Virði íbúða Félagsbústaða hefur aukist um rúmlega 20 milljarða á sex mánuðum

Í fyrra hækk­aði virði íbúða í eigu Félags­bú­staða um rúm­lega 20 millj­arða. Eigna­safnið hafði aldrei hækkað jafn mikið innan árs áður og hækk­unin var meiri en fjögur árin á undan. Á fyrri hluta þessa árs hækk­aði virði íbúð­anna aftur um 20 millj­arða.

Þær íbúðir sem Félags­bú­stað­ir, félag utan um félags­legar leigu­í­búðir í eigu Reykja­vík­ur­borg­ar, voru metnar á 146,7 millj­arðar króna í lok júní síð­ast­lið­ins. Virði þeirra hefur auk­ist um rúm­lega 20 millj­arða króna frá síð­ustu ára­mótum, þegar íbúða­safnið var metið á 126,5 millj­arða króna. Eigið fé félags­ins er nú um 84,8 millj­arðar króna og hefur auk­ist um 17,5 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum þessa árs. Hækk­unin end­ur­speglar hækkun á fast­eigna­mati á þeim 3.030 íbúðum sem Félags­bú­staðir eiga.

Þetta má lesa út úr nýbirtum árs­hluta­reikn­ingi Félags­bú­staða.

Þessi mikla hækkun á virði eigna Félags­bú­staða, sem eru að öllu leyti í eigu Reykja­vík­ur­borgar, er stærsta ástæða þess að afkoma sam­stæð­u borg­ar­innar á fyrri hluta árs­ins reynd­ist heilum 9,8 millj­örðum krónum betri en gert hafði verið ráð fyrir. Virði eigna­safns félags­ins hækk­aði um 16,9 millj­arða króna umfram áætl­un.

Langmesta hækkun frá upphafi

Þetta er lang­hæsta mats­breyt­ingin á fjár­fest­inga­eignum Félags­bú­staða sem nokkru sinni hefur átt sér stað á hálfs árs tíma­bili. Til að setja hana í sam­hengi má nefna að allt árið í fyrra hækk­aði virði íbúða­safns Félags­bú­staða um 20,5 millj­arðar króna, sem var í takti við þær gríð­ar­legu hækk­anir sem orðið höfðu á íbúð­ar­verði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á tíma­bil­inu. Það var mesta hækkun sem orðið hafði á safn­inu innan árs frá stofnun Félags­bú­staða. Fyrra metið var sett árið 2016 þegar verð­breyt­ing á þeim fast­eignum sem Félags­bú­staði á og ætl­aðar eru til útleigu hækk­uðu um 10,9 millj­arða króna. Árið 2017 hækk­uðu eign­irnar um 8,5 millj­arða króna, ári síðar um þrjá millj­arða og 2019 hækk­uðu eign­irnar um 4,8 millj­arða króna. Þær hækk­uðu svo um 1,8 millj­arð króna árið 2020. Sam­an­lagt hækk­uðu þær því um 18 millj­arða króna á fjórum árum. Í fyrra, á einu ári, hækk­uðu þær um 2,5 millj­arði króna umfram það sem þær höfðu hækkað fjögur árin á und­an.

[adspot]Á fyrstu sex mán­uðum þessa árs hækk­aði virði íbúð­anna um nán­ast sömu upp­hæð og allt árið í fyrra, og rúm­lega tveimur millj­örðum krónum meira en á árunum 2016-2020 sam­an­lagt.

Halda á 3.030 íbúðum

Í Reykja­vík er 74 pró­­sent af öllu félags­­­legu hús­næði á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu, þótt íbúar höf­uð­­borg­­ar­innar séu 56 pró­­sent íbúa á svæð­in­u. Íbúðir Félags­bú­staða eru yfir fimm pró­sent af öllum íbúðum í Reykja­vík.

Alls halda Félags­­­bú­­staðir á 3.030 íbúð­­um. Almennar íbúðir eru 2.204, 444 eru svo útbúnar fyrir fatl­aða og 382 eru fyrir aldr­aða. Að öllu með­­­­­töldu er 22 félags­­­­­leg íbúð á hverja 1.000 íbúa Reykja­víkur – en þeir voru 137.260 tals­ins um mitt þetta ár. Heild­­­ar­­­fjöldi félags­­­­­legra íbúða í Reykja­vík við árs­­­lok 2017 var sagður 2.513 og hefur þeim því fjölgað um 517 síðan þá.

Í könnun sem var gerð í fyrra kom fram að 84 pró­­sent leigj­enda óhagn­að­­ar­drif­inna leigu­fé­laga á borð við Félags­­­bú­­staði eru ánægðir með að leigja þar. Á­nægjan hjá þeim sem leigja hjá einka­reknu leigu­fé­lög­unum á Íslandi er hins vegar mun minni, en á meðal leigj­enda þeirra segj­­­ast 64 pró­­­sent vera ánægð með núver­andi hús­næði.

Tölu­verður munur er á því að leigja af einka­að­ila og því að leigja af hinu opin­bera. Í mán­að­­ar­­skýrslu Hús­næð­is- og mann­­virkja­­stofn­unar (HMS) sem birt var í októ­ber 2021 kom fram að það kost­aði að með­­­al­tali 168 þús­und krónur á mán­uði að leigja af einka­að­ila en 126 þús­und krónur á mán­uði að leigja íbúð í eigu ríkis eða sveit­­­ar­­­fé­laga.

Því er að jafn­aði þriðj­ungi dýr­­­ara að leigja af einka­að­ila en af opin­berum aðila.

Almennar íbúðir fyrir tekju­lága

Til við­bótar við þær íbúðir sem Félags­bú­staðir eiga í Reykja­vík hafa verið byggðar margar almennar íbúðir fyrir tekju­lága í höf­uð­borg­inni á und­an­förnum árum. Lög um bygg­ingu slíkra íbúða voru sam­­­þykkt sum­­­­­arið 2016. Hið nýja íbúða­­­­kerfi er til­­­­raun til að end­­­­ur­reisa ein­hvern vísi að rík­is­rekna félags­­­­­­­lega hús­næð­is­­­­kerf­inu sem var aflagt undir lok síð­­­­­­­ustu aldar með þeim afleið­ingum að félags­­­­­­­legum íbúðum fækk­­­­aði um helm­ing milli áranna 1998 og 2017.

[adspot]Mark­mið þeirra laga var að bæta hús­næð­is­ör­yggi þeirra sem eru undir ákveðnum tekju- og eign­­­ar­­­mörkum með því að auka aðgengi að öruggu og við­eig­andi leig­u­hús­næði. Þannig yrði stuðlað að því að hús­næð­is­­­kostn­aður sé í sam­ræmi við greiðslu­­­getu þeirra sem leigja hús­næðið og fari að jafn­­­aði ekki yfir 25 pró­­­sent af tekjum þeirra.

Íbúð­­­irnar sem hafa fengið stofn­fram­lög eru ætl­­­aðar fyrir allskyns hópa sem eru með lágar tekj­­­ur. Þar ber fyrst að nefna þá félags­­­hópa sem eru undir skil­­­greindum tekju- og eign­­­ar­við­mið­­­um.

Níu af hverjum tíu almennum íbúðum í Reykjavík

Stór hluti þess­­­arar upp­­­­­bygg­ing­­­ar, sem er afar umfangs­­­mik­il, er á vegum Bjargs íbúða­­­fé­lags, sem var stofnað af ASÍ og BSRB fyrir nokkrum árum síð­­­an, og er rekið án hagn­að­­­ar­­­mark­miða.

[links]Ýmsar íbúðir sem eru ekki innan almenna íbúða­kerf­is­ins eða eru ekki í eigu sveit­ar­fé­laga falla þó ekki undir þessa upp­taln­ingu líkt og allar íbúðir Félags­stofn­unar stúd­enta og hluti íbúða Bygg­ing­ar­fé­lags náms­manna, hluti íbúða Brynju – Hús­sjóðs ÖBÍ, íbúðir Leigu­fé­lags­ins Brí­etar og fleiri.

Almenna ibúða­kerfið er fjár­­­­­magnað þannig að ríkið veitir stofn­fram­lag sem nemur 18 pró­­­sent af stofn­virði almennra íbúða. Stofn­virði er kostn­að­­­ar­verð íbúð­­­ar­inn­­­ar, sama hvort það er við bygg­ingu hennar eða vegna kaupa á henn­i.

Reykja­vík hefur tekið á sig meg­in­þorra ábyrgðar á upp­­­bygg­ingu á almenna íbúð­­ar­­kerf­inu fyrir lág­­tekju­­fólk sem eru í vand­ræðum með að taka þátt á hefð­bundnum íbúða­­mark­að­i. Alls 89,4 pró­sent allra almennra íbúða sem hafa risið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á und­an­förnum árum eru í Reykja­vík.

Það er ekki án kostn­aðar fyrir höf­uð­­borg­ina, eða íbúa henn­­ar, sem greiða fyrir rekst­­ur­inn með útsvari og fast­­eigna­­gjöld­­um. Sveit­­­ar­­­fé­lög veita nefn­i­­lega 12 til 16 pró­­­sent stofn­fram­lag til verk­efn­anna. Þau geta falist í beinu fjár­­­fram­lagi en eru oftar en ekki í formi úthlut­unar á lóðum eða lækk­­­unar eða nið­­­ur­­­fell­ingar á gjöldum sem þyrfti ann­­­ars að greiða til sveit­­­ar­­­fé­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár