Rafmagnsverð í hæstu hæðum í Noregi

Orkan kostar sífellt fleiri krónur og aura hjá nágrönnum okkar í Noregi. Fyrst urðu Sunn­lend­ingar illa úti en nú hefur orku­krísan náð norður í land. Beðið er eftir blæstri svo vind­orku­verin skili sínu.

Tromsø í Norður-Noregi.
Tromsø í Norður-Noregi. Mynd: Visit Tromsø

„Við höfum fengið góða áminn­ingu um að við erum tengd umheim­inum,“ segir Johnny Hordal, fram­kvæmda­stjóri orku­fyr­ir­tæk­is­ins Salten sem er í eigu nokk­urra sveit­ar­fé­laga í Mið- og Norður-Noregi. Þessi orð lét hann falla í morgun eftir að met­hækk­anir urðu á raf­orku­verði á einmitt þessu svæði lands­ins. Orku­verðið hefur ekki verið hærra frá því árið 2010.

[adspot]

Noregi er skipt upp í verð­lags­svæði þegar kemur að raf­orku. Á nyrsta svæð­inu hækk­aði verðið um hvorki meira né minna en 341 pró­sent í dag, segir í frétt NRK um málið. Með­al­verð á kílóvatt­stund (kWst) fór þá í 212 norska aura, rúm­lega 30 íslenskar krónur. Það er venju­lega á bil­inu 20-50 aurar. Á morgun er gert ráð fyrir að með­al­verðið hækki í 244 aura eða í tæp­lega 35 íslenskar krónur.

Hækk­an­irnar nú eiga sér ýmsar skýr­ingar en kóln­andi veður á þar m.a. hlut að máli. Eft­ir­spurnin eykst og verðið hækkar. „Þá er vind­ur­inn hættur að blása,“ sagði Horsdal. Háþrýsti­svæði liggur sem mara yfir norð­ur­hluta Noregs og gæti gert það í nokkrar vikur í við­bót. Og á meðan fram­leiða vind­orku­verin lítið raf­magn. Samkvæmt spá Nord Pool, raf­orku­mark­aðs Norð­ur­land­anna, mun hámarks­verð í Noregi verða 5 norskrar krónur, 71,44 íslenskar, á kílóvatt­stund milli kl. 17 og 18 í dag en þá er eft­ir­spurnin lang­mest.

Raf­orku­verð syðst í Noregi hefur verið óvenju hátt síð­ustu vikur og mán­uði vegna þess að sá hluti orku­kerf­is­ins er tengdur við norð­ur­hluta Evrópu. Íbúar í Norður-Noregi hafa greitt lægra orku­verð en nú gætu þeir þurft að róta í budd­unni eftir svip­uðum fjölda króna og landar þeirra suður frá. „Það eru dýrar vikur fram undan,“ segir Horsdal við NRK.

En um leið og vetr­ar­vindar fara að blása mun verðið lækka, segir hann.

Norðurálssamningur tengdur Nord Pool

Annar raf­orku­samn­ingur Lands­virkj­unar við Norðurál á Grund­ar­tanga hefur frá árinu 2019 verið tengdur við Nord Pool í stað álverðs. Með þess­ari teng­ingu fær Lands­virkjun sam­bæri­legt raf­orku­verð og önnur orku­fyr­ir­tæki á Norð­ur­löndum.

Á síð­asta ári var gerður við­auki við þennan samn­ing Norð­ur­áls og Lands­virkj­unar og samið um að árið 2024 taki verð­teng­ing við Nord Pool enda og samn­ing­ur­inn verði á föstu verði eftir það. Nú í sept­em­ber var svo gerður enn einn við­auki við samn­ing­inn þar sem dregið var úr verð­teng­ingu við Nord Pool að hluta til í stað fasts verðs. Einnig var bætt við álverðsteng­ingu á fast verð síðar á samn­ings­tím­anum.

Líkt og sjá má á með­fylgj­andi mynd hér að ofan, sem fengin er af vef Norð­ur­áls, hefur raf­orku­verð sveifl­ast mjög frá því að teng­ing var gerð við Nord Pool árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár