­ert síður þró­un­ar­ríkið eða nýmark­aðs­ríkið, skatt­lendan eða gamla hjá­lendan eða nýlendan – í sínum marg­vís­legu nútíma­myndum.

Hver er ann­ars eig­in­legur skatt­stofn vel­ferð­ar­rík­is­ins, er nær­ist ekki bara á eigin skinni (svo skamm­góður vermir sem það nú er) heldur byggir til­veru sína ekki síður á vöru- og þjón­ustu­skiptum við almúga út um allan heim, er yfir­leitt má láta afurðir sínar af hendi á lægsta mögu­lega verði í skiptum fyrir ofur­skatt­lagðar afurðir vel­ferð­ar­þegn­anna? Einmitt ekki svo ólíkt – á sinn þó ger­ó­líka tækni­máta – og til að mynda ein­kenndi milli­ríkja­við­skipti á tímum Róma­veldis og jafn­vel hins enn forn­ara heims­veldis Alex­and­ers mikla.

[adspot]Liggja þar ekki einmitt rætur skatt­tekn­anna að drjúgum hluta – í skatt­lendum út um allar jarðir? Í ágóða af fjölda­fram­leiddum lág­verð­s­af­urðum lág­launa- og lág­skatta­rík­is­ins – í hreinum ágóða af afurðum sem flestar eru leiddar af allra­handa orku og nátt­úru­auði jarðar og þá jafn­framt ekki síst nú í seinni tíð af æ frek­ari koltví­ild­isauðgun jarð­ar­innar...

Ræturnar svo á hinn bóg­inn að finna í gagn­kvæmum vöru- og þjón­ustu­við­skiptum vel­ferð­ar­þegn­anna sjálfra, þar sem tekju­skattur myndar yfir­leitt drýgstan hluta afurða­verðs alls þess sem manns­höndin kemur nálægt, jafnt til heima­brúks sem og þá að sjálf­sögðu einnig til útflutn­ings– þá einmitt í skiptum fyrir fjölda­fram­leiddan lág­verðsinn­flutn­ing­inn, vart með hinum minnsta skatt­eyri af launum eða rekstri fólgnum í útflutn­ings­virði lág­launa­rík­is­ins, hvað þá heldur af nýttri orku eða af hrá­efnum – nema reyndar af olíu. Hvað þá að kolefn­is­gjöld á hinum ýmsu fram­leiðslu­stigum telji í skásta falli nema lítið brota­brot heild­ar­virð­is­ins.

Þeim mun ríku­legri er þá tekju­skatt­ur­inn af öllum virð­is­auk­anum – af launa- og rekstr­ar­tekjum sem eru leiddar af marg­vís­legri umsýslu með inn­flutn­ings­af­urð­irnar í vel­ferð­ar­rík­inu, auk sjálfs virð­is­auka­skatts­ins, að sjálf­sögðu, auk þess sem drýgsti hluti hönn­unar og mark­aðs­setn­ingar lág­verð­s­af­urða lág­launa­rík­is­ins er gjarnan á hendi vel­ferð­ar­rík­is­ins fyrst og fremst og því skatt­lagður þar.

Orku- og auð­linda­drifið skatt­kerfi hamlar hins vegar gagn­gert gegn sólundun orku og ann­ars nátt­úru­auðs, gegn umhverf­is­spjöllum og ómældum koltví­ild­isauð­g­andi fríð­ind­unum er löngum hafa verið leidd af nátt­úru­gæðum út um allar jarðir undir hinu við­tekna, tekju­drifna skatt­kerfi. Enda væru tekjur hins opin­bera þá einmitt ekki síst leiddar af allra­handa sóun orkunnar og nátt­úru­auðs­ins, af allri ofgnótt fríð­ind­anna, en þeim mun miklu síður af erf­iði alls almúg­ans, þess hluta jarð­ar­búa er upp til hópa aflar sér lífs­við­ur­væris í sveita síns and­lits, sumir jafn­vel baki brotnu.

Það er að vonum að António Guterres hafi ekki fengið nema 4 Likes, nú þegar hart­nær fjórir mán­uðir eru liðnir síðan hann birti grein sína um Brýnasta erindi heims­ins í Stund­inni þann 10. des­em­ber s.l. Enda hlýtur flest annað að vera brýnna að áliti oss orku­að­als­ins en að vér látum oss líka við slíka fram­tíð­ar­sýn sem er þunga­miðjan í boð­skap aðal­rit­ar­ans: "Það er kom­inn tími til að verð­leggja kolefni," segir hann. "Binda verður enda á nið­ur­greiðslur jarð­efna­elds­neytis. Stöðva verður bygg­ingu nýrra kola­orku­vera. Færa verður skatt­byrð­ina frá tekjum yfir á kolefni, frá skatt­greið­endum til þeirra sem menga."

Vægi hug- og handverks – á vogarskálum auðlindagróðans

Tekju­skattar leggj­ast sann­ar­lega af mestum þunga á þær greinar sem eru í senn mann­afls­frekar og lítt orku­krefj­andi. Þeim mun minni eru hins vegar skatt­gjöld hinna orku­frek­ari greina og vinnu­afls­fá­tæk­ari – og hin sam­fé­lags­lega ábyrgð þeirra greina þá að sama skapi miklum mun naum­ari. Enda er skatt­byrðin fyrst og fremst borin af fjöld­anum öllum sem starfar við upp­fræðslu og menntun, við heil­brigð­is­þjón­ustu, við stjórn­sýslu og alls kyns sér­fræði, við for­ritun, við gagna­öflun og gagna­miðlun, við fjar­skipti og fjöl­miðlun, við hönnun og listir, við verslun og þjón­ustu, við alls kyns sér­smíði og rað­smíði, við hug- og hand­verk af öllu tagi – í stuttu máli sagt, við allra­handa þjón­ustu og verk til við­halds sam­fé­lögum í bráð og lengd...

Tekju­skattar laun­þega og rekstr­ar­tekju­skattar lög­að­ila (að með­töldum trygg­inga­gjöldum) mynda til sam­ans lang­mestan hluta opin­berra gjalda af heild­ar­tekjum rekstrar. Því tækni­vædd­ari og orku­frek­ari sem rekstur er, þá er vægi vinnu­afls og opin­berra gjalda í heild miklum mun lægra. Auð­linda­gróð­inn er þá þeim mun meiri og skatt­fríð­indin af nýrri fjár­muna­myndun, hinni skatta­frá­drátt­ar­bæru ávöxtun gróð­ans. Tekju­af­gangur hinna vinnu­afls­frek­ari greina er þá á hinn bóg­inn minni sem nemur vægi mannauðs­ins og skatt­arnir eftir því þung­bær­ari og þar af leið­andi fjár­muna­skort­ur­inn, njóti þær ekki bein­línis náð­ar­sam­legra styrkja – per­sónu­af­sláttar í drjúgum mæli, núllskatts eða lægstu skatt­þrepa virð­is­auka eða ann­arra nið­ur­greiðslna þaðan af meiri eða minni, bít­and­ist og um sér­út­hlut­aða styrki á for­sendum menn­ing­ar­legs gildis eða göfgi starfs­greina. Líkt og hund­ur­inn Tobíasar Mindernickels mátti ýmist þola höggin hús­bónda síns eða gælur. Hinar ýmsu drott­ins útvaldar sér­greinar þó ávallt aðnjót­andi góðs atlætis auð­linda­gróða­grein­anna.

Sann­ar­lega fleytir skatt­laus orku­að­all rjómann. Hráefni og auð­lindir jarðar mynda höf­uð­stól gróð­ans enda leitar fjár­muna­mynd­unin þangað þar sem skatt­fríð­indin eru mest – eðli­lega eigi líkt og klár­inn þangað sem hann er kvaldastur. Móðir Jörð er mjólkuð til þrautar, með því hug­ar­fari að sælla sé að þiggja en gefa til baka, enda njóta vissu­lega ófáir orkunnar, nær tak­marka­lausra orku­fríð­ind­anna. Eru þeir þó miklum mun fleiri sem hafa afskap­lega fátt af auðgi og ork­u­nytjum jarðar að segja, strit­andi í sveita síns and­lits við mis­jafnt atlæti og und­an­rennu, nema að svo vilji þó til að þeir fram­leiði hinar orku­rík­ustu afurðir og neyslu­varn­ing úr hrá­efnum hennar og auð­lindum, orku­frekri hirð aðals­ins til nytja og afnota, auð­g­andi þó allt­ént koltví­ild­is­hjúp jarðar.

Það er meg­in­regla um allan heim að kostn­aður rekstr­ar­að­ila kemur til frá­dráttar heild­ar­tekjum áður en álagn­ing rekstr­ar­tekju­skatts kemur til álita. Ekki er þá ein­ungis kostn­aður við vinnu­afl og orku frá­drátt­ar­bær heldur nán­ast allt, ein­ungis svo lengi sem skatt­heimtu­maður gerir ekki athuga­semdir – sem ger­ist afar sjaldan og þarf þá mikið að koma til. Fátt er því arð­væn­legra og væn­legra til sig­urs í sam­keppni en að nota afgang (hagn­að­inn) af reglu­legum rekstri, gjarnan með til­styrk hæfi­legra eða þeim mun meiri lán­taka, til efl­ingar slíkri tækni sem minnstan kostnað ber, sem minnsta skatta af vinnu­afli og rekstri, til fram­tíðar litið.

Á flestum sviðum er rekstur því dæmdur til vaxtar með sem allrar minnstrar byrði skatta, ella fer hann hall­oka í sam­keppn­inni og hlýtur að lokum að verða undir. For­sendur sam­keppn­innar eru því fólgnar í fjár­fest­ingum er miða að sem minnstri sam­fé­lags­legri ábyrgð, enda er það fyrst og fremst skatt­laus orku­að­all­inn sem keppir um gróð­ann.

Aug­ljós­lega hlýtur nýliðun að eiga undir högg að sækja í slíku umhverfi, enda nýgræð­ingar nán­ast dæmdir til skatta­á­þjánar og von­lausrar keppni við risa­eðl­urnar sem hreiðrað hafa um sig í skattaparadísum jarðar, hik­andi ekki við að neyta afls­munar ofurefl­is­ins er hið skatta­lega rík­is­vald út um allar jarðir hefur ljáð þeim, svo gróf­lega mis­mun­andi þegnum sínum. Áskotn­ast reyndar sífellt fleirum ofureflið í vöggu­gjöf, lít­andi frek­lega á það sem guðs­gjöf er eigi verði því frá þeim tekin, ekki frekar en hver önnur silf­ur­skeið með­fædd í munni til að rappa með.

Sama þótt smá­at­vinnu­rek­andi skrifi kló­settið heima hjá sér og hand­laug­ina á rekst­ur­inn, flest heim­il­is­tækin, sófa­settið og 90% útgerðar einka­bíls­ins, auk drýgsta hluta ferða­laga, fæðis og klæðis, þá má hann sín einskis gagn­vart rík­ustu bræðrum sínum og systrum í synd­inni sem hika ekki við að reka einka­þotur sínar, Man­hatt­an­hæðir og lysti­snekkjur undir alls kyns höttum fyr­ir­tækja og dótt­ur­dótt­ur­fyr­ir­tækja og kom­ast upp með það, ekki síst með enda­lausum milli­færslum úr einum stað í annan, með enda­lausum milli­lend­ingum heims­álf­anna á milli og aflandseyj­anna, en við stjórn­völ bók­halds­vél­anna sitja lög­giltir end­ur­skoð­endur og skatta­laga­sér­fræð­ingar mak­andi krók­inn, kjams­andi á nýgræð­ingum í bónus.

Þotunum er flogið undir yfir­skini við­skipta­ferða, sama hve skemmt­unin er mikil, þotu­liðs­ins um borð, út um allar jarðir. Sem og rekstur snekkja og glæsi­býla færður sem hreint tap undir yfir­skini skorts á leigu­tekjum, enda leigan yfir­leitt reiknuð við fátækra­mörk, og allt tapið að lokum fært til frá­dráttar opin­berum gjöldum í bókum móð­ur­fé­lags, alls burt­séð frá raun­veru­legu ríki­dæmi félags – ríki­dæmi eig­end­anna. Sem og rekstur einka­bif­reiða, laun einka­bíl­stjóra, þjórfé, hót­eldvalir, máls­verðir, enda­lausar ráð­stefnur til yfir­dreps, gleð­skapur og veislur. Skratt­anum ávallt skemmt á bók­halds­legan kostnað skatts­ins – sam­fé­lags­ins sem má blæða fyrir fríð­indin.

[adspot]Allt er þetta þó smá­ræði hjá skatt­fríð­ind­unum sem rekstr­ar­heild­irnar njóta þeim mun fremur um allar jarðir sem aðgang­ur­inn að orku og nátt­úru er lægra met­inn, frírri og frjáls­ari – og bók­halds­leg flóra rekstrar eftir því marg­slungn­ari að sam­setn­ingu, flækju­stig eign­ar­halds for­skotn­ara og stig­veldi fyr­ir­tækja­fán­unnar fjöl­skrúð­ugra. Enda vaxa fríð­indin eins og gorkúlur á haugum skjól­sælla skatta­skýl­anna. Út um allar jarðir, álfur og eylönd.

Samfélagsleg samábyrgð

Með orku­drifnu skatt­kerfi og afnámi tekju­skatta missa gróða­myllur aðals­ins mátt sinn og megin. For­rétt­indi orku­greifa eru þá að sjálf­gefnu afnumin, jafnt sem greifynj­anna, enda mynda þá sjálf orku­notin – öll hag­ræn nýt­ing nátt­úr­unnar, nýt­ing auð­linda jarðar – meg­in­skatt­stofn­inn. Gildir þá raunar einu hvað á í hlut, málm­bræðsla eða ræktun jarð­ar­innar, ráð­stefnu­hald eða raf­magn­aðir tón­leikar, auð­linda­kvóta­brall, kaup á þotu, báti eða bíl, kaup á heitu vatni, raf­orku, olíu eða vetni eða bara kaup á salti í graut­inn – öll orku- og nátt­úr­u­not á öllum stigum rekstrar jafnt sem á öllum stigum neyslu fær­ast til opin­berra gjalda, allt eftir vægi hag­nýt­ingar, notk­unar og neyslu – og vægi meng­unar, þó nú væri – allt frá rótum.

Skipting heild­ar­tekna rekstrar, fram­leiðslu- og þjón­ustu­virðis í heild sinni, er þá aftur á móti alfarið og ein­göngu háð tví­hliða sam­komu­lagi launa­greið­enda og laun­þega­hreyf­ingar, án skatta­legrar íhlut­unar hins opin­bera. Væru enda allir árs­reikn­ingar uppi á borðum og kaup­hall­ar­við­skipti öllum opin­ber, sem og skatt­skil og ofur­orku­reikn­ingar. Und­an­skot skatta af tekjum heyra þá eðli­lega sög­unni til, enda hlýtur slíkur verkn­aður að vera merk­ing­ar­laus í tekju­skatts­fríu hag­kerfi. Opinbert skatta­eft­ir­lit snýr þá fyrst og fremst að eft­ir­liti með afnota­gjöldum vegna orku­nota og ann­arra hag­rænna nota af nátt­úr­unni, þ.á.m. vegna fast­eigna, mann­virkja af öllu tagi og sam­gangna, auk hefð­bund­ins eft­ir­lits með greiðslu vöru­gjalda, virð­is­auka­skatts, líf­eyr­is­gjalda o.fl. En skatta­skjólin væru þá að sjálf­gefnu jafn ber­strípuð og skjól­stæð­ingar þeirra.

Heild­ar­rekstr­ar­reikn­ingur allra greina lækkar sem nemur afnámi tekju­skatta en orku- og nátt­úru­gjöld leiða aftur á móti til hækk­unar. Álögur í heild lækka mest á meðal hug­verks- og hand­verks­greina en hækka hins vegar þeim mun fremur sem greinar eru háðar ofur­orku, ofur­tækni og miklum nátt­úr­u­notum – og þá ekki síst mengun. Virk sam­keppni leiðir þá til verð­lækk­unar á útseldri vinnu og útseldum verkum hug- og hand­verks­háð­ustu grein­anna, jafnt einka­rek­inna sem af hinu opin­bera, en almennt til hækk­unar á afurða­verði hinna orku­háð­ustu greina – hvað þá mengun háðustum. Afurða­verð greina sem eru miðl­ungi háðar hug- og hand­verki og miðl­ungi háðar orku og nátt­úr­u­notum mun hins vegar hald­ast nokkuð svipað, enda mun afnám tekju­skatta þá nokkurn veg­inn vega á móti hækk­andi orku- og nátt­úru­gjöldum.

Opinber rekstur er almennt lítt háður orku og miklum nátt­úr­u­notum en er þeim mun háð­ari marg­vís­legu mann­afli – hug­verki og hand­verki. Útgjöld hins opin­bera lækka því veru­lega undir orku­drifnu skatt­kerfi, svo mjög sem þá dregur úr sköttum er hið opin­bera leggur á sjálft sig, á sitt eigið skinn, enda starfs­menn og verk­takar þess á hinum ýmsu stigum, jafnt sem hverjir aðrir, þá lausir undan tekju­sköttum. Þar af leið­andi minnkar til muna reikn­ings­leg hlut­deild hins opin­bera í heild­ar­virði lands- og heims­fram­leiðslu.

Skyldi þó ekki síður til þess líta, hve orku- og nátt­úru­gjöld hvetja til þeim mun meiri sparn­aðar sem fram­leiðslu- og þjón­ustu­svið eru orku­frek­ari, og þá einmitt yfir­leitt mann­afls­fá­tæk­ari.

Reikn­ings­leg mæli­stika lands­fram­leiðslu í heild mun því skreppa þeim mun frekar saman undir orku­drifnu skatt­kerfi sem vægi hins opin­bera er meira og þjóð­fé­lags­rekst­ur­inn í heild er ofur­orku­drifn­ari – en raun­virði og skil­virkni allrar fram­leiðslu og þjón­ustu, einka­rek­innar jafnt sem opin­berrar, eykst þeim mun fremur með vax­andi nýtni orkunnar og hag­felld­ari nátt­úr­u­notum, enda er nátt­úran þá ekki lengur ókeypis, né þá heldur mann­aflið, hug- og hand­verkið, tekju­sköttum þrúgað.

Þó að taflan ORKUDRIFIÐ SKATTKERFI í fyrri grein (sbr. mynd þar nr. 6) feli í sér óbreytta nið­ur­stöðu vergrar heims­fram­leiðslu (GDP) frá töfl­unni TEKJUDRIFIÐ SKATTKERFI þar fyrir ofan (sbr. mynd þar nr. 5), þá er það ein­ungis sett svo fram til mik­illar ein­föld­unar. Í reynd myndi orku­drifið skatt­kerfi fela í sér mun lægri reikn­ings­legar nið­ur­stöður fram­leiðslu og þjón­ustu en þar er lýst, enda myndi hið opin­bera langt í frá skatt­leggja sjálft sig svo ákaf­lega undir orku­drifnu skatt­kerfi sem raun ber vitni undir hinu klass­íska, tekju­drifna kerfi.

Það er ekki síst fyrir áhrif af þessum sköttum og gjöldum er hið opin­bera leggur á sjálft sig, á sín eigin útgjöld, að verð­lag er almennt þeim mun upp­skrúf­aðra sem hag­kerfi eru þró­aðri. Hið opin­bera, þessi langstærsti greið­andi opin­berra gjalda um flestar jarðir, a.m.k. í öllum vel­ferð­ar­ríkjum, nær­ist sem sagt þeim mun fremur á eigin skinni sem vel­ferð­ar­bú­skap­ur­inn er þró­aðri.

Með afnámi tekju­skatta hverfur þetta inni­stæðu­lausa hring­sól fjár­streymis um fjár­hirslur hins opin­bera að miklu leyti, með þeim afleið­ingum að reikn­ings­leg lands­fram­leiðsla lækkar að tölu­gildi til mik­illa muna, reyndar með auknu raun­virði og meiri skil­virkni allrar fram­leiðslu og þjón­ustu, einka­rek­innar jafnt sem opin­berrar, undir hinu orku­drifna skatt­kerfi – svo sem höf­undur lýsir m.a. í grein­inni Orkupist­ill handa hag­fræð­ingum, í Kjarn­anum 23. nóv­em­ber 2019. Með Ísland fyrir dæmi er þar sýnt fram á að undir orku­drifnu skatt­kerfi myndi 3.000 millj­arða króna lands­fram­leiðsla skreppa saman um fjórð­ung að tölu­gildi, gróft á litið, enda stæði hið opin­bera þá eigi lengur í skatta­legu stríði við sjálft sig né heldur væri nokkur annar rekstur þving­aður í slíka þum­al­skrúfu skatta sem leggj­ast á skatta og aftur skatta, svo sem leiðir af hinu tekju­drifna skatt­kerfi.

Þeim mun van­þró­aðri sem hag­kerfin hins vegar eru, og laun þar með lægri og skattar hlut­falls­lega enn lægri, því síður gætir þess­ara áhrifa skatta­skrúf­unnar – en vel­ferð­ar­kerfin eru þá þeim mun veik­ari, eðli máls sam­kvæmt. Með auknum gjöldum af orku- og nátt­úr­u­notum í van­þró­uðum löndum og þá með sam­svar­andi auk­inni tækni­væð­ingu og auk­inni sam­neyslu, færi vel­ferðin jafnt og þétt vax­andi, en í þró­uð­ustu neyslu­ríkjum myndu til­tölu­lega há gjöldin á hinn bóg­inn stemma stigu við ofgnótt neysl­unnar og þar af leið­andi, með sífellt bættri nýt­ingu á afurðum nátt­úr­unnar, fara lækk­andi.

Forsendur velferðarbyltingarinnar

Vel­ferð­ar­bú­skapur meðal mann­kyns á rætur sínar að rekja til jarð­efna­elds­neytis fyrst og fremst og gríð­ar­legrar sóunar á hrá­efnum jarðar. Fyrir tíma iðn­bylt­ingar var ákaf­lega lítið til skipt­anna nema á meðal fámennrar yfir­stéttar sem réði yfir rent­unni af gróðri jarðar. Sól­ar­orkan var upp­spretta nær alls vaxtar en vind­orka og fall­vatns­orka nýtt­ust þó til að knýja hinar ýmsu myllur og vélar, reyndar fyrir frum­afl sól­ar­innar.

Fram­leiðni vinnu­afls – verð­mæta­sköpun starfa í hinum ýmsu atvinnu­greinum – var á flestum sviðum háð þjálf­uðu hand­verki og afli vinnu­dýra, auk þess sem áorkað var með vind­inum og vatns­afl­inu á fáeinum sviðum. Hug­verksiðja var löngum nær ein­vörð­ungu í höndum fjöl­mennrar presta­stéttar og munka en bók­hald­arar og skrif­arar héldu ann­ars fjöð­ur­stöfum versl­un­ar­verks og stjórn­sýslu gang­andi, auk þess sem fáeinir mennta­menn lögðu af mörkum undir hand­ar­jaðri aðals­ins.

Það er fyrst með prent­bylt­ing­unni undir lok mið­alda að hug­verk öðl­ast sess sem slíkt skap­andi afl að um munar, jafn­vel svo að kirkju­legu valdi er ógnað og trú­ar­brögðum svo og siðum að hrikta tekur í stoðum ansi harka­lega. Og rak þá brátt hver bylt­ingin aðra, blæð­andi prents­vertu, svita og tárum, menn­ing­ar­heima á milli. Vís­inda­bylt­ing leiðir af sér upp­lýs­inga­bylt­ingu, bylgju þekk­ing­ar­strauma sem bornir eru uppi af sífellt þró­aðra prent­verki sem stuðlar að útbreiðslu tækni­þekk­ingar er leiðir til iðn­bylt­ingar er hraðar svo þróun prent­verks­ins að öll önnur tækni­svið blikna. Þetta er þróun sem enn sér ekki fyrir enda á – þróun frá æ hrað­virkara papp­írs­prenti til æ hrað­virkara skjá­prents, til æ gervi­greind­ari hug­bún­aðar og bylt­ing­ar­kennd­ari sýnar.

Samt hefur iðn­bylt­ingin sneytt hjá svo stórum hlutum heims­byggð­ar­innar að vel­ferð­ar­bú­skap­ar­ins gætir þar vart enn. Net­sam­skipti eru engu að síður mögu­leg nær alls staðar og upp­lýs­ingar streyma óheftar um allar jarðir. Engum dylst því lengur hve orkunni er mis­skipt né hve afleið­ing­arnar af skefja­lausri notkun hrá­efna og jarð­efna­elds­neytis eru dýr­keyptar – og þó einkum þeim skað­væn­legar sem minnstrar orku neyta, svo miklum mun trygg­ari er lífs­af­koma þeirra sem sóa henni. Ber þá sjálfur orku­að­all­inn síst skarðan hlut frá borði, enda fela hin hag­fræði­legu trú­ar­brögð í sér slík sjálf­gefin fríð­indi að fjöld­inn allur hinna orku­rík­ustu skyldi hólp­inn verða – svo lengi sem trú­ar­brögðum ekki verður bylt og kirkja orku­á­trún­að­ar­ins koll­varp­ast.

Eilífðarvélarnar – og kolefnisforðinn í jörð

Aflgjafar eru þeim mun sjálf­bær­ari sem þeir útheimta minna af for­gengi­legri vinnu, orku, þeim til við­halds – og end­ur­nýj­unar. Eilífð­ar­vélar á borð við tunglið, helsta afl­vaka sjáv­ar­fall­anna, og sól­ina, sem knýr jafn­framt vinda og regn og ljóstil­lífun, krefj­ast engrar utan­kom­andi orku, ekki frekar en jörðin á sinn hátt, að því leyti að hún býr yfir innri eilífð­ar­orku sem leiðir af sér allra­handa varma­virkni og jarð­hrær­ingar og ummynd­anir jarð­skorpunnar.

[adspot]Þessir þrír hnettir búa því allir yfir sjálf­stæðu afli, hver á sínu vísu, sem á sér rætur í orku er þeir öðl­uð­ust fyrir millj­örðum ára og sem end­ast mun þeim til millj­arða ára enn, að vísu ekki alveg til eilífðar að altækum skiln­ingi en þó næstum því, að afar tak­mörk­uðum skiln­ingi okkar manna á eig­in­legum afskriftum.

Það eru vissu­lega sam­verk­andi eilífð­ar­kraftar þess­ara hnatta þriggja – sólar og jarðar fyrst og fremst og þó einnig tungls­ins – sem stuðlað hafa hver og einn á sinn hátt að tuga og hund­raða millj­óna ára ferlum gríð­ar­legrar bind­ingar orku­ríkra kolefna í jörð, þó að mjög mis­jafn­lega hafi kraft­anna gætt.

Menn hafa samt sýnt fram á með kröftum sínum að þetta eru í raun­inni mjög auð­los­an­legar birgðir og alls ekki svo gríð­ar­legar, þannig séð, hvað þá heldur að þær hlytu að vera bundnar þarna til eilífð­ar­nóns. Hafa menn bein­línis sannað óum­deil­an­lega, einkum og sér í lagi fyrir gríð­ar­legan hvata hinna skatta­legu fríð­inda, að ein­ungis á einum manns­aldri má hæg­lega klára drýgsta hluta þess sem nú eftir leifir af nýt­an­legum kolefn­is­forða, og aðgengi­leg­asta hlut­ann reyndar á fáeinum ára­tugum – og þá auðga jafn­framt svo loft­hjúp jarðar af koltví­ildi að ógni ekki ein­ungis lífs­skil­yrðum heilu kyn­slóða manna til langrar fram­tíðar litið heldur einnig afkomu heilu líf­ríkj­anna á jörð.

Lánist mönnum hins vegar að beisla afl og sjálft gang­verk eilífð­ar­vél­anna án mik­illar fyr­ir­hafnar, án mjög for­gengi­legrar vinnu og mik­ils land­rýmis, þá upp­skera þeir þeim mun var­an­legra afl og því lægri raunaf­skriftir sem minni krafta er þörf til við­halds afl­stöðv­unum.

Virkjun kjarna­sam­runa kann þó með tíð og tíma að skapa slíkt afl og gnægtir hreinnar orku að vart verði mik­illa ann­arra eilífð­ar­krafta þörf. Ekki fremur en að meira land­rýmis muni þá verða þörf undir hverja orku­stöð en kraf­ist er nú undir kola­orku­ver sam­svar­andi að afli. Aftur á móti er þétt­leiki sam­runa­orkunnar, orkunnar sem losnar við sam­runa þunga­vatns­einda (sem eru efna­sam­band tví­vetnis og súr­efnis) og þrí­vetn­is­einda, marg­millj­ón­faldur á við kola­bruna. Landnot og nátt­úru­spjöll af völdum hrá­efn­is­öfl­unar eru því hverf­andi sam­an­borið við kola­námið, hvað þá að líkur séu á þurrð hrá­efna til mynd­unar á vetn­is­sam­sætum fyrr en að liðnum svo mörgum millj­ónum eða millj­örðum ára að raunar má jafna til heillar eilífðar.

Það er á hinn bóg­inn ægi dýrt umbreyt­ing­ar­ferlið frá hrá­efnum til sam­runa, áður en sam­runa­orku verður umbreytt í raf­magn eða á annað með­færi­legt orku­form, svo van­þróað er ferlið enn. Hefur fjár­magns­skortur hamlað þró­un­inni um langa hríð, enda rennur drýgsti hluti fjár­veit­inga jafn­harðan til baka í fjár­hirslur fjár­veit­inga­valds­ins. Svo þungir eru tekju­skatt­arnir, refsi­vönd­ur­inn sem allar þær greinar mega við una er sinna ofur­ná­kvæmum fræðum og frum­gerða­smíði – hinu dýrasta hug­verki og hand­verki – nema að þær séu vaxnar af svo gildum meiði auð­linda­gróða­grein­anna að njóti hins besta atlætis til mót­vægis. En þess er þá og sjaldn­ast langt að bíða að fjár­austur til smíði frum­gerða skili sér í þeim mun skatt­frírri afurðum og ofur­gróða og ómældum koltví­ild­isauð­g­andi fríð­indum.

Skattarnir, framleiðnin, varanleikinn, aðalsfríðindin og koltvíildisauðgun jarðar

Fram­leiðni í mjög orku­háðum greinum er gríð­ar­leg – og í afleiddum greinum – enda liggja þar flestar rætur efna­hags­legrar hag­sældar og þar af leið­andi vel­ferð­ar­bú­skap­ar­ins jafn­framt. Fyrir hvern tug, hvert hund­rað eða þús­und handa sem verk­ferli kröfð­ust í hinum ýmsu afkasta­greinum fyrir ára­tugum og öldum er nú vart þörf nema fáeinna á fjöl­mörgum sviðum og á sumum varla nokk­urra handa vant – og þó þeim mun fleiri fingra á lykla­borði sem sjálf­virkni er meiri og hand­ar­verkin vél­menna.

Öll skil­virkni er hins vegar þeim mun dýr­keypt­ari sem hrá­efnum og fram­leiðslu­orku hefur verið sóað hraðar á kostnað við­halds og var­an­leika hlut­anna, enda vex við­halds­kostn­aður í beinu hlut­falli við vægi vinnu­afls­skatta í tekju­drifnu skatt­kerfi – og þá jafn­framt í réttu hlut­falli við skatt­fríð­indin sem eru leidd af orku- og hrá­efna­só­un­inni, orku­aðl­inum til hags­bóta og allri hirð­inni. Ending hlut­anna, sem ræðst ekki síst af reglu­legu við­haldi, hefur því verið þeim mun slak­ari sem orku­fríð­indin eru meiri og koltví­ild­isauðg­unin skefja­laus­ari.

Orku­drifið skatt­kerfi hvetur aftur á móti til jafn­vægis milli fram­leiðni og end­ingar og felur raunar í sér hvata til sparn­aðar á báða bóga. Það stuðlar ann­ars vegar að sjálf­bærum jafnt sem arð­bærum nátt­úr­u­notum – enda leiða orku- og nátt­úru­gjöld til minni orku­nota og betri nýt­ingar auð­linda – og hins vegar að þeim mun betra við­haldi hlut­anna sem skattar á tekjur eru lægri, sem er einmitt frum­for­senda var­an­leika og hæg­ari afskrifta. Og þeim mun vand­aðra sem við­haldið er og var­an­leik­inn meiri, þá minnkar þörfin á nýrri fjár­muna­myndun, sem aftur leiðir af sér minni þörf á fé til fjár­fest­inga, og þar með til lækk­unar á vöxtum.

Fyrir hvern þann tíma sem hlutur eða afurð end­ist eða nýt­ist betur – afskrif­ast hægar – þá varð­veit­ist inn­byggð, hlut­bundin orkan (embodied energy) lengur – og fjár­magnið – sem upp­haf­lega var varið til fram­leiðsl­unnar, auk þess ekki síður sem lægri vaxta­byrði nemur. Það við­hald var­an­leik­ans sem orku­drifið skatt­kerfi felur í sér, leiðir því til þeim mun minni orku­nota og betri auð­linda­nýt­ingar sem nota­gildið varð­veit­ist lengur, auk ómælds rekstr­ar­orku­sparn­að­ar­ins sem orku- og nátt­úru­gjöld leiða jafn­framt til á öllum sviðum.

Afnám tekju­skatta mun hafa lítil áhrif til lækk­unar á mark­aðsvirði olíu, kola og jarð­gass, enda er fram­leiðni á flestum vinnslu­sviðum jarð­efna­elds­neytis með mesta móti og drif­kraftar skatta­legs hag­ræðis því eigi litlir, en á hinn bóg­inn munu verð­hækk­un­ar­á­hrif hárra kolefn­is­gjalda veikja svo sam­keppn­is­hæfni skað­væn­legrar orku að end­ur­nýj­an­legir orku­gjafar munu öðl­ast æ meira vægi á flestum sviðum.

Mun þá einmitt koma í ljós að það eru fyrst og fremst háir tekju­skattar sem um langa hríð hafa hamlað þróun og nýsköpun á flestum sviðum hreinnar orku og bein­línis staðið í vegi fyrir jákvæðri orku­þróun í heim­inum. Svo algjörra yfir­burða hefur óhrein orka notið á for­sendum langvar­andi skatta­legra fríð­inda, raunar svo að ofgnótt fríð­ind­anna hefur verið alveg í réttu hlut­falli við skað­ræðið sem af þeim hefur leitt.

Hvers megnug er þá sólarorkan, sjávarorkan, vindorkan, fallvatnsorkan, varminn í jörð og lífræn orkan – samanborið við aðalsfríðindin og koltvíildisauðgun jarðar?

Fall­vatns­virkj­anir hafa verið helstu aflgjafar hreinnar raf­orku um ald­ar­skeið. Hefð­bundið líf­rænt elds­neyti, svo sem eldi­viður, mór og tað, hefur ann­ars talið drýgsta hluta end­ur­nýj­an­legrar orku um þús­alda­skeið (að svo litlu leyti sem hefur þó end­ur­nýj­ast), auk þess sem í síauknum mæli í seinni tíð elds­neyti með rætur í lífmassa af rækt­ar­landi hefur talið.

Nemur hlutur fall­vatns­orku nú rétt um 2,7% af um 160 þús­und terawattstunda frumorku­notum jarð­ar­búa en hlut­fallið var um 1,8% fyrir 50 árum og um 0,3% fyrir öld þegar frumorku­not í heild sinni voru um tífalt minni. Lífræn orka telur hins vegar um sjö hund­raðs­hluta, svo sem áður hefur verið getið, en hlutur hennar nam um 10% orku­not­anna um síð­ustu alda­mót, um 50% árið 1900 og um 98% við upp­haf iðn­bylt­ingar undir lok 18. aldar þegar frumorku­not jarð­ar­búa námu um 5 til 6 þús­und TWst.

Hlutur vind- og sól­ar­orku hefur farið ört vax­andi á síð­ustu árum og telur þó ein­ungis um einn af hundraði frumorku­not­anna, frá því að vera vart telj­andi um síð­ustu alda­mót. Fram­leiðslu­kostn­aður raf­magns frá sól­ar­afl­stöðvum hefur fallið mjög hratt á síð­ustu árum, svo að sífellt hefur nálg­ast kostnað við orku­fram­leiðslu vinda­fl­stöðva, sem jafn­framt hefur lækkað veru­lega. Um þessar mundir má gera ráð fyrir að vegið heims­með­al­tal fram­leiðslu­kostn­aðar raf­orku frá nýj­ustu vind­orku­verum á landi og sól­ar­orku­verum er byggja á ljós­spennu (photovoltaic PV, en ekki á varma­geislun, Concentrating solar power CSP) sé orðið nokkuð áþekkt, á bil­inu 4 til 5 doll­ara­sent, og þá jafn­framt að með­al­talið sé orðið nokkuð svipað eða lægra en sam­svar­andi vegið kostn­að­ar­verð orku frá nýjum vatns­afls­virkj­unum. (Línurit hér að neðan – sjá nánar, á bls. 18: The International Renewable Energy Agency IRENA: Trans­form­ing the energy system 2019)

Vegið með­al­tal og þróun kostn­aðar við end­ur­nýj­an­lega raf­orku­vinnslu – í doll­urum talið á fram­leidda kílówattstund. Línu­ritið er byggt á kostn­að­ar­gögnum fyrsta fram­leiðslu­árs allra helstu nýrra raf­orku­búa í heim­inum á árunum 2010 og 2018 – þá að með­töldum fjár­magns­kostn­aði en án opin­berra gjalda og án dreif­ing­ar­kostn­aðar. Stærð depla lýsir upp­settu afli hvers orku­bús og staða hvers dep­ils á grafi fram­leiðslu­kostn­aði bús. Strikin sýna þróun veg­ins með­al­kostn­aðar (levelized cost of energy, LCOE) frá 2010 til 2018, lækk­andi á öllum orku­sviðum nema á sviði jarð­varma og vatns­orku. Til sam­an­burðar lýsir skyggði borð­inn þvert yfir grafið sam­svar­andi kostn­að­ar­bili raf­orku frá hefð­bundnum orku­verum jarð­efna­elds­neytis – fyrst og fremst jarð­gass og kola – frá lægsta verði (um 0,05$) til hæsta verðs (um 0,17$) á kílówattstund.

Þrátt fyrir hverf­andi lítið kolefn­is­spor af völdum fall­vatns­orku og vind- og sól­ar­orku, sam­an­borið við jarð­efna­elds­neyti, og þeim mun létt­ari spora af völdum líf­rænnar orku sem kolefn­is­hringrás rækt­unar og orku­neyslu kann að vera í jafn­vægi, þá er heild­ar­vægi þess­ara orku­gjafa marg­vís­leg tak­mörk sett, ein­fald­lega vegna þess hve virkjun og hag­nýt­ing þeirra er yfir­leitt nátt­úru­frek og oft háð þröngum land­fræði­legum kostum. Hreinn virkj­ana­kostn­aður segir því sjaldn­ast nema hálfa sögu, sama hvort hefð­bundin gjöld og dreif­ing­ar­kostn­aður væru með­talin, enda eru marg­slungin áhrif á sam­fé­lag og nátt­úru yfir­leitt að mestu látin ótalin, á sinn hátt líkt og fórn­ar­kostn­að­ur­inn vegna koltví­ild­isauð­g­andi fríð­ind­anna er yfir­leitt van­tal­inn.

Það vatns­afl sem nú þegar hefur verið virkjað í heim­inum nálg­ast sífellt lækk­andi þol­mörk nýt­an­legrar fall­vatns­orku, ekki síst af völdum síauk­inna krafna um nátt­úru­vernd. Svo eft­ir­sótt er víð­feðm, óspillt nátt­úra ein­fald­lega orðin, hvað sem líður fræði­legum jafnt sem tækni­legum virkj­an­leika. Og jafn­vel þó að menn hættu að neyta land­bún­að­ar­af­urða en legðu allt rækt­an­legt land á jörð­inni undir líf­ræna elds­neyt­is­fram­leiðslu þá myndi upp­skeran vart mæta nema hluta heild­ar­orku­þarfar tækni­vædds mann­kyns, hvað sem menn kynnu svo að vilja eta í stað­inn. Svo afar hæg er nátt­úru­leg nýt­ing sól­ar­orkunnar, frum­a­flsins að baki rækt­un­ar­ferlunum, þrátt fyrir allra­handa vél­tækni, áveitur og áburð­ar­gjöf manna.

Líf­tækni­leg ræktun örþör­unga (microalgae biotechnology) kann vissu­lega að skila marg­tug­faldri upp­skeru á flat­ar­ein­ingu á við venju­lega vinnslu líf­elds­neytis, án þess þó að keppi endi­lega við hefð­bund­inn land­búnað um rækt­ar­land – né þá heldur um fos­fór og vatn, svo fremi að rækt­unin byggi á hringrás­ar­vinnslu og end­ur­nýt­ingu skólps og nær­ing­ar­efna. Ella kann keppni um fos­fór, sem myndar eina helstu stoð nútíma­rækt­unar um alla jörð – auk vatns­ins – ekki ein­ungis að harðna enn frekar og verðið á fos­fór að stíga enn hraðar en það gerir nú þegar, m.a. vegna vegna fram­leiðslu venju­legs líf­elds­neytis, heldur myndi hinn aðgengi­legi hluti heims­forð­ans jafn­vel klár­ast fyrr en nú stefnir í með forða jarð­efna­elds­neytis.

End­ur­vinnsla myndi aftur á móti seinka þrota­ferl­inu og ekki síður hamla æ vax­andi ofauðgun hafa og vatna af völdum ofgnóttar og úrgangs nær­ing­ar­efna. Örþör­ungar er nærð­ust á áburð­ar­leifum, skólpi og búfjár­úr­gangi, auk gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá búskap og iðn­aði, gætu jafn­vel jafnað svo metin að vinnsla orku og nær­ing­ar­efna úr blóm­anum bein­línis lengdi end­ing­ar­tíma fos­fórs­forð­ans. Langur vegur rann­sókna og þró­unar lægi þó slíku end­ur­vinnslu­ferli til grund­vallar – og þó þeim mun skemmri sem þró­un­ar­starfið væri fyrr leyst úr fjötrum skatta­á­þjánar. Slík end­ur­vinnsla næmi samt ein­ungis litlu broti af orku­þörf jarð­ar­búa en bætti þeim mun fremur nýt­ingu nær­ing­ar­efna.

Vinnsla jarð­varma lýtur í raun eðli náma­vinnslu – á sinn hátt líkt og vinnsla jarð­efna­elds­neytis og frum­vinnsla fos­fórs úr bergi – og þá því frekar sem orku­námið er öfl­ugra, mælt á hverja flat­ar­ein­ingu virkj­aðs svæðis, svo hægt end­ur­nýj­ast varm­inn í jörð. Svo slök er jafn­framt nýt­ing virkj­aðs jarð­varma við raf­orku­vinnslu að drýgsti hluti varmans hverfur yfir­leitt óbeisl­aður út í and­rúms­loftið. Hætta á hlið­ar­verk­unum á borð við skjálfta­virkni og breyt­ingar á grunn­vatns­stöðu af völdum varma­náms og dæl­ingar er líka þeim mun meiri sem orku­vinnsla er öfl­ugri og lang­vinn­ari, auk áhætt­unnar sem bundin er nátt­úru­legum jarð­hrær­ingum á mjög heitum svæðum. Þá valda víð­tækar jarð­varma­virkj­anir veru­legum sjón­rænum áhrifum og marg­vís­legu raski á nátt­úr­unni, ekki síður en hinir ýmsu aðrir virkj­ana­kostir.

[adspot]Ekki þó síst í ljósi þess hve heit og tækni­lega vel virkj­an­leg svæði eru í raun­inni fá á jörð­inni, þrátt fyrir allan þann gríð­ar­lega varma sem jörðin felur í sér, þá er ólík­legt að virkjun jarð­varma muni vega þungt á heims­vísu í náinni fram­tíð. Hvað þá í ljósi þess að jarð­hita­svæði mörg eru að flestra mati dýr­mætar nátt­úruperlur.

Andstætt við jarð­varma þá end­ur­nýj­ast aflið sem fólgið er í sjáv­ar­föllum og straumum afar hratt, sem leiðir aðal­lega af nær eilífum snún­ingi jarðar um sjálfa sig og gagn­verk­andi kröftum tungls og sólar á jörð. Fræði­lega séð væri ger­legt að afla veru­legrar sjáv­ar­orku víðs­vegar með ströndum álfa og eyja heims en hins vegar eru flestar tækni­legar lausnir og hug­mynda­legar útfærslur afar van­þró­aðar, enda telur virkjað sjáv­ar­afl ein­ungis örlítið brot af allri heild.

Þó að þvera megi orku­mikla firði og flóa og raða raf­hverflum í garð­ana, hvað sem líður nátt­úru­legri ásýnd, eða sökkva sæmyllum á kaf í straum­þung sund og straum­þungar rastir eða á hinn bóg­inn fleyta megi raf­hverflum út á kvik­ustu höf í öldu­keflum eða virkja lóð­réttan hita­mun sjávar, þá eru flestar þess­ara orku­bú­skap­ar­lausna ekki ein­ungis flóknar og dýrar í fram­kvæmd og ekki síður langsóttar, heldur eru áhrifin á sjáv­ar­líf­ríki og nátt­úru alls ókönnuð.

Svo dreifð sem sjáv­ar­orkan er í flestu til­liti þá er hún þó einmitt þétt­ust þar sem straum­þunga mest gætir eða öldu­hæðar eða mik­ils hita­munar og eru skil­yrðin því sann­ar­lega ekki síður ákjós­an­leg búskap­ar­svæði sjáv­ar­líf­vera af ótal­mörgu tagi, svo sem veiði­mönnum hefur verið ljóst um aldir. Hefur það jafn­framt verið rök­stutt með sjáv­ar­lífs­rann­sóknum að óvíðar en einmitt í haf­inu muni skiln­ing­ar­vit og skyn­svið smá­sæ­ustu jafnt sem hinna stærstu líf­vera vera með jafn fjöl­breyttum hætti og ólíkum okkar. Áhrif af við­var­andi vél­tækni, titr­ingi og skrúfun­iði, eða af raf­seg­ul­sviði frá raf­ölum og köplum, kunna því að vera svo marg­vís­leg og lítt fyr­ir­sjá­an­leg sem aftur á móti hættan af snún­ingi skrúf­hverfla er þeim mun aug­ljós­ari sem snún­ings­hraði þeirra er meiri, á sinn hátt líkt og váin sem fuglum stafar af snún­ingi vind­myllu­spaða.

Samrunaorka og hlutfallsleg umhverfisáhrif orkukosta

Þegar á allt er litið eru sól­ar­orka og vindafl þeir kostir sem nú vega einna þyngst á sviði nýorku, sem leiðir beint af ört lækk­andi fram­leiðslu­kostn­aði og hrein­leika orkunnar – sam­an­borið við jarð­efna­elds­neyti og hin ýmsu önnur orku­svið. Þetta eru jafn­framt þeir kostir end­ur­nýj­an­legrar orku sem mestar líkur eru á í nálægri fram­tíð að megi þróa hratt og að ýmsu leyti á víð­tækan máta – svo fremi að umhverfi og ásýnd jarðar verði ekki fórnað á alt­ari hrein­leik­ans, svo öfug­snúið sem það væri.

Á hinn bóg­inn, ef efna­hags­legir hvatar væru fyrir hendi, en ekki bara styrkt­ar­kerfi undir mis­kunn komin og náð mis­vit­urra póli­tíkusa, undir hæli orku­að­als­ins, þá væri virkjun sam­runa­orku löngu komin af stigi frum­þró­unar og harð­vít­ugrar bar­áttu um athygli og áhrifa­vald. Það mun taka tím­ann sinn að snúa þró­un­inni svo við, að jafn­ræðis verði gætt, að hjól tím­ans muni þá fremur snú­ast rétt­sælis en rang­hælis. Þeim mun léttar mun þá orka sólar og vinds vega sem þróun sam­runa­orku verður hrað­ari, fyr­ir­hyggju­sömum stjórn­vitr­ingum og umhverf­is­fræð­ingum til íhug­unar, hvernig orka fram­sýnna athafna­manna verði best virkjuð í bráð og lengd.

Bjálka­ritið sýnir hrátt jafn­að­ar­mat á hlut­falls­legum umhverf­is­á­hrifum mis­mun­andi orku­kosta. Matið er engan veg­inn algilt, enda geta áhrif hinna ýmsu ein­stöku kosta, frá einum stað til ann­ars, verið afar marg­breyti­leg. Vægi þeirra er jafn­framt háð afar ólíkum áhrifagildum hinna ýmsu ann­marka, tak­mark­ana og þol­marka, á ýmsan máta hug­lægum eða hlut­lægum, líf­fræði­legum eða land­fræði­legum, allt eftir gróf­asta mati. Hér er tekið fremur tak­markað mið af venju­legu mati á fjár­magns- og rekstr­ar­kostn­aði, en þeim mun fremur litið til áhrifa á sam­fé­lag og nátt­úru, til umhverf­is­þátt­anna, sem í flestum greinum njóta almennt afar lít­ils vægis við hefð­bundna virð­is­reikn­inga. En því frekar myndi slíkt mat – umhverf­is­mat – hafa áhrif á umhverfis- og nátt­úru­gjöld.

Virkjun kjarna­sam­runa er enn á stigi flók­inna fræða og frum­gerða – á sinn hátt líkt og virkjun sól­ar­orku og jafn­vel vinda­fls var um langa hríð áður en rað­smíði og loks fjöl­smíði tók við af rán­dýrri og sköttum þrúg­aðri sér­smíði afl­bún­að­ar­ins. Svo bundin er öll sam­runa­þróun á klafa náð­ar­sam­legra fjár­veit­inga og harð­vít­ugrar skatt­lagn­ingar að keppni við koltví­ild­isauð­g­andi ægi­vald orku­að­als­ins hefur verið nán­ast von­laus hingað til. Einungis væri oki tekju­drif­ins skatt­kerfis aflétt, þá fæli ekk­ert orku­svið í sér meiri mögu­leika með til­liti til land­nota og umhverf­is­verndar, jafnt í líf­fræði­legum skiln­ingi sem sjón­rænum og hljóð­rænum, ekki síður en í fjár­hags­legu til­liti – þegar á allt væri litið og til enda reiknað, að afloknu frum­þró­un­ar­stigi.

Þótt öll tækni­orka mann­kyns væri á einn eða annan veg leidd af kjarna­sam­runa, væri áhætta í heild sinni af völdum geisla­virkni hverf­andi sam­an­borið við hætt­una sem nú þegar stafar af öllum kjarn­orku­verum jarð­ar­búa, sem eru um 500 tals­ins og byggja öll á kjarna­klofn­ingi, en fram­leiðsla þeirra nemur þó ein­ungis um eða innan við 2% frumorkunnar.

Drjúgur hluti úrgangs­ins af völdum kjarna­klofn­ings­ins mun verða geisla­virkur um svo langa fram­tíð að nán­ast má jafna til eilífðar, en hins vegar er helm­ing­un­ar­tími þess sára­litla úrgangs er til fellur við kjarna­sam­runa ein­ungis um 12 ár, sem felur í sér nær algjört nið­ur­brot geisla­virkni á rúmum manns­aldri – myndi mest­allur úrgang­ur­inn þó vera end­ur­nýttur. Þar sem kjarna­sam­runi verður ein­ungis knú­inn fram fyrir nákvæma stýr­ingu er stjórn­laus keðju­verkun jafn­framt úti­lokuð, and­stætt því sem getur gerst við kjarna­klofn­ing, líkt og m.a. sann­að­ist í kjarn­orku­slys­unum í Tsjerno­byl og Fukus­hima.

Aðrir kostir, svo sem vatns­afl, háð umfangs­miklum miðl­un­ar­lónum, jafnt sem lítt háð miklum lónum, eða jarð­varmi, sér í lagi til raf­orku­vinnslu, eru ýmist háðir miklum ann­mörkum út frá sjón­ar­miðum nátt­úru­verndar eða veru­legum land­fræði­legum tak­mörk­unum, svo sem hér hefur verið lýst. Hvorir tveggja kost­anna jaðra raunar við ýtr­ustu þol­mörk víð­ast hvar á jörð og vega því eigi þungt í heild­rænnni fram­tíð­ar­lausn orku­bú­skapar á hnatt­ræna vísu. Ekki frekar en víð­tæk virkjun sjáv­ar­orku, sér í lagi að teknu til­liti til hinnar miklu líf­fræði­legu óvissu, hvað þá heldur umfangs­mikil vinnsla líf­elds­neytis, hvort sem væri af akri eða á líf­tækni­legan máta, svo aug­ljósir sem ann­mark­arnir eru, svo sem hér hefur verið vegið og metið á ýmsa lund, og sama þó líf­tækni­leg end­ur­vinnsla ætti í hlut, svo smá sem hún væri í sniðum þegar á allt væri litið.

Þangað til virkjun sam­runa­orku fer að skila hag­nýtum árangri, og þá ábata í víð­tækum skiln­ingi, þá er fátt annað lík­legra til næstu fram­tíðar litið en að orka sólar, og þar með jafn­framt afleidd orka vinds, muni knýja megnið af tækni manna – og þar með vel­ferð­ar­bú­skap­inn – svo fremi að afar hamlandi við­horf orku­að­als­ins fái ekki spillt enn frekar fram­vind­unni, svo sem þung­bær raun ber vitni um og eyddur jarð­ar­gróði.

Skattborgararnir, skattlendurnar og ofurgróðinn

Það skatt­kerfi sem er ríkj­andi á jörð­inni hefur gengið sér til húðar. Svo sam­ofin sem saga þess er vel­ferð­ar­hug­myndum 20. aldar, þá er þó svo komið að almanna- og vel­ferð­ar­þjón­usta ber lang­þyngsta skatta sam­an­borið við öll önnur svið. Nánast sama hvert tækni­sviðið á hinn bóg­inn er, þá er það borið uppi af orku og auð­lindum, fyrir tak­marka­lítil afnot af öllum þeim jarð­nesku gæðum sem einmitt síst lúta skatt­heimtu hins opin­bera.

Drjúgur hluti útgjalda hins opin­bera í þró­uðum ríkjum heims rennur jafn­harðan til baka í hinar sömu opin­beru fjár­hirslur sem skatt­tekjur af opin­berum starfs­mönnum, almanna­trygg­inga­þegum og sístækk­andi hópum starfs­manna verk­taka er með einum eða öðrum hætti vinna á vegum hins opin­bera, auk þess sem trygg­inga­gjöld, virð­is­auka­skattur og skattar af hreinum rekstr­ar­tekjum telja.

Líkt á raunar við um flesta almanna- og vel­ferð­ar­þjón­ustu sem borg­ar­arnir greiða hálf­op­in­berum aðilum og einka­að­ilum fyrir – svo fremi að afnot af tækni og orku vegi eigi þungt. Nánast sama hver upp­lýs­ingin er, sama hvort fjöl­miðlar eiga í hlut, bóka­út­gáfa, fræðsla hvers kyns eða listir, sama hvort um þjón­ustu sér­fræði­lækna ræði eða sjúkra­þjálf­ara eða svo marg­vís­lega aðra þjón­ustu til við­halds og við­gangs vel­ferð­inni, allt frá þjón­ustu lög­fræð­inga og presta til pípu­lagn­ing­ar­manna og bif­véla­virkja, þá rennur um þriðj­ungur til helm­ingur alls veltu­fár í fjár­hirslur hins opin­bera, að stærstum hluta sem tekju­skattur starfs­manna og trygg­inga­gjöld, auk þess sem skattur af hreinum hagn­aði og virð­is­auka telur á ýmsum sviðum.

Gildir einu þó að hið opin­bera greiði per­sónu­af­slátt til mót­vægis álög­unum, sér í lagi hinum lægst laun­uðu í sára­bætur – og flestum mann­afls­frekum rekstri til styrktar – laun eru þá ein­fald­lega lægri sem þeim smá­skammta­lækn­ingum nemur. Af því leiðir eðli­lega að álagðir tekju­skattar í heild vega þeim mun þyngra sem afslátt­ur­inn er meiri. Öll skatt­ber­andi fram­leiðsla og þjón­usta verður þar af leið­andi dýr­keypt­ari sem álög­unum nemur, og þá einmitt hinum lægst laun­uðu enn þyngri í skauti – einmitt þeim sem vel­ferð­ar­kerfið skyldi þó ekki síst hlúa að, væri kerfið sjálfu sér sam­kvæmt.

Þeim mun van­þró­aðri sem ríki aftur á móti eru, þá gætir skatt­anna minna og vel­ferð­ar­kerf­anna, enda af litlu að taka. Fyrir offram­boð lág­launa­vinnu og hræó­dýrrar orku og auð­linda­vinnslu eru fjölda­fram­leiddar afurðir seldar vel­ferð­ar­ríkj­unum í miklu magni í skiptum fyrir þeim mun miklu færri ein­ingar hátækni og sér­fræði­þjón­ustu sem þær eru dýr­keypt­ari, einmitt fyrir sköttum þrúgað hug- og hand­verkið, ofur­ná­kvæmt sér­fræði­verkið.

Fyrir svo lítið hlut­fall af lands­fram­leiðslu að telur oft vart nema um tíunda til tuttug­asta hluta, skipta vel­meg­un­ar­ríkin á dýr­seldri ofur­tækni sinni og þjón­ustu fyrir megnið af þeim almenna tækni­varn­ingi, hús­bún­aði, vefn­að­ar­vöru, skófatn­aði og leik­föngum sem þegnar þeirra þarfn­ast.

Hlutur fram­leiðslu­ríkja í virð­is­keðj­unni myndar þó sjaldn­ast nema örfáa hlekki í öllu heild­ar­sam­heng­inu, oft um mið­bik keðj­unnar, enda eru það oft­ast nær vel­ferð­ar­ríkin sjálf sem stýra hönnun og hönn­un­ar­ferlum, mark­aðs­grein­ingu og mark­aðs­setn­ingu – og hafa hönd í bagga með öflun aðfanga, orku og hrá­efna – auk þess að sjálf­sögðu að það eru þau sem ann­ast marg­hátt­aða dreif­ingu og sölu fram­leiðsl­unnar. Stjórna þau þá jafn­framt, eftir því sem við á, frek­ari úrvinnslu eða sam­setn­ingu í einu land­inu eða öðru, í einni heims­álf­unni eða annarri, fari varn­ingur ekki beint í umsýslu eða milli­liða­laust á neyt­enda­markað í neyslu­rík­inu.

Svo dýrt er allt við­skipta­ferlið, og ekki síst ofur­skatt­lagt á öllum stigum virð­is­keðj­unnar vel­ferð­ar­innar megin, allt frá upp­hafi mark­aðs­grein­ingar og hönn­unar, til enda á neyt­enda­mark­aði, að sam­an­lagður virð­is­auk­inn kann að vera fimm- til tífaldur á við frum­virði fram­leiðsl­unnar. Kann heild­ar­virði við­skipt­anna þá að svara til um helm­ings lands­fram­leiðslu neyslu­ríkj­anna þegar upp er staðið, sama þótt drjúgur hluti varn­ings­ins hafi vart breytt um áþreif­an­lega mynd frá því um hann var búið í fram­leiðslu­land­inu.

Skyldi þá hafa ríkt í huga að hið opin­bera veltir drýgstum skerfi allrar lands­fram­leiðslu vel­ferð­ar­rík­is­ins, svo drjúgt vegur sam­neyslan. Svo drjúgur sem skerf­ur­inn er, þá ræðir þar þó ekki síst um sýnd­ar­tekjur – og sýnd­ar­út­gjöld – svo mjög sem hið opin­bera nær­ist á eigin skinni, heimt­andi skatta á skatta ofan af sinni eigin vel­ferð­ar­þjónstu, á vel­ferð­ar­þjón­ustu ofan. Það er því ekki allt sem sýn­ist þegar fjár­mála­r­á­herrar neyslu­ríkj­anna leggja fram fjár­lög sín – enda er þá mest­allri tækni undan skotið, nær öllu raun­veru­legu umhverf­is­mati, nær öllum arði af orku og auð­lindum – tekju­hliðar megin. Hvað þá að þyki taka því að nefna öll koltví­ild­isauð­g­andi fríð­indin.

Árleg koltví­ild­is­losun jarð­ar­búa frá 1750 til 2019. Hlutur Norð­ur­am­er­íku­manna og Evr­ópu­búa nemur nú um þriðj­ungi los­unar – þá að ótöldum þeim drjúga hluta los­unar ann­arra jarð­ar­búa sem til fellur vegna fram­leiðslu í þágu hinna fyrr­nefndu, sem telja þó ein­ungis um sjötta part mann­kyns. Hlutur þeirra í reynd kann því að nema um helm­ingi allrar los­unar.

Arðurinn af heims­við­skipt­unum fellur nær allur neyslu­ríkj­unum í skaut. Fram­leiðslu­ríkin sitja á hinn bóg­inn uppi með æ stærri skerf af koltví­ild­isauðgun jarð­ar­innar, fyrir svo hræó­dýra fram­leiðslu, fyrir svo lág laun og lága skatta, fyrir svo lágt metna orku og lít­ils metin hrá­efni – fyrir umhverfi sem er ekki metið til auðs – að vér orku­að­all­inn eigum fullt í fangi með að skatt­leggja okkur ekki út af mark­aðnum. Það er þó einmitt gjaldið sem skatt­lendur jarð­ar­innar fá að greiða – arð­ur­inn sem okkur fellur í skaut, til vaxtar og við­gangs vel­megun okkar.

Vatnaskil

Hve langt verður gengið á rétt stærsta hluta jarð­ar­búa, fyrir vel­ferð og vel­megan ein­ungis lít­ils minni­hluta? Virðist þá raunar einu gilda hvort um ræði útdeil­ingu bólu­efna eða til­kall til auð­linda jarðar, sama hve afleið­ingar mis­mun­un­ar­innar kunni að vera ógn­væn­legar – til langrar fram­tíðar litið jafnt sem til skemmri tíma.

Hve illa fáum við ekki gengið um auð­lind­irnar? Hve illa fáum við ekki ávaxtað arð­inn, for­smáð upp­sker­una? Hve langt fáum við ekki gengið með kröfum okkar um æ ferskari þjón­ustu og nýstár­legri hluti okkur til handa, og þó kraf­ist þess sífellt að almúgi jarðar, og þá fyrst og fremst almúg­inn einn, baki brotnu, súpi seyðið af slæmri umgengn­inni og arfa­slæmri nýt­ingu orkunnar og auð­lind­anna? Og svo vel sem vér orku­að­all­inn fáum varið okkur sjálf og hirð okkar, og umboðs­menn okkar út um allar jarðir, fyrir mengun, plágum og óáran, þá einmitt þyngj­ast frekar byrðar þeirra sem hlotn­ast að axla þær.

Svar aðal­rit­ara Sam­ein­uðu þjóð­anna er ótví­rætt, sbr. hér til­vísað fram­ar­lega í grein: Okkur gef­ast nú óvænt en mik­il­væg tæki­færi til að ráð­ast gegn lofts­lags­breyt­ingum, að hlúa að umhverf­inu, að end­ur­nýja hag­kerfi og að hugsa fram­tíð­ina upp á nýtt – með end­ur­reisn að loknum heims­far­aldri. Færa verður skatt­byrð­ina frá tekjum yfir á kolefni, frá skatt­greið­endum til þeirra sem menga, segir hann jafn­framt, án þess þó að hann hætti sér mikið lengra út í þá sálma, enda væri aðal­rit­ar­inn þá kom­inn út á afar hála braut, hann sér þess vel með­vit­andi að ein­ungis eitt atkvæði Örygg­is­ráðs­ins þarf til þess að kippa undan honum fót­unum. Svo mátt­ugt er neit­un­ar­valdið, sama hvað atkvæði ann­arra ríkja heims ann­ars telja...

  • COVID og lofts­lagið hafa leitt okkur að vatna­skilum. Okkur er ófært að hverfa aftur til þess hvers­dags­leika sem fól í sér ójöfnuð og veik­leika. Þess í stað ber okkur að feta örugg­ari og sjálf­bær­ari braut. Þetta er marg­slungin þol­raun í stefnu­mótun og brýn sið­ferði­leg próf­raun. Ákvarð­anir sem teknar eru í dag munu varða veg­inn næstu ára­tugi. Okkur ber að líta á end­ur­reisn eftir far­ald­ur­inn og aðgerðir í lofts­lags­málum sem tvær hliðar á sama pen­ing.

Svo mörg eru þau orð, sann­ar­lega í tíma töluð, loka­orðin í grein aðal­rit­ar­ans um Brýnasta erindi heims­ins. Í loka­hluta þess­ara þess­ara greina­skrifa, Herra­garð­ur­inn – óðal aðals eða orkubú jarð­ar­búa?, verður fjallað enn frekar um skil­virkni orkunnar og mögu­leika sam­runa­orku, sól­ar­orku og vinda­fls, þar á meðal um líkan eða leið­ar­vísi að algjörum orku­skiptum frá óhreinni orku – jarð­efna­elds­neyti, kjarn­orku og líf­elds­neyti – til hreinnar raf­orku, sem hópur fræði­manna, er flestir starfa við Stanford háskól­ann í Kali­forníu, hefur unnið.

Með orku­drifnu skatt­kerfi má greiða þró­un­inni veg, svo að um munar. Um mögu­lega útfærslu á slíkri skatt­heimtu­leið – m.a. með Ísland fyrir dæmi – má lesa nánar í grein höf­undar, Orku­pakki handa ung­lingum, frá því haustið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár