Biðja þjóðir Evrópu um að draga úr notkun jarðgass

Ekkert gas hefur verið flutt um Nord Stream gasleiðsl­una í tíu daga vegna við­halds en því verður brátt lokið. Stjórn­völd í Evrópu búa sig þann mögu­leika að Rússar stöðvi flutn­ing gass um leiðsl­una en það gæti heft forða­söfnun fyrir vet­ur­inn veru­lega.

Ursula von der Leyen er forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Ursula von der Leyen er for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Mynd: EPA

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hefur hvatt aðild­ar­ríki ESB til að draga úr notkun jarð­gass um sem nemur 15 pró­sentum fram til næsta vors. Aðild­ar­ríkjum er í sjálfs­vald sett hvort þau fylgi þessum til­mælum enn sem komið er skerð­ingin gæti orðið lög­fest ef Rússar stöðva flutn­ing á jarð­gasi í gegnum gasleiðsl­una Nord Stream 1. Ekkert gas hefur verið flutt um gasleiðsl­una í 10 daga vegna við­halds en til stendur að við­haldi verði lokið á fimmtu­dag. Óttast er að Rússar muni neita að skrúfa frá gas­inu að loknu við­haldi. Frá þessu er greint á vef BBC.

Haft er eftir Ursulu von der Leyen, for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB, í umfjöll­un­inni að lík­legt sé að Rússar stöðvi gas­út­flutn­ing til Evrópu, að stjórn­völd í Kreml séu farin að beita orku­út­flutn­ingi sem vopni og kúgi þannig þjóðir Evrópu. „Þar af leið­andi, hvað sem af verður, hvort flutn­ingur gass frá Rúss­landi verður tak­mark­aður að litlu eða öllu leyti, þá þarf Evrópa að vera til­búin,“ sagði von der Leyen um stöð­una.

Frá því að Rússar réð­ust inn í Úkraínu í febr­úar á þessu ári hafa Rússar tak­markað afhend­ingu á gasi til fjölda landa sem neitað hafa að greiða fyrir gasið með rúblum, þar á meðal til Póllands, Hollands, Búlgaríu, Dan­merkur og Finn­lands. Þá eru Rússar einnig sak­aðir um að skerða afhend­ingu gass til þess að gera Evr­ópu­þjóðum erf­ið­ara fyrir að koma sér upp gas­forða fyrir vet­ur­inn.

Veturinn gæti orðið kaldur á evrópskum heimilum

Líkt og áður segir gæti farið svo að 15 pró­senta skerð­ing á orku geti orðið lög­fest meðal sam­bands­ríkja ESB. Í umfjöllun New York Times segir að ef af því verður muni fram­kvæmda­stjórn ESB geta skikkað aðild­ar­ríki til þess að fylgja fast­mót­aðri áætlun um orku­notkun.

Þar segir enn fremur að íbúar álf­unnar séu á báðum áttum í afstöðu sinni til þess hvort það sé þess virði að draga úr orku­notkun til stuðn­ings Úkraínu. Sumir séu til­búnir til að taka á sig meiri fórnir til þess að spyrna við Rússum á meðan aðrir segja að stríðið sé farið að hafa of mikil áhrif á dag­legt líf.

Í nýlegri könnun sem fram­kvæmd var í Þýska­landi sögðu 22 pró­sent aðspurðra vera fylgj­andi því að stjórn­völd drægu úr stuðn­ingi við Úkraínu til þess að koma í veg fyrir hækk­andi orku­verð. Aftur á móti voru 70 pró­sent fylgj­andi því að þýsk stjórn­völd héldu áfram að styðja dyggi­lega við bakið á Úkraínu þrátt fyrir örð­ug­leika í efna­hags­líf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár