Skipar starfshóp um nýtingu vinds á hafi

Hvar er mögu­legt að hafa fljót­andi vind­myllur umhverfis Ísland? Hvar eru skil­yrði óhag­stæð vegna fiski­miða og sigl­inga­leiða, far­fugla og nátt­úru? Hlutverk nýs starfs­hóps verður að kom­ast að þessu.

Vindmyllur er ekki hægt að setja niður hvar sem er á hafi úti.
Vind­myllur er ekki hægt að setja niður hvar sem er á hafi úti. Mynd: úr safni

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, hefur ákveðið að skipa starfs­hóp sem vinni sam­an­tekt um mögu­leika á nýt­ingu vinds á hafi í lög­sögu Íslands. Sam­an­tekt­ina á að nýta til und­ir­bún­ings stefnu­mörk­unar stjórn­valda um nýt­ingu vinds á hafi sem liður í gerð upp­færðrar orku­skipta­á­ætl­unar.

Óskað verður til­nefn­inga frá ÍSOR, Orku­stofnun, Veð­ur­stof­unni og Nátt­úru­fræði­stofnun og for­maður skip­aður án til­nefn­ingar. Gert er ráð fyrir að starfs­hóp­ur­inn leiti m.a. upp­lýs­inga hjá fram­an­greindum aðilum auk Haf­rann­sókn­ar­stofnun, Samorku og Lands­virkjun ásamt upp­lýs­ingum erlendis frá.

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar kemur fram að marka skuli stefnu um vind­orku­ver á hafi. Áður en sú stefnu­mótun hefst þarf hins vegar að liggja fyrir heild­rænt yfir­lit yfir mögu­leika til fram­leiðslu raf­orku frá vind­orku­verum á hafi.

[adspot]

Í svo­nefndri Grænbók, sem umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son lét vinna í vetur, eru dregnar upp sviðs­myndir um fram­tíðar orku­þörf hér á landi. Flestar gera þær ráð fyrir auk­inni orku­þörf, sumar veru­lega auk­inni þörf á kom­andi ára­tugum. Leita þarf því allra leiða varð­andi nýja orkuskosti, segir í sam­an­tekt umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­is­ins sem Kjarninn fékk um vind­orku­á­form á hafi úti, mál sem kynnt var á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í gær.

[links]Mik­il­vægt sé að hafa sem besta yfir­sýn yfir þróun vind­orku­nýt­ingar á hafi og grunn­upp­lýs­ingar um hag­kvæmni orku­fram­leiðsl­unnar sam­an­borið við aðra orku­kosti. Skoða þarf að mati ráðu­neyt­is­ins vand­lega hvort og þá hvernig vind­orka á hafi verði liður í þeirri orku­skipta­á­ætlun sem sett verður fram á næstu miss­erum.

Skipun fyrr­greinds starfs­hóps er liður í því verk­efni. Ráðu­neytið segir í svari sínu til Kjarnans að upp­lýs­ingar liggi víða, m.a. hjá nor­rænum orku­rann­sóknum og einnig sé hægt að líta til skýrslu sem lögð var fram á Alþingi af ráð­herra orku­mála í nóv­em­ber 2018 og tók m.a. til vind­orku á landi og sjáv­ar­falla­orku.

Starfs­hópnum er ætlað að taka saman upp­lýs­ingar um eft­ir­far­andi atriði:

  • Fýsi­leika orku­vinnslu á hafi við Ísland.
  • Leggja þarf gróft mat á mögu­lega afl- og orku­fram­leiðslu­getu.
  • Taka þarf saman upp­lýs­ingar um hag­kvæmni orku­fram­leiðslu á hafi og mögu­legrar þró­unar.
  • Hvar sé raun­hæft að hafa botn­fastar vind­myllur.
  • Hvar sé mögu­legt að hafa fljót­andi vind­myllur.
  • Hvar séu hag­stæð vind­skil­yrði.
  • Hvar séu skil­yrði óhag­stæð vegna fiski­miða og sigl­inga­leiða.
  • Hvar séu mögu­legar land­teng­ingar frá vind­myllum við Ísland.
  • Hvar séu skil­yrði óhag­stæð vegna far­fugla og nátt­úru.
  • Hvort hætta stafi af hafís eða öðrum nátt­úru­fyr­ir­brigðum.
  • Hvað þurfi að hafa sér­stak­lega í huga varð­andi úrbætur á reglu­verki til að styðja við þróun nýt­ingar vind­orku á hafi.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár