Reykjavíkurborg hlynnt því að 30 kílómetra hámarkshraði verði nýja normið

Reykja­vík­ur­borg hefur skilað inn jákvæðri umsögn um frum­varp sem felur í sér að almenn hraða­mörk í þétt­býli lækki úr 50 km/klst. í 30 km/klst. Borgin bendir á að núver­andi hraða­mörk séu ekki í sam­ræmi við rann­sóknir eða þróun síð­ustu ára­tuga.

Borgaryfirvöld segja núverandi almenn hraðamörk, 50 km/klst., leiði til þess að hraðamörk séu oft og tíðum of há innan þéttbýlis.
Borg­ar­yf­ir­völd segja núver­andi almenn hraða­mörk, 50 km/klst., leiði til þess að hraða­mörk séu oft og tíðum of há innan þétt­býlis. Mynd: Bára Huld Beck

Reykja­vík­ur­borg styður að almenn hraða­mörk í þétt­býli verði færð niður í 30 kíló­metra á klukku­stund, nema aðstæður mæli með hærri hraða. Þetta kemur fram í umsögn borg­ar­innar við frum­varp Andrésar Inga Jóns­sonar þing­manns Pírata til breyt­inga á umferða­lögum.

Frum­varpið felur í sér að almenn hraða­mörk innan þétt­býlis verði færð úr 50 kíló­metra hraða niður í 30 kíló­metra hraða á klukku­stund. Reykja­vík­ur­borg telur að þessi breyt­ing falli „vel að þeim mark­miðum og áherslum sem Reykja­vík­ur­borg hefur sett sér í umferð­ar­ör­ygg­is­málum, umhverf­is­málum og notkun mis­mun­andi far­ar­máta.“[links]

„Ekki er ljóst hvenær eða hvers vegna valið var að setja almenn hraða­mörk sem 50 km/klst., en þannig hafa þau verið a.m.k. frá árinu 1968. Þau hraða­mörk taka ekki mið af kunn­áttu, rann­sóknum, og þróun sem hefur átt sér stað síð­ustu ára­tugi m.t.t. fjölda og alvar­leika umferð­ar­ó­happa innan borga,“ segir í umsögn borg­ar­innar sem send hefur verið til Alþingis og und­ir­rituð er af Þor­steini R. Her­manns­syni sam­göngu­stjóra.

Í umsögn­inni segir að almenn hraða­mörk upp á 50 km/klst leiði til þess að hraða­mörk séu oft og tíðum of há innan þétt­býlis og sam­þykki þurfi og aug­lýsa sér­stak­lega að lækka hraða­mörkin út frá umferð­ar­ör­ygg­is­sjón­ar­miðum á stórum hluta gatna­kerf­is­ins.

Yrði frum­varp Andrésar Inga að lögum myndi þetta í reynd snú­ast við og aug­lýsa þyrfti og sam­þykkja sér­stak­lega umferð­ar­hraða yfir 30 kíló­metrum á klukku­stund innan þétt­býlis. Í umsögn borg­ar­innar segir að um 60 pró­sent af gatna­kerf­inu sé nú með 30 kíló­metra hámarks­hraða eða lægri og geri megi ráð fyrir að það hlut­fall hækki til fram­tíðar.

[adspot]

„Afleið­ingar umferð­ar­ó­happs þar sem ekið er á gang­andi eða hjólandi vega­far­enda á 50 km/klst. eru mun meiri en ef hrað­inn er nærri 30 km/klst. Æskilegt má telja að almennur grunn­hraði sé ákvarð­aður út frá því hvaða hraða veg­far­endur á ferð um meiri­hluta gatna­kerf­is­ins þola án þess að eiga á hættu að slasast alvar­lega, en að velja megi hærri hraða þar sem það er talið ásætt­an­legt út frá umferð­ar­ör­yggi,“ segir í umsögn borg­ar­innar.

Þar segir einnig að laga­breyt­ing­ar­til­lagan falli vel að mark­miðum á lands­vísu sem finna má í umferð­ar­ör­ygg­is­á­ætlun stjórn­valda 2020-2034, sér­stak­lega und­ir­mark­miðum sem miði að öryggi barna í umferð­inni og öryggi óvarðra veg­far­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár