Þjóðarhöll á að rísa í Laugardal og framkvæmdum við hana á að vera lokið 2025

Búið er að höggva á hnút milli Reykja­vik­ur­borgar og íslenska rík­is­ins um bygg­ingu þjóð­ar­hallar í Laug­ar­dal. Hún mun rísa á næstu þremur árum milli Laug­ar­dals og Suð­ur­lands­brautar.

Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar í dag.
Frá und­ir­ritun vilja­yf­ir­lýs­ing­ar­innar í dag. Mynd: Aðsend

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra og Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri und­ir­rit­uðu í dag vilja­yf­ir­lýs­ingu um bygg­ingu þjóð­ar­hallar í inn­an­húss­í­þróttum. Stefnt er að því að fram­kvæmdum ljúki árið 2025 og kostn­að­ar­skipt­ing milli ríkis og borgar á að taka mið af nýt­ingu mann­virk­is­ins. Það þýðir að ríkið borgar fyrir þann hluta sem snýr að þörfum sér­sam­banda og alþjóð­legra krafna til keppn­is­að­stöðu lands­liða og Reykja­vík­ur­borg þann hluta sem snýr að þörfum Þróttar og Ármann ann­ars vegar og íþrótta­kennslu skóla í Laug­ar­dalnum hins vegar. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans verður fullt aðgengi íþrótta­fé­lag­anna að æfinga­völlum tryggt í þeirri þarfa­grein­ingu.

[links]Til stendur að byggja höll­ina á svæði sem liggur milli Laug­ar­dals­hallar og skrif­stofu­mann­virkja Íþrótta­sam­bands Íslands, og að Suð­ur­lands­braut.

Í til­kynn­ingu segir að Ríki og borg muni standa sam­eig­in­lega að hug­mynda­sam­keppni um hönnun mann­virkis og útlit og séu „sam­mála um að leggja kraft í verkið“. Báðir aðilar munu auk þess tryggja fjár­mögnun á stofn­kostn­aði í sínum lang­tíma­á­ætl­unum. Hver end­an­legur kostn­aður verður mun liggja fyrir eftir frum­at­hugun og end­an­lega hönnun. Sérstök fram­kvæmda­nefnd verður stofnuð um verk­efnið sem mun sjá um umrædda frum­at­hugun og und­ir­bún­ing á fyr­ir­komu­lagi bygg­inga­fram­kvæmda. Í vinnu hennar verða notk­un­ar­mögu­leikar hall­ar­innar líka kann­aðir til hlítar. Þegar liggja fyrir grein­ingar á þörfum sér­sam­banda Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­bands Íslands fyrir æfingar og keppnir lands­liða og á þörfum Reykja­vík­ur­borgar vegna íþrótta­fé­laga og íþrótta­kennslu skóla.

Í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu ríkis og borgar segir einnig að áfram verði „unnið að und­ir­bún­ingi þjóð­ar­leik­vangs fyrir frjáls­í­þróttir í Laug­ar­dal og þjóð­ar­leik­vangs í knatt­spyrnu. Mark­aðs­könnun vegna þjóð­ar­leik­vangs í knatt­spyrnu verður unnin með það að mark­miði að draga fram skýra val­kosti um næstu skref í upp­bygg­ing­unni.“

Gaf mánaðarfrest

Kjarn­inn greindi frá því á mið­viku­dag að til stæði að nið­ur­staða í mál­inu, sem hefur verið í miklum hnút, yrði kynnt í dag. Það var kynnt í borg­ar­ráði Reykja­víkur í gær og verður á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­fundar í dag. Í frétt Kjarn­ans var sagt að stíf sam­töl hafi átt sér stað und­an­farið um hvort ráð­ist yrði í bygg­ingu þjóð­­ar­hallar í Laug­­ar­­dal. Borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík hafði gefið rík­­inu frest fram í byrjun maí til að leggja fram fé í verk­efn­ið. Næð­ist það ekki myndi borgin taka tvo millj­­arða króna sem hún hefur sett til hliðar fyrir það og nota þá til að byggja nýtt íþrótta­hús fyrir iðk­endur Þróttar og Ármanns í Laug­­ar­­dal.

[adspot]Í sam­tali við Kjarn­ann á mið­viku­dag sagði Dagur að nið­­ur­­staða væri fyr­ir­liggj­andi en aðstoð­ar­maður Ásmundar Ein­ars neit­aði því síðar sama dag í sam­tali við RÚV.

Nú er ljóst að náðst hefur saman um ramma utan um fram­kvæmd­ina og bæði ríkið og Reykja­vík­ur­borg skuld­binda sig til að standa straum af sínum hluta af kostn­að­inum.

Félögin fá sex velli í stað fjögurra

Á opnum íbúa­fundi í Laug­ar­nes­skóla 2. mars síð­ast­lið­inn ræddi Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri ítar­lega um aðstöðu­mál íþrótta­fé­lag­anna í hverf­inu. Þar sagði hann: „Ég veit að sumir hafa verið að pirra sig á því að það hafi verið að blanda þjóð­ar­leik­vöngum inn í þetta og ég skil það að vissu leyti. En ég hef haldið því fram, bæði þegar ég ræði við for­ystu Þróttar og Ármann og við ykkur hér að það geta verið ótví­ræð tæki­færi í því ef að ríkið loks­ins skuld­bindur sig á þjóð­ar­leik­vang og gerir það strax.“

Dagur sagði að gamla Laug­ar­dals­höllin, sem hefur ekki verið í notkun vegna skemmda í tvö ár, verði til­búin til notk­unar 15. ágúst næst­kom­andi. Kost­ur­inn við þjóð­ar­höll umfram sér­stakt íþrótta­hús fyrir Þrótt og Ármann, sem borgin hafi tekið tvo millj­arða króna frá til að byggj væri sá að gólf­flötur í nýrri þjóð­ar­höll yrði slíkur að hann rúmi fjóra fulla keppn­is­velli í hand­bolta. Þegar þeim yrði bætt við þá tvo velli sem eru í Laug­ar­dals­höll gæti þjóð­ar­hall­ar­lausnin skilað iðk­endum í Laug­ar­dal alls sex æfinga­völlum í fullri stærð, sem þyrfti að deila með lands­liðum þegar þannig bæri und­ir.

Nýtt íþrótta­hús á bíla­stæð­inu við hlið Þrótta­heim­il­is­ins myndi skila tveimur nýjum völlum í fullri stærð og því var ávinn­ing­ur­inn að þjóð­ar­hall­ar­leið­irn­ir, mjög ein­fald­lega, fleiri vell­ir. Meira pláss.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár