Samgöngur á landi – undir orku- og auðlindadrifnu skattkerfi

Árni B. Helgason fjallar um veggjöld og kolefn­is­gjöld og um hin ýmsu áhrif sem orku- og auð­linda­gjöld hefðu á rekstur sam­gangna, að aflögðum tekju­sköttum og trygg­inga­gjöldum, auk hefð­bund­inna elds­neytis- og bif­reiða­gjalda.

Undir hinu gam­al­gróna, tekju­drifna skatt­kerfi hvílir meg­in­þungi álaga hins opin­bera á herðum þjóð­fé­lags­þegn­anna, að mestu leyti óháð afköstum hvers og eins – álög­urnar eru m.ö.o. lítt háðar fram­leiðni þegn­anna.

Mann­eskjan skal sem sagt sjálf fá að standa undir mest­allri vel­ferð sinni með allra­handa tekju­tengdum álögum, sköttum og trygg­inga­gjöldum, með þeim afleið­ingum að laun vega þeim mun miklu þyngra í virð­is­keðju opin­berra gjalda sem manns­höndin kemur meira við sögu – en tekjur af tækni og nátt­úr­u­notum, sem sagt allra­handa fram­leiðniskattar og umhverf­is­gjöld, að sama skapi miklu minna.

Sam­göngur eru í flestu til­liti mót­aðar af meiri fram­leiðni­væð­ingu en all­flest önnur svið þjóð­lífs og atvinnu­rekstrar, og má raunar líta á þær sem eina af grunn­stoðum vel­ferð­ar­rík­is­ins, svo miklu máli skipta þær – þrátt fyrir að sam­göngu­tæknin, út af fyrir sig, sé sára­lítið skatt­lögð, sem sagt orkan og auð­lind­irnar, hvað þá öll umhverf­is­á­hrifin, sem tækn­inni liggja til grund­vallar á flestum sviðum.

Svo létt­vægar eru álög­urnar á hina tækni­vædd­ustu frum­fram­leiðslu – svo lítt sem mann­aflsins þar nýtur – að vart gætir áhrifa þeirra á vel­ferð­ar­sjóð­ina nema í mýflugu­mynd, engu lík­ara en ríki séu til í rík­inu, herra­garðar og óðul aðals, nán­ast und­an­þegin ekki bara sköttum heldur líka skyldum, gagn­vart nátt­úru jarðar – og vel­ferð­ar­rík­inu.

[adspot]

Gildir þá einu hvort litið er til allra­handa orku­bú­skapar, náma­vinnslu eða stór­iðju, sem til sam­ans mynda alla helstu frum­þætti virð­is­auka fram­leiðn­innar – þar sem skattspors­ins gætir þó vart nema sem sagt í mýflugu­mynd – eða til allra þeirra úrvinnslu­greina sem þríf­ast á svo hræó­dýrum kaupum aðfanga af hendi þeirra nær skatt­frjálsu greina, að þeim er kleift að und­ir­bjóða sköttum þrúgað mann­aflið, nán­ast sama hvert hand­verkið er eða hug­verkið – t.d. hvort það muni borga sig með sköttum öllum og álögum að greina bilun í sam­göngu­tæki og gera við það, frekar en að kaupa enn eitt, splunku­nýtt, lítt skatt­lagt tæki, líð­andi fram lík­ast sem ljúfsár draumur af fram­leiðslu­línum léna og herra­garða orku­freks aðals­ins.

Að greiða fyrir greiða leið… samgangna einna vegna eða samfélags í heild?

Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í hag­fræði, rit­aði nýlega grein­ina „Greið(a) leið” í viku­ritið Vís­bend­ingu, sem Kjarninn miðlar ehf gefa út. Var jafn­framt fjallað um grein­ina í Kjarn­anum þ. 28. ágúst s.l. í rit­stjórn­arp­istl­inum Afleitt að inn­heimta bara veg­tolla þar sem það virð­ist lík­leg­ast til að skila ein­hverju fé þar sem m.a. er vitnað til eft­ir­far­andi orða Gylfa:

  • Sé ekki ætl­unin að nota veg­tolla til að stýra umferð er ein­fald­ast að rukka í hlut­falli við ekna vega­lengd á ári. Ýmsar útfærslur koma til greina. Ég ætla ekki að reyna að rekja þær allar hér og kosti þeirra og galla. Sú ein­faldasta er jafnt gjald á km fyrir alla. Það er nær örugg­lega ekki besta leið­in, m.a. vegna þess að bílar valda mis­mun­andi álagi á vega­kerfið eftir þyngd. Það væri hins vegar ekki flókið að raða bílum í gjald­flokka eftir þyngd. Þunga­flutn­inga­bílar myndu þá t.d. borga miklu meira fyrir hvern km en léttir fólks­bíl­ar. Gjöld á elds­neyti gætu þá verið lækkuð eitt­hvað á móti, jafn­vel fyrst og fremst orðið meng­un­ar­gjöld til að end­ur­spegla þann sam­fé­lags­lega kostnað sem fylgir bruna á elds­neyti. Það væri í raun póli­tísk ákvörðun hvernig ætti að stilla af ann­ars vegar skatt­lagn­ingu á elds­neyti og hins vegar gjöld fyrir ekinn km.

Grein Gylfa snýr öðrum þræði að hag­fræði sam­gangna, út af fyrir sig, m.a. að djúpt „sokknum“ fram­kvæmda­kostn­aði, m.ö.o. óaft­ur­kræfum, og hins vegar að því póli­tíska álita­máli hvernig haga skyldi opin­berum álögum á umferð og vegnot­endur. Þegar á allt er litið kann málið þó að vera svo miklum mun snún­ara, að ekki verði fjallað um sam­göngur, einar og sér, né þá heldur um hinar greið­ustu leiðir eða gjald­töku, nema í svo afar sam­fé­lags­legum skiln­ingi, að vel­ferð­ar­ríkið sé allt sett undir, svo miklu máli sem þær skipta, sam­göng­urnar, raunar sama nán­ast hvert ríkið er.

Svo ágæt sem grein Gylfa er, svo langt sem hún nær, og þarft inn­legg í ann­ars afar fátæk­lega og oft á tíðum býsna ein­streng­ings­lega umræðu, skal hér sem sagt gerð til­raun til að fjalla um sam­göngur í aðeins víð­tæk­ari skiln­ingi – og þó aðal­lega, rúms­ins vegna, um sam­göngur á landi, svo keim­lík reyndar sem grund­vall­ar­sjón­ar­miðin myndu vera í flestu til­liti gagn­vart flug- og sjó­sam­göngum, allra­handa flutn­ingum, far­þega og varn­ings, í lofti og á legi.

Hlýtur þá öðrum þræði að verða hugað að þeirri stóru spurn­ingu hvort sam­göngur séu fyrst og fremst til sjálfs sín vegna frekar en sam­fé­lags alls í heild…

Útúrdúr eða hjáleið að kjarna málsins…

Hvað ann­ars ein­streng­ings­lega umræðu varðar – þá alveg sér­stak­lega það útbreidda sjón­ar­mið að sam­göngur á landi séu sviknar um fé er skyldi renna til vega­mála, enda séu álögur á umferð miklu meiri en sem svari til útgjalda hins opin­bera, sbr. ekki síst þrá­látan söng Félags íslenskra bif­reiða­eig­enda, FÍB, (sjá t.d. hér) – þá er rétt að halda því til haga að virð­is­auka­skattur, vöru­gjöld og kolefn­is­gjöld, sem og raunar all­flestir skattar og gjald­stofnar hins opin­bera, heyra ein­fald­lega undir almenna, opin­bera álagn­ingu, alls óháð því hvernig útgjöldum er háttað – nema að sér­stak­lega sé áskilið með lögum að til­tekin álagn­ing sé mörkuð ákveðnum mála­flokki, t.d. vega­málum, sem heyrir þó til hreinna und­an­tekn­inga.

[adspot]

Hvernig væri ann­ars háttað rekstri hins opin­bera á hinum ýmsu sviðum, svo sem mennta- og heil­brigð­is­mála, auk almanna­trygg­inga og fleira, ef t.d. virð­is­auka­skatti af heim­il­is­tækjum væri fyrst og fremst deilt út til not­enda heim­il­is­tækja (þá e.t.v. eftir vægi tækj­anna í fram­lögðu heim­il­is­bók­haldi), vöru­gjöldum og virð­is­auka­skatti af vélsleðum með sam­svar­andi hætti til vélsleða­manna, og kolefn­is­gjöldum af stjór­iðju og sjáv­ar­út­vegi til stjór­iðju­eig­enda og útgerð­ar­manna – að þá ekki væri minnst á veiði­gjöld! – auk þess sem þau breiðu bök ættu þá mögu­lega heimt­ingu á styrk sem svar­aði til virð­is­auka­skatts­tekna hins opin­bera af þeim hluta inn­flutn­ings er jafn­gilti útflutn­ingi grein­anna… hvernig sem það ann­ars kæmi kæmi heim og saman við kröfur eig­enda eða not­enda heim­il­is­tækja og vélsleða um styrk­ina sér til handa, auk alls þess sem bif­reiða­eig­endur mögu­lega krefð­ust sér til…

Að ekki væri þá minnst á tekju­skatt­ana, sem hið opin­bera heimtir ýmist beint af marg­vís­legum rekstri eða af eig­endum rekstrar og þó ekki síst af laun­þegum, ef þeir skattar væru í flestu til­liti eyrna­merktir stuðn­ingi við hina ýmsu sam­svar­andi hópa greið­enda. Útgjalda­kök­unni væri þá sem sagt skipt á milli gjald­enda í réttu hlut­falli við skatta og gjöld nán­ast hvers og eins… hvernig sem ann­ars skipt­ingu milli atvinnu­greina eða smárra og stórra fyr­ir­tækja eða eig­enda þeirra væri nákvæm­lega háttað, hvað þá milli lág­launa­fólks og hálauna­fólks.

Í öllu falli mætti þá a.m.k. ætla að t.d. skattar af hinum tekju­hæstu væru eyrna­merktir menntun og heil­brigði þeirra hinna sömu, og þá sam­svar­andi almanna­trygg­ingum þess vel­meg­andi hluta þjóð­fé­lags­þegn­anna – sem og sam­göngum þeirra – líkt og skatt­tekjur af lág­launa­fólki hlytu þá ein­ungis að renna til sam­svar­andi sam­neyslu þess hluta þegn­anna, sama hve úr litlu væri þá að moða… sam­svar­andi og hinar ýmsu greinar rekstrar og eig­endur rekstrar fengju sinn þó býsna drjúgan skerf af kök­unni, enda sneiðar útgjald­anna þá ávallt skornar, eðli máls sam­kvæmt, í réttu hlut­falli við skatta­legt fram­lag hvers og eins til sam­fé­lags­ins – vel­ferð­ar­rík­is­ins, eða hvað skyldi þá ann­ars kalla slíkt ríki...

Hve naumt væri þá ekki orðið bilið milli vel­ferð­ar­rík­is­ins og léns­rík­is­ins, þar sem álög­urnar á almúg­ann voru að vísu alveg í öfugu hlut­falli við það er almúg­inn sjálfur upp­skar, en þeim mun ríku­legri var vissu­lega vel­ferð þeirra er réðu yfir löndum og lénum, búfén­aði flestum og þeim fábrotnu fram­leiðslu­tækjum sem völ var á, slík sem var þá upp­hefð léns­herr­anna, aðals­ins og allrar hirð­ar­innar – sama hvort varð­aði menntun, heil­brigð­is­mál, almennar trygg­ingar eða sam­göngur… og hvort þá ekki laga­nám!

Greiðasta leiðin – gegn skrifræði, hjáfræði, gegn allri lagafroðunni, allri steypunni, gegn öllum hinum jafnvel torráðnasta kansellístíl…

Áður en lengra er haldið skal hér dregin upp mynd, í allra gróf­ustu dráttum, af mögu­legri gjald­töku af vega­sam­göngum í nán­ustu fram­tíð – að teknu til­liti til marg­vís­legs ábata – að því gefnu að orka og auð­lindir, eða almennt talað öll hag­nýt nátt­úr­u­not, mynd­uðu meg­in­stofna álaga hins opin­bera ásamt altækum en til­tölu­lega lágum virð­is­auka­skatti, þá að aflögðum álögum öllum á tekjur laun­þega og atvinnu­rek­enda. Sem sagt að upp­rættum lögum um tekju­skatt – að upp­rættri allri þeirri yfir­gegni­legu laga­froðu sem nú hamlar nán­ast öllum hand­ar­verkum og hug­verkum manna, þá eðli­lega eigi að und­an­skildum hjálögum allrar steypunnar, trygg­inga­gjöld­unum, svo sem nánar mun verða vikið að. Það er svo aftur allt annar hand­leggur og spurn­ing um allt ann­ars konar lög, hvernig taka skuli á stríðs­gróða jafnt sem hverri annarri and­sam­fé­lags­legri auðgun manna.

Gert er ráð fyrir að allir þeir núver­andi tekju­stofnar hins opin­bera sem beint eða óbeint eru mark­aðir vega­málum – svo sem bif­reiða­gjöld, bens­ín­gjald, olíu­gjald og núv. kíló­metra­gjald – yrðu aflagðir, en á móti kæmu hrein veggjöld, er tækju ann­ars vegar mið af skráðri heild­ar­þyngd öku­tækja og hins vegar mið af hlut­falls­legu umfangi þeirra og álagi á umferð miðað við þyngd (sem er almennt því minna pr. tonn sem öku­tæki eru þyngri, ekki síst að teknu til­liti til lengdar, og þá einnig breiddar).

Hér er því miðað við umreikn­aða þyngd, „Gjald­þyngd“, sem felur í sér vægi beggja þátt­anna, þyngdar og umfangs, svo sem nánar verður útskýrt, og þá einnig meg­in­reikn­ings­stuð­ull­inn, veg­gjald pr. tonn-km. Óháð veggjöldum, sem slíkum, væru kolefn­is­gjöld inn­heimt í hlut­falli við losun CO2-ígilda af völdum vega­sam­gangna, er einnig verður nánar um fjallað.

Hvað varðar lið­inn „Rekstr­ar­á­bati sam­gangna v. afnáms tekju­skatta“ þá er hér til ein­föld­unar ein­ungis litið til tekju­skatts­spors bíl­stjóra sem hafa meg­in­tekjur sínar af akstri (í einni eða annarri mynd) – svo sem nánar verður að vikið. En að með­töldum ábata vegna afnáms tekju­skatta t.d. bif­véla­virkja og bif­reiða­sölu­manna og afnáms tekju­skatta af hagn­aði rekstr­ar­að­ila hinna marg­vís­legu bíl­greina – sem skyldi tví­mæla­laust leiða til lægri álagn­ingar á flestum sviðum og lægri vergrar ávöxt­un­ar­kröfu eig­in­fjár – þá myndi ábat­inn í heild e.t.v. nema eitt­hvað á fimmta tug millj­arða króna en ekki ein­ungis þeim u.þ.b. 34 millj­örðum króna sem hér eru bók­færðir. Gildir þá raunar hið sama um rekstr­ar­á­batann vegna lækk­unar virð­is­auka­skatts (sbr. „Rekstr­ar­á­bati vegna lækk­unar VSK um 11% – úr 24% í 13%“), að myndi vera snöggtum meiri en þeir u.þ.b. 6 millj­arðar króna sem hér er gert ráð fyrir, svo sem nánar verður vikið að.

Heild­ar­á­bat­inn næmi því ekki ein­ungis þeim u.þ.b. 40 millj­örðum króna sem taldir eru fram í töfl­unni (sbr. rauð­litað), er lúta að vægi launa­kostn­aðar öku­manna fyrst og fremst, heldur öllu nær 50 millj­örðum króna, eða að lík­indum eitt­hvað á sjötta tug millj­arða, ef allt það er varðar útgerð atvinnu­öku­tækja væri með talið. Er þá ótal­inn sam­svar­andi ábati almennra bif­reiða­eig­enda af lækkun við­halds­kostn­aðar, og þar með ábat­inn af lækkun trygg­inga­ið­gjalda, auk þess sem t.d. lækkun á gjald­skrám bíla­leiga, stræt­is­vagna, leigu­bíla og sendi­bíla myndi ekki síður telja, að sínu leyti, svo drjúgt sem launa­kostn­aður, og þar með tekju­skatts­sporið, nú vegur á meðal þeirra greina.

[adspot]

Aug­ljós­lega myndu veggjöld og kolefn­is­gjöld auka útgjöld alls rekst­urs sam­gangna, en á móti myndi ábat­inn er leiddi af afnámi tekju­skatta og lækk­unar virð­is­auka­skatts draga úr útgjöldum ekk­ert síður – að því gefnu að heil­brigð sam­keppni ríki… Að öðrum kosti hlyti að koma til kasta sam­keppn­is­yf­ir­valda – ekk­ert síður en gagn­vart hverjum öðrum stríðs­gróða, séu yfir­völd starfi sínu vaxin – hvort sem t.d. olíu­fé­lög skirrð­ust við að lækka bensín- og olíu­verð í kjöl­far afnáms núv. bensín- og olíu­gjalda, en ein­ungis hækk­uðu verð í takti við aukin kolefn­is­gjöld, ellegar bíla­verk­stæði eða trygg­inga­fé­lög, að héldu sig áfram við gömlu, him­in­háu gjald­skrárnar, lík­ast því sem ekk­ert hefði í skorist…

Hvort verka­lýðs­hreyf­ingin hlyti þá ekki jafn­framt að láta til sín taka, sama hvort varð­aði álagn­ingu olíu­fé­laga eða útselda vinnu bif­véla­virkja sem ann­arra, í kjöl­far afnáms tekju­skatta og trygg­inga­gjalda, ef sú yrði raunin að allar þær gjör­breyttu for­sendur rekstrar, ásamt lækkun virð­is­auka­skatts á flestum sviðum, skil­uðu sér hvorki í lægra verði fram­leiðslu og þjón­ustu né á annan hátt í bættum kjörum laun­þega, og þá raunar alls þorra almenn­ings, sem á end­anum greiðir þó fyrir allan sam­göngu­rekst­ur­inn með kaupum sínum á marg­vís­legri vöru og þjón­ustu – eða hvert annað ætti ann­ars að senda reikn­ing­inn?

Og enn, áður en lengra er haldið, skal aðeins hugað að heild­ar­mynd­inni, að því vægi sem veggjöld myndu hafa í öllu hinu stóra sam­hengi þjóð­fé­lags­rekstr­ar­ins undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi, þar sem altækur virð­is­auka­skattur myndi vissu­lega vega lang­þyngst – og þó litlu þyngra en hann gerir nú í öllum sínum afar tor­ráðna kans­ellístíl – ásamt orku­gjaldi, er á sinn hátt væri jafn­framt altækt gagn­vart allri orku­notkun og nýt­ingu, líkt og reyndar kolefn­is­gjöld, veiði­rétt­ar­gjöld og hin ýmsu umhverf­is­gjöld myndu jafn­framt vera, hver og ein gjöldin á sinn hátt… (Sjá nánar hinar ýmsu greinar höf­undar í Kjarn­anum um Herra­garð­inn – t.d. hvort líta beri á garð­inn sem óðal aðals eða orkubú jarð­ar­búa eða ein­fald­lega sem orkubú jarð­ar­búa...)

Núgild­andi lög um tekju­skatt, lög um trygg­inga­gjald og lög um virð­is­auka­skatt – sem öll myndu verða afnumin – telja til sam­ans um 80 þús­und orð, sem svarar um það bil til þriggja fyrstu laga­bóka Móses, af alls fimm bókum þess laga­safn­ins, eða til um 4/5 hluta allrar Njálu, sem telur um 100 þús­und orð. Ný lög um 13% altækan virð­is­auka­skatt (er jafn­gildir um 11,5% af heild­ar­virði vergrar lands­fram­leiðslu) myndu á hinn bóg­inn hæg­lega rúm­ast á einni blað­síðu, eða e.t.v. á tveimur síðum að með­töldum skýr­inga­greinum með laga­frum­varpi, svo altækur sem skatt­ur­inn myndi vera. Sem sagt alls án hinna minnstu und­an­þága eða sér­á­kvæða, sama hvort aðall nokkur eða und­ir­dánugir ættu í hlut…

Gildir raunar einu hver útgjöld kunna ann­ars að vera – hvort sem það séu útgjöld hins opin­bera eða hvers sem væri, sama hve mikil þau séu eða lítil – því skyldu þau ekki ein­fald­lega, og ein­göngu, reikn­ast sín megin í tví­hliða bók­hald­inu? Eða hve oft skyldi Luca Pacioli ann­ars þurfa að snúa sér við í gröf sinni áður en hinir lög­gilt­ustu end­ur­skoð­endur, hinir hálærð­ustu lög­spek­ingar og þar með hinir háæru­verð­ug­ustu þing­menn þjóða fatta það? – Að tvær hliðar geta aldrei verið ein og hin sama – nema þá fyrir svo ofur skipu­lagt kaos að glund­roð­inn einn blasi við.

Hafa ber í huga að undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi dregur veru­lega úr þeim ofur­sköttum sem hið opin­bera leggur ann­ars á sjálft sig undir hefð­bundnu, tekju­drifnu kerfi. Marg­feld­is­á­hrif alls þess furðu­lega spuna, þar sem drýgsti hluti lands­fram­leiðsl­unnar hring­sólar lát­laust úr einum vasa hins opin­bera yfir í annan (sem sagt álögur hins opin­bera á sitt eigið skinn, sjálfu sér til fram­færslu!) myndu dvína svo mjög, að bók­fært virði lands­fram­leiðsl­unnar myndi drag­ast saman um a.m.k. fjórð­ung – frá því að vera um 3.000 millj­arðar króna í um það bil 2.250 millj­arða, án þess þó að raun­virði fram­leiðslu og þjón­ustu hefði að nokkru leyti verið skert, hvað þá heldur þjón­usta hins opin­bera…

Tekju­skatt­arnir sem hið opin­ber nú leggur á sjálft sig, ásamt trygg­inga­gjöldum, myndu raunar þurrkast út í heild sinni og allur beinn og óbeinn launa­kostn­aður þess lækka sem því næmi – líkt og raunar myndi ger­ast á öllum sviðum þjóð­fé­lags­rekstrar – að alls óbreyttum heild­ar­kaup­mætti gold­inna launa. Skyldi þá jafn­framt hafa hug­fast, að á móti hinum ýmsu orku- og nátt­úr­u­nýt­ing­ar­gjöldum myndi góður þriðj­ungur kostn­aðar af launum og þjón­ustu­kaupum falla niður, sem næmi e.t.v. um 50 millj­arða króna ábata t.d. sjáv­ar­út­vegs og stór­iðju á Íslandi, þ.e.a.s sem svar­aði til afnáms allra tekju­skatta og trygg­inga­gjalda í skattspori þeirra orku- og nátt­úru­freku atvinnu­greina.

Að marka svo leiðina mílusteinum, að veggjöldin séu sem flestum ljós – ekkert síður en afnám álaga á tekjur…

Veggjöld undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi myndu vera einn af meg­in­tekju­stofnum hins opin­bera, í sjálfu sér óháð útgjöldum til vega­mála, enda skyldi fremur líta svo á alla hina helstu gjalda- og skatt­stofna hins opin­bera að þeir til sam­ans mynd­uðu einn bálk, heild­ar­sjóð, sem síðan væri væri deilt niður á hina marg­vís­legu mála­flokka, í þeim hlut­föllum milli ríkis og sveit­ar­fé­laga sem fjár­veit­inga­valdið tæki ákvörðun um (á sinn hátt líkt og núver­andi útsvar til sveit­ar­fé­laga er leitt af ákveðnu – lög­boðnu – hlut­falli af þeim tekju­sköttum sem ríkið inn­heimtir).

Veggjöld þau sem hér um ræðir eru því engan veg­inn mörkuð ákveðnum mála­flokki – a.m.k. ekki endi­lega – en eru engu að síður mynduð með þeim hætti að gjald­heimtan end­ur­spegli sem næst það hlut­falls­lega vægi og þau hlut­falls­legu áhrif sem hinar ýmsu gerðir eða flokkar öku­tækja hafa í vega­sam­göngum – þá ann­ars vegar hvað varðar það álag sem leitt er af þunga og hins vegar það álag sem leitt er af umfangi og fyr­ir­ferð.

[adspot]

Hér er því valin sú leið að miða við Gjald­þyngd, sem er ann­ars vegar leidd af skráðri heild­ar­þyngd öku­tækja og hins vegar af öfugu veldi heild­ar­þyngd­ar­innar, m.ö.o. kvaðrat­rót þyngd­ar­innar. En kvaðratrótin felur í sér ákveðna nálgun við umfangið, þótt gróf sé, sem sjá má t.d. af því að 25 tonna vöru­bíll tekur vart nema u.þ.b. 5-falt meira rúm á vegi en 1 tonns þungur bíll (að teknu til­liti til breiddar og lengdar og stöðv­un­ar­vega­lengdar); eða t.d. 49 tonna bíll að með­töldum tengi­vagni, sem tekur vart meira en 7-falt rúm á við 1 tonns bíll­inn (en ekki 49-falt).

Séu þessir tveir meg­in­þættir (heild­ar­þyngd = t; og hins vegar umfang = kvaðratrótin af t = √t) lagðir saman að jöfnu og deilt með tveimur – (t+√t)/2 – fæst nið­ur­staðan Gjald­þyngd, sem flestum mætti þá vera nokkuð ljóst, a.m.k. að loknu skyldu­námi í grunn­skóla, hvað lagt væri til grund­vallar – og væri þá jafn­framt full­nægt því ann­ars almennt þver­brotna skil­yrði rétt­ar­rík­is­ins, að lög, og þ.m.t. lög­bundin gjöld, séu borg­ur­unum skýr, skilj­an­leg og byggð á almennum reglum...

M.ö.o. þeim mun meiri sem heimil heild­ar­þyngd er, sam­kvæmt skrán­ing­ar­vott­orði öku­tækis, þeim mun almennt minna er umfang hverrar þyngd­ar­ein­ingar á vegi. Væri raunar sjálf­gefið, að reglan – hálf heimil heild­ar­þyngd að við­bættri hálfri kvaðrat­rót heim­illar heild­ar­þyngdar – væri skráð í vott­orð sér­hvers öku­tækis með nið­ur­stöð­unni hver væri gjald­þyngd þess…

Með þessu móti er reynt að nálg­ast tvö nokkuð gagn­stæð sjón­ar­mið – þ.e.a.s. hve drjúgt vegur þyngd­ar­á­lagið og hins vegar umfangið og fyr­ir­ferðin… Eða hve betur værum við stödd ef ásþungi („öxul­þungi“) væri settur að hámarki sem næst 2 tonn? Sem sagt til að verja vegi fyrir þunga­á­lagi. Vissu­lega myndi drýgsti hluti öku­tækja rúm­ast innan þeirra marka – að til­tölu – en hve margir þyrftu þá ekki stræt­is­vagn­arnir að vera, hóp­ferða­bif­reið­arnar, vöru- og mal­ar­flutn­inga­bíl­arnir, svo fá að til­tölu sem þau öku­tæki ann­ars eru nú (e.t.v. um 5% allrar heildar en leggj­andi þó að baki um 40 til 50% af sam­an­lögðum tonn-kíló­metrum alls akst­urs öku­tækja…), ef u.þ.b. 4ra tonna heild­ar­þungi væri hið almenna við­mið hámarks­þunga – svona á við sæmi­legan pikkupp eða rúm­gott rúg­brauð? Þá að vísu með þeim mögu­leika að marg­sam­settir lið­vagnar gætu verið bornir uppi af tíu til tutt­ugu eða guð veit hve mörgum öxlum…?

Hve lið­ugt gengi umferðin þá fyrir sig á mestu álags­tímum, t.d. á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þegar öku­tækjum í heild hefði fjölgað e.t.v. um 80 til 90%? Eða vetr­ar­um­ferðin í hinum snjó­þyngri hlutum lands­byggð­ar­innar – hve lið­ugt gengi hún þegar urm­ull smá­flutn­inga­bíla og lið­orma væri snigland­ist yfir heiðar?

Hér er lagt til grund­vallar að veg­gjald væri til jafn­aðar um 6,3 krónur á tonn-km (breyti­legt eftir umferð­ar­á­lagi, svo sem sem nánar verður vikið að). Gjaldið fyrir hverja ferð væri háð gjald­þyngd öku­tækis og ekinni vega­lengd. 100 km ferð 2ja tonna bíls að skráðri heim­illi heild­ar­þyngd (t.d. ýmsar teg./árg. Golf, Corolla, Octavia), sem svar­aði til 1,7 tonna gjald­þyngdar, myndi þá svara til 100 km x 1,7 tonn x 6,3 kr/tonn-km = 1.071 kr; sem næst 11 kr/km. Sam­svar­andi ferð smá­bíls að leyfðri heild­ar­þyngd 0,84 tonn (t.d. Fiat 500 árg. ´72), sem jafn­gilti reyndar u.þ.b. 0.9 tonna gjald­þyngd, myndi svara til 100 km x 0,9 tonn x 6,3 kr/tonn-km = 567 kr; sem næst 6 kr/km. Ætti hins vegar 26 tonna vöru­bíll í hlut, væri gjald­þyngdin 15,5 tonn (alls óháð því hvort bíll­inn væri tómur, veg­andi e.t.v. 11 til 12 tonn, eða full­hlað­inn, veg­andi 26 tonn) og myndu veggjöldin því nema 100 km x 15,5 tonn x 6.3 kr/tonn-km = 9.765 kr; sem næst 98 kr/km.

Hvað síð­asta dæmið varðar, 26 tonna vöru­bíl­inn, ber að hafa í huga að um ræðir atvinnu­bif­reið sem væri áreið­an­lega stýrt af bíl­stjóra á fullum launum. Undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi myndi launa­kostn­aður bíl­stjór­ans minnka um allt að þriðj­ung, gróft á litið, að afléttum tekju­skatti og trygg­inga­gjöldum, að alls órösk­uðum greiddum launum og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslum, m.ö.o. að óbreyttum kaup­mætti launa. Að teknu til­liti til lækk­unar virð­is­auka­skatts jafn­framt, úr 24%, á flestum sviðum, í altækan 13% skatt, myndi heild­ar­á­bat­inn vegna afnáms og lækk­unar skatta e.t.v. nema um 250 til 350 þús. kr. á mán­uði, sem svara myndi til um 3ja til 4ra millj­óna króna á ári.

Veggjald af 26 tonna vöru­bif­reið, sem ekið væri 25 til 50 þús. km á ári, myndi sem sagt nema um 2,5 til 5 millj­ónum króna á ári (um 100 kr/km), reyndar auk kolefn­is­gjalda og almennra orku­gjalda, svo sem nánar mun verða rakið – en á móti kæmi rekstr­ar­á­bati af völdum afnáms tekju­skatta bíl­stjóra og lækk­unar virð­is­auka­skatts af rekstri er næmi til sam­ans um 3,5 til 5 millj­ónum króna á ári… Þá að ótöldum sam­svar­andi rekstr­ar­á­bata vegna afnáms tekju­skatta af stjórn­un­ar­kostn­aði og hagn­aði, auk ábata vegna lækk­unar virð­is­auka­skatts af þeim sömu liðum um hart­nær helm­ing, sam­svar­andi og ætti einnig við um vinnu bif­véla­virkja og bif­reiða­sölu­manna, eða almennt talað um bíl­grein­arnar allar í heild, líkt og ætti raunar við um allar atvinnu­greinar, að launa­kostn­aður myndi skreppa saman og þá einnig verg ávöxt­un­ar­krafa eig­in­fjár (en hrein krafa jafn­gildir vergri kröfu mínus skattar), sem og virð­is­auka­skattur á flestum sviðum.

Það er því vissu­lega ekki alveg allt sem sýn­ist þegar litið er til veggjalda undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi. Rekstr­ar­að­ilar væru þó ekki lengi að finna til þess á sínu eigin skinni, hve marg­vís­legum álögum væri jafn­framt aflétt – og neyt­endur þá ekki síður með kaupum sínum á vöru og þjón­ustu, að með­töldum flutn­ings­kostn­aði, hve verð hefði lækkað á mörgum sviðum. Enda myndi hækk­ana fyrst og fremst gæta þar sem launa­kostn­aður vegur einna minnst, og þá sér í lagi á hinum orku­frek­ustu sviðum, eins og gefur að skilja.

Hvernig sem útfærslu gjald­tök­unnar væri ann­ars háttað á fyrstu stigum má það heita sjálf­gefið til fram­tíðar litið að GPS-veg­mælir væri bund­inn sér­hverju öku­tæki, með dulkóð­uðu firð­sam­bandi við inn­heimtu­að­ila, með sam­svar­andi upp­lýs­inga­leynd og almennt gildir um sím­kerfi. Inn­heimta væri þá jafn­framt með líku móti, mán­að­ar­leg reikn­ings­færsla ásamt yfir­liti yfir akstur; og gefur auga­leið að tengja mætti gjald­töku fyrir bíla­stæði við inn­heimtu­kerfið.

Miðað við jafn­að­ar­gjaldið 6,3 krónur fyrir hvern ekinn tonn-km, má gera ráð fyrir að það væri breyti­legt e.t.v. á bil­inu 4 til 8 krónur, allt eftir umferð­ar­á­lagi og einnig afslátt­ar­kjörum, t.d. gagn­vart þunga­flutn­ingum þegar almennrar umferðar gætir minnst, kvöld og nætur og á róleg­ustu tímum dags. Gjaldið væri almennt hæst á mestu anna­tímum, eðli máls sam­kvæmt, en þá þeim mun lægra á öðrum tímum – allt eftir aug­lýstum gjald­skrám veg­hald­ara.

[adspot]

Mögulega væri gjald­takan bundin við hin ýmsu mis­mun­andi gjald­svæði, fremur en ein­stakar leiðir, sér í lagi í þétt­býli, til höml­unar fram­hjá­haldsakstri t.d. gegnum íbúða­hverfi. Höf­uð­borg­ar­svæðið kynni þá að vera flokkað sem eitt svæði frekar en fleiri, og hinum ýmsu lands­hlutum og byggðum væri á sam­svar­andi máta deilt niður í svæði frekar en leiðir, allt eftir innri sam­fellu þeirra hvers og eins. Sama gjald lægi þá til grund­vallar land­inu öllu en mis­mun­andi álög eða afslættir tækju til ein­stakra svæða, með til­liti til umferðar innan hvers og eins, á hinum ýmsu tímum sól­ar­hrings, að hafðri hlið­sjón af árs­tíða­bundnu álagi o.fl.

Svo rök­rétt sem það er að líta fremur til ein­stakra svæða en ein­stakra leiða, þá sér í lagi í þétt­býli, á það þó ekki síður við leiðir í heild, út af fyrir sig, að rök­rétt er að líta á þær sem sam­fellur fremur en ein­hvers konar búta­saum sem settur sé saman úr mis­jafn­lega dýrum mann­virkjum – vegum, ræsum, brúm, göngum, og þá einnig bryggjum og ferjum… Eða svo dæmi sé tekið, til hvers að gera dýr en þjóð­hags­lega hag­kvæm göng, hvað þá til langrar fram­tíðar litið, ef mark­miðið er að fæla veg­far­endur frá þeim með sér­stökum ganga­tolli, jafn­vel til þess eins að þeir slíti mun lengri og síður álags­þolnum hjá­leiðum? Í stað þess sem sagt að leggja sama veg­gjald á ein­stök svæði eða leiðir í heild… Eða með orðum Gylfa Magn­ús­sonar, sbr til­vitn­aða grein, „Greið(a) leið”, hér í upp­hafi:

  • Kostn­aður sam­fé­lags­ins af því að umferð fari um ný og fín jarð­göng er ekk­ert afskap­lega mik­ill. Ekkert meiri en af því að sama umferð aki hefð­bundna þjóð­vegi. Stofn­kostn­að­ur­inn er vissu­lega miklu meiri en hann er þegar fall­inn til og verður ekki end­ur­heimtur. Hann er það sem kall­ast á máli hag­fræð­innar sokk­inn kostn­aður. Það er vel þekkt nið­ur­staða úr fræð­unum að sokk­inn kostn­aður á ekki að skipta máli fyrir ákvarð­anir um fram­tíð­ar­til­högun mála. Það á líka við um verð­lagn­ingu á akstri um þjóð­vega­kerfið. Kostn­aður for­tíð­ar­innar á ekki að ráða gjald­töku. – M.a. þess vegna er engin sér­stök ástæða til að hafa veggjöld í Vaðla­heið­ar­göngum. Ef það þarf að afla fjár til að standa undir slíkum fram­kvæmdum – sem auð­vitað þarf með ein­hverjum hætti – þá er allt eins skyn­sam­legt að leggja álög­urnar á ann­ars staðar.

Kolefnisgjöld: Ein leiðanna að markmiðum Sameinuðu þjóðanna

Fyrir tæpum tveimur árum birti António Guterres, aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna, grein í Stund­inni – Kolefn­is­jafn­vægi fyrir 2050: Brýnasta erindi heims­ins – þar sem hann tekur m.a. svo til orða:

  • Það er kom­inn tími til að verð­leggja kolefni. Binda verður enda á nið­ur­greiðslur jarð­efna­elds­neytis. Stöðva verður bygg­ingu nýrra kola­orku­vera. Færa verður skatt­byrð­ina frá tekjum yfir á kolefni, frá skatt­greið­endum til þeirra sem menga.

Færa verður sem sagt skatt­byrð­ina frá tekjum yfir á kolefni, er mat aðal­rit­ar­ans, frá öllum fjöld­anum skatt­greið­enda yfir á herðar þeirra sem stuðla að og valda hinni eig­in­legu mengun og spill­ingu nátt­úr­unnar, sem og þá ekki síður að ákvarð­anir í efna­hags- og fjár­málum skyldu fela í sér mark­mið um kolefn­is­jafn­vægi – sem sagt raun­veru­leg mark­mið, er feli í sér lofts­lags­leg reikn­ings­skil – svo sem nánar má lesa um í grein­inni. Sem og ekki síður í grein­ar­stúf­inum Herra­garð­ur­inn – orkan og almúg­inn, þar sem höf­undur kryfur til mergjar hinar ýmsu fleiri létt­bær­ustu byrðar orku­freks aðals­ins, svo ofur­hlaðnar skatt­fríð­indum sem þær eru, for­rétt­inda­stétt­irnar.

Undir orku- og auð­linda­drifnu skatt­kerfi má gera ráð fyrir að heild­ar­gjöld vegna kolefn­islos­unar myndu nema alls um 60 millj­örðum króna (sbr. töfl­una hér framar í grein yfir helstu bók­halds­lyklana) og að vega­sam­göngur myndu bera hart­nær fimmt­ung kolefn­is­gjald­anna, u.þ.b. 11 til 12 millj­arða króna, þá nokkurn veg­inn eftir hlut­deild vega­sam­gangna í allri heild­ar­losun CO2-ígilda á Íslandi (þá reyndar að und­an­skil­inni losun vegna land­notk­unar, auk þess sem alþjóða­flug og alþjóða­sigl­ingar skyldu raunar jafn­framt telja, sá sér kap­ít­uli sem fellur þó utan þessa máls að sinni).

Í hinu stóra sam­hengi orku- og auð­linda­drif­ins skatt­kerfis má raunar líta á kolefn­is­gjöld sem bráða­birgða­gjöld sem yrðu felld alveg niður þá er – eða ef – lofts­lags­mark­mið­unum verður náð. Gjald­stofn­inn yrði þá að vænta má smám saman aðlag­aður hinum almennarri orku­gjöldum eftir því sem hið ýtrasta lofts­lags­mark­mið, algjört kolefn­is­hlut­leysi, væri skemmra undan.

Hafa ber í huga að þessi hálof­legu mark­mið, sem flest ríki hafa sam­ein­ast um – að vísu aðal­lega í orði kveðnu – lúta fyrst og fremst að einum þætti nátt­úru­verndar, sem vissu­lega er eigi veiga­lít­ill. Slíkar eru veð­ur­fars­legar breyt­ing­arnar sem vofa yfir jörð­inni, og sann­ar­lega ekki af jákvæðri rót – nema þá gagn­vart þeim sjálf­skip­aða aðli sem hyggst fleyta rjómann af orku­um­skipt­unum, alls burt­séð frá hinum nei­kvæð­ustu áhrifum sem umskiptin kunna að hafa á fjöl­marga þætti nátt­úr­unnar – og nátt­úru­verndar – og lífs alls á jörð.

[adspot]

En jafn­vel þó að ofgnótt gróð­ur­húsa­loft­teg­unda gætti hvergi þá breytti það engu um hin eig­in­legu mark­mið orku- og auð­linda­drif­ins skatt­kerfis (nema að kolefn­is­gjöld væru þá sem sagt engin), enda er ofgnóttin ekki orsök þeirrar stór­kost­legu nátt­úru­spill­ingar sem leitt hefur af iðn­bylt­ing­unni um alla jörð – nú þegar – heldur þvert á móti ein­ungis enn ein birt­ing­ar­mynd þess, hve hinum verk­tækni­lega manni hefur sést illa fyrir um afleið­ingar gjörða sinna, svo æ vél­rænni sem nútíma­mað­ur­inn hefur orðið í flestri hugsun, vart sjá­andi fram fyrir tær sér, fyrir tann­hjóla- og hug­bún­að­ar­flækjum, frekar en að vel­ferð­ar­ríkið sjái sér orðið far­borða nema fyrir álögur á álögur ofan – á sjálft sig!

Sann­ar­lega er þó ekki við James Watt að sakast – vart frekar en fjöld­ann allan braut­ryðj­enda tækni­legrar hugs­unar, allt frá Arkímedesi til Newtons og Ein­steins, hvort heldur talið væri frá Henry Ford eða til Steve Jobs – heldur við heim­spek­inga háskól­anna jafn­vel ekki síst, að hafa látið undir höfuð leggj­ast, mest­allt hið mikla iðn­bylt­ing­ar­skeið, að fást við nútíma sinn, og þá í ljósi fram­tíð­ar­innar ekki síst en ekki forn­eskj­unnar aðal­lega einnar, lík­ast því sem Arkímedes hefði markað upp­haf og endi allrar tækni­legrar hugs­unar, sem það væri nán­ast sjálf­gefið að hinn verk­tækni­legi maður, homo faber, hlyti hvort eð er að daga uppi sem homo CO2.

Heim­spek­inni má þó vera vor­kunn, slíkt áfall sem við­skiln­að­ur­inn við sína kæru frænku, guð­fræð­ina, hefur verið henni, á þessu mikla umbrota­skeiði síð­hallandi sögu mann­kyns, þá er upp­hafn­ing orku­að­als­ins hefur aldrei verið meiri, né upp­haf hugs­un­ar­innar umdeild­ara.

Má í öllu falli nokkuð ljóst vera, hvað sem líður ofgnótt gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og allri þeirri miklu ógn er vofir yfir jarð­ar­búum, að orku- og auð­linda­drifið skatt­kerfi myndi hvetja til slíks orku­sparn­aðar á öllum stigum – og þá ekki síður til svo stór­bættrar umhverf­is­verndar og miklu betri nýt­ingar auð­linda jarðar en nú er raunin – að bætt land­notkun og nýt­ing allrar tækni og afurða tækn­innar, mat­væla jafnt sem bif­reiða og allra­handa hluta og tækja, myndi skila þjóð­ar­bú­unum raun­veru­legum arði er væri á við eins til tveggja ára heims­fram­leiðslu á hverjum ára­tug, afar vægt ályktað út frá afar frum­stæðum reikn­ings­skila­reglum alþjóða­sam­fé­lags­ins.

Hjólið – í hinu stóra samhengi orku- og auðlindadrifins skattkerfis

Þegar allt kemur til alls snýst nán­ast allur rekstur um afskriftir og aftur afskriftir – og þar af leið­andi, sé grannt skoðað, um vexti og aftur vexti. Enda væri vart nein þörf fjár­magns ef end­ing hlut­anna, sem og þá nýt­ing rekstr­ar­orkunnar, væri sem næst algjör, nema þá e.t.v. lít­ils­háttar þörf til uppi­halds vinnu­afli við mat­væla­fram­leiðslu, svo fremi að mat­vinnslu­vél­arnar væru ekki svo alsjálf­virkar sem þær væru eilífar, t.d. róbótar þeir er gegna kynnu stöðu fjár­hirða eða ann­ast myndu lestur vín­berja af trjám.

Á hinn bóg­inn, þeim mun skemur sem hlut­irnir end­ast og orkan er for­gengi­legri þá eru afskrift­irnar hrað­ari og fjár­þörfin þar af leið­andi meiri og vaxtakrafan hærri – slík sem þá er eft­ir­spurnin eftir auð­magni til fram­leiðslu orku og allra­handa nýrra hluta.

Þeim mun síður sem sagt sem heimskringl­unni verður jafnað við himna­ríki á jörð, mega menn búa við brauð­strit öllu meira en ella væri, og þá þeim mun þrá­lát­ari afskriftir orkunnar jafnt sem allra hluta, og þá þó nú væri, allra nátt­úr­u­nytja.

[adspot]

Spurn­ingin snýst því um hvort mögu­leiki sé á ein­hvers konar milli­vegi – milli fjár­aust­urs og sóunar ann­ars vegar og himneskrar nýt­ingar auð­magns­ins hins vegar. Og þar sem sóun fjár snýst yfir­leitt um sóun mann­afls, orku og ann­ars nátt­úru­auðs – með öðrum orðum um lélega nýtni krafta manns­ins eða almennt talað um slæma fram­leiðni, sem sagt um lélega nýt­ingu manns­ins á allri nátt­úru og þar með auði jarðar – þá snýr spurn­ingin raunar að því hvort ekki megi nýta krafta manns og nátt­úru á þann veg að sem minnst fari til spillis, án þess þó að svo mik­ils væri misst í himneskri vel­sæld­inni…

Með afnámi skatta á tekjur sam­hliða upp­töku orku- og auð­linda­gjalda væri í senn stuðlað að orku­nýtni og var­an­leika hlut­anna – sem sagt að jákvæðri fram­leiðni. Sama hjólið fengi m.ö.o. snú­ist lengur og með mun minni til­kostn­aði en ella, svo miklum mun minna sem það kostar þá að halda því við, sem sagt að við­halda snún­ingi þess, að tekju­sköttum afléttum – sam­an­borið við að farga hjól­inu og kaupa nýtt, að álögðum orku- og auð­linda­gjöldum. Hjólið er þá afskrifað á þeim mun lengri nýt­ing­ar­tíma sem krafan um fé til nýsmíði þess verður van­mátt­ugri. Svo æ veik­ari sem vaxtakrafa fjár­magns­eig­enda þá verður, með þverr­andi eft­ir­spurn eftir nýju...

Hvers virði eru ann­ars öku­tæki sem krefj­ast myndu end­ur­nýj­unar átta sinnum á öld, sam­an­borið við öku­tæki, sem svo vel væri við haldið, að þau gengju almennt ekki í end­ur­nýjun líf­dag­anna nema e.t.v. fjórum sinnum á öld – sem sagt til jafn­aðar á ald­ar­fjórð­ungs fresti? Eða jafn­vel ein­ungis á ald­ar­þriðj­ungs fresti, líkt og reyndar á við um hin örugg­ustu flug­för…

Hvers virði er ann­ars hag­fræði sam­fé­lags sem setur sér slík mark­mið um nið­ur­rif, raunar mark­mið um slíka spill­ingu fjár­muna, orku og auð­linda – sbr. drög að Umferð­ar­ör­ygg­is­á­ætlun 2023-2027 – að með­al­aldur fólks­bif­reiða í umferð verði ekki meiri en 8 ár? Væri kannski ráð að leggja slíka ofur­skatta á bif­véla­virkjun að atvinnu­greinin fái helst ekki þrif­ist, þá þó nú væri nema á hinum svartasta mark­aði – að mögu­lega mætti þá lækka með­al­aldur fólks­bif­reiða jafn­vel niður í 4 til 5 ár?

Hvernig sem sú hag­fræði ann­ars sam­rýmd­ist hinu enn hálof­legra mark­miði, að hlut­fall öku­tækja yfir 7,5 tonn að þyngd sem stand­ast bif­reiða­skoðun verði 75%. Mjög lík­lega ætti þó að nást a.m.k. 50% árangur með u.þ.b. 75% skatti, er legð­ist t.d. á heild­ar­reikn­ing bíla­við­gerða, þó að þeim mun meiri væri vissu­lega ávinn­ing­ur­inn ef algjört bann væri lagt við bif­véla­virkjun (jafn­vel flug­virkjun líka?), þá jafn­vel að eigi meira en þriðj­ungur, jafn­vel ein­ungis fjórð­ungur, a.m.k. hinna þyngri öku­tækja, þ.á.m. hóp­ferða­bif­reiða, stæð­ist skoðun…

Hve stór­kost­lega væri ekki ann­ars vegið að bif­reiða­fram­leið­endum með afnámi tekju­skatta og þar með lækkun launa­kostn­aðar bif­véla­virkja, með­fram því að skoðun öku­tækja lyti ein­fald­lega auknum kröfum með hækk­andi aldri þeirra, líkt og löngum hefur raunar átt við um flug­för…

Hvor hag­fræðin er ann­ars lík­legri til að auka öryggi, jafnt á láði sem legi og í lofti, og hvort þá ekki heið­ar­leika á vinnu­mark­aði jafn­framt – hag­fræði orku- og auð­linda­drif­ins skatt­kerfis eða nið­ur­rifs­stefna inn­við­a­ráð­herra, fyrir hönd íslenska rík­is­valds­ins, sem sagt f.h. alþjóð­lega auð­valds­ins? Hvort sem ann­ars vegur þyngra á þeirri hag­sýslu­vog­inni – vel­ferð orku­að­als­ins eða kol­svartur vinnu­mark­að­ur­inn, vel­ferð­ar­rík­is­ins…

Nánar verður fjallað um þessi efni í grein­inni Sam­göngur á landi – í hinu stóra sam­hengi orku- og auð­linda­drif­ins skatt­kerfis, von­andi áður en langt um líður. Meðal ann­ars verður fjallað ítar­legar um þann mikla rekstr­ar­á­bata sem afnám tekju­skatta á öllum sviðum, auk lækk­unar virð­is­auka­skatts á flestum sviðum, hefði í för með sér, til mót­vægis við álögð gjöld, sem og almennt um þann sam­fé­lags­lega ábata, jafnt sem sam­fé­lags­legan kostn­að­inn, sem leiðir af sam­göngum.

Verður þá nánar að spurt, meðal ann­ars, hvort sam­göngum sé fyrst og fremst ætlað að þjóna sumum, jafn­vel bara útvöldum hópum jarð­ar­búa – líkt og virð­ist t.d. eiga við sjáv­ar­út­veg og orku­bú­skap að býsna mörgu leyti, á sinn hátt, sem og þá hin ýmsu kans­ellí stjórn­ar­ráðs­ins – eða hvort öllu sam­fé­lags­legri sjón­ar­mið, jafn­vel lýð­ræð­is­leg, hvað þá þau er lúta að nátt­úru­vernd, kunni að eiga meiri rétt á sér.

Mögulega, vissu­lega, er ekki við nein vanda­mál að fást, heldur bara tæki­færi – svo að vísað sé til orða pró­fess­ors Gylfa í grein hans í Vís­bend­ingu.

Höfundur er áhuga­maður um bætta hag­sýslu, stjórn­sýslu og nátt­úru­vernd

Tit­il­mynd grein­ar­innar: Sýn­is­horn bómull­ar­verka eftir Niraja Cheryl Lorenz – sjá nánar: www.saqa.com/art/juried-artists/niraja-lorenz

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár