Ætla að næstum tvöfalda raforkuframleiðslu Noregs með vindmyllum úti á sjó

Stjórn Verka­manna­flokks­ins og Mið­flokks­ins í Noregi kynnti í dag áform um stór­tæka upp­bygg­ingu vind­orku­vera á hafi úti. Uppsett afl 1.500 vind­mylla á að geta orðið 30 gíga­vött, sem er um tífalt sam­an­lagt afl allra virkj­ana á Íslandi, árið 2040.

Vindmyllugarðar munu þekja um eitt prósent af norsku hafsvæði eftir um 20 ár, alls um 1.500 vindmyllur, samkvæmt áætlun stjórnvalda. Þessi vindmyllugarður á myndinni er við strendur Belgíu.
Vind­myllu­garðar munu þekja um eitt pró­sent af norsku haf­svæði eftir um 20 ár, alls um 1.500 vind­myllur, sam­kvæmt áætlun stjórn­valda. Þessi vind­myllu­garður á mynd­inni er við strendur Belgíu. Mynd: EPA

Norska rík­is­stjórnin hefur kynnt áform um stór­tæka upp­bygg­ingu vind­orku­vera á hafi úti, en til stendur að nærri tvö­falda orku­vinnslu lands­ins fram til árs­ins 2040 með bygg­ingu um 1.500 vind­mylla undan ströndum Noregs.

Mark­miðið er eftir tæp 20 ár verði upp­sett afl í vind­orku­verum úti á hafi 30 GW (30.000 MW), ýmist botn­föstum eða fljót­andi. Það er um tífalt meira en sam­an­lagt afl allra vatns­afls­virkj­ana og orku­vera á Íslandi er í dag.

Stóran hluta orkunnar á að flytja úr landi með strengjum til ann­arra ríkja Evrópu sam­kvæmt yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar og ætlar Noregur því að ger­ast stór­tækur útflytj­andi end­ur­nýj­an­legrar raf­orku.

Í til­kynn­ingu stjórn­valda segir að útflutn­ingur raf­orkunnar sé í raun óum­flýj­an­legur, þar sem dreifi­kerfi raf­orku ráði engan veg­inn við þá stór­auknu raf­orku­fram­leiðslu sem senn fer í hönd.

Fram að þessu höfðu norsk stjórn­völd þegar boðað að ráð­ist yrði í upp­bygg­ingu vind­orku­vera á hafi úti á tveimur svæðum í Norð­ur­sjó með heildar afl upp á 4,5 GW. Fyrsta áfanga þeirrar upp­bygg­ingar á að bjóða út síðar á þessu ári.

Í til­kynn­ingu stjórn­valda er haft eftir Jonas Gahr Støre for­sæt­is­ráð­herra að þessi áætlun stjórn­valda marki tíma­mót í iðn­aðar- og orku­sögu Noregs.

Stjórnarandstaðan ekki sannfærð

Samkvæmt frétt norska rík­is­út­varps­ins NRK af mál­inu eru þó ekki allir sann­færðir um áætl­un­ina sem rík­is­stjórn Verka­manna­flokks­ins og Mið­flokks­ins kynntu í morgun. Talsmenn Græn­ingja, Hægri­flokks­ins og Sós­íal­íska vinstri­flokks­ins slá fram efa­semdum.

[adspot]

Græn­ingjar settu það á odd­inn í kosn­inga­bar­átt­unni í fyrra að fasa út olíu með því að setja upp vind­myllu­garða á hafi úti með sama upp­setta afl og stjórn­völd segj­ast ætla sér nú, eða 30.000 MW, en Græn­ingjar vildu að stefnt yrði að því marki fyrr eða fyrir árið 2030. Tals­maður flokks­ins segir við NRK að 2040 sé langt undan og að stjórn­völd ættu að setja fram skýr, tölu­leg mark­mið um þá upp­bygg­ingu sem horft sé til fyrir árið 2030.

Sós­íal­íski vinstri­flokk­ur­inn segir að óljóst sé hvernig eigi að ná þessum mark­miðum rík­is­stjórn­ar­innar. „Þetta er of slappt,“ er haft eftir tals­manni flokks­ins í frétt NRK.

Nikolai Astrup þing­maður Hægri­flokks­ins, sem var við völd í Noregi þar til í fyrra, segir að það sé gott að stjórn­völd hafi sett sér þessi mark­mið, þrátt fyrir að hrað­inn í áætl­un­inni sé of lít­ill.

„Það mik­il­væg­asta er hvað stjórn­völd ætla að gera til að ná mark­miðum sínum og það segja þau ekk­ert um,“ hefur NRK eftir Astrup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár