Það er þyngra en tárum taki að verða vitni að afgreiðslu Alþingis á rammaáætlun sem samþykkt var á dögunum. Sá gjörningur að færa Héraðsvötn og Kjalölduveitu úr vernd í biðflokk er mikill afleikur. Það færir baráttu um náttúruvernd og vernd óbyggðra víðerna mörg skref aftur á bak. Hinn almenni leikmaður skilur orðið hvorki upp né niður. Vinstri hreyfingin- grænt framboð er rúin trausti þeirra sem trúðu því að hreyfingin væri málsvari náttúruverndar og þess að verja náttúruperlur fyrir ágangi þeirra sem fyrst og fremst sjá í þeim skjótfenginn gróða en þeir færa ósköpin gjarnan í felubúning um mikilvægi orkuskipta.
[adspot]Þeir flokkar sem nú sitja í ríkisstjórn eru marg ólíkir og vitað mál að mikið ber á milli þeirra þegar skoðuð er framganga þeirra varðandi virkjun og vernd í gegnum tíðina. Með það í huga er athyglisvert hversu samhentir flokkarnir eru í þessu máli. En það er með miklum ólíkindum hvernig komið er fyrir þeim stjórnarflokki sem kennt hefur sig við náttúruvernd. Ég er ekki viss um að forysta VG geri sér grein fyrir því hversu mikið áfall þessi gjörningur er því fólki sem barist hefur árum og áratugum saman fyrir vernd náttúruverðmæta í heimabyggð og í mörgum tilvikum treyst á stuðning VG. Vil ég þar nefna Þjórsárver og fossaröðina fallegu í ofanverðri Þjórsá. Þjórsárverin eru eitt víðuáttumesta og fjölbreyttasta gróðursvæði á hálendi Íslands og hafa alþjóðlegt mikilvægi, aðallega fyrir vatnafugla og þar er eitt mesta heiðagæsavarp í heimi. Kjalölduveita myndi hafa óafturkræf neikvæð áhrif á vatnasvið og náttúru Veranna og þurrka að miklu leiti upp fossaröðina, Dynk, Kjálkaversfoss og Gljúfurleitarfoss. Viljum við það?
Ég skrifaði grein til handa báráttu fyrir vernd Þjórsárvera sem birtist þann 19. mars árið 2005 en þá voru uppi áform um Norðlingaölduveitu. Það eru 17 ár liðin og enn stöndum við í baráttu um verndun Þjórsárvera, það er með ólíkindum að baráttan standi enn! Ég vil gera lokaorð þessarar greinar minnar þá að lokaorðum mínum hér, þau eiga enn við „Ég hvet stjórnvöld, sveitarstjórn og náttúruverndarsamtök til að taka höndum saman og vinna í sameiningu að verndun Þjórsárvera til framtíðar. Síðast en ekki síst vil ég hvetja almenning til að láta sig málið varða, við berum öll sameiginlega ábyrgð á því hvernig farið er með náttúru landsins“. Baráttan heldur áfram.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir