„Matseðill möguleika“ ef stjórnvöld „vilja raunverulega setja orkuskipti í forgang“

Lang­tíma­orku­samn­ingar um annað en orku­skipti geta tafið þau fram yfir sett loft­lags­mark­mið Íslands, segir orku­mála­stjóri. „Þótt stjórn­völd séu með mark­mið þá eru það orku­fyr­ir­tækin sem í raun og veru ákveða í hvað orkan fer.“

Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri.
Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri. Mynd: Orkustofnun

End­ur­nýj­an­leg orka er ekki óend­an­leg og eft­ir­spurn eftir henni er mikil og vax­andi. Um hana er bit­ist á mark­aði og eðli­lega vilja orku­fyr­ir­tæki selja hana hæst­bjóð­anda. Því er alls ekki víst, miðað við það umhverfi sem við búum við í dag, að orka úr nýjum virkj­unum fari til orku­skipta sem eru nauð­syn­leg ef loft­lags­markið íslenskra stjórn­valda sem og alþjóð­legar skuld­bind­ingar í þeim efnum eiga að nást.

En til eru leiðir og til eru mögu­leikar vilji stjórn­völd raun­veru­lega setja orku­skiptin í for­gang.

[adspot]

Þetta var meðal þess sem Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri fjall­aði um á kynn­ing­ar­fundi í Grósku í gær þar sem splunku­nýtt orku­skipta­líkan Orku­stofn­unar var kynnt. Líkanið er gagn­virkt verk­færi til að móta áætl­ana­gerð út frá still­an­legum for­sendum sem geta rímað við mark­mið, stefnu og skuld­bind­ingar Íslands í orku- og lofts­lags­málum. Það er ekki nóg að setja fram spár, segir orku­mála­stjóri, við verðum líka að skilja hvað það þýðir í inn­leið­ingu á aðgerðum.

„Þótt fram­tíðin sé björt þá er mikil óvissa,“ sagði Halla Hrund. „Það er eitt sem er svo spenn­andi við líkanið að það fangar að ákveðnu leyti óviss­una. Með því að breyta for­sendum er hægt að sjá þýð­ingu fyrir ólíkar sviðs­myndir.“

Hún sagði að vissu­lega væri margt spenn­andi að ger­ast í tækni­þróun og öðru „en ef að það er eitt­hvað sem við vitum alveg örugg­lega þá er það að hlut­irnir verða ekki nákvæm­lega eins og við höldum að þeir verði eftir tíu eða tutt­ugu ár.

Beðið eftir póstbílnum

Öll ríki heims­ins eru að fjár­festa í nýjum lausnum. En það er ómögu­legt að sjá fyrir hvernig hlut­irnir koma til með að þró­ast.

„Þegar við erum að velta fyrir okkur hvernig heim­ur­inn verði nákvæm­lega, hversu mikið magn af hinu og þessu þurfi árið 2040 eða 2050 þá finnst mér áhuga­vert að hugsa út frá manni sjálfum, hvað maður var að gera fyrir tutt­ugu árum síðan,“ sagði hún og tók dæmisögu af sjálfri sér: „Fyrir tutt­ugu árum síðan var ég að bíða eftir póst­bílnum. Á bónda­bænum sem ég var á sner­ist umræðan öll um það hvernig hægt væri að bæta póst­sam­göngur. Og maður fékk að hringja einu sinni í viku vegna þess að það var svo dýrt að hringja.“

Ekki er svo langt síðan að þetta var veru­leik­inn en síðan hefur orðið bylt­ing í fjar­skipta­geir­anum. „Og ég held að við megum leyfa okkur að hugsa þannig að það verði líka bylt­ing þegar kemur að raf­hlöðu­tækni – bylt­ingar á ólíkum sviðum sem munu hjálpa okkur að ná mark­miðum með öðrum hætti heldur en við akkúrat sjáum fyrir okkur í dag.“

Því næst sneri Halla Hrund sér að umræðu um orku­þörf til orku­skipta og ann­arra verk­efna. Til þess að ræða slíkt þurfi almenn­ingur að átta sig á því hvernig mark­að­ur­inn með raf­orku virkar í dag. „Við hjá Orku­stofnun fáum oft spurn­ing­una: Eru stjórn­völd að fara í þessa virkjun fyrir þetta eða hitt? Er verið að virkja fyrir orku­skiptin eða fyrir eitt­hvað ákveðið verk­efni?“

Hún segir að það hafi áður fyrr vissu­lega verið þannig að stjórn­völd ákváðu í hvað orkan fór, til­tekna verk­smiðju eða aðra notkun. „Í dag er raun­veru­leik­inn flókn­ari.“

Ramma­á­ætlun er komin til sög­unnar. Inn til mats fyrir hana senda orku­fyr­ir­tæki ákveðna virkj­un­ar­kosti og síðan er það Alþingis að afgreiða hana, ákveða hvað fari í nýt­ing­ar­flokk og hvað ekki. Síðan sækja orku­fyr­ir­tækin um virkj­un­ar­leyfi fyrir ákveðna kosti, þau fram­kvæma einnig og gera samn­inga við kaup­endur orkunnar. „Þannig að þó að stjórn­völd séu með mark­mið, lofts­lags­mark­miðin til dæmis, þá eru það fyr­ir­tækin sem í raun og veru ákveða í hvað orkan fer.“

[adspot]

Orkan er end­ur­nýj­an­leg en ekki óend­an­leg en sam­keppnin um hana er mikil og fer vax­andi á tímum orku­skorts og lofts­lags­breyt­inga. „Græna orkan er olía okkar tíma og mun halda áfram að vaxa í virði eftir því sem þjóðir heims­ins sækj­ast eftir því að fara í orku­skipti,“ sagði Halla Hrund. „Þannig að það eru margir kaup­endur og fyrir fyr­ir­tæki sem starfa á mark­aði er ekki sjálf­gefið endi­lega að orkan fari í orku­skipta­verk­efni ef þau eru minna sam­keppn­is­hæf heldur en aðrir kostir. Það eru margar leiðir til að nýta ork­una og í sjálfu sér er ein af spurn­ing­unum: Hver býður best?“

Ákveðinn áhættuþáttur

Halla Hrund sagði Orku­stofnun hafa sett fram ákveðna sviðs­mynd sem gott væri að velta fyrir sér. Í ramma­á­ætlun séu virkj­un­ar­kostir í nýt­ing­ar­flokki með ákveðið mikla orku og gera megi ráð fyrir því að ein­hverjir þeirra verði að veru­leika á næstu árum. „Ef að það magn er bundið í lang­tíma­orku­samn­inga, fram yfir lofts­lags­mark­mið Íslands, þá er það ákveð­inn áhættu­þáttur í því að það verði til orka fyrir orku­skipti.“

Hún lagði ríka áherslu á að ekki væri verið að gera lítið úr því að önnur orku­notkun geti stuðlað að miklum verð­mætum, nýsköpun og öðru fyrir land og þjóð. „Við erum að draga það hins vegar fram að það er ekki orku­notkun sem styður við lofts­lags­mark­miðin.“

Markmið Íslands í lofts­lags­málum eru þau að ná kolefn­is­hlut­leysi og fullum orku­skiptum eigi síðar en árið 2040. „Það hefur verið mikið rætt um það að orku­skiptin eigi að vera í for­gangi þegar kemur að orku­nýt­ingu,“ sagði orku­mála­stjóri og sagði umræð­una stundum á þennan veg: Er ekki bara nóg til? Ef það er ekki nóg til fyrir orku­skiptin getum við þá ekki bara fram­leitt meira?

„Það er það áhuga­verða við end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa að við erum að vinna innan þol­marka nátt­úru,“ sagði hún. „Þetta eru verð­mæt en tak­mörkuð gæði. Náttúra vex líka í virði á tímum lofts­lags­breyt­inga. Þannig að við þurfum að hafa jafn­vægi í huga, sér­stak­lega vegna þess að þótt við séum að taka ákvarð­anir núna þá erum við að taka ákvarð­anir um inn­viði og annað fyrir fram­tíð­ar­kyn­slóðir.“

Hún sagði Orku­stofnun, sem gegnir lögum sam­kvæmt ráð­gjaf­ar­hlut­verki, vilja að stjórn­völd skilji að veru­leik­inn sé flókn­ari en áður. „Og ef að stjórn­völd vilja setja orku­skipti raun­veru­lega í for­gang þá þarf að hugsa um ólíka hvata eða leiðir.“

Því næst varp­aði hún upp á skjá það sem hún kall­aði „mat­seðil mögu­leika“.

Á honum eru sjö ólíkar leiðir sem stjórn­völd gætu skoðað „ef það er raun­veru­legur vilji til að setja lofts­lags­mark­miðin hærra heldur en önnur mark­mið“.

Á mat­seðl­inum eru mögu­legar aðgerðir sem má útfæra og lík­legar eru til að skapa hvata svo orka rati í orku­skiptin og styðja þannig við loft­lags­mark­mið stjórn­valda. Til­lög­urnar eru allt frá því að gera raf­elds­neyti sam­keppn­is­hæf­ara við aðra val­kosti á mark­aði með íviln­unum og í að skil­yrða hluta virkj­un­ar­leyfa í þágu orku­skipta­verk­efna.

Dæmin sjö eru þessi:

  • For­gangs­röðun leyf­is­veit­inga innan stjórn­sýsl­unnar
  • Eig­enda­stefna opin­berra fyr­ir­tækja í þágu lofts­lags­mála
  • Útboð á fram­leiðslu­getu í þágu lofts­lags­mark­miða
  • Hlutfall af fram­leiðslu skil­yrt í leyfum fyrir orku­skipti
  • Íviln­anir sem auka sam­keppn­is­hæfni raf­elds­neytis
  • Tryggja lang­tíma­samn­inga fyrir orku­skipta­verk­efni
  • Styrkir til inn­viða­upp­bygg­ingar vegna orku­skipta

„Þetta eru alls konar til­lögur sem við segjum að sé efni inn í umræð­una, efni fyrir stjórn­mála­menn að skoða,“ sagði Halla Hrund. Orku­stofnun er að hennar sögn sann­ar­lega fús til að veita meiri upp­lýs­ingar um ólíkar leiðir og taka við til­lögum að fleiri leiðum „því við viljum safna fleiri jólakúlum á þetta tré“.

En af hverju erum við að setja okkur lofts­lags­mark­mið og fara í orku­skipti?

Með Par­ís­ar­sátt­mál­anum höfum við líkt og flestar þjóðir heims skuld­bundið okkur til að gera hvað við getum til að halda hlýnun jarðar undir tveimur gráðum miðað við með­al­hita­stig við upp­haf iðn­væð­ingar - helst undir 1,5 gráðum.

„Við erum núna komin með einnar gráðu í hlýnun og nú þegar eru ríki farin að takast á við breyt­ingar á veð­ur­fari,“ sagði Halla Hrund.

[adspot]

En skipta ein eða tvær gráður til eða frá ein­hverju máli? spurði hún. Til að ná betur að skilja hvað um ræðir benti hún á sam­lík­ing­una við lík­ams­hita okkar, hver munur á líðan okkar er þegar við erum „hita­laus“ (37 stig) eða með 38 stiga hita. „Það eru mikil áhrif sem koma með til­tölu­lega lít­illi breyt­ingu á með­al­hita [á jörð­inni]. Það hefur það í för með sér að við sjáum stórar breyt­ingar á veð­ur­fari.“

Það er ekki nema með sam­taka­mætti stórra ríkja sem eru að losa mest sem við raun­veru­lega getum náð þeim árangri sem við þurfum „en á sama tíma þurfa öll ríki heims­ins að vinna sína heima­vinnu“.

Stuðningur við loftslagsvegferð

Orku­stofnun hefur und­an­farið unnið að því að breyta áherslum sínum til að geta stutt betur við loft­lags­veg­ferð stjórn­valda, líkt og Halla Hrund orð­aði það. Í þessu augna­miði hefur verið sett á fót nýtt svið innan stofn­un­ar­innar, svið lofts­lags­breyt­inga, orku­skipta og nýsköp­unar.

Orku­skipta­líkanið sem kynnt var í gær er fyrsta skref stofn­un­ar­innar í að sam­vinna orku­spár sem hafa áður verið gefnar út í sitt­hvoru lagi í formi skýrslna. Orku­skipta­líkanið tengir elds­neyt­is­spá og raf­orku­þörf vegna orku­skipta. Fyrri spár byggðu á eft­ir­spurn eftir olíu og aðal­lega sam­fé­lags­þróun og orku­nýtni sem höfðu áhrif á nið­ur­stöður spánna. „Nú eru nýir orku­gjafar að ryðja sér til rúms með til­heyr­andi óvissu. Það er flókið að áætla hver skipt­ingin verður milli raf­elds­neytis og beinnar nýt­ingar raf­orku ásamt inn­leið­ing­ar­hraða nýrrar tækni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár