Herragarðurinn – óðal aðals eða orkubú jarðarbúa?

Árni B. Helgason fjallar um áhrif skatta og gjalda á sam­fé­lög jarð­ar­búa – hve þung­bærar álögur alls þorr­ans eru en þeim mun létt­bær­ari byrðar orku­freks aðals­ins, svo ofur­hlað­inn hann er koltví­ild­isauð­g­andi skatt­fríð­indum.

Fyrsti hluti þess­ara greina­skrifa, Herra­garð­ur­inn – og vér orku­að­all­inn, birt­ist í Kjarn­anum 14. nóv­em­ber 2020, og annar hlut­inn, Herra­garð­ur­inn – orkan og almúg­inn, á sama vett­vangi þann 3. apríl 2021. Hér verður áfram fjallað um marg­slungið sam­band orku og afkomu, orku og hagn­aðar, skatta og vel­ferðar – og um hina algjöru frum­for­sendu allrar skatt­lagn­ingar, að af ein­hverju sé að taka.

Frá upp­hafi sið­menn­ingar hafa menn þráttað um vel­ferð, hvernig bæri að skipta jarð­ar­gróð­anum, hinum ýmsu aðgengi­legum auð­lindum á hverjum tíma. Þeim mun ríku­legri sem afrakst­ur­inn hefur verið þá hefur verið meira til skipt­anna – og um meira að þrátta, hverjum umframa­frakst­ur­inn skyldi falla í skaut og þar með vel­ferðin, svo lengi sem af ein­hverju væri sem sagt að taka.

Höf­uð­stóll­inn hefur ávallt verið sjálf jörðin, í þrengstu jafnt sem víð­tæk­ustu merk­ingu, og vext­irnir þá allt það er jörðin hefur gefið af sér, sem löngum voru afurðir jurta og dýra fyrst og fremst. Öll umfram­tekja, allt umfram vext­ina, hefur óhjá­kvæmi­lega leitt til rýrn­unar, á sinn hátt líkt og æva­gam­alt steina­ríkið hefur jafn­framt orðið að láta undan fyrir marg­hátt­aðri og sífellt vax­andi hrá­efna­vinnslu, sem og ekki síst á allra sein­ustu ára­tugum og öldum, að gengið hefur hratt á öllu yngri forða jurta- og dýra­leifa, sem hófu þó að safn­ast upp fyrir tugum og hund­ruðum millj­óna ára, löngu fyrir tíð mann­skepn­unnar.

Menn­ing­ar­skeið hafa risið og hnigið og skilið eftir sig arf­leifðir ofbeitar og ofnýt­ingar, eyð­ingu skóga, dýra­teg­unda, jarð­vegs og jarð­efna. Fyrir eðl­is­læga skamm­sýni mann­eskj­unnar fékk hún heldur vart sögu­lega sýn á umhverfi sitt fyrr en á allra sein­ustu tímum, fyrir skipu­legar rann­sóknir á auð­lindum jarðar og nátt­úru­fari, sem hafa leitt í ljós hrað­ari umhverf­is­breyt­ingar af manna­völdum á und­an­förnum öldum en nokkurn hefði grunað fyrr á tíð. Hvað þá að nokkurn hefði órað fyrir breyt­ing­unum sem orðið hafa nú á allra sein­ustu tíð.

Borgríkin

Hin fyrsta eig­in­lega sið­menn­ing, sem sögur fara af, fól í sér myndun bæja og borga og slíka vel­ferð hinna best settu íbúa að þeir gátu hæg­lega lifað af lands­ins gæðum án þess að þeir snertu sjálfir svo mikið sem arð, plóg, öxi, hamar eða sigð.

Borg­ríkin, hvert og eitt, helg­uðu sér svo mikið flæmi lands, sem vald þeirra náði til, allt eftir hæfni aðals hvers og eins ríkis, stjórn­enda þeirra og mekt­ar­manna, til að etja kappi hver við annan, í krafti mann­afla og verk­menn­ingar hvers og eins ríkis. Þeim mun fleiri munna sem arð­ur­inn af land­inu, arð­ur­inn af vinnu bænd­anna, fékk mett, þá var fleiri á að skipa til að skipta með verkum í sjálfum borg­unum – prestum, skrif­urum, her­mönnum, kaup­mönnum, verk­meist­urum og hand­verk­s­mönnum af öllu tagi.

Borg­ríkið helg­að­ist því ekki ein­ungs af allra­handa verkum borgar- og bæj­ar­búa, heldur ekki síst af land­bún­að­inum og þeirri verk­menn­ingu sem lá rík­inu til grund­vallar í sveit­unum allt um kring – and­stætt við frum­stæðan sjálfs­þurft­ar­bú­skap, slíka akur­yrkju og hjarð­mennsku sem er ein­ungis sjálfri sér næg og þeim sem hana stunda. Ríkin áttu því allt sitt komið undir fram­leiðni bænd­anna, land­bún­að­ar­tækn­inni sem var lögð vinnu þeirra til grund­vallar, og þeirri flutn­inga­tækni sem menn höfðu þróað til að afla borg­unum aðfanga, jafnt land­bún­að­ar­af­urða sem timb­urs til smíða og til eldi­viðar, grjóts til bygg­inga og málm­vinnslu, sem og leirs, kalks, salts, tjöru, hörs og allra­handa ann­arra nauð­synja.

Plógurinn, öxin, hamarinn og sigðin ... og hlýindin

Sið­menn­ingin var leidd fram fyrir gríð­ar­lega hlýnun á jörð­inni um þús­alda­skeið og fyrir tækni­fram­farir er áttu sér þó marg­falt lengri sögu. Eggjaðar stein­flögur höfðu fyrir löngu orðið mönnum tæki til að létta sér lífs­bar­átt­una, hvað þá sú undra­verða upp­finn­ing að gera mætti eld fyrir mann­anna sjálfra til­verknað, fyrir ein­hverjum hund­ruðum þús­unda ára. Þróunin hafði þó verið svo hæg, að ljósið, sem lagði af stað frá stjörnum Andrómeda­þokunnar um það leyti sem ætt­kvísl mann­skepn­unnar leit dags­ins ljós fyrir góðum tveimur millj­ónum ára, náði ekki til okkar fyrr en einmitt í árdaga sið­menn­ing­ar­innar. Svo örstutt er umliðið síðan þá, að blikið frá þokunni fjar­lægu, þessum eilífa litla glugga okkar til elda alheims utan Vetr­ar­braut­ar­innar okkar, er nán­ast hið sama nú og þegar jökl­arnir miklu runnu sitt skeið í kjöl­far hlýn­un­ar­innar sem leiddi til svo bættrar afkomu manna, a.m.k. sumra þeirra, að borg­ríkin litu dags­ins ljós.

Fyrir jök­ul­bráð­ina og eðl­is­læga þenslu sjáv­ar­ins af völdum hlýn­un­ar­innar hækk­aði hafið um á annað hund­rað metra á ein­ungis um tíu þús­öldum, svo að nam til jafn­aðar vel á annan metra á öld drýgsta hluta skeiðs­ins; á hinum mestu jök­ulslóðum reis landið þó að nokkru til mót­vægis er jök­ul­farg­inu létti. Á þessu tíma­bili var fólks­fjöldi vart nema um þús­und­asti hluti þess sem verið hefur á jörð­inni frá upp­hafi iðn­bylt­ingar og hefur fjölg­unin verið nokkuð hlið­stæð, um tíföld á hvoru tíma­skeiði, gróft á litið.



Allt þar til tók að hlýna höfðu menn lifað á veiðum og söfnun jurta og flutt búferlum, kyn­slóð eftir kyn­slóð, allt eftir því hvar mest væri von um veiði og jurta­ríkið minnst snortið. Þá þegar er kólnað hafði fyrir góðum 100 þús­undum ára, í kjöl­far hlý­inda­skeiðs­ins þar á undan, var Afríka orðin svo þétt­setin að menn tóku að leggja undir sig Evrópu og Asíu og loks Eyjaálfu, allt eftir því hvar grösin voru grósku­meiri og veiðin ábata­sam­ari. Á hinu síð­asta jök­ul­skeiði var mann­kyn því komið út um allar álfur og þá jafn­framt til norð­vest­ustu hluta Ameríku, þar sem það nam land löngu áður en Ber­ings­sund varð til fyrir um 11 þús­undum ára og lok­aði leiðum austur um Síberíu í kjöl­far sjáv­ar­borðs­hækk­un­ar­inar. Suður um þá álfu höfðu menn þó ekki kom­ist fyrr en jök­ull­inn hafði hopað svo um mið­bik vest­ur­hluta Kanada fyrir um 15 þús­undum ára að auð­gengið skarð opn­að­ist og þar með alveg ný para­dís.

Hafi mann­kyn talið um 1 milljón manns á fyrsta skeiði hlýn­un­ar­innar, fyrir um 15 til 20 þús­undum ára, kann fjöld­inn að hafa verið orð­inn um 10 millj­ónir í árdaga sið­menn­ing­ar­innar fyrir um 7 til 8 þús­undum ára þegar hlýnað hafði til jafn­aðar um 4 °C – gróft á litið. Hlýindin höfðu þá varað í nokkrar þús­aldir og var lofts­lag þá þegar komið í nokkuð líkt jafn­vægi og það hefur verið lengst af síðan. Svo mjög hafði þá jafn­framt hægt á sjáv­ar­borðs­hækk­un­inni að nam vart lengur nema fáeinum senti­metrum á öld – svo sem hefur verið lengst af allt sið­menn­ing­ar­skeiðið, allt þar til nú í kjöl­far iðn­bylt­ing­ar­innar, að fyrir hlýnun af manna­völdum svarar hækk­unin á und­an­förnum ára­tugum til tuga senti­metra á öld, far­andi svo vax­andi að kann að verða sem næst 1 senti­metri á ári áður en langt um líður, ekki fjarri því sem var á hinu nátt­úru­lega hlýn­un­ar­skeiði, haldi áfram að hlýna sem horfir.

Frá einhæfri sjálfsþurft til fjölþættrar framleiðni

Svo frum­stæðir voru búskap­ar­hætt­irnir á þessu útþenslu­skeiði mann­kyns að hvert sam­fé­lag reis vart undir meiri íbúa­fjölda á hverju svæði til jafn­aðar en sem svarar til þús­undasta hluta þess sem jörðin hefur borið und­an­farnar aldir. Fjölgun íbúa og ofnýt­ing lands, þar á meðal veiði umfram sjálf­bæra stofn­stærð veiði­dýra, leiddi því ávallt til brott­flutn­ings hluta íbúa yfir á van­nýtt eða ónumin svæði, allt þar til að jörðin var sem næst full­numin. Þá var svo komið í rót­grón­ustu byggðum manna að flestum hinna stærri teg­unda land­dýra hafði ýmist verið útrýmt eða svo verið að búsvæðum þeirra þrengt að vart var lengur mikið á þeim skepnum að græða. Fæðu­valið hlaut því þeim mun frekar að bein­ast að jurta­rík­inu – og að tamn­ingu þeirra dýra­teg­unda sem auð­veldastar voru viður­eignar og gáfu jafn­framt mest af sér.

Svo aðþrengdir sem menn voru þá orðnir hver af öðrum og vart neitt eftir ónumið land þá voru þeir knúnir til að leita uppi bestu yrkin í jurta­rík­inu og þróa þau með þeim hætti að þau gæfu af sér sem árang­urs­rík­asta upp­skeru, með­fram því að búfé var komið upp að því marki sem land­gæði á hverju svæði leyfðu – og hlý­indin.

Þróunin leiddi til fastrar búsetu á hinum þétt­býl­ustu og grósku­mestu svæðum, ekki síst með­fram fljótum og fall­vötnum sem báru með sér frjó­magn og nær­ingu langar leiðir að. Og með­fram því að hlýnað hafði um 3 til 5 gráður víð­ast hvar, jafn­hliða þróun búskap­ar­hátt­anna og rækt­un­ar­tækn­innar, varð til upp­skera umfram brýn­ustu þarfir bænda og búaliðs. Af því leiddi að hluti sam­fé­laga tók sér ból­festu í þorpum sem urðu síðar að bæjum og loks að marg­mennum borgum. Umfram­upp­skeran úr sveit­unum í kring var því sá gjald­mið­ill og þá jafn­framt sú orka sem knúði fram menn­ingu borg­anna, og þá ekki síst slíka alhliða verk­menn­ingu og tækni sem í senn stuðl­aði að bættri upp­skeru, öfl­ugri hrá­efna­vinnslu og að fram­förum í flutn­ingum og mann­virkja­gerð – að öllu því sem borg­ríki kröfð­ust sér til vaxtar og við­gangs.

Baráttan sner­ist því ávallt um frjósamasta landið – og umfram­upp­sker­una. Þeim mun meiri afurðir sem féllu bæjum og borgum í skaut þá var fleirum á að skipa til að sinna hand­verki, mann­virkja­gerð og hern­aði, sem og hinum ýmsu fræðum – m.a. til grund­vallar tíma­tals­reikn­ingi sem var ein af mik­il­vægum for­sendum stjórn­skipu­lags og arð­væn­legrar upp­skeru – að öðrum kostu lutu ríkin í lægra haldi fyrir þeim sem sterk­ari voru. Menn­ing­ar­skeið risu og hnigu, allt eftir því sem frjó­magn jarð­ar­innar og þar með land­bún­að­ur­inn ork­aði, og þá ekki síst land­bún­að­ar­tæknin, sem fram­leiðni bænd­anna á hverjum tíma grund­vall­að­ist á.

Hinn verktæknilegi maður og arður framleiðninnar – skattarnir

Með æ meiri sér­hæf­ingu borga og bæja við úrvinnslu hrá­efna, sem lögð voru til grund­vallar hinu borg­ara­lega hand­verki, allt eftir því hver efnin voru nær­tæk­ust á hverjum stað, á hverjum tíma, efld­ust jafn­framt við­skipti til muna menn­ing­ar­svæða á milli. Smíð­is­gripir, vefn­aður og vopn fengu merk­ingu í nafni byggð­anna, borg­anna og bæj­anna, og þeirrar hrá­efna­úr­vinnslu sem var ein­kenn­andi fyrir hvert og eitt ríki, hvert og eitt sam­fé­lag, sem og þá fræði og stjórn­skipu­lag, allt eftir löndum og land­gæðum og tækni­legri sér­hæf­ingu. Baráttan sner­ist þá ekki lengur um frjósamasta landið eitt heldur ekki síður um frjósamasta hand­verkið og valdið yfir við­skiptum með hverskyns sér­hæfð verk menn­ing­ar­heima á milli.

Homo faber, hinn verk­tækni­legi maður, var kom­inn fram – sá sem gat ekki ein­ungis staðið í lapp­irnar og hand­leikið hamar og sigð, öxi eða plóg, heldur gat einnig beitt hinum ýmsu verk­færum og ekki síst eldi til að búa til enn sér­hæfð­ari verk­færi, tæki og tól, sem enn aðrir gátu hag­nýtt við hand­verk og fram­leiðslu af svo marg­vís­legu tagi.

Mið­stýrður land­bún­aður var þá ekki lengur það reg­inafl eitt sem sið­menn­ingin byggði á, heldur ekki síður marg­slungin við­skiptin menn­ing­ar­heima á milli. Í stað bar­áttu ein­stakra land­bún­að­ar­velda – borg­ríkja í sinni frum­stæð­ustu mynd – um lönd, gæði og vinnu­afl, kom slíkt ofur­vald yfir öllum við­skiptum að leiddi til mynd­unar stór­velda, imper­iums, er lögðu undir sig bæi, borgir og ríki, leggj­andi grunn að æ marg­þætt­ari sam­fé­lögum; land­bún­að­ur­inn og allra­handa hrá­efna­vinnsla voru þó ávallt meg­in­stoð­irnar, og hafa verið á öllum tímum, ásamt flutn­ingum og öllu því öðru sem hvert og eitt mið­stýrt veldi stór­borg­ara er reist á – og hvort vinnu­aflið fylgir þá ekki ávallt með í kaup­unum.

Gilti einu þótt ein­stök, smá borg­ríki, héldu að nafn­inu til sjálf­stæði sínu, sama hve þau skorti alhliða sér­hæf­ingu á fjöl­mörgum sviðum, líkt og í nútíma, t.d Lúx­em­borg, Ísland, Bahama­eyjar og Singapúr, sem hafa átt allt sitt undir náð og mis­kunn við­skipta­veld­anna, svo lengi sem þau væru þeim þæg og öruggt skálka­skjól í sínum við­skiptum og við­skipta­stríðum.

Fram­leiðni jókst fyrir fram­far­arir í akur­yrkju og búfjár­rækt, fyrir sífellt hag­felld­ari verk­færa- og áhalda­smíð, þá ekki síst fyrir fram­farir í smíði axa, pála, hjóla, sigða og plóga, sem og ekki síður fyrir kyn­bætur jurta og búfjár, þar á meðal vinnu­dýra, og loks fyrir iðn­bylt­ingu og æ staf­rænni hugsun.

Fram­leiðni mótar for­sendur allrar skatt­lagn­ingar, enda verður ekk­ert á neinn lagt sem ekki hefur af neinu að láta. Skattar leggj­ast ávallt á þann arð sem er umfram sjálf­bærni, að öðrum kosti visnar skatt­stofn­inn og ber ekki ávöxt. Þeim mun meiri fram­leiðni – umfram sjálfs­þurft – því meira kann þá að mega deila á meðal þeirra sem hirða skatt­inn, vext­ina og leig­urnar, sér til vel­meg­unar, líkt og löngum átti við fyrir tíma vel­ferð­ar­þjóð­fé­laga, eða á hinn bóg­inn, líkt og gjarnan er miðað að í nútíma, á meðal þegna allra í heild, þeim til vel­farn­aðar – til mennta­mála, heil­brigð­is­mála, almanna­trygg­inga og almennra sam­gangna, sem og þá jafn­framt til dóms­mála og almennrar stjórn­sýslu.

Frá orkusóun til orkunýtni – frá rányrkju til umhverfisverndar

Allt að helm­ingur þjóð­ar­tekna tækni­væddra nútíma­sam­fé­laga rennur til opin­berra mál­efna – í formi opin­berra álaga. Tækni­vædd­asti hlut­inn, sá er veldur þó mestu um þá fram­leiðni sem öll skatt­lagn­ing er beint og óbeint reist á, ber engu að síður lægsta skatta og lægstu gjöld. Þeim mun hlut­falls­lega færri hendur sem koma að tækni­væddri fram­leiðslu og þjón­ustu, þar sem fram­leiðni eðli­lega mest nýtur, því lægri eru álög­urnar, slík er almennt ofurá­herslan á ein­stak­lings­bundna tekju­skatta og launa­tengd trygg­inga­gjöld af ýmsu tagi. Rekstr­ar­tekju­skattar koma svo þeim mun síður til álita sem ágóða af mjög tækni­væddum rekstri er varið til enn öfl­ugri og fram­leiðni­vædd­ari rekstrar – og hvort þá ekki dregur enn frekar úr vægi hinna ein­stak­lings­bundnu tekju­skatta og trygg­inga­gjalda af tækni­rekstr­inum.

Þeim mun fram­leiðni­vædd­ari sem þjóð­fé­lög eru, þá leggj­ast skattar af meiri ofur­þunga á ein­stak­linga. Hinn opin­beri hluti – með allt að helm­ings vægi þjóð­ar­tekna sam­kvæmt hefð­bundnum þjóð­hags­reikn­ingi – ber þá þar af leið­andi því meiri þunga skatt­lagn­ing­ar­innar sem tækni­væð­ing og hag­vöxtur er meiri, svo lítil tök sem hið opin­bera hefur á að koma við mik­illi fram­leiðni, hvað þá á borð við allan hinn tækni­væddasta, fram­leiðni­væddasta og síst mann­afls­freka rekstur.

Svo mikið sem skattar og gjöld vega á meðal tækni­væddra ríkja, eða sem nemur til jafn­aðar um helm­ingi þjóð­ar­tekna, má raunar segja að hinar tækni­vædd­ustu greinar búi við slíkt skatt­frelsi að jafna megi við stór­felldar nið­ur­greiðslur. Má því nokkuð ljóst vera, ann­ars vegar í ljósi ofur­vægi skatt­anna sem hið opin­bera leggur á sjálft sig, á sitt eigið skinn, og raunar á þorra launa­þega – og þar með á allar mann­afls­frekar greinar – og hins vegar í ljósi nið­ur­greiðslna og skatta­legra und­an­þága mjög tækni­væddrar fram­leiðslu og þjón­ustu, að raun­veru­legur hlutur hins opin­bera liggur mun nær því að vera um þriðj­ungur lands­fram­leiðslu frekar en um helm­ingur hennar, sem ann­ars mætti ætla sam­kvæmt hefð­bundum þjóð­hags­reikn­ingi hinna tækni­vædd­ustu ríkja, vel­ferð­ar­ríkj­anna.

Stór­felld sóun orku og nátt­úru­gæða, hvað þá stjórn­laus spill­ing loft­hjúps jarðar og hömlu­laus mengun and­rúms­lofts­ins, verður ekki stöðvuð nema með álögum á þá sem hvetja til og við­halda sóun­inni, spill­ing­unni, meng­un­inni. Þá má nokkuð ljóst vera, að hinir háu tekju­skattar orka sem algjör drag­bítur á við­hald alls þess sem fyrir er, með þeim afleið­ingum að flest það sem mann­skepnan fram­leiðir end­ist langtum skemur fyrir vikið, er langtum verr nýtt en ella, sem leiðir ein­fald­lega til mun skemmri afskrift­ar­tíma, mun hærri afskrift­ar­kostn­aðar, en ella væri. Lélegt við­hald, léleg nýt­ing, leiðir því eðli máls sam­kvæmt til fram­leiðslu og orku­só­unar langt umfram raun­veru­legar þarfir, hvað þá hinna neyslu­frek­ustu jarð­ar­búa. Svo nið­ur­greidd er flest hin tækni­lega neysla, svo illa er tækn­inni haldið við, svo mjög er vel­ferð­inni sóað öllu jöfnu.

Á meðal virk­ustu vel­ferð­ar­ríkja rennur um helm­ingur vergrar lands­fram­leiðslu (VLF) til hins opin­bera – sam­kvæmt hefð­bundnum þjóð­hags­reikn­ingi. Afnám þess tekju­drifna skatt­kerfis sem við­heldur flestum vel­ferð­ar­kerfum, sbr. skýr­ing­ar­mynd hér að ofan, sam­fara upp­töku orku­drif­ins skatt­kerfis, sbr. skýr­ing­ar­mynd hér að neðan, myndi leiða til mun skil­virk­ari nýtni lands­fram­leiðslu og þar með til hærra raun­virðis hennar og lægi raunaf­skrifta. Raun­veru­leg, hrein lands­fram­leiðsla myndi batna sem nemur lægri afskrifta­kostn­aði, sem nemur mun betri nýtni allrar fram­leiðslu og þar af leið­andi minni þarfar fyrir nýja – ein­fald­lega fyrir ábata af mun minni skatt­byrði allrar við­halds­þjón­ustu.

Reikn­ings­legur ábati í heild – fyrir mun skil­virk­ari orku­nýtni og fyrir mun betri end­ingu hlut­anna, auk þess sem nemur mun lægri kostn­aði við flesta almenna þjón­ustu, þá ekki síst vel­ferð­ar­þjón­ustu – kynni að nema um fjórð­ungi eða allt að þriðj­ungi þeirra tekna vel­ferð­ar­ríkj­anna sem hefðin býður ann­ars hag­fræð­ingum að reikna. Slíkt er hið hag­vís­inda­lega við­mið sem í hávegum hefur verið haft, slík er hin reikn­ings­lega kreppa sem leitt hefur af hinum tekju­drifnu skatt­kerfum. Svo rang­lega hefur gengi vel­ferð­ar­gjald­miðl­anna verið skráð – en gengi gjald­miðla þró­un­ar­ríkja að sama skapi verið van­skráð.

Skatt­kerfi, sem miðar að orku­nýtni og nátt­úru­vernd, er hamlar gegn mengun láðs og lagar og losun koltví­ildis og ígilda þess út í and­rúms­loftið, leiðir á hinn bóg­inn til slíkrar spar­neytni að til verður arður langt umfram það sem ella væri. Hreinna loft og óspillt nátt­úra fellur fjöld­anum öllum í skaut, orku­lindir nýt­ast því betur sem orkan er meira metin, sem og þá ekki síst þjónar orku­frek fram­leiðsla til þeim mun lengri afskrift­ar­tíma, sem menn eiga þess frekar kost að halda hlutum við og nýta þá til hins ýtrasta, einmitt fyrir lága skatta við­halds­þjón­ust­unnar. Náttúran er þá ekki lengur sjálf­gefin auðs­upp­spretta í krafti harð­vít­ugs eign­ar­réttar, heldur eru afnotin háð mati á umhverf­is­á­hrifum og þá ekki síst fjár­hags­legu – skatta­legu – mati á mög­legri skað­semi.

Orku­drifið skatt­kerfi felur í sér gjör­breytt kostn­að­ar­hlut­föll útselds mann­afls og útselds tækni­afls frá því sem tekju­drifið skatt­kerfi felur í sér. Þjónusta og hand­verk sem nýtur lítil stuðn­ings af orku­frekri tækni lækkar til muna í verði en kostn­aður við tækni sem nýtur lít­ils stuðn­ings af vinnu­afli stendur ýmist í stað eða hækkar í verði, sér í lagi hækkar kostn­aður við orku­freka vinnslu­tækni.

Fram­leiðsla orku og mjög orku­frek fram­leiðsla, þar sem mann­hand­ar­innar nýtur minnst við, myndi eðli máls sam­kvæmt hækka einna mest í verði, og þá sér í lagi fram­leiðsla sem er háð jarð­efna­elds­neyti. Orkufrek fjölda­fram­leiðsla myndi hækka þeim mun frekar í verði sem sjálf­virkni gætir meira en ann­ars því síður sem fram­leiðslan og ekki síst mark­aðs­setn­ing hennar er háð mann­afli. Marg­vís­leg rað­smíði, t.d. flug­véla, sem byggir að veru­legu leyti á vinnu­afli, myndi heldur lækka í verði, en á hinn bóg­inn myndi orkan til að knýja full­búnar vél­arnar hækka í verði – og þó fremur lækka með tím­anum, einmitt fyrir hvatann er kerfið felur í sér til orku­sparn­aðar og þar með til arð­bærra tækni­lausna, þá lítt sem ekk­ert háðum hamlandi kolefn­is­gjöldum.

Þeim mun frekar sem við­halds­kostn­aður lækkar – vegna lægri skatta af við­halds­þjón­ustu – leng­ist fyrn­ing­ar­tími fjár­muna­eigna, m.ö.o þá kostar minna að halda eignum við og þær end­ast þar af leið­andi lengur. Afskrift fjár­muna­virðis tekur því til lægra hlut­falls af vergri land­fram­leiðslu undir orku­drifnu skatt­kerfi en undir tekju­drifnu kerfi. Hlut­falls­leg lækkun fyrn­ingar fasta­fjár­muna, frá því að vera um 16% af VLF í um 13%, myndi ein og sér svara til um 3% árlegs þjóð­hags­legs sparn­aðar – þá ekki síst fyrir bætt iðn- og hand­verk – auk þess ekki síður sem næmi við­haldi og þar með bættri end­ingu allra­handa lausa­fjár­muna þjóð­fé­lags­þegn­anna, fatn­aðar, hús­muna og heim­il­is­tækja, sem þjóð­hag­fræð­ingar líta ann­ars ávallt fram­hjá í reikn­ingum sínum. Hvað þá hvort öll með­ferð mat­væla myndi ekki batna þegar ódýr­ara væri orðið að nýta þau frekar en að henda þeim fyrir ný...

Svo dæmi sé tekið af vergri lands­fram­leiðslu (VLF) á Íslandi þá nemur hún nær 3.000 millj­örðum króna á ári. Þar af nema bein opin­ber umsvif, að með­taldri allri aðkeyptri þjón­ustu einka­að­ila, um 42% af VLF, og umsvif sam­trygg­ing­ar­hluta hins hálf­op­in­bera líf­eyr­is­kerfis (lög­boðin iðgjöld án sér­eign­ar­sparn­aðar) um 8% af VLF. Lög­boðnir skattar og lög­boðin gjöld nema því um 50% af heild, sbr. súlu­ritið yfir TEKJUDRIFIÐ SKATTKERFI hér ofar (hið efra), er sýnir hlut­föll vergrar lands­fram­leiðslu dæmi­gerðs vel­ferð­ar­ríkis nú á dögum í allra gróf­ustu mynd.

Þó að lög­boðin líf­eyr­is­ið­gjöld nemi um 15% af launum þá er hlut­fallið engu að síður um 8% af VLF, enda vega laun og launa­tengd gjöld vart meira en rétt rúm­lega helm­ingi VLF (auk þess sem marg­vís­legar almanna­trygg­ingar hins opin­bera telja). Að frá­dregnum sköttum nemur hreint hlut­fall sam­trygg­ing­ar­líf­eyris þó ein­ungis um 6% af VLF til jafn­aðar – gróft á litið – sem væri þá jafn­framt það hlut­fall af VLF sem líf­eyr­is­ið­gjöld myndu nema í ORKUDRIFNU SKATTKERFI, að tekju­sköttum nið­ur­felldum, sbr. súlu­ritið hér að ofan, til sam­svar­andi ráð­stöf­unar líf­eyris.

Samkvæmt grófum dráttum súlu­rits­ins myndi verg lands­fram­leiðsla lækka um 25% að bók­færðu virði – að aflögðu tekju­drifnu skatt­kerfi, að upp­rættum drýgsta hluta gervi­fjár – frá því að vera um 3.000 ma. kr. í um 2.250 ma. kr. (ma = millj­arðar). Opinber umsvif – umsvif ríkis og sveit­ar­fé­laga og hálf­op­in­ber umsvif líf­eyr­is­sjóða – myndu lækka frá því að vera um 50% af 3.000 ma. kr. VLF í um 42% af 2.250 ma. kr. VLF, engu að síður að alls óbreyttu raun­virði.

13% virð­is­auka­skattur (= 11,5% af VLF í heild) væri stærsti skatt­stofn­inn en ann­ars væri megnið af tekjum hins opin­bera fólgið í umhverfis- og orku­gjöldum, auk hins hálf­op­in­bera hlutar líf­eyr­is­sjóð­anna. Miðað við að umsvifin lægju nær því að vera um 45% af 2.250 ma. kr. VLF, um 1.000 millj­arðar króna, frekar en 42%, um 950 ma. kr. – í ljósi grófra útreikn­inga og vik­marka – þá gætu tekj­urnar skipst þannig að loknum nokk­urra ára aðlög­un­ar­tíma, eftir hálfan til einn ára­tug:

Fyrst framan af, meðan eldri orku­sölu­samn­ingar væru að renna sitt skeið, væru almenn orku­gjöld, er alls næmu um 120 ma. kr, til­tölu­lega lág gagn­vart stór­kaup­endum (e.t.v. um 1 til 2 kr. pr. KWst x 15 ma. KWst = 20 ma. kr.), en þeim mun hærri af smá­sölu­orku – heitu vatni, raf­magni og elds­neyti – (e.t.v. um 2 til 6 kr. pr. KWst x 25 ma. KWst = 100 ma. kr.) Að lítt breyttum dreif­ing­ar­kostn­aði myndi end­an­legt smá­sölu­verð til almenn­ings og almenns atvinnu­rekstrar e.t.v. hækka um 30 til 70%, allt eftir nýt­ingu og flokkun á mark­aði.

Íslenskur orku­mark­aður í hnot­skurn – heild­ar­velta nú um stundir, í allra gróf­ustu dráttum, um 250 ma. kr. – með miklum vik­mörkum: Raforka til stór­iðju, stór­kaup­enda: um 50 ma. kr. Heitt vatn og raf­magn til almenn­ings og almenns rekstrar: um 80 ma. kr. Elds­neyti til almenn­ings og almenns rekstrar: um 120 ma. kr.

Þeim mun frekar sem kolefn­is­gjöld (alls um 60 ma. kr.) leiddu til sam­dráttar í losun myndu ein­inga­verð fara hækk­andi, að órösk­uðum gjald­stofni í heild. Þegar kolefn­islosun væri að miklu leyti yfir­unnin myndu gjöldin verða sam­löguð almennum orku­gjöldum.

Ný hrein­orku­ver fengju tíma­bund­inn afslátt af almennum orku­gjöldum á aðlög­un­ar­tím­anum, en ekki af umhverf­is­gjöldum (alls um 30 ma. kr.) – ekki frekar en aðrir umhverf­is­frekir kostir – svo mishá eða lág sem gjöldin jafn­framt væru, allt eftir áhrifum ein­stakra kosta á umhverfi og nátt­úru.

Að afnumdum öllum tekju­sköttum, að trygg­inga­gjaldi með­töldu, myndi skóla­hald, heil­brigð­is­þjón­usta, lög­gæsla, stjórnun og yfir höfuð flest almanna­þjón­usta lækka veru­lega í verði sem og flest vinna við við­gerðir og við­hald – bygg­inga, bif­reiða, skipa, flug­véla og ann­arra hluta og tækja, og þá einnig fatn­aðar, hús­bún­aðar og marg­vís­legs mann­gerðs umhverfis. Ending myndi því batna til muna á flestum sviðum og afskrift­ar­tími þar af leið­andi lengj­ast – sama hvort rólu­völlur ætti í hlut eða álver, þvotta­vél eða sími. Líkt myndi eiga við um marg­vís­lega nýsmíði, fram­leiðslu og þjón­ustu sem ekki væri háð miklum orku­kaupum eða slíkum hrá­efnum sem væru leidd af mjög orku­frekri vinnslu – að kostn­aður myndi lækka, þar á meðal vegna vinnu við nýbygg­ingar af flestu tagi, við marg­vís­lega vél­smíði, við fram­leiðslu mat­væla og við allra­handa afgreiðslu, sölu og þjón­ustu, þ.á.m. við all­flesta sér­fræði­þjón­ustu, við fjöl­miðlun, kvik­mynda­gerð, bóka­út­gáfu, íþrótta­starf og listir.

Afkoma flestra þess­ara greina myndi batna til muna, á sumum sviðum veru­lega, og þá jafn­framt kaup­máttur gagn­vart þeim, en á hinn bóg­inn myndi m.a. heitt vatn, olía og raf­magn hækka í verði og hin ýmsu hrá­efni og verk sem leidd eru af mjög orku­frekri vinnslu og nátt­úr­u­notum.

Í stað tekju­skatts kæmu hin ýmsu gjöld fyrir not af nátt­úr­unni. Þeim mun háð­ari sem atvinnu­rekstur væri jarð­ar­gróð­anum og hinum ýmsu tak­mörk­uðu nátt­úru­hlunn­indum og gæðum, þá bæri rekst­ur­inn hærri gjöld – kolefn­is­gjald, orku­gjald, umhverf­is­gjald, veiði­rétt­ar­gjald, veg­gjald, fast­eigna­gjöld – allt eftir eðli og áherslum rekstrar. Sam­svar­andi gilti í raun um neyt­endur, ein­stak­ling­ana, að því háð­ari sem þeir væru vöru og þjón­ustu sem beint og óbeint er leidd af orku­frekri eða meng­andi nátt­úr­u­nýt­ingu, allt eftir þeim lífsmáta sem hver og einn kysi sér, þá bæri hver og einn meiri álögur – beint og óbeint með kaupum sínum og við­skiptum. Eða á hinn bóg­inn, því fremur sem lífsmáti og neysla mið­aði að orku­nýtni og notum af lággjalda­vöru og lítt skatt­lagðri þjón­ustu, þeim mun lægri væru álög­urnar, þeim mun betri væri afkoman.

Með öðrum hluta þessa greina­flokks, Herra­garð­ur­inn – orkan og almúg­inn, gaf höf­undur til kynna að með þess­ari grein, Herra­garð­ur­inn – óðal aðals eða orkúbú jarð­ar­búa?, mætti vænta loka­hluta greina­flokks­ins. Umfangs efn­is­ins vegna kýs höf­undur þó að deila þeim hluta í tvennt og birta fremur lokin í sér­stakri grein, Herra­garð­ur­inn – orkubú jarð­ar­búa, áður en mjög langt um líður.

Ítarefni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár