Í maí var stefnt að því þjóðarhöll yrði risin 2025 – Í september er búið að fresta henni

Inn­við­a­ráð­herra hefur tekið af allan vafa um að þjóð­ar­höll í inn­an­hús­í­þróttum verði risin í Laug­ar­dal 2025. Ríkið mun ekki setja nægj­an­lega pen­inga í verk­efnið fram á þeim tíma til að það verði ger­legt.

Forsætisráðherra, ráðherra íþróttamála og borgarstjóri undirrituðu viljayfirlýsingu um byggingu þjóðarhallar, sem stefnt var að yrði tilbúin 2025, þann 6. maí síðastliðinn. Átta dögum síðar var kosið í borginni.
For­sæt­is­ráð­herra, ráð­herra íþrótta­mála og borg­ar­stjóri und­ir­rit­uðu vilja­yf­ir­lýs­ingu um bygg­ingu þjóð­ar­hallar, sem stefnt var að yrði til­búin 2025, þann 6. maí síð­ast­lið­inn. Átta dögum síðar var kosið í borg­inni. Mynd: Aðsend

„Tíma­línan er vænt­an­lega stærri. Þetta er umtals­vert verk­efni.“ Þetta sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í gær­morgun þegar hann var spurður hvort fram­kvæmdum við þjóð­ar­höll í inn­an­hús­í­þróttum myndi ljúka árið 2025. Einungis er gert ráð fyrir að rík­is­sjóður setji 100 millj­ónir krónur í verk­efnið á næsta ári, sem eru fjár­munir sem munu nýt­ast í und­ir­bún­ing verk­efnis.

Einungis fjórir mán­uðir eru síðan að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Ásmundur Einar Daða­son mennta- og barna­mála­ráð­herra og Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri und­ir­rit­uðu vilja­yf­ir­lýs­ingu um bygg­ingu þjóð­ar­hall­ar­innar. Samkvæmt henni var stefnt að því að fram­kvæmdum myndi ljúka árið 2025 og kostn­að­ar­skipt­ing milli ríkis og borgar átti að taka mið af nýt­ingu mann­virk­is­ins.

Þegar Kristján Krist­jáns­son, þátta­stjórn­andi Sprengisands, spurði Sigurð Inga af hverju það hefði verið lofað svona lög­uðu í maí þegar það væri ekki hægt að standa við það nokkrum mán­uðum síðar, sagði hann að menn væri „auð­vitað að von­ast til að hlut­irnir gangi eins hratt og hægt er“.

Draga úr framkvæmdum en samt eiga 35 þúsund íbúðir að rísa

Í maí hafi sú staða enn verið uppi að búist hefði verið við að hið opin­bera þyrfti að ráð­ast í mikla skuld­setta fjár­fest­ingu til að koma sam­fé­lag­inu efna­hags­lega af stað. Svo hefði hið gagn­stæða gerst. Allt hafi farið á fullt, hag­vöxtur yfir ákveðið tíma­bil hefði verið tíu pró­sent og verð­bólgan farið í þær sömu hæðir. Staðan nú væri þannig að það vant­aði mann­afla til að byggja. „Þá verður hið opin­bera að draga að sér hend­urnar. Til þess að búa ekki til þenslu. Þetta er bara skyn­semi og stundum ráðum við ekki við alla þætti. Þetta er einn þeirra þátta. Þá verðum við að sætta okkur við það, jafn­vel þó að við höfum lofað að ein­hver til­tekin mann­virki væru til­búin á ein­hverjum til­teknum tíma.“

[adspot]Á meðal ann­arra fjár­fest­inga sem frest­ast er við­bygg­ing við stjórn­ar­ráð Íslands auk þess sem fjár­munir verða teknir úr bygg­ingu nýs Land­spít­ala og not­aðir í annað. Sigurður Ingi segir þó að ástæða þess að pen­ingar verði teknir úr spít­ala­upp­bygg­ingu þá að það hafi ein­fald­lega ekki náðst að eyða þeim. Það hafi ekki gengið að byggja á þeim hraða sem lagt var upp með. Því hefðu fjár­munir safn­ast upp og nú ætti að nýta hluta þeirra ann­ars­staðar. Samt sem áður verði settir 13,4 millj­arðar króna í upp­bygg­ingu á Land­spít­al­anum á næsta ári.

Á sama tíma og til­kynnt er að dregið verði úr opin­berum fram­kvæmdum er stefnt að því að byggja 35 þús­und íbúðir á Íslandi á næstu tíu árum á grund­velli ramma­samn­ings milli ríkis og sveit­ar­fé­laga. Aðspurður um hvernig þau áform, sem eru þenslu­vald­andi, rími við það að draga úr þenslu með því að fresta opin­berum fram­kvæmdum við­ur­kenndi Sigurður Ingi að það yrði „tals­verð áskorun“.

Leyst með viljayfirlýsingu korteri fyrir kosningar

Þegar vilja­yf­ir­lýs­ing um þjóð­ar­höll í inn­an­hús­í­þróttum var und­ir­rituð í maí voru átta dagar í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Málið hafði verið hita­mál í Reykja­vík í aðdrag­anda þeirra, sér­stak­lega þar sem það var bein­tengt við inni­þrótta-aðstöðu Þróttar og Ármanns í Laug­ar­dal og skól­anna í hverf­inu, sem hefur verið í miklu ólestri árum saman.

[links]Samkvæmt áformunum áttu bæði félögin að geta nýtt nýju þjóð­ar­höll­ina ásamt því að nota gömlu Laug­ar­dals­höll­ina undir starf­semi sína.

Þrýsti­hópar innan beggja félaga höfðu kallað eftir því að lausn myndi finn­ast á aðstöðu­leysi félag­anna tveggja og að hún yrði form­fest. Þar kom helst tvennt til greina: annað hvort næð­ist saman um þjóð­ar­höll sem ung­menni í Laug­ar­dalnum gætu nýtt eða að nýtt íþrótta­hús yrði byggt á bíla­stæð­inu við Þrótt­ar­völl­inn.

Dagur B. Egg­erts­son hafði gefið rík­­­inu frest fram í byrjun maí til að leggja fram fé í þjóð­ar­hall­ar­verk­efn­ið. Næð­ist það ekki myndi borgin taka tvo millj­­­arða króna sem hún hafði sett til hliðar fyrir það og nota þá til að byggja nýtt íþrótta­hús fyrir iðk­endur Þróttar og Ármanns í Laug­­­ar­­­dal. Gengið var út frá því að sú lausn hefði náðst með und­ir­ritun vilja­yf­ir­lýs­ing­ar­innar 6. maí. 

Nú, rúmum fjórum mán­uðum eftir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, hefur fram­kvæmda­lokum verið slegið á frest.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár