Afleitt að innheimta bara vegtolla þar sem það virðist líklegast til að skila einhverju fé

Gylfi Magn­ús­son skrifar um vega­tolla og aðrar leiðir til að fjár­magna rekstur vega­kerf­is­ins í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar. Hann segir að frá hag­rænu sjón­ar­horni sé óheppi­legt að veg­tollar beini öku­mönnum á leiðir sem væru dýr­ari án þeirra.

Gylfi Magnússon, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands.
Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í við­skipta­fræði við Háskóla Íslands. Mynd: RÚV/skjáskot

„Að mínu mati er því rétt að líta ekki á þau verk­efni sem nú er staðið frammi fyrir vegna dýrra sam­göngu­fram­kvæmda og orku­skipta í sam­göngum sem vanda­mál. Þetta er ein­stakt tæki­færi til að bæta nýt­ingu, ekki bara á mann­virkjum heldur líka tíma manna, draga úr mengun og jafn­vel hvetja til holl­ara líf­ernis. Það væri hins vegar afleitt að ætla bara að fara að inn­heimta veg­tolla þar sem það virð­ist lík­leg­ast til að skila ein­hverju fé eða miklu hefur verið til­kostað. Það er vond nálgun á við­fangs­efnið.“

Þetta segir Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, í grein í síð­asta tölu­blaði Vís­bend­ingar þar sem hann fjallar um hvernig eigi að kosta fram­kvæmdir og rekstur vega­kerfis lands­manna.

Hann bendir þar á að kostn­aður sam­fé­lags­ins af því að umferð fari um ný og fín jarð­göng sé ekk­ert afskap­lega mik­ill, og að minnsta kosti ekki meiri en af því að sama umferð aki hefð­bundna þjóð­vegi. Stofn­kostn­að­ur­inn sé vissu­lega miklu meiri en hann sé þegar fall­inn til og verður ekki end­ur­heimtur.

Það sé eðli­lega freist­andi að nota veg­tolla til að end­ur­heimta þann stofn­kostnað. „Það er hægt og það skilar pen­ing í rík­is­sjóð. Ökumenn sýna gjöld­unum ein­hvern skiln­ing ef mann­virkið er glæ­nýtt. En séu aðrar og hag­kvæm­ari leiðir til þess að afla nauð­syn­legs fjár í rík­is­sjóð þá á að nýta þær frekar.“

Þarf að horfa til áhrifa á markaði og þjóðfélagshópa

Gylfi segir að almennt ætti fjár­öflun rík­is­sjóðs að byggja á öðrum sjón­ar­miðum en hvað skatt­heimtu­menn kom­ist upp með. „Það ætti að horfa til áhrifa á mark­aði og ein­staka þjóð­fé­lags­hópa, kostn­aðar við inn­heimtu o.fl. Ef lagt væri í slíka vinnu fyrir fjár­öflun til vega­kerf­is­ins þá tel ég næsta víst að nið­ur­staðan yrði blanda af almennum notk­un­ar­gjöldum, gjöldum til stýr­ingar á umferð og meng­un­ar­gjöldum. Það gæti ekki bara skilað nægu fé í rík­is­sjóð heldur einnig bætt nýt­ingu sam­göngu­mann­virkja, dregið úr töfum án þess þó að kalla á enda­lausar nýfram­kvæmdir, sparað veg­far­endum tíma og pen­inga og bætt umhverfið.“

[adspot]Hann segir það ekki vafa­mál að það hefði til að mynda verið tals­vert ódýr­ara að kosta gerð og rekstur Hval­fjarð­ar­gang­anna með hefð­bundnum hætti en að fara þá leið sem farin var. „Það er miklu ódýr­ara að inn­heimta bif­reiða­gjöld og álögur á elds­neyti en veg­tolla eins og þeir voru í Hval­fjarð­ar­göng­unum eða Kefla­vík­ur­veg­inum á sínum tíma. Að auki væri hægt að meta til fjár þær tafir á umferð sem fylgdu inn­heimt­unni, þótt þær hafi oft­ast verið litlar. Bæði í Hval­firð­inum og á Kefla­vík­ur­veg­inum skipti litlu máli hvort það var fær leið fram hjá veg­toll­unum.“

Dugar skammt að líta á Víkurskarðið sem ríkisleyndarmál

Þetta skipti þó litlu máli í næstu til­raun til inn­heimtu veg­tolla, sem fer fram í Vaðla­heið­ar­göngum sem voru vígð í lok árs 2018. „Þar er veg­stytt­ingin miklu minni en í Hval­fjarð­ar­göng­unum og því freist­andi að aka tign­ar­legt Vík­ur­skarðið til að spara sér veg­toll­inn og sleppa við að kúldr­ast í dimmum göngum, nema þá auð­vitað helst í ill­viðrum enda getur skarðið orðið ill- eða jafn­vel ófært að vetri.

[links]Það er afleitt fyr­ir­komu­lag að inn­heimta veg­toll við slíkar aðstæður. Raunar er Vaðla­heiði kennslu­bók­ar­dæmi um hvar ætti ekki að inn­heimta veg­tolla – nema kannski ef líka hefði verið inn­heimtur veg­tollur í Vík­ur­skarði eða því jafn­vel lokað.“

Það dugi skammt að líta á leið­ina fram hjá veg­toll­inum í Vaðla­heið­ar­göng­unum sem rík­is­leynd­ar­mál og banna skilta­gerð­ar­fólki að minn­ast nokk­urs staðar á hana. „Þeir sem eru kunn­ugir stað­háttum vita af henni og auð­vitað líka snill­ing­arnir hjá Google maps, sem gefa öku­mönnum upp leiðir með og án veg­tolla í óþökk Vaðla­heið­ar­vega­ganga­toll­inn­heimtu­manna.“

Hægt að beita vegtollum til að draga úr umferð á höfuðborgarsvæðinu

Frá hag­rænu sjón­ar­horni sé mjög óheppi­legt að veg­tollar beini öku­mönnum á leiðir sem væru dýr­ari án veg­tolls­ins. Stundum sé veg­tollum bein­línis beitt til að draga úr. „Það mætti t.d. gera á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með veg­tollum á stofn­brautir sem anna illa álagi á til­teknum tíma dags eins og Hring­braut eða Miklu­braut snemma á morgna og síð­degis.“

Slík gjald­heimta sé þó ekki galla­laus. „T.d. gæti veg­tollur á Hring­braut beint umferð inn í hjá­leiðir um íbúða­hverfi sem væri afleitt. Sömu­leiðis er allt eins víst að fyr­ir­hug­aður veg­tollur um nýja Ölf­usár­brú fyrir norðan Selfoss mun beina umferð í veru­legum mæli yfir á gömlu brúna og þar með í gegnum bæinn. Til að koma í veg fyrir það væri þó hægt að inn­heimta veg­tolla á báðum brúnum. Það væri kannski ein­falt að útskýra fyrir hag­fræð­ingum en lík­lega erf­ið­ara að útskýra fyrir öðrum kjós­endum. Svo mætti líka sprengja gömlu brúna í tætlur en það yrði enn erf­ið­ara að útskýra fyrir öðrum en hag­fræð­ingum.“

Málið vel leysanlegt og ýmsar útfærslur koma til greina

Málið sé þó vel leys­an­legt. „Sé ekki ætl­unin að nota veg­tolla til að stýra umferð er ein­fald­ast að rukka í hlut­falli við ekna vega­lengd á ári. Ýmsar útfærslur koma til greina. Ég ætla ekki að reyna að rekja þær allar hér og kosti þeirra og galla. Sú ein­faldasta er jafnt gjald á km fyrir alla. Það er nær örugg­lega ekki besta leiðin, m.a. vegna þess að bílar valda mis­mun­andi álagi á vega­kerfið eftir þyngd. Það væri hins vegar ekki flókið að raða bílum í gjald­flokka eftir þyngd. Þunga­flutn­inga­bílar myndu þá t.d. borga miklu meira fyrir hvern km en léttir fólks­bílar. Gjöld á elds­neyti gætu þá verið lækkuð eitt­hvað á móti, jafn­vel fyrst og fremst orðið meng­un­ar­gjöld til að end­ur­spegla þann sam­fé­lags­lega kostnað sem fylgir bruna á elds­neyti. Það væri í raun póli­tísk ákvörðun hvernig ætti að stilla af ann­ars vegar skatt­lagn­ingu á elds­neyti og hins vegar gjöld fyrir ekinn km.“

Gylfi bendir á að Sigurður Ingi Frið­leifs­son hjá Orku­stofnun hafi áætlað að hægt væri að lækka álögur rík­is­ins á elds­neyti um 79 krónur á lítr­ann ef lagt yrði á kíló­metra­gjald upp á sex krónur á kíló­metra, bæði á þá bíla sem brenna elds­neyti og aðra. „Raf­magns­bílar yrðu eftir sem áður mun ódýr­ari í akstri en elds­neyt­is­bílar, þótt minna mundi muna en nú. Þótt slíkt kerfi væri ein­falt og varla miklu dýr­ara í rekstri en núver­andi gjald­heimta þá væri slæmt að nýta það ekki jafn­framt til að stýra umferð, sér­stak­lega í þétt­býli. Líklega væri hægt að eyða flestum umferð­ar­hnútum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með skyn­sam­legri verð­lagn­ingu. Hún gæti bæði fært umferð einka­bíla til í tíma og rúmi og búið til eðli­lega hvata til að nota aðrar sam­göngu­leiðir þar sem það er sam­fé­lags­lega hag­kvæmt. Það væri t.d. ekk­ert óskap­lega flókin við­bót við þau GPS leið­sögu­kerfi sem margir nota nú þegar að láta þau ráð­leggja fólki hvar og hvenær væri hag­kvæm­ast að ferð­ast að teknu til­liti til veg­tolla.“

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að ger­­­­­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

umferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár