Vind­orkan áskorun fyrir stjórn­kerfi skipu­lags- og orku­mála

Ásdís Hlökk Theo­dórs­dóttir ræddi við Kjarnann fyrir skemmstu og fór þar yfir þau álita­mál sem eru til staðar hvað vind­orku varðar. Hún segir ekki sjálf­gefið að nýta skuli þegar röskuð svæði, eins og til dæmis við hálend­is­brún­ina, undir vind­myllur.

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, fyrrverandi forstjóri Skipulagsstofnunar.
Ásdís Hlökk Theo­dórs­dóttir, fyrr­ver­andi for­stjóri Skipu­lags­stofn­unar. Mynd: Mynd: Golli

Víða um land hafa fram­kvæmda­að­ilar nú uppi áform um upp­bygg­ingu vind­orku­vera, svo mjög að stundum er jafn­vel talað um „vind­myllu­kapp­hlaup“ í þeim efn­um. Ásdís Hlökk Theo­dórs­dóttir, sem lét af störfum sem for­stjóri Skipu­lags­stofn­unar á síð­asta ári eftir níu ár í emb­ætti, segir þetta vera stöðu sem „dregur fram ýmsa þekkta veik­leika í stjórn­kerfi skipu­lags­mála og stjórn­sýslu og ekki síður stjórn­kerfi orku­mála og sam­spili orku- og skipu­lags­mála“.

Í ítar­legu við­tali við Kjarnann sem birt­ist á dög­unum sagði Ásdís Hlökk mjög mikla þörf á að sett væri fram skýr­ari og útfærð­ari stefna í orku­málum og sagði núver­andi orku­stefnu tala „frekar almennum orðum“.

„[Þ]að sem við eigum eftir að fá rætt í meiri þaula og útfært og ná sam­eig­in­legum skiln­ingi um er hvað ætlum við og þurfum við að fram­leiða mikla orku í þessu landi til næstu ára­tuga, til hvaða nota á þessi orka að fara og hvernig tryggjum við að hún fari þang­að. Þetta eru spurn­ingar sem í mínum huga verða að fást skýr­ari svör við af hálfu lög­gjafans og stjórn­valda og verður að fara fram opn­ara sam­tal um, meira en bara að ein­hverjir hópar setj­ist niður og búi til módel um hvað sá hópur telur æski­legt að fram­leiða mikla orku í land­in­u,“ sagði Ásdís Hlökk.

[adspot]

Hvað skipu­lags­málin varðar þurfi svo að setja fram stefnu um hvað eigi að ráða varð­andi stað­setn­ingu ein­stakra vind­orku­vera.

„Vind­orkan er þannig að hana þarf að stað­setja þar sem er vind­ur, og það vill svo til að það er víð­ast hvar á Íslandi, svo það er tak­mörkuð kríter­ía, en engu að síður auð­vitað atriði sem þarf að ganga út frá. Stað­setn­ing ein­stakra vind­orku­vera þarf einnig að ráð­ast af því hvar er hægt að koma þessum stóru íhlutum á vett­vang, það þarf að vera höfn og góðir vegir og það þarf að vera hægt að koma orkunni frá sér inn á flutn­ings­kerf­ið, svo það eru ákveðnar tækni­legar breytur sem þarf að taka til­lit til. En stóru, stóru skipu­lags­málin sem er snúnast að takast á við, það eru áhrifin á ásýnd lands, á búsetu­lands­lag og karakter og stað­ar­sér­kenni og ímynd svæða. Nánd­ar­á­hrif á nágranna og svo áhrif á nátt­úru­far og þá ekki síst á fugla­líf, og auð­vitað áhrif á aðrar atvinnu­grein­ar, eins og ferða­þjón­ust­una, sem er auð­vitað mjög stór atvinnu­grein sem byggir á nátt­úru lands­ins,“ segir Ásdís Hlökk og bætir við að fyrir liggi í könn­unum meðal erlendra ferða­manna að þeir komi til Íslands fyrst og fremst til að upp­lifa og njóta íslenskrar nátt­úru – víð­sýn­is­ins og lands­lags­ins.

Bæði kostir og gallar við að vindorkan fari í ramma

„Auð­vitað fela þessi stóru hreyf­an­legu mann­virki í sér mikla breyt­ingu þar sem þau verða vel sýni­leg. Það er áskorun að velja réttu verk­efn­in, réttu stað­ina,“ segir Ásdís Hlökk, sem segir í því til­liti að það fylgi því bæði kostir og gallar að vind­orku­verk­efnin fari í gegnum ramma­á­ætl­un.

„Ramma­á­ætlun er sann­ar­lega ekki galla­laust verk­færi og löngu tíma­bært að end­ur­skoða verk­lag og umgjörð þar, en það er þó mikil lukka að vind­orkan er þó í þessu ramma­á­ætl­un­ar­ferli enn sem komið er, því þar fer fram ákveðin sam­ræmd grein­ing á einum stað. En gall­inn er meðal ann­ars að ramma­á­ætl­un­ar­verk­lagið skoðar hvern virkj­un­ar­kost fyrir sig, okkur skortir heild­stæða stefnu­mótun og skoðun á sam­legð­ar­á­hrifum af því að virkja vind­inn víða,“ segir Ásdís Hlökk.[links]

„Það er ákveð­inn vandi á höndum við að ákveða hvernig haga skal ákvarð­ana­töku um vind­ork­una til fram­tíð­ar. Það hefur verið skoðað að fara sömu leið og gert er sum­staðar í nágranna­löndum okk­ar, að þessar ákvarð­anir séu bara teknar af sveit­ar­fé­lög­un­um, eins og aðrar skipu­lags­á­kvarð­anir almennt, en þá verðum við að hafa það í huga að þar sem það er gert þá eru alltaf inn­grips­heim­ildir og mögu­leiki rík­is­ins til að taka yfir slíkar ákvarð­an­ir. Slík inn­gripsúr­ræði höfum við ekki í íslenskum skipu­lags­lög­um. Ég hef nú gjarnan verið tals­kona þess að við eigum ekki að finna upp hjólið heldur kynna okkur hvað er gert ann­ars staðar og taka mið af því við þróun á okkar skipu­lags­lög­gjöf, en við verðum þó að vera var­kár við að taka ekki ein­stök ákvæði sam­heng­is­laust úr lög­gjöf og praxís ann­ars staðar og stinga inn í okkar kerfi og vera mjög var­kár ef valið verður að fara þá leið að færa þessar ákvarð­anir meira eða alfarið til sveit­ar­fé­laga, þá verða að fylgja því ein­hverjar breyt­ingar í þá veru að rík­is­valdið geti tekið þær ákvarð­anir yfir og haft eitt­hvað um þær að segja,“ segir Ásdís Hlökk.

Þau sjón­ar­mið hafa svo verið viðruð að best væri að nýta þau land­svæði sem þegar eru röskuð vegna orku­vinnslu undir vind­orku­ver.

„Ég held að við þurfum að gæta okkar á slíkum alhæf­ing­um, því sú orku­vinnsla sem er fyrir felur í sér allt ann­ars konar land­nýt­ingu, ann­ars konar mann­virki og allt önnur áhrif á lands­lag. Það er vissu­lega ákveðin ein­földun en það er svo­lítið eins og að halda því fram að það sé ákjós­an­legt að nýta svæði þar sem lengi hefur verið lágreist byggð til að byggja háhýsa­hverfi. Það á bara ekki alls staðar við. Ég hef til dæmis efa­semdir um að það sé æski­leg­ast að byggja vind­orku­ver við hálend­is­brún­ina þó að þar séu fyrir vatns­afls­virkj­un­ar­svæði sem eru vissu­lega röskuð og þar sem er til­tölu­lega hand­hægt að tengj­ast flutn­ings­kerf­inu, þá erum við þarna á brún­inni á þessum miklu víð­ernum og vin sem hálendið er. Þessi mál eru heil­mikil áskorun fyrir okkar stjórn­kerfi, ekki síst í því til­liti að sveit­ar­stjórnir eru margar og með tak­mark­aða burði til að kljást við stóra aðila sem fara mik­inn og bjóða jafn­vel gull og græna skóga,“ segir Ásdís Hlökk.

„Ábyrgðarhluti“ að fara með stór áform inn í lítil samfélög

Hún segir líka víti að var­ast í þessum efn­um. Það er ábyrgð­ar­hluti að fara fram með stór fram­kvæmda­á­form inn í lítil sam­fé­lög og sveit­ar­fé­lög.

„Það geta orðið svo hat­rammar deilur um upp­bygg­ingu að það grær seint eða aldrei um heilt. Við höfum séð alltof mörg dæmi um þetta; vega­fram­kvæmd­ir, virkj­ana­fram­kvæmdir og fleira. Það er ábyrgð­ar­hluti að fara inn í lítil sam­fé­lög með stór upp­bygg­ing­ar­á­form og skiptir máli hvernig að því er staðið og hvernig mál eru borin upp og sam­skipti eru við nær­sam­fé­lag­ið, sveit­ar­stjórn og svo fram­veg­is,“ segir Ásdís Hlökk.

Einnig eigum við nú þegar stand­andi vitn­is­burð um að í okkar skipu­lags­fram­kvæmd höfum við ekki sam­tengt ákvarð­anir sem eru háðar hver annarri nægi­lega vel.

„Við eigum hálf­byggt álver úti í Helgu­vík sem engar virkj­anir voru fyrir og engar raf­línur lágu að og svo er það þessi sorg­ar­saga sem er kís­il­verið í Helgu­vík, og fullá­for­mað kís­il­ver við hlið þess sem ekki hafa haf­ist fram­kvæmdir við. Við verðum að draga lær­dóm af þessum verk­efn­um, þar sem farið hefur verið fram af svo miklu kappi í ákveðna upp­bygg­ingu og að hefja fram­kvæmdir þótt að það liggi fyrir að for­sendur upp­bygg­ing­ar­innar séu ekki til stað­ar.“

Ítarlegt við­tal Kjarnans við Ásdísi Hlökk má lesa með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár