Borgarfulltrúar segja þá spurningu vakna hvort lögregla megi fara á svig við lög

Um 15 pró­sent bif­reiða í borg­inni voru komnar á nagla­dekk strax um miðjan októ­ber. Full­trúar borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans í umhverfis- og skipu­lags­ráði segja óheppi­legt að löggan gefi það út að ekki verði sektað fyrir notkun nagla­dekkja.

Rætt var um nagladekk í umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar í gær.
Rætt var um nagla­dekk í umhverfis- og skipu­lags­ráði borg­ar­innar í gær. Mynd: Pexels

Full­trúar Sam­fylk­ingar, Fram­sóknar, Pírata og Við­reisnar í umhverfis- og skipu­lags­ráði borg­ar­innar telja „óheppi­legt að lög­reglan lýsi því yfir hvað eftir annað að ekki verði sektað fyrir fyrir notkun nagla­dekkja áður en nagla­dekkja­tíma­bilið hefst“ og segja að sú spurn­ing vakni óhjá­kvæmi­lega „hvort lög­reglan hafi heim­ild til að fara á svig við lögin“.

Þetta kemur fram í bókun full­trú­anna frá fundi umhverfis- og skipu­lags­ráðs borg­ar­innar í gær, en þar var rætt um nagla­dekkja­notkun í Reykja­vík­ur­borg og það átak sem staðið hefur yfir und­an­farnar vikur, með aug­lýs­ingum og fræðslu­efni, til að beina íbúum fremur í átt að öðrum kostum en nagla­dekkjum við val á vetr­ar­dekkjum.

Fleiri á nagladekkjum snemma hausts nú en árið 2001

Í gögnum sem lögð voru fyrir fund­inn kom fram að taln­ing sem borgin fól verk­fræði­stof­unni Eflu að fram­kvæma á nagla­dekkja­notkun í viku 42 (17. októ­ber til 23. októ­ber) sýndi að 15 pró­sent bif­reiða í borg­inni voru komnar á nagla­dekk.

[adspot]

Þetta er mun hærra hlut­fall en á sömu viku árið 2001, er ein­ungis þrjú pró­sent bif­reiða voru komin á nagla­dekk, en frek­ari sam­an­burður á milli ára um stöð­una á þessum tíma árs virð­ist ekki til staðar.

Í kynn­ing­unni sem lögð var fyrir kjörna full­trúa af starfs­mönnum borg­ar­innar kom þó fram að byrj­unin á þessum vetri teld­ist ekki góð, með til­liti til nagla­dekkja­notk­unar.

Nagladekkjanotkun hefur aukist frá 2016-17

Samkvæmt nagla­dekkja­taln­ingum sem fram­kvæmdar voru fyrir Reykja­vík­ur­borg síð­asta vetur voru rétt um 40 pró­sent bif­reiða í borg­inni á nöglum, frá miðjum nóv­em­ber og fram í byrjun mars hið minnsta. Þetta hlut­fall hefur hækkað frá vetr­inum 2016-17, er um 32 pró­sent bif­reiða í borg­inni voru á nöglum yfir vet­ur­inn.

Ekki er ósenni­legt að stór­auk­inn fjöldi bíla­leigu­bíla í umferð frá þeim tíma eigi þátt í þess­ari aukn­ingu, en borgin sjálf hefur nefnt það sem lík­lega ástæðu fyrir auknu hlut­falli bíla á nagla­dekkjum síð­ustu ár.

Í bókun full­trúa meiri­hlut­ans í ráð­inu sagði að nagla­dekkja­notkun hefði því miður auk­ist veru­lega síð­ustu árin og að ljóst væri að mikil notkun þeirra í Reykja­vík hefði alvar­legar afleið­ingar í för með sér, þar sem þau væru stór áhrifa­þáttur í svifryks­mengun og valdi á bil­inu 20-30 sinnum meiri svifryks­mengun en venju­leg dekk, auk þess sem veru­legur kostn­aður skap­ist vegna slits á mal­biki.[links]

Í bókun frá full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins sagði að þessa nei­kvæðu þróun í notkun nagla­dekkja mætti „lík­lega rekja til óánægju með frammi­stöðu Reykja­vík­ur­borgar við snjó­ruðn­ing í húsa­götum síð­asta vetur, ekki síst í efri byggðum“ og þá þjón­ustu þyrfti að bæta.

Einnig sagði í bókun full­trúa flokks­ins að draga mætti „veru­lega úr svifryks­mengun með því að bæta eig­in­leika útlagðs mal­biks í borg­inni í því skyni að gera það slitsterkara“ og að lokum þyrfti að „bæta fræðslu um skað­semi nagla­dekkja­notk­unar í því skyni að draga úr henni“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

umferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár