Herragarðurinn – orkubú jarðarbúa

Árni B. Helgason fjallar um áhrif skatta og gjalda á sam­fé­lög jarð­ar­búa – hve þung­bærar álögur alls þorr­ans eru en þeim mun létt­bær­ari byrðar orku­freks aðals­ins, svo ofur­hlað­inn sem hann er skatt­fríð­indum.

Fyrir tíma iðn­bylt­ing­ar­innar lá hinn ver­ald­legi frum­kraftur í jarð­ar­gróð­anum, bók­staf­lega talað. Búsæld­ar­leg sam­fé­lög áttu allt sitt undir akur­löndum og afréttum, skóg­lendi og hag­lendi, auk þess sem sjáv­ar­ak­ur­inn gaf af sér, þegar því var að skipta, ellegar málm­grýti í jörð, mór eða kola­lög, allt eftir því hvernig sam­fé­lögin voru í sveit sett; en ofgnótt eða skorti gróða­linda var svo jafnað út með við­skiptum milli byggð­ar­laga, ein­stakra hér­aða, fursta­dæma eða ríkja, allt eftir búskap­ar­háttum.

Gróðinn, eft­ir­tekjan, réðst í meg­in­dráttum af þrennu – af (1) skil­virkni þeirra handa sem lagðar voru að verki, af (2) skil­virkni vinnu­dýra og af (3) skil­virkni áhalda, bún­aðar og verk­færa – sem allt í senn ákvarð­aði fram­leiðni ein­stak­ling­anna er áttu hlut að verki, þeirra er stóðu að hinum ýmsu fram­leiðslu­ein­ingum og mynd­uðu hvert sam­fé­lag.

Fram­leiðni mal­ara sem réð yfir góðri myllu til mylja kornið var aug­ljós­lega marg­föld á við þann sem fékk ein­ungis malað það í hönd­unum, brúk­andi mylnu­stein, eða myln­ustaut og mortél, sér til hægð­ar­auka – ekki síður en að afköst bónd­ans, er réð yfir góðu drátt­ar­dýri og góðum plógi, voru til muna meiri en þess sem yrkti allt eigin höndum með gam­al­dags arði og páli. Og hve marg­föld var ekki fram­leiðni prent­ar­ans, fyrir afköst tóla sinna og tækja, á við þann er rita mátti allt eigin hendi, með fjöð­ur­staf einn að vopni...

Væri fram­leiðnin svo slök að eft­ir­tekjan næmi vart neinu umfram brýn­ustu lífs­nauð­synjar var sam­fé­lagið í besta falli sjálfu sér nægt – en ann­ars þeim mun gróða­væn­legra sem fram­leiðni ein­stak­ling­anna var meiri, jafn­vel svo að mynda mætti herra­garða og bæi og borgir, líkt og kross­ferða­ridd­arar allra tíma hafa ekki látið sig um muna, að leggja undir sig lönd og gæði heilu sam­fé­lag­anna, í nafni drott­ins síns og herra – í nafni hag­fræði allra tíma, frá upp­hafi sið­menn­ingar.

Opin­berar álögur, skattar, tollar og gjöld, voru að lang­mestu leyti bundnar þeim afurðum sem fóru á markað, alls óháð því í sjálfu sér hve margar hendur væru lagðar að verki, auk þess sem afgjöld af jarð­eignum skil­uðu kon­ungi og hirð, kirkju og klerkum – þá nokkurn veg­inn í hlut­falli við fram­leiðni ein­stak­ling­anna sem sátu þær, burt­séð frá fjölda þeirra. Almennar álögur, bein­línis leiddar af tekjum alls fjöld­ans – fram­töldum tekjum hvers og eins, óháð fram­leiðni hvers og eins – komu vart til sögu að ráði fyrr en drjúgt var liðið á nýliðna öld, enda skyldi almenn­ingur, sjálfur sauð­svartur almúg­inn, fá að standa sjálfum sér reikn­ings­skil sívax­andi vel­ferðar sinnar…

Velferðarsamfélagið og gróðavonin

Fyrir tíma vel­ferð­ar­sam­fé­laga námu opin­berar álögur vart nema um tíund mark­aðs­hæfrar lands­fram­leiðslu ríkja – þá að ótöldum hinum ýmsu óbeinu álögum, leigum og jarð­ar­gjöldum er runnu ekki síst til krúnu, kirkju og hirð­ar­innar. Gjalda­megin í hinu opin­bera bók­haldi vógu her­málin yfir­leitt lang­þyngst, og svo dóms- og lög­gæsla, menntun emb­ætt­is­manna og þó ekki síst uppi­hald krúnu og hirðar, kan­sel­ís­ins og klerka.

[adspot]

Lengi framan af iðn­bylt­ing­unni stóðu kjör lág­launa­fólks í besta falli í stað, oft engu betri en á kot­býlum fram í heið­anna ró, enda rann þá hag­ur­inn af tækni­fram­förum, og þar með hag­ur­inn af æ auk­inni fram­leiðni sam­fé­laga, nær allur til sífellt vax­andi háborg­ara­stéttar og til uppi­halds æ mik­il­væg­ari stétt lág­borg­ara, þeirra sér­þjálf­uðu vél­fræð­inga og versl­un­ar­manna sem héldu tækni­legum jafnt sem við­skipta­legum hjólum bylt­ing­ar­innar gang­andi, og hélt gamli aðall­inn þó löngum sínum hlut óskertum.

Það var heldur vart fyrr en í byrjun 20. aldar, í kjöl­far þeirrar hug­mynda­fræði­legu bylt­ingar sem þeir Marx og Engels höfðu leitt og mótað á síð­hallandi öld­inni þeirri nítj­ándu, sem sam­fé­lög taka af alvöru að huga að mennta- og heil­brigð­is­málum alþýðu, og þá jafn­framt að svo bættum kjörum alls þorra fólks að þegn­arnir sjálfir gætu risið undir sköttum, vel­ferð­inni sér til handa, þá og einnig til nið­ur­greiðslu almenn­ings­sam­gangna, svo mik­il­vægt sem það var allri fram­leiðslu og þjón­ustu að fá vinnu­aflið fært úr stað með sem greiðustum hætti.

Var það þá og smám saman að renna upp fyrir háborg­ara­stétt­innni, burgeis­unum, að lát­laus fjár­fest­ing auð­feng­ins gróða af æ viða­meiri og marg­breyti­legri iðn­fram­leiðslu í enn gróða­væn­legri fram­leiðslu hlyti að lokum að leiða til þrots og almennrar kreppu, fengju kjör og kaup­máttur alls þorra fólks ekki mætt fram­boði æ fjölda­fram­leidd­ari varn­ings­ins – eða hvaðan átti aukin eft­ir­spurn ann­ars að koma? Vart myndu fámennar hástétt­irnar ann­ars anna svo hröðum afskriftum nytja­hluta sinna, að ávallt gætu þær áfram keypt nýtt og aftur nýtt, lík­ast því sem hið nýja væri ávallt um hæl orðið aflóga gam­alt.

Sann­ar­lega hrikti í stoðum hátimbraðrar bygg­ingar auð­valds­ins, slíkt sem mis­réttið var orðið og allt ójafn­ræðið. Svo æ greið­ari leið sem bylt­ing­ar­boð­skapur þeirra Marx og Engels átti sér líka orðið að hugum og hjörtum alþýð­unnar, hvað þá í ljósi æ almenn­ara læsis og öfl­ugri upp­lýs­ingar.

Sá gullni með­al­vegur var því varð­aður er á 20. öld­ina leið, að fyrir bætt almenn kjör og auk­inn kaup­mátt skyldu hinir almennu laun­þegar jafn­framt fá að bera meg­in­þunga skatt­byrð­ar­innar, en burgeis­arnir fengju á móti frítt spil og skatt­frelsi svo lengi sem þeir fjár­festu megnið af hagn­aði sínum í auk­inni fram­leiðslu, þegnum öllum til handa.

Gaf þá auga­leið að þeim mun fram­leiðni­vædd­ari sem fram­leiðsla væri – og þar með æ minna þrúguð af skatt­lögðu vinnu­afli, vel­ferð­ar­þegn­unum, laun­þeg­unum – þeim mun meiri var gróða­vonin, vonin um að fá aukið svo tækn­ina að vart neinna skatt­lagðra handa væri þörf, jafn­vel svo að skatt­fríð­indin væru þá sem næst algjör... líkt og aðall­inn hafði einmitt svo löngum notið og hvort þá ekki ung­herr­arnir, herra­garðs­eig­end­urnir, í þá gömlu góðu daga...

Skattfrjáls framleiðnin og gróðavonin

Öll sú ofurá­hersla sem lögð hefur verið á æ tækni­vædd­ari fram­leiðni – í tím­ans rás – fyrir gríð­ar­legan hvata skatt­fríð­ind­anna en þeim mun sífellt minni sam­fé­lags­lega nauð­syn, hefur leitt af sér svo þunga skatt­byrði alls þorra almenn­ings, að nú sem 21. öldin er gengin í garð lætur nærri að hart­nær helm­ingur alls afla­fjár vel­ferð­ar­þegn­anna renni í vel­ferð­ar­sjóð­ina. Vel­ferð­ar­kerfin eru því borin uppi af mann­afls­frek­ustu grein­unum fyrst og fremst, sem sagt af öllum þorra laun­þega, eðli tekju­skatts­kerf­is­ins sam­kvæmt, á meðan hinar fram­leiðni­vædd­ustu tækni­greinar, þar sem mann­afla einmitt nýtur minnst, sópa til sín gróða sem aldrei fyrr – slík sem ofur­fríð­indin eru, að vart gætir snef­ils hlut­deildar þeirra í rekstri vel­ferð­ar­sjóð­anna.

Þeim mun óhugn­an­legi eru umhverf­is­á­hrifin af skefja­lausri græðginni um alla jörð, svo ákaft sem gróð­anum er sóað í æ tækni­vædd­ari og þar af leið­andi skatt­frírri fram­leiðslu, í beinu hlut­falli við æ hrað­ari afskriftir fram­leiðsl­unnar, svo sífl­ellt þrúg­aðri af álögum sem öll við­halds­þjón­usta er, eðli hinnar opin­beru tekju­skattsinn­heimtu sam­kvæmt.[links]

Sóun orku og auð­linda jarðar stendur raunar í beinu hlut­falli við hinar hröðu afskriftir fram­leiðsl­unnar – sem og þá jafn­framt í réttu hlut­falli við dýr­leika við­halds­þjón­ust­unnar, svo grimmt sem hún er skatt­lögð, einmitt í öfugu hlut­falli við verð orkunnar og hrá­efn­anna, svo smá­vægi­legt sem gjaldið er fyrir öll notin af umhverfi og nátt­úru jarðar, hvað þá heldur fyrir öll umhverf­is­spjöllin, svo lítt sem opin­berar álögur koma þar við sögu, hvað þá bætur fyrir skað­ann.

Gildir raunar einu hvort litið er til æ fram­leiðni­vædd­ari og skatt­frírri tækn­innar einnar og sér – og þar með til æ hrað­ari afskrifta og sóunar fram­leiðsl­unnar – eða til rekst­urs alls þess sem fram­leitt er og þjón­u­stað í krafti ofur­fram­leiðn­innar – nátt­úran og öll afleidd orkan er svo lágt metin að segja má að okkur, vel­ferð­ar­þegn­unum, séu þessi gæði færð á silf­ur­fati, lík­ast því sem móðir jörð væri okkar ánauð­ug­asti þræll, sem okkur bæri þar af leið­andi að slíta sem fyrst út, sem hverri annarri amb­átt. Svo slegin sem við erum blindu, að við hugum jafn­vel frekar að ábúð hinna best meg­andi eft­ir­kom­enda okkar á plánet­unni Mars – sem sagt þegar allt verði um þrotið – en að okkur öllum megi vera jörðin sem líf­væn­leg­ust í bráð og lengd.

Skilvirkni orkunnar – undir orkudrifnu skattkerfi

Rafmagn hefur á síð­ari tímum orðið æ öfl­ugri orku­mið­ill og mun vafa­laust móta meg­in­strauma hreinna orku­ferla í fram­tíð­inni, hverjir sem ann­ars frum­a­flgjaf­arnir nákvæm­lega verða. Raf­spenna felur þó ekki í sér neina slíka sjálf­stæða eig­ind að hún verði geymd með líkum hætti og jarð­efna­elds­neyti, sem er í eðli sínu þjáll forði – á sinn hátt líkt og korn – er allt að hent­ug­leikum má afla og varð­veita, flytja og dreifa, svo að fram­boð svari eft­ir­spurn á sér­hverjum stað og tíma. Enda myndar elds­neytið ekki orku fyrr en orku er þörf, við hvörf þess og súr­efnis fyrir hvata nægi­legs varma eða elds.

Umbreyt­ing raf­orku í til­tækan forða, á fljót­andi formi, loft­kenndu eða föstu, allt að þörfum, eftir eðli orku­ber­ans eða orku­hlöð­unnar, felur ávallt í sér orku­töp og þar af leið­andi fórn­ar­kostnað. En þeim mun hag­kvæm­ari, hand­hæg­ari, þjálli og með­færi­legri ferli og form varð­veislu, dreif­ingar og orku­neyslu sem þróuð eru, og þeim mun lægri álögur sem þró­un­ar­vinna mun bera í tekju­skatts­fríu skatt­kerfi, því hraðar munu hrein orka og hreinir orku­berar taka hinum koltví­ild­isauð­g­andi orku­ferlum fram.

[adspot]

Undir orku­drifnu skatt­kerfi munu fjár­munir sem varið er til jákvæðrar orku­þró­unar nýt­ast til fulls en eigi líkt og nú er almennt reglan undir hinum tekju­drifnu kerfum, að renni að drjúgum hluta jafn­óðum í skatt­hirslur hins opin­bera, sem hreinar álögur á tekjur þeirra er þró­un­ar­vinn­unni sinna. Umhverfis- og nátt­úru­gjöld munu þá jafn­framt hamla þróun land­frekra orku­kosta og lítt nátt­úru­vænna, en fyrir áhrif slíkrar gjald­töku væri til að mynda stuðlað að vali á hinum ýmsu haf­svæðum með ströndum fram undir vind­orku­garða fremur en á landi, að teknu til­liti til víð­tækra sjón­rænna áhrifa og hljóð­meng­unar er stafar af vind­myllum víð­ast hvar á landi – sama hvort valdir séu staðir í þéttri byggð, upp til sveita eða í óbyggðum.

Umhverf­isálög­urnar (gjöld pr. umhverf­is­not) væru þá í beinu hlut­falli við nei­kvæð áhrif sam­kvæmt umhverf­is­mati, á sinn hátt líkt og sól­ar­orku­ver, sem hver önnur orku­ver, bæru þeim mun meiri eða minni nátt­úru­gjöld eða ein­fald­lega lítil sem engin gjöld – allt eftir stað­setn­ingu og áhrifum hinna ýmsu virkj­ana, sem og ekki síður línu­lagna, á umhverfi, mann­líf og nátt­úru. Orku­gjöld (gjöld pr. orku­ein­ingu) tækju á hinn bóg­inn ein­ungis mið af fram­leiddri eða afhentri orku, hreinni sem óhreinni, óháð upp­runa, á sinn hátt líkt og kolefn­is­gjöld (gjöld pr. CO2-ígildi) tækju ein­ungis mið af losun kolefnis og kolefn­isí­gilda (þ.e.a.s. mið af óhrein­leika orkunnar), veggjöld (gjöld pr. ekinn tonn-km) mið af umferð­ar­þunga, og auð­linda­gjöld (t.d. gjöld pr. afla- eða sókn­ar­ein­ingu) mið af tak­mörk­unum og gróða­væn­leika nýt­ing­ar­réttar. – Sjá nánar m.a. kafl­ann Frá orku­sóun til orku­nýtni – frá rányrkju til umhverf­is­verndar í 3. hluta grein­ar­flokks­ins, Herra­garð­ur­inn – óðal aðals eða orkubú jarð­ar­búa, þar sem Ísland er tekið sem dæmi um fram­kvæmd orku- og auð­linda­drif­ins skatt­kerfis, sbr. m.a. þessa hér end­ur­birtu töflu...

Hafa ber í huga að undir orku­drifnu skatt­kerfi dregur veru­lega úr þeim ofur­sköttum sem hið opin­bera leggur ann­ars á sjálft sig undir hefð­bundnu, tekju­drifnu kerfi. Marg­feld­is­á­hrif alls þess furðu­lega spuna, þar sem drýgsti hluti lands­fram­leiðsl­unnar hring­sólar lát­laust úr einum vasa hins opin­bera yfir í annan (sem sagt álögur hins opin­bera á sitt eigið skinn, sjálfu sér til fram­færslu!) myndu dvína svo mjög, að bók­fært krónu­tölu­virði lands­fram­leiðsl­unnar myndi drag­ast saman um a.m.k. fjórð­ung – frá því að vera um 3.000 millj­arðar króna í um það bil 2.250 millj­arða, án þess þó að raun­fram­leiðsla hefði að nokkru leyti verið skert né þá heldur þjón­usta hins opin­bera.

Tekju­skatt­arnir sem hið opin­ber nú leggur á sjálft sig myndu raunar þurrkast út í heild sinni og allur beinn og óbeinn launa­kostn­aður þess lækka sem því næmi – líkt og raunar myndi ger­ast á öllum sviðum þjóð­fé­lags­rekstrar – að alls óbreyttum heild­ar­kaup­mætti gold­inna launa. Skyldi þá jafn­framt hafa hug­fast, að á móti hinum ýmsu orku- og nátt­úr­u­nýt­ing­ar­gjöldum myndi góður þriðj­ungur kostn­aðar af launum og þjón­ustu­kaupum falla niður, sem næmi e.t.v. um 50 millj­arða króna ábata t.d. sjáv­ar­út­vegs og stór­iðju á Íslandi, þ.e.a.s sem svar­aði til afnáms allra tekju­skatta í skattspori þeirra orku- og nátt­úru­freku atvinnu­greina.

Á landsvísu… á heimsvísu…

Virkjun sam­runa­orku felur í sér þann mikla kost umfram alla aðra hreina orku­öflun að afar öflug orkubú, og þó þeim mun minni að fyr­ir­ferð, mætti setja niður í grennd við orku­þurf­andi byggðir og iðju­ver eða nán­ast hvar­vetna þar sem veru­legrar orku er þörf og umhverfi og aðstæður almennt leyfa, m.a. með til­liti til kæl­ingar orku­vinnsl­unnar. Væri þá jafn­framt þeim mun minni þörf á stór­felldum raf­línu­lögnum til sam­teng­ingar svæða, sem á hinn bóg­inn vind- og sól­ar­orku­fram­leiðsla er nær alfarið und­ir­orpin, svo til­vilj­ana­kennd sem slík orku­fram­leiðsla er í flestu til­liti.

Þó að Ísland sé sá staður á jörð sem einna síst krefð­ist virkj­unar sam­runa­orku, slíka gnótt sem það býr yfir af öllu hefð­bundn­ari hreinni orku, a.m.k. mælt pr. hvert nef lands­manna, þá er landið engu að síður gott dæmi til sam­an­burðar – til marks um ávinn­ing­inn, er hljót­ast myndi af svo ofur­þéttri og hreinni orku­vinnslu, gagn­vart umhverfi og ásýnd jarðar, sem virkjun sam­runa­orku fæli í sér, miðað við allt það land­flæmi og hin ýmsu nei­kvæðu umhverf­is­á­hrif sem flest önnur orku­öflun, hrein og óhrein, hefur í för með sér. – Sjá ann­ars nánar um virkjun sam­runa­orku (fusion energy) í 2. hluta greina­flokks­ins, Herra­garð­ur­inn – orkan og almúg­inn – m.a. kafl­ana Eilífð­ar­vél­arnar – og kolefn­is­forð­inn í jörð og Sam­runa­orka og hlut­falls­leg umhverf­is­á­hrif orku­kosta.

Öll raf­orku­fram­leiðsla á Íslandi, sem er um 20 TWst á ári (20.000.000 MWst), gæti farið fram í einu 3.000 MW sam­runa­orku­veri (eða t.d. í þremur 1.000 MW orku­verum), álíka að afli og Ringhals kjarn­orku­verið í Svíþjóð bjó yfir fyrir tveimur árum (en afl þess var minnkað úr 3.050 MW í 2.190 MW fyrir rúmu einu og hálfu ári, vegna reglu­gerð­ar­breyt­inga í kjöl­far Fukus­hima ham­far­anna árið 2011). Ringhals orku­verið tekur ein­ungis til rúm­lega 1 fer­kíló­metra lands – út við strönd Jót­lands­hafs, um 50 km suður af Gauta­borg – álíka að umfangi og sam­svar­andi sam­runa­orku­ver myndi gera – hér að ofan sýnt í sam­an­burði við umfang Sogs­virkj­ana og alls orku­óð­als Íslend­inga... vel að merkja ekki til marks um ákjós­an­lega stað­setn­ingu slíks ofur­orku­vers!

Nánar til­tekið, borið saman við slíkt 3.000 MW ofur­orku­ver, þá er eig­in­legt flat­ar­um­fang Sogs­virkj­ana, er byggja á nokkuð jöfnu rennsli árið um kring og krefj­ast því vart eig­in­legra miðl­un­ar­lóna, um helm­ingi minna, rúm­lega ½ fer­kíló­metri – að með­töldu nán­asta und­ir­lendi beggja vegna Sogsins, sam­an­lögðu rösk­uðu landi og mann­gerðu vatns­lóni, mann­virkjum öllum, vegum og umbyltum árfar­vegi, allt frá Ljósa­fossi niður fyrir munna rennsl­is­ganga neðan Kistu­foss. Sam­an­lagt upp­sett afl þess­ara einna skil­virk­ustu og arð­bær­ustu virkj­ana Íslend­inga er þó ein­ungis um 64 MW og árleg raf­orku­fram­leiðsla rúm­lega 0,3 terawattstundir (341.000 MWst). Engu að síður er orku­upp­skera af hverri flat­ar­ein­ingu und­ir­lagðs áhrifa­svæðis að minnsta kosti tíföld á við Fljóts­dals­stöð / Kára­hnjúka­virkjun.

Áhrifa­svæði Fljóts­dals­stöðvar, sem er 690 MW að afli, svarar að minnsta kosti – afar var­færn­is­lega metið – til umfangs Þing­valla­vatns (sem er 84 km2), þá að með­töldu Hálslóni og umhverfi þess og rösk­uðum árfar­vegum Jöklu og Lag­ar­fljóts allt niður að ósum við Hér­aðs­flóa. Ber þá ekki síður að líta til langvar­andi áhrifa á líf­ríki fló­ans og fljót­anna og alls lands­ins um kring, sem og ekki síður til marg­hátt­aðra rúm­fræði­legra og líf­fræði­legra áhrifa af línu­lögnum – sem á hinn bóg­inn væru miklum mun minni ef sam­runa­orku­ver ætti í hlut. Enda væri orku­verum þá almennt val­inn staður innan skamms vegar frá svæðum meg­in­notk­unar – líkt og einmitt á við um Ringhals orku­verið í Svíþjóð – en hins vegar án minnstu slíkrar hættu af geisla­virkni sem stafar af kjarna­klofn­ingi.

Þótt öll tækni­orka mann­kyns væri á einn eða annan veg leidd af kjarna­sam­runa, væri áhætta í heild sinni af völdum geisla­virkni hverf­andi lítil sam­an­borið við hætt­una sem nú þegar stafar af öllum kjarn­orku­verum jarð­ar­búa, sem eru um 500 tals­ins og byggja öll á afar áhættu­sömum kjarna­klofn­ingi, líkt og Ringhals verið. Nemur fram­leiðsla þeirra í heild þó ein­ungis um eða innan við 2% orku­þarfar­innar.

Uppskera virkj­aðrar sam­runa­orku af hverri fat­ar­ein­ingu – með öðrum orðum orku­upp­skera með hlið­sjón af land­notkun og umfangi virkj­aðs lands – myndi gróft á litið vera um þrí­tug­föld á við góðar rennsl­is­virkj­anir sem lítt eru háðar miðl­un­ar­lónum, svo sem Sogs­virkj­an­irnar, en a.m.k. tvö­hund­ruð til þrjú­hund­ruð­föld á við land­frekar vatns­afls­virkj­anir, á borð við Þriggja gljúfra stífl­una í Kína eða til að mynda Kára­hnjúka­virkjun (Fljóts­dals­stöð), er nýta afar umfangs­mikil miðl­un­ar­lón til jöfn­unar á rennsli, með feiki­legum áhrifum á land og líf­ríki, oft með tuga metra árs­tíða­bundnum sveiflum á vatns­borðs­hæð lóna og eftir því æði breyti­legu flæð­ar­máli og flat­ar­um­fangi, auk ómældra áhrifa á land og vatna­svið langt út fyrir virkjuð svæði.

Miðað við sól­rík­ustu og vinda­söm­ustu svæði jarðar myndu afkasta­mestu vind­orku­garðar og sól­ar­orku­ver skila svip­aðri upp­skeru til jafn­aðar og land­frekar vatns­afls­virkj­anir – afar gróft á litið – sem sagt um tvö­hund­ruð til þrjú­hund­ruð­falt minni orku af flat­ar­ein­ingu en sam­runa­orku­ver, að því gefnu að litið sé til heild­ar­um­fangs orku­garð­anna, að ógleymdum hinum sjón­rænu áhrifum af vind­orku­görðum langt út fyrir eig­in­leg land­fræði­leg mörk, auk þess ekki síður sem hljóð­ræn áhrif hafa að segja og áhrif á fugla­líf og fleira.

[adspot]

Sem næst þús­und­föld myndi þó upp­skera sam­runa­orku­búa vera á við hin land­frek­ustu vatns­orku­ver, t.d. á borð við Blöndu­virkjun eða fyr­ir­hug­aða Hval­ár­virkjun, þar sem vart er við meira afli að búast til jafn­aðar en um 2 til 3 wöttum af hverjum fer­metra virkj­aðra land­svæða, lón­stæða og árfar­vega, sem skilar vart 20 til 30 kílówattstunda orku­upp­skeru af fer­metra á ári... Væri upp­skeru­munur sam­runa­orku­búa reyndar alveg tug­þús­und­faldur á við líf­elds­neyti af akri, þar sem varla er að vænta meira afls til jafn­aðar en sem svarar til lít­ils brots úr watti á fer­metra, svo að jafn­gildir ein­ungis um 1 til 3ja kílówattstunda orku­upp­skeru af fer­metra á ári! En sam­runa­orku­ver myndu að vænta má skila áþekkri orku af hverri virkj­aðri flat­ar­ein­ingu og hefð­bundin kjarn­orku­ver, um 15 til 20 þús­und kílówattstundum af fer­metra á ári, og þó með hverf­andi litlum áhrifum á umhverfi, nátt­úru og byggð...

Aug­ljós­lega eru umhverf­is­á­hrif hinna ýmsu mis­mun­andi orku­kosta afar mis­jöfn og skil­virkni þeirra ekki síður mjög marg­breyti­leg, svo sem lýst er á mynd­rænan hátt í bjálka­rit­inu hér að ofan, hér end­ur­birt frá 2. hluta greina­flokks­ins, Herra­garð­ur­inn – orkan og almúg­inn. Dregin er upp mjög ein­földuð mynd af hlut­falls­legum áhrifum hinna ýmsu orku­kosta á umhverfið, jafnt hvað varðar hrein og bein land­not sem óbein land­not og áhrifa­svæði, jafnt hvað varðar hin ýmsu áþreif­an­legu áhrif, sjón­ræn og hljóð­ræn áhrif og hin marg­vís­leg­ustu líf­rænu áhrif, að ekki sé talað um hinar skað­væn­leg­ustu afleið­ingar sem leiða af gróð­ur­húsa­á­hrifum, geisla­virkni, sóun vatns, spill­ingu jarð­vegs og ofnotkun nær­ing­ar­efna á borð við fos­fór.

Í ljósi þess hve hag­nýt­ing sam­runa­orku á enn langt í land – og þó vissu­lega þeim mun skemmra sem þró­un­ar­starfið verður fyrr leyst úr fjötrum skatta­á­þjánar – þá eru sól­ar­orka og vindafl eig­in­lega einu virkj­ana­kost­irnir sem í allra nán­ustu fram­tíð geta á víð­tækan og til­tölu­lega hag­kvæman máta komið í stað hinna löngum nær alls­ráð­andi koltví­ild­isauð­g­andi kosta. Þyngst mun þá vænt­an­lega vega virkjun sól­ar­orku er byggir á ljós­spennu, ekki síst í ljósi til­tölu­lega góðra land­fræði­legra mögu­leika all­víða á jörð og æ skil­virk­ari raf­orku­vinnslu, og svo hins vegar vindafl, þá sér í lagi virkjað á völdum haf­svæðum með ströndum fram, enda gætir þá yfir­leitt mun síður sjón­rænna og hljóð­rænna áhrifa frá myll­unum en á landi – og er þá engu að síður ósvarað spurn­ingum er varða t.d. áhrif á fugla­líf og áhrif af raf­seg­ul­sviði raf­magn­s­kapla á grunn­sjáv­ar­líf o.fl.

Vind- og sólarorka og möguleg miðlun orkunnar – að hentugleikum

Afli sólar og vinds er sann­ar­lega afar mis­skipt þó að til jafn­aðar skyldi það vera yfrið nóg til að seðja orku­þörf mann­kyns – vegið sam­an­lagt á hnatt­ræna vísu, langsum og þversum yfir heims­álfur og lofts­lags­belti. Hvort tveggja felur vissu­lega í sér fremur óáreið­an­lega orku, enda háð marg­vís­legum sveiflum og veð­ur­fars­legri óreiðu. Tak­mörkuð fylgni er því á milli mögu­legs fram­boðs orkunnar á hverjum stað og hverjum tíma í bráð og lengd og á hinn bóg­inn eft­ir­spurnar af hálfu neyt­enda, orku­not­enda, að því þó athug­uðu að orka sólar er vissu­lega mest að deg­inum þegar eft­ir­spurn eftir orku er með meira móti á ýmsum sviðum. Fer það þó ósjaldan lítt saman að orku­frek­ustu byggðir og iðn­að­ar­svæði séu hin sól­rík­ustu eða hin vinda­söm­ustu.

Ljósafl og varma­afl sólar er eðli máls sam­kvæmt mest á mið­lægum breidd­argráðum. Virkj­an­leiki orkunnar er þó almennt mestur á heittempruðum slóðum, enda gætir þar sól­skins mest á jörð – og eyði­marka – vegna þess hve heittemprað lofts­lag er þurrt og felur því yfir­leitt í sér mikla heið­ríkju, and­stætt við rakt og oft skýjum hulið hita­beltið, sér­stak­lega um mið­bik þess.

Kraftar vinds eru svo þeim mun meiri sem fjær dregur frá hita­belt­inu – eru all­nokkrir á köflum í heittempr­uðu belt­unum en fara ann­ars vax­andi með sval­ara lofts­lagi og eru til jafn­aðar mestir á kald­tempruðum slóðum, þá ekki síst á höfum úti og með ströndum fram, í fjal­lendi og á hásléttum. Dregur svo heldur úr vind­styrk á ýmsum köld­ustu slóðum heim­skauta­svæð­anna.

Það er því eigi lítil umbylt­ing orku­bú­skap­ar­hátta fólgin í umskiptum frá óhreinu jarð­efna­elds­neyti, er nú myndar megin afls og orku um alla jörð, til hreinnar raf­orku, sem grund­vall­arafls á flestum sviðum, að meg­in­stofni með rætur í afar mis­skiptri og fremur óáreið­an­legri orku sólar og vinds – svo lengi sem virkjun sam­runa­orku stendur ekki til boða.

Svo hand­hægt sem jarð­efna­elds­neyti er á ýmsan máta – sem leiðir ekki síst af því hve það er í eðli sínu þjáll forði og með­færi­legur þrátt fyrir óhrein­leik­ann – þá hefur það aftur á móti reynst þrautin þyngri að þróa orku­bera og orku­hlöður er á jafn skil­virkan máta gætu brúað bilið milli vinnslu hreinnar raf­orku og á hinn bóg­inn marg­vís­legrar orku­notk­unar, á þann veg að vinnslan og notk­unin væru óháð hvoru öðru í tíma og rúmi, allt að hent­ug­leikum, þegar svo bæri undir.

Svo sára­lítið sem sól­skin og vindur enn vega við orku­fram­leiðslu þá hefur það dugað hingað til að jafna met fram­boðs og eft­ir­spurnar með miðlun raf­magns frá jarð­gas- og kola­orku­verum, auk kjarn­orku­vera og vatns­afls­virkj­ana, svo afar lítið sem hin síð­ar­nefndu þó vega sem hlut­fall af allri heild. Hin hefð­bundnu raf­orku­ver gegna þá þeim mun fremur hlut­verki vara­afls­stöðva sem nýorkan vegur þyngra. Þar af leiðir að því meiri og árs­tíða­bundn­ari sem sveiflur eru á fram­leiðslu sólar- og vind­orku, og því minna sem sólar- og vind­orka ná að vega hvor aðra upp, þeim mun meira þurfa þá vara­afls­stöðvar að búa yfir af til­tæku, upp­settu umframafli en ella. Þörf árs­tíða­bund­ins vara­afls – sem eðli máls sam­kvæmt væri þá að drýgstum hluta óhreint afl – fer þá allt eftir því hve lítt nýtur sólar eða vinds á hverri árs­tíð, og ræðst vara­afls­þörfin þó ekki síður af hinum ýmsu dæg­ur­sveiflum og veð­ur­fars­sveiflum til skemmri tíma litið.

Aftur á móti er sá mögu­leiki að raf­dreifi­kerfi væru lögð á svo víð­tækan máta milli vind- og sól­ar­orku­vera að ekki tengdu kerfin fyrst og fremst saman nálæg­ustu héröð og lönd heldur væru nán­ast heilu heims­álf­urnar, lofts­lags­beltin og tíma­beltin meira og minna sam­tengd á nær órofa raf­orku­netum. Líkur eru þá þeim mun meiri á að í stað óhreins varafls sé hrein umframraforka ávallt fyrir hendi á ein­hverjum svæðum er streyma megi til hinna van­haldn­ari svæða, allt eftir því hvernig vindar blása eða sólar nýtur á hverjum stað á hverjum tíma – allt eftir tíma­beltum og lofts­lags­beltum – og á hinn bóg­inn sem nemur eft­ir­spurn eftir orkunni.

En einu gildir, upp­sett afl í heild þyrfti engu að síður að nema marg­faldri raunafls­þörf­innni, enda myndu öll orkubú þá í raun þjóna sem vara­afls­stöðvar fyrir hvert og eitt annað, út um allar jarðir, út um allar álfur nán­ast hnött­inn um kring, er óum­flýj­an­lega kall­aði þá jafn­framt á afar marg­þætt net raf­línu­lagna, með öllum þeim marg­vís­legu og nei­kvæðu umhverf­is­á­hrifum sem línu­lögnum fylgja – nema að þróun hag­an­legrar orku­geymslu­tækni tæki veru­legum fram­förum.

En svo mann­afls­frekt sem allt þró­un­ar­starf er – jafnt hvað varðar marg­háttuð fræði­störfin sem og ekki síður allra­handa tækni­leg störfin, er lúta að smíði og gerð allskyns frum­gerða og öflun reynslu­þekk­ingar – þá gefur auga­leið að hið opin­bera er mesti drag­bít­ur­inn, hirð­andi hart­nær helm­ing­inn af öllu því tak­mark­aða fé sem veitt er til þró­un­ar­starfs­ins, sama hvort runnið er úr vösum einka­að­ila eða hins opin­bera, sama hverjar hung­ur­lús­irnar eru eða auð­mýkj­andi styrkirnir, mol­arnir sem falla af yfir­hlöðnum borðum. Kemur þá nán­ast út á eitt hvort auð­valdið er, hið opin­bera, auð­mýktin upp­máluð, eða olíg­ar­k­arnir, sem hvort eð er, leynt og ljóst, stýra stjórn­völdum um nán­ast alla jörð, í krafti ofur­fríð­inda sinna, sér og allri spill­ing­unni í hag.

Svo grimmt bítur tekju­skatts­kerfið í skottið á öllu þró­un­ar­starfi – líkt og það for­smáir hverskyns annað hug- og hand­ar­verk manna, rotnu eðli kerf­is­ins sam­kvæmt – hvað þá í ljósi þess hve þró­un­ar­starf er yfir­leitt sér­hæft og þar af leið­andi hátt launað og þar með þeim mun frekar sköttum þrúgað – algjör­lega and­stætt við allan koltví­ild­isauð­g­andi rekst­ur­inn, nán­ast sama af hvaða tagi er, slíkir sem eru þá þjóð­fé­lags­legir ofur­styrkirnir, sem sagt skatt­fríð­indin, reyndar í beinu hlut­falli við yfir­gengi­leg spjöllin á nátt­úru og umhverfi jarðar. Sem og þá eðli máls sam­kvæmt í réttu hlut­falli við upp­hafn­ingu kvóta­greif­anna um alla jörð, yfir­stétt­ar­innar sem yfir auð­lind­unum gín, bruðlandi með gæðin, lík­ast því sem guðs­gjöf væri, lík­ast því sem jarðar­óð­alið væri þeirra arf­borin eign, slíkt sem er enn áhrifa­vald herra­garðs­eig­enda, ung­herr­anna hinna nýju, nýað­als­ins sem nú all­flestu ræður hér á jörð.

Líkan að algjörum orkuskiptum – frá óhreinni orku til hreinnar orku

Hópur fræði­manna, sem flestir starfa við Stanford háskól­ann í Kali­forníu, hefur hannað líkan eða leið­ar­vísi að algjörum orku­skiptum frá óhreinni orku – jarð­efna­elds­neyti, kjarn­orku og líf­elds­neyti – til hreinnar raf­orku. Líkanið tekur til orku­skipta í 139 ríkjum, er bera ábyrgð á um 99% allrar los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á jörð­inni. Felur það í sér raf­væð­ingu á nán­ast öllum orku­sviðum, með höf­uð­á­herslu á vind- og sól­ar­orku sem fram­tíð­ar­orku­gjafa, en fyr­ir­liggj­andi, virkjað vatns­afl myndi m.a. þjóna sem vent­ill eða var­afl til jöfn­unar á sveiflum orku­fram­boðs og orku­eft­ir­spurnar.

[adspot]

Þrátt fyrir að upp­sett afl sólar- og vind­orku­vera hljóti að nema marg­faldri þeirri raunafls­þörf sem orku­verum sé ætlað að þjóna, þá er það engu að síður svo, að nýt­ing sjálfrar frumorkunnar, sem losuð er fyrir afl sólar eða vinds, er miklum mun betri en nýt­ing sam­svar­andi orku sem losuð er við brennslu jarð­efna­elds­neytis, enda glat­ast þá yfir­leitt gríð­ar­leg varma­orka, hvort sem far­ar­tæki eiga í hlut eða raf­orku­ver, hvort sem knúin eru olíu, kolum eða jarð­gasi, auk þess sem mikil orka fer til vinnslu elds­neyt­is­ins, hreins­unar þess, flutn­ings og dreif­ingar. Óaft­ur­kræf umhverf­is­á­hrifin af völdum óhreinnar frumorku eru þó söm og jöfn, jafn slæm, sama hve mikil orka fer í súg­inn eða nýt­ist til eig­in­legrar vinnu og allra­handa verka.

Mynd­irnar hér að neðan lýsa í hnot­skurn hugs­an­legri þróun umskipta frá óhreinni orku til hreinnar orku fram til árs­ins 2050 og hve draga myndi úr frumorku­þörf jarð­ar­búa við umskiptin. – Sjá umfjöllun í CleanTechnica í ágúst 2017, er felur jafn­framt í sér vísun til meg­in­skýrslu höf­und­anna, sem er fyrst og fremst byggð á verk­fræði­legum for­sendum: 100% Renewable Energy For 139 Nations Detailed In New Stanford Report. Slík umskipti myndu, eðli máls sam­kvæmt, taka mun skemmri tíma undir orku­drifnu skatt­kerfi en höf­undar skýrsl­unnar gera ráð fyrir, enda gefa þeir sér afar fáar hag­fræði­legar og félags­fræði­legar for­sendur, hvað þá bein­línis stjórn­mála­fræði­legar.

Ef nán­ast öll orku­not væru raf­vædd og öll fram­leiðsla raf­orku væri hrein, myndi mun­ur­inn á fram­leiddri frumorku (sem nemur nú um 160.000 TWst/ári) og raun­veru­legri nýttri orku, sem nemur tals­vert minna (nú um stundir um 110.000 TWst/ári), minnka til mik­illa muna.

Heild­ar­orku­notk­unin gæti raunar orðið mun minni en raun ber nú vitni um, í ljósi þess hve miklum mun meiri orka fer til vinnslu, hreins­unar, flutn­ings og dreif­ingar jarð­efna­elds­neytis en til sam­svar­andi fram­leiðslu og miðl­unar hreinnar raf­orku, auk þess sem gríð­ar­legt varma­orku­tapið við brennslu elds­neyt­is­ins telur, hvað þá öll losun gróð­ur­húsa­loft­teg­und­anna.

Skýr­ing­ar­myndin hér að ofan er vill­andi að því leyti að raf­línumast­ur­s­táknið vinstra megin við miðju, óhreinnar orku megin, ætti mun fremur að vera hægra megin, hreinnar orku megin, en mun minna slíkt tákn þá hinum megin, enda fæli algjör raf­væð­ing jarð­ar­innar á for­sendum vind- og sól­ar­orku í sér miklu umfangs­meiri raf­línu­lagnir en núver­andi raf­orku­notkun jarð­ar­búa hefur kallað á, telj­andi nú ein­ungis um fimmt­ung allrar orku­notk­unar.

Raf­orku­vædd jörð á for­sendum sam­runa­orku fyrst og fremst, fæli þó í sér mun minni þörf á raf­línu­lögnum, enda væri orkan þá víð­ast hvar til­tæk til­tölu­lega skammt frá megin notk­un­ar­stöðum. Þörf á streymi varafls, hvað þá um langan veg, væri því mun minni eða varla nein. Veruleg sam­runa­orku­væð­ing myndi þó að ýmsu öðru leyti leiða til nokkuð áþekkrar nið­ur­stöðu og líkanið felur í sér en með mun minni og jákvæð­ari umhverf­is­á­hrifum.

(Sjá hér skýrslu Stanford-hóps­ins í heild, ásamt ítar­legum skýr­ingum (Supplem­ental Information: 100% Clean and Renewable Wind, Water, and Sunlight All-Sector Energy Roadmaps for 139 Countries of the World – Jacobson et al., Joule 1, 108–121)

Helstu skýr­ingar: B.A.U. = Business-As-Usual = hefð­bundin við­skipti, hefð­bundið óbreytt orku­neyslu­mynstur. // END-USE POWER (t.v) = afhent afl til fulln­að­ar­nota. // 100% WWS = Wind, Water, Sun = vindafl, vatns­afl, sól­ar­afl (sbr. t.h.) // Virk afl­þörf árið 2012 = "12.105 TW" (t.v.) = 12,1 TW, en að óbreyttu orku­neyslu­mynstri árið 2050 (t.h) = 20,6 TW, eða á hinn bóg­inn 11,8 TW undir 100% WWS-afli, að upp­rættu óhreinu elds­neyti – ath. að aukastafa­punkti að enskum rit­hætti er hér víxlað út fyrir kommu að íslenskum hætti.

Hafa má í huga að virkt afl (power) lýsir til­teknum krafti í einni og sömu andrá, á sama augna­blik­inu, en orka (energy) felur á hinn bóg­inn í sér ígildi vinnu af völdum afls á til­teknu tíma­bili. Orka = Afl x tíma­lengd afl­nýt­ing­ar­innar. Allt til­tækt afl marg­faldað með lengd nýt­ing­ar­tíma aflsins, t.d. klukku­stund, viku, mán­uði eða ári, sam­svarar þá nýttri heild­ar­orku á tíma­bil­inu. Tiltekin, nýtt heild­ar­orka jafn­gildir þá þeirri sam­an­lagðri vinnu sem innt hefur verið af hendi – t.d. vinnu af völdum virks tækni­afls mann­kyns í eitt ár, sem einmitt er vísað til í linu­rit­inu.

Að upp­fylltu 100% WWS-mark­mið­inu gerir líkanið ráð fyrir að virk afl­þörf muni minnka um 23% vegna betri orku­nýt­ingar að upp­rættum bruna­hreyflum og öðrum jarð­efna­kyntum bún­aði, hvort sem nú gagn­ast far­ar­tækjum, orku­verum eða hverju sem er slíku, um 7% vegna hreinna orku­neyslu­mynsturs á öðrum sviðum og um 13% vegna úti­lok­unar vinnslu, hreins­unar, flutn­ings og dreif­ingar jarð­efna­elds­neytis.

Samkvæmt lík­an­inu myndi raunafls­þörf – sem sagt til virkrar frumorku­vinnslu, í sjálfu sér óháð upp­settu afli í heild – verða um 43% minni undir algjöru vind-, vatns- og sól­ar­afli (100% WWS-afli) en ella, svo að næmi sem næst um 11,8 TW árið 2050 í stað um 20,6 TW að öllu óbreyttu til sama tíma. Þrátt fyrir veru­lega aukn­ingu allrar tækni fram til árs­ins 2050, vegna síauk­ins fjölda jarð­ar­búa og auk­innar tækni­væð­ingar og þró­unar, myndi afl­þörfin sem sagt standa nán­ast í stað með umskiptum frá allra­handa óhreinni orku til hreinnar raf­orku, vegna miklu betri nýt­ingar frumorkunnar, þeirrar raun­veru­legu orku sem þarf til rekst­urs alls óðals jarð­ar­búa, jörð­ina um kring, heim­skaut­anna á milli.

Þróunin myndi þó verða mun hrað­ari undir orku­drifnu skatt­kerfi, jafn­vel svo að á sumum sviðum yrði mælt í ára­tuga skemmri ferlum – slíkur væri þá hvat­inn til hag­felld­ari orku­neyslu, hvat­inn til betri orku­nýt­ingar og skyn­sam­legri nátt­úr­u­nota á öllum sviðum. Hvað þá að teknu til­liti til hrað­ari þró­unar á nýt­ingu sam­runa­orku, sem af myndi leiða, til lengri og skemmri tíma litið.

Líkan Stanford-hóps­ins var þá þegar farið að úreld­ast þegar það var sett fram á árinu 2017, enda skortir flesta efna­hags­lega hvata því til stuðn­ings. Virðist hóp­ur­inn raunar vart hafa gert ráð fyrir neinum hag­rænum grund­vall­ar­breyt­ingum sem heitið geti – hvað þá bein­línis stjórn­ar­fars­legum – heldur fyrst og fremst því að styrkir og skatta­legar und­an­þágur frá lítt breyttu hag­kerfi myndu stuðla að hreinni orku­notum, ásamt því vissu­lega að kolefn­is­gjöld og ígildi þeirra myndu draga úr eft­ir­spurn eftir óhreinni orku. Marg­slungin nei­kvæð heild­ar­á­hrif WWS-afls – vinda­fls, vatns og sólar – á sam­fé­lag og nátt­úru eru því að mestu látin ótalin, á sinn hátt líkt og fórn­ar­kostn­að­ur­inn vegna koltví­ild­isauð­g­andi fríð­ind­anna hefur löngum verið van­tal­inn, sbr. hér og í fyrri greinum marg­um­fjallað.

Hafa skyldi þó ríkt í huga að líkanið eða leið­ar­vísir­inn er fyrst og fremst verk­fræði­leg grein­ing á mögu­leikum sólar- og vind­orku, auk vatns­orku, sem og orku sjáv­ar­falla og strauma og jarð­hita, að svo litlu leyti sem hið síð­ar­nefnda kemur þó til álita. Með lík­an­inu er því lagður góður grunnur að marg­vís­legri tækni­legri útfærslu, sem skyldi nýt­ast mun ítar­legri heild­ar­út­færslu, umhverf­is­legri jafnt sem hag­fræði­legri. Ótvírætt er sýnt fram á að hrein orka á sér miklu meiri mögu­leika en almennt hefur verið látið í veðri vaka. Grein­ingin er því kjörið vega­nesti inn í fram­tíð­ina – jafn­vel inn í hina allra nán­ustu fram­tíð ef stjórn­mála­menn, hag­fræð­ingar og umhverf­is­fræð­ingar legð­ust á eitt með hinum fram­sýn­ustu verk­fræð­ingum við mótun virkra stjórn­tækja í stað þess að vera eilíf­lega að lappa upp á úr sér gengin stjórn­kerfi með smá­skammta­lækn­ingum, löngu úreltum patent­lausnum og lít­ils­virð­andi styrkjapóli­tík, veg­andi vart meira í hinu stóra sam­hengi hlut­anna en fjúk­andi fis móti tröll­ríð­andi tekju­skatt­spóli­tík­inni, engu lík­ara en hag­fræðin sé svo bjarg­föst orðin að hún hljóti að verða stein­runnin um aldur og ævi.

Orku­drifið skatt­kerfi felur í sér slíkan hvata til nýsköp­unar – ekki síst vegna afnáms skatt­byrðar sköp­un­ar­starfs­ins – að marg­vís­legar orku­bú­skap­ar­lausnir tækju nán­ast að sjálf­gefnu stór­stígum fram­förum. Enda væri jarð­efna­elds­neyti þá eigi lengur sjálf­gefin, hræó­dýr orku­lausn – líkt og nú er á flestum sviðum víð­ast hvar á jörð, tálm­andi svo frek­lega öðrum lausnum – heldur þvert á móti sköttum þrúguð bráða­birgða­lausn.

Lausnir kæmu þá einmitt í sjón­mál, með auk­inni þróun, er mið­uðu að svo hag­an­legri varð­veislu, miðlun og dreif­ingu hreinnar orku, að vel mætti jafna til með­færi­leika jarð­efna­elds­neytis, einmitt á þann veg að vinnsla orkunnar og hins vegar orku­notk­unin geti verið sem óháð­ust hvoru öðru þegar svo ber undir, þá ekki síst á sviði sam­gangna og vinnu­véla­tækni, en jafn­framt og ekki síður til jöfn­unar á afar sveiflu­kenndri fram­leiðslu vind- og sól­ar­orku­vera.

Má raunar að líkum leiða að raf­elds­neyti og orku­berar á borð við vetni, í hinum ýmsu efna­fræði­legu myndum, muni þá leysa jarð­efna­elds­neyti hratt af hólmi, ekki síður en raf­hlöður, fyrir enn frek­ari og hrað­ari þróun en hingað til, sem og þá einnig þráð­laus orku­flutn­ingur, að muni jafn­vel fara skjótt af stigi frum­þró­unar á hag­nýtt stig (er ekki síst myndi gagn­ast sam­göngum) – ein­fald­lega vegna þess hve lítt skatt­lagt þró­un­ar­starfið mun nýt­ast mun betur og lausn­irnar þar af leið­andi bera hag­kvæman árangur mun fyrr en ella, hvað þá að afnumdum öllum skatt- og koltví­ild­is­fríð­indum meng­un­ar­vald­anna, umhverf­is­sóð­anna sem hafa verið alls­ráð­andi svo alltof lengi um alla jörð.

Lausn­irnar munu þá ekki ein­ungis nýt­ast sólar- og vind­orku­bú­skap til skemmri tíma litið heldur ekki síst sam­runa­orku­vinnslu til langrar fram­tíðar litið, þá er verk­fræði- og vís­inda­sam­fé­lagið, laust undan oki skatta­á­þjánar, mun hafa þróað hinar hag­nýt­ustu aðferðir til virkj­unar sam­runa­orku sem meg­in­afls á flestum sviðum.

Niðurlag

Hvort sem litið er til verk­fræði- og vís­inda­sam­fé­lags­ins, eða til alls þorra almenn­ings, þá mun slíkt skatt­kerfi sem hér, í þessum greina­flokki, hefur verið lýst, hafa í för með sér grund­vall­ar­breyt­ingar á öllum þjóð­hags­stærðum. Meg­in­þungi opin­berra álaga mun þá eigi lengur hvíla á herðum alls þorra vel­ferð­ar­þegn­anna – né þá heldur á herðum hins opin­bera, sem öllu jöfnu, beint og óbeint, ber nú hart­nær helm­ing þung­ans (svo hart sem það gengur fram í að skatt­leggja sjálft sig, svo ótrú­lega sem það þó hljómar!) – heldur fyrst og fremst hvíla á þeim breiðu bökum, sem hvað ákaf­ast hafa kosið að nýta sér umhverfi okkar, orku, hrá­efni og nátt­úru­auð­lindir jarðar, sér til hags­bóta – og hvort þá ekki öll þau koltví­ild­isauð­g­andi fríð­indi sem hingað til hafa verið nær sjálf­gefin þeim er hafa verið hvað frek­astir til fjár­ins og allrar nátt­úru­spill­ing­ar­innar.

Með slíku gjör­breyttu skatt­kerfi, er fyrst og fremst tæki mið af orku- og nátt­úr­u­notum, myndi beinum álögum á tekjur verða aflétt. Heild­ar­launa­kostn­aður lækk­aði þá sem næmi afnámi skatt­anna en ráð­stöf­un­ar­tekjur þjóð­fé­lags­þegn­anna héld­ust í meg­in­dráttum óbreyttar. Það væri svo undir hverjum og einum komið hvernig tekjum væri varið – vissu­lega – að hve miklu leyti til kaupa á orku og tækni­afli, slíkri vöru eða þjón­ustu er á einn eða annan veg væri bundin opin­berum álögum, eða til kaupa á slíkri vöru eða þjón­ustu er fyrst og fremst væri háð mann­afli og þá þeim mun minna háð opin­berum álögum.

[adspot]

Gefur auga­leið, eðli orku- og auð­linda­drif­ins skatt­kerfis sam­kvæmt, að orka og allt mjög orku­háð tækni­afl, sér í lagi allt það sem leitt er af bruna jarð­efna­elds­neytis, myndi hækka einna mest í verði en aftur á móti myndi nán­ast allt hug- og hand­verk lækka til muna í verði, enda væri mann­aflið þar að baki síst sköttum háð. En einu álög­urnar sem legð­ust jafnt á alla fram­leiðslu og þjón­ustu, einka­rekna jafnt sem opin­bera – alls und­an­tekn­inga­laust, alls óháð öðrum sköttum og gjöldum, alls óháð tækni­stigi – væri virð­is­auka­skattur, e.t.v. um 13%.

Eðli máls sam­kvæmt væri ráð­stöfun tekna undir hverjum og einum komið – hvort útgjöldin rynnu til kaupa á mjög skatt­lagðri vöru eða þjón­ustu, er væri þá almennt leidd af gjald­skyldri orku- og nátt­úr­u­nýt­ingu, eða til kaupa á lítt skatt­lagðri vöru og þjón­ustu, sem eins og gefur að skilja væri þá fyrst og fremst byggð á mann­afli. Kaup­máttur væri m.ö.o. óbreyttur – til jafn­aðar – og þó allt eftir skattspori ein­stakra við­skipta hvers og eins, hvort sporin fælu í sér miklar, miðl­ungs eða litlar opin­berar álögur, allt eftir neyslu­mynstri hvers og eins.

Sama gilti raunar um allan rekstur – að því háð­ari sem starf­semi er orku og tækni­afli, og þar með nátt­úru­auð­lindum jarðar, þeim mun þyngra myndu beinar eða óbeinar álögur hins opin­bera vega (og þá sann­ar­lega þyngst er mjög koltví­ild­isauð­g­andi rekstur á í hlut!) – and­stætt við þær marg­vís­legu starfs­greinar er byggja á mann­afli fyrst og fremst, án telj­andi ágengni við nátt­úr­una… svo sem skóla­starf og allra­handa fræði, heil­brigðis- og almanna­þjón­usta, fjöl­miðlun, kvik­mynda­gerð, bóka­út­gáfa, lög­fræði­þjón­usta, bók­halds­þjón­usta, veit­inga­þjón­usta, hár­greiðsla og klipp­ing, nudd, lík­ams­rækt, sem og þá ekki síst all­flest við­hald hluta, tækja og mann­virkja, sem sagt að því marki sem sporin marka ekki djúpt í nýt­ingu nátt­úru jarðar...

Um öll þessi efni hefur höf­undur fjallað í ítar­legu máli í hinum ýmsu þáttum greina­flokks­ins, sem alls telur þessar fjórar greinar:

Herra­garð­ur­inn – og vér orku­að­all­inn: Um meg­in­drætti hins tekju­drifna skatt­kerfis, það er vel­ferð­ar­ríkið hefur löngum átt allt sitt undir, og hins vegar um afleið­ingar þess að fót­unum væri bók­staf­lega kippt undan kerf­inu. Opin­berar álögur mið­uðu þá þeim mun frekar að orku og auð­lindum jarðar, að sjálfum rótum vel­ferð­ar­innar, en að ávöxtum vel­ferð­ar­innar.

Herra­garð­ur­inn – orkan og almúg­inn: Enn um marg­slungið sam­band orku og afkomu, orku og hagn­aðar, skatta og vel­ferðar – og um hina algjöru frum­for­sendu allrar skatt­lagn­ing­ar, að af ein­hverju sé að taka. Eða hvort skyldi vera lík­legra til að fá risið undir vel­ferð okkar – nátt­úru­auð­lindir jarðar eða vér sjálf, sauð­svartur almúg­inn, krefj­and­ist nátt­úru­af­urð­anna á silf­ur­fati eins og greifar?

Herra­garð­ur­inn – óðal aðals eða orkubú jarð­ar­búa?: Um til­drög þess að homo faber, hinn verk­tækni­legi maður, birt­ist á sjón­ar­svið­inu, og hvernig afsprengi hans, hinn vís­inda­tækni­legi maður, hefur hneppt sig æ fastar í fjötra álaga á sjálfan sig, heimt­andi þeim mun frekar alls af nátt­úr­unni, að þjón­aði sér sem þræll, sama hve orka og auð­lindir jarðar eru þó tak­mark­aðar – á nær öllum sviðum.

Herra­garð­ur­inn – orkubú jarð­ar­búa: Um orku og auð­lindir jarðar – hve auð­veld­lega má ganga af drjúgum hlutum nátt­úr­unnar dauðum, ein­fald­lega með óheftri sókn í auð­lind­irnar, fyrir mátt hinna ríku­leg­ustu skatt­fríð­inda, eða á hinn bóg­inn hve jafn auð­veld­lega má efla skyn­sam­leg not af marg­vís­legum jarð­ar­gróð­anum, ein­fald­lega fyrir áhrif slíkrar gjald­töku sem heftir óskyn­sam­leg not. Það er svo undir mann­inum komið, hvort hann telur mik­il­væg­ara mark­mið, að hefta sjálfan sig blygð­un­ar­laust með opin­berum álögum fremur en sjálf blygð­un­ar­laus notin af öllum skamm­tíma­gróð­anum…

Hvort sé sem sagt mik­il­væg­ara – í bráð og lengd – að sóa orkunni, og þar með jarð­ar­gróð­anum, eða að nýta orku jarðar til hins ýtrasta og þar með ríku­lega ávexti fram­leiðn­innar, hvers og eins jarð­ar­búa, hvers og eins á sína vísu…

Höfundur til­einkar greina­flokk­inn Gretu Thunberg, lofts­lags­vá­r­fræð­ingi, og minn­ingu Snorra Bald­urs­sonar, nátt­úru­fræð­ings.

Ítarefni:

Höfundur er áhuga­maður um auð­fræði og nátt­úru­vernd

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár