Hilmar, Björt og Kolbeinn skipuð í starfshóp um vindorku

Nýr starfs­hópur á að gera til­lögur um nýt­ingu vind­orku, hvort sér­lög skuli gerð um slíka kosti og hvernig megi ná fram þeim mark­miðum stjórn­valda að byggja þá upp á afmörk­uðum svæðum.

Starfshópinn skipa þau Hilmar Gunnlaugsson, Björt Ólafsdóttir og Kolbeinn Óttarsson Proppé.
Starfs­hóp­inn skipa þau Hilmar Gunn­laugs­son, Björt Ólafs­dóttir og Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé. Mynd: Vindorkuhópur

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra hefur skipað Hilmar Gunn­laugs­son hæsta­rétt­ar­lög­mann, Björt Ólafs­dóttur, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra og Kolbein Ótt­ars­son Proppé, fyrr­ver­andi þing­mann, í starfs­hóp sem gera á til­lögur til rík­is­stjórn­ar­innar varð­andi nýt­ingu vind­orku. Hilmar er for­maður hóps­ins sem á að skila til­lögum sínum til ráð­herra fyrir 1. febr­úar á næsta ári.

Meðal þess sem hópnum er falið að skoða er hvort vind­orku­kostir eigi áfram að heyra undir lög um ramma­á­ætlun eða hvort setja eigi sér­lög um þá „með það að mark­miði að ein­falda upp­bygg­ingu vind­orku­vera til fram­leiðslu á grænni orku,“ líkt og segir í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. Í sátt­mál­anum kemur enn­fremur fram sá vilji rík­is­stjórn­ar­flokk­anna að áhersla verði lögð á að vind­orku­ver bygg­ist upp á afmörk­uðum svæðum nærri tengi­virkjum og flutn­ings­línum, „svo unnt verði að tryggja afhend­ingar­ör­yggi og lág­marka umhverf­is­á­hrif“. Tekið er fram að mik­il­vægt sé að breið sátt ríki um upp­bygg­ingu vind­orku­vera og til­lit sé tekið til sjón­rænna áhrifa, dýra­lífs og nátt­úru; einnig að taka verði afstöðu til gjald­töku fyrir slíka nýt­ingu.

[adspot]

Hlutverk starfs­hóps­ins verður að skoða og gera til­lögur til ráðu­neyt­is­ins um hvernig ofan­greindum mark­miðum verði náð, segir í til­kynn­ingu frá umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu um skip­un­ina. Gert sé ráð fyrir að starfs­hóp­ur­inn fari ítar­lega yfir lög um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun, að því er varðar með­höndlun og máls­með­ferð vind­orku yfir 10 MW innan ramma­á­ætl­unar; auk laga­frum­varps og þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem lögð voru fram 2021 um stað­setn­ingu vind­orku­vera í lands­lagi og nátt­úru Íslands.

Ráðu­neytið segir að þegar sé hafin vinna við lög­fræði­lega úttekt á sam­an­burði á lagaum­hverfi vegna vind­orku­vera í nokkrum löndum. Þar sé einkum um að ræða Noreg, Svíþjóð, Skotland og Nýja-Sjáland, þar sem aðstæður eru með líkum hætti og hér­lendis. Hinn nýskip­aði starfs­hópur mun fá nið­ur­stöður þess­arar úttektar til afnota, þegar þær liggja fyrir og getur nýtt þær við vinnslu á til­lögum sínum.

Gert er ráð fyrir að starfs­hóp­ur­inn vinni náið með Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga við und­ir­bún­ing til­lagna sinna og frum­varps til laga. Jafn­framt er gert ráð fyrir sam­ráði við hag­að­ila, hlut­að­eig­andi ráðu­neyti og stofn­anir.

Að loknu mati og grein­ingu á við­fangs­efn­inu er starfs­hóp­unum ætlað að vinna drög að laga­frum­varpi á grund­velli nið­ur­staða sinna.

Hverjir eru í starfshópnum?

Hilmar Gunn­laugs­son lauk árið 2018 meist­ara­námi á sviði orku­réttar. Loka­rit­gerð hans fjall­aði um áhrif þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins á Ísland. Í við­tali við Aust­ur­glugg­ann sagð­ist hann hafa valið sér þetta rann­sókn­ar­efni þar sem „ýmsar stað­hæf­ingar“ hafi verið á kreiki í umræð­unni um þetta póli­tíska hita­mál hér á landi, m.a. sú stað­hæf­ing að með þriðja orku­pakk­anum væru Íslend­ingar að afsala sér rétti til auð­lind­ar­innar afhenda erlendri stofnun rétt­inn til að ákveða orku­verð og hvort tengst yrði evr­ópskum raf­orku­mark­aði í gegnum sæstreng. „Ég hef verið frekar íhalds­samur varð­andi aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu en lög­fræði­leg nið­ur­staða mín er að menn ýkja veru­lega áhrif þriðja orku­pakk­ans á þessi atriði,“ sagði Hilmar við Aust­ur­glugg­ann.

Hilmar var vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi árið 2004.

Björt Ólafs­dóttir var þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis norð­urs fyrir Bjarta fram­tíð á árunum 2013-2017. Hún varð umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í byrjun jan­úar árið 2017 í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar. Sú stjórn lifði ekki lengi og sprakk átta mán­uðum síðar í kjöl­far þess að upp komst að faðir for­sæt­is­ráð­herr­ans hefði skrifað undir með­mæla­bréf um upp­reist æru manns sem dæmdur hafði verið til fang­els­is­vistar fyrir að níð­ast kyn­ferð­is­lega á stjúp­dóttur sinni.

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé sat á þingi fyrir Vinstri græn árin 2016-2021. Hann ætl­aði sér fram í kosn­ing­unum í fyrra en dró fram­boð sitt í for­vali flokks­ins í Reykja­vík til baka eftir að leitað var til fagráðs flokks­ins vegna óvið­eig­andi hegð­unar hans í garð kvenna.

Hvernig á að haga gjaldtöku?

Í skip­un­ar­bréfi er óskað eftir að starfs­hóp­ur­inn hugi m.a. að eft­ir­far­andi spurn­ingum og álita­efnum:

  • Hvort rétt sé að virkj­un­ar­kostir í vind­orku heyri áfram undir lög nr. 48/2011, um áætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða, eða að þeir verið und­an­skildir þeim lögum, en að settar verði sér­reglur um með­ferð slíkra virkj­un­ar­kosta.
  • Hvernig haga eigi sam­spili hag­nýt­ingar vind­orku og skipu­lags- og leyf­is­veit­ing­ar­ferli þegar í hlut eiga við­kvæm svæði eða við­kvæmir þættir, eins og áhrif á nátt­úru­far og frið­lýst svæði, fugla­líf, ferða­mennsku, grennd­ar­rétt eða önnur sjón­ar­mið.
  • Hvernig ná eigi fram þeirri áherslu í stjórn­ar­sátt­mála að vind­orku­ver bygg­ist helst upp á afmörk­uðum svæðum nærri tengi­virkjum og flutn­ings­línum.
  • Hvernig ná megi fram sem breiða­stri sátt um hag­nýt­ingu vind­orku meðal lands­manna eins og einnig er fjallað um í stjórn­ar­sátt­mála.
  • Hvort horfa eigi til þess að hið opin­bera hafi með höndum ein­hvers konar for­gangs­röðun ein­stakra virkj­un­ar­kosta, heild­ar­fjölda eða heild­ar­stærð leyfðra vind­orku­vera eða setji aðrar mögu­legar skorður við vind­orku­nýt­ingu og fyr­ir­komu­lagi vind­orku­vera.
  • Hvernig rétt sé að haga ákvörð­unar- og leyf­is­veit­ing­ar­ferli virkj­un­ar­kosta í vind­orku..
  • Hvernig best sé að haga gjald­töku vegna hag­nýt­ingar vind­orku.

„Til að ná mark­miðum okkar í lofts­lags­málum þá þurfum við að nýta vind­inn,“ er haft eftir Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, í til­kynn­ing­unni. „Það skiptir hins vegar öllu máli að ná eins breiðri sam­stöðu um þá nýt­ingu og mögu­legt er. Eins og í allri grænni orku­öflun þá verður að vera jafn­vægi á milli nátt­úru­verndar og nýt­ingar. Ég bind miklar vonir við starf þessa hóps.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár