Sólarrafhlöður enda langoftast í landfyllingum

Það er komið að enda­lok­unum. Og spurn­ing hvað taki þá við. Beint í land­fyll­ingar með þær, segja sumir. Á ösku­haug­ana, segja aðrir. En hvaða gagn er eig­in­lega af end­ur­nýj­an­legri orku ef meng­andi tækjum til að afla hennar er hent?

Sólarrafhlöður hylja þak á byggingu í New York.
Sól­ar­raf­hlöður hylja þak á bygg­ingu í New York. Mynd: EPA

Árið 2006 hófst átak í Kali­forníu-ríki sem mið­aði að því að hvetja fólk til að koma sér upp sól­ar­raf­hlöðum á hús­þökum sínum. Ákveðnar íviln­anir fylgdu þessu átaki og margir slógu til enda til mik­ils að vinna að lækka raf­magns­reikn­ing­inn og leggja sitt af mörkum til að draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis.

En nú, tæpum tveimur ára­tugum síðar, er komið að skulda­dögum. Hvernig á að farga þessum 1,3 milljón sól­ar­raf­hlöðum sem eru farnar að daprast? Það var alltaf fyr­ir­séð að skipta þyrfti þeim út eftir um tutt­ugu ár eða svo en að engin umhverf­is­væn förg­un­ar­leið og ekk­ert plan um end­ur­vinnslu myndi ekki liggja fyrir að öllum þeim tíma liðnum hefur komið á óvart.

[adspot]

Í frétta­skýr­ingu LA Times kemur fram að margar sól­ar­sell­urnar hafi nú þegar endað í land­fyll­ingum. Þar leka eit­ur­efni úr þeim út í jarð­veg­inn og grunn­vatn enda sól­ar­raf­hlöður, líkt og mót­orar vind­mylla, sam­an­settar af alls konar efnum, oft fágætum jarð­efnum, sem eru ekki stöðug og jafn­vel hættu­leg.

Stað­reyndin er sú að það er dýrt að end­ur­vinna sól­ar­raf­hlöður svo vel sé. Tíma­frekt og dýrt. Þess vegna er talið, að því er sér­fræð­ingar er LA Times ræðir við segja, að aðeins ein af hverjum tíu slíkum raf­hlöðum séu end­ur­unnar. Teknar í sundur. Álið flokkað í einn kassa. Sjaldgæf jarð­efni í annan.

Sú staða sem nú er komin upp í Kali­forníu, því ríki Banda­ríkj­anna sem mest notar af sól­ar­orku og því ríki sem fór fyrst af stað í almenna nýt­ingu hennar, hefur vakið upp margar spurn­ingar um þann sprengi­kraft sem kom­inn er í umræð­una um end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa – græna gullið. Hver á að borga fyrir förgun á rík­is­styrktum, meng­andi sól­ar­raf­hlöðum? Og hvað á eig­in­lega að gera við tugi vöru­bíls­farma af þeim? Vantaði ekki eitt­hvað í hina fögru fram­tíð­ar­sýn sem farið var af stað með á sínum tíma og hefur aðeins eflst síð­ustu miss­eri?

Því Kali­fornía er auð­vitað aðeins eitt ríki. Eitt ríki í einu landi. Í heimi þar sem stefnt er að því að nýta sólar- og vind­orku í miklum mæli. „Þessi iðn­aður á að heita grænn,“ segir Sam Vanderhoof, sér­fræð­ingur í nýt­ingu sól­ar­orku, við LA Times. „En í raun og veru snýst þetta allt um pen­inga.“

Sól­ar­orku­átakið í Kali­forníu skil­aði þeim mark­miðum sem til var ætl­ast. Sól­ar­sellur ruku út sem aldrei fyrr og hlutur sól­ar­orku í raf­orku­fram­leiðslu jókst umtals­vert. Um 15 pró­sent alls raf­magns sem fram­leitt er í rík­inu í dag kemur frá sól­ar­orku.

[adspot]

En það gleymd­ist ein stór breyta í jöfn­unni. Hvernig farga ætti raf­hlöð­unum er þær hefðu gegnt sínu hlut­verki. Og nú þegar komið er að því að skipta þeim mörgum út blasir upp­safn­aður vandi við stjórn­völdum og fram­leið­endum raf­hlað­anna.

Serasu Duran, aðstoð­ar­pró­fessor við Haskayne-háskóla í Kanada, segir að þetta sýni hvernig fari þegar öll áherslan er lögð á að fara í leið­angra með nýja tækni án þess að hugsa hann til enda. Hann skrif­aði grein í Harvard Business Review nýverið þar sem hann vakti athygli á því að orku­iðn­að­ur­inn, fyr­ir­tækin sem fram­leiða raf­hlöð­urnar og þau sem setja þær upp og tengja, sé engan veg­inn und­ir­bú­inn fyrir það sem koma skal.

Um 140 þús­und sól­ar­raf­hlöður eru settar upp á hverjum degi í Banda­ríkj­unum um þessar mundir. Spár gera ráð fyrir að nýt­ing sól­ar­orku eigi eftir að fjór­fald­ast til árs­ins 2030.

Það eru vissu­lega fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem taka að sér end­ur­vinnslu og förgun eit­ur­efna úr sól­ar­sellum. Það stærsta, We Recycle Solar, hefur und­an­farið tekið við tölu­verðu magni af slíkum raf­hlöðum frá Kali­forníu. En til að farga þeim eru þeim ekið í flutn­inga­bílum til Arizona. Það er þó ekki þannig að fyr­ir­tækið vilji ekki hafa starf­semi sína í Kali­forníu. Það eru lög og reglur rík­is­ins sem hindra það, reglur sem setja þröngan ramma um úrvinnslu eit­ur­efna.

Svo er það ekki ókeypis að taka raf­hlöð­urnar í sundur. Til þess þarf ýmsan búnað og sér­þjálfað starfs­fólk. Til að flokka allt sem í þeim er í sundur, t.d. kísil, þarf mik­inn hita og þrýst­ing. Ávinn­ing­ur­inn er svo ekki sér­stak­lega mik­ill. For­stjóri We Recycle Solar segir að efni sem selj­ist á um 2-4 doll­ara fáist úr hverri sól­ar­raf­hlöðu sem er end­urunn­inn. 280-550 krónur. Það er ein­fald­lega ekki arð­bært að gera það. Því þarf ein­hver að borga fyrir förg­un­ina. Eins og staðan er kostar um 20-30 doll­ara að farga hverri raf­hlöðu. Það kostar hins vegar aðeins 1-2 doll­ara að setja hana í land­fyll­ingu.

Og það er þar sem flestar sól­ar­raf­hlöður enda núna að sögn þeirra sér­fræð­inga sem LA Times ræðir við í umfjöllun sinni. Enginn veit þó með vissu hvað verður um þær nákvæm­lega. Ekkert kerfi er til staðar til að skrá hvað verður um hin meng­andi tæki sem notuð eru til að fanga hina end­ur­nýj­an­legu orku, sól­ar­ljós.

Ítarlega umfjöllun LA Times má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár