Sigurður Ingi vill skoða þrepaskiptan fjármagnstekjuskatt

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins telur að þrepa­skiptur fjár­magnstekju­skattur geti lagst af meiri þunga á til dæmis stór­út­gerðir og banka sem hagn­ast umfram það sem geti talist sann­gjarnt og eðli­legt.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Almennt séð þá held ég að það mætti skoða þrepa­skiptan fjár­magnstekju­skatt.“ Þetta sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í gær­morgun. Slíkur skattur gæti lagst af meiri þunga en nú á til dæmis sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, fjár­mála­fyr­ir­tæki eða orku­fyr­ir­tæki og alla aðra sem hagn­ast umfram það sem talist geti sann­gjarnt og eðli­legt.

Þar sagð­ist hann telja að fjár­magnstekju­skatts­hlut­fallið, sem er 22 pró­sent, væri ágætt og skili rík­is­sjóði 16 millj­örðum krónum meira í ár en búist hafði verið við. „Hins vegar má alveg til sanns vegar færa að ef hann væri þrepa­skiptur þá væri mögu­leiki á því að þeir sem hefðu meira, borg­uðu meira til rík­is­ins. Hin leiðin er þá til útsvars. Ég held að það gæti þá komið upp á móti.“

Útsvars­greiðslur til sveit­ar­fé­laga myndu þá koma til við­bótar við almenna greiðslu fjár­magnstekju­skatts í rík­is­sjóð.

Aðspurður hvort Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, væri búinn að sam­þykkja þetta svar­aði Sigurður Ingi: „Við sjáum útfærsl­una. Hún kemur í vor.“

Frumvarp lagt fram í vor

Kjarninn greindi frá því á föstu­dag að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra ætli að leggja fram frum­varp til breyt­inga á lögum um tekju­skatt í apríl næst­kom­andi sem felur meðal ann­ars í sér að þeir sem hafa ein­göngu fjár­magnstekjur verði gert að greiða útsvar til sveit­ar­fé­laga.

Þetta kemur fram í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar fyrir kom­andi þing­vet­ur. Þar segir að með frum­varp­inu verði lagðar til end­ur­skoð­aðar og ein­fald­ari reglur um reiknað end­ur­gjald í atvinnu­rekstri eða sjálf­stæðri starf­semi aðila í eigin rekstri með það að mark­miði að varna mis­munun í skatt­lagn­ingu úttekta eig­enda úr félög­um. „Þá verður reglu­verk í kringum tekju­til­flutn­ing tekið til end­ur­skoð­unar til að tryggja að þau sem hafa ein­göngu fjár­magnstekjur reikni sér end­ur­gjald og greiði þannig útsvar.“

Þar er þó ekk­ert rætt um þrepa­skiptan fjár­magnstekju­skatt.

Katrín segir tíma aðgerða kom­inn

Málið var tekið upp í síð­ustu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­um. Það rataði í kjöl­farið inn í stjórn­­­­­­­­­­­­­ar­sátt­­­­­­­mála rík­­­­­­­is­­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­­­ar­innar frá 30. nóv­­­­­­­em­ber 2021. Þar segir að reglu­verk í kringum tekju­til­­­­­­­flutn­ing yrði „tekið til end­­­­­­­ur­­­­­­­skoð­unar til að tryggja að þau sem hafa ein­­­­­­­göngu fjár­­­­­­­­­­­­­magnstekjur reikni sér end­­­­­­­ur­­­­­­­gjald og greiði þannig útsvar.“

[adspot]Katrín Jak­obs­dóttir, for­­manns Vinstri grænna og for­­sæt­is­ráð­herra, ræddi þetta mál í ræðu á flokks­ráðs­fundi flokks síns á Ísa­­firði í síð­asta mán­uði. Þar sagði hún að Vinstri græn myndu halda áfram að vinna að rétt­lát­­­ara skatt­­­kerfi á Íslandi. „Nú er kom­inn tími til að breyta skatt­lagn­ingu þeirra sem fyrst og fremst hafa fjár­­­­­magnstekjur og tryggja að þau greiði sann­­­gjarnan hlut í útsvar til sveit­­­ar­­­fé­lag­anna til að fjár­­­­­magna þau mik­il­vægu verk­efni sem þau sinna ekki síst í félags- og vel­­­ferð­­­ar­­­þjón­ust­u. Um það hefur verið talað í tutt­ugu ár en nú er kom­inn tími aðgerða.“

Efsta tíundin tekur til sín 81 pró­­sent fjár­­­magnstekna

Fjár­­­­­­­­­magnstekjur eru þær tekjur sem ein­stak­l­ingar hafa af eignum sín­­­­­um. Þær eru til að mynda vext­ir, arð­­­­­ur, sölu­hagn­aður eða leig­u­­­­­tekjur af lausafé og af útleigu á fast­­­­­eign­­­­­um. Þeir sem fá mestar fjár­­­­­­­magnstekjur á Íslandi eru því sá hópur ein­stak­l­inga sem á flest hluta­bréf og flestar fast­­­­eign­­­­ir. Sá hópur sem hefur sankað að sér flestum eign­­­­um.

Sá hópur sem jók fjár­­­­­magnstekjur sínar mest í fyrra var allra tekju­hæsta tíund lands­­­manna. Kjarn­inn greindi frá því í júlí að í grein­ingu á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­l­inga eftir tekju­­­­­tí­und­um, sem Bjarni kynnti á rík­­­­­is­­­­­stjórn­­­­­­­­­ar­fundi 22. júní síð­­­­­ast­lið­inn, hafi komið fram að þau tíu pró­­­­­sent lands­­­­­manna sem höfðu mestar fjár­­­­­­­­­magnstekjur á síð­­­­­asta ári hafi tekið til sín 81 pró­­­­­sent allra fjár­­­­­­­­­magnstekna ein­stak­l­inga á árinu 2021.

Alls höfðu ein­stak­l­ingar 181 millj­­­­­arð króna í fjár­­­­­­­­­magnstekjur í fyrra og því liggur fyrir að efsta tíund­in, sem telur nokkur þús­und fjöl­­­­­skyld­­­­­ur, var með tæp­­­­­lega 147 millj­­­­­arða króna í fjár­­­­­­­­­magnstekjur á síð­­­­­asta ári. Heild­­­­­ar­fjár­­­­­­­­­magnstekjur ein­stak­l­inga hækk­­­­­uðu um 57 pró­­­­­sent milli ára, eða alls um 65 millj­­­­­arða króna. Mest hækk­­­­­­aði sölu­hagn­aður hluta­bréfa sem var 69,5 millj­­­­­­arðar króna á árinu 2021.

Ráð­­stöf­un­­ar­­tekjur fjár­­­magns­eig­enda hækk­­uðu mest

Hjá þeim heim­ilum í land­inu sem höfðu hæstar tekjur hækk­­­uðu ráð­­­stöf­un­­­ar­­­tekjur að með­­­al­tali um ríf­­­lega tíu pró­­­sent, að lang­­­mestu leyti vegna auk­inna fjár­­­­­magnstekja.

Tekju­hækkun hjá öðrum hópum sam­­­fé­lags­ins var mun minni, en kaup­máttur ráð­­­stöf­un­­­ar­­­tekna ein­stak­l­inga hækk­­­aði að með­­­al­tali um 5,1 pró­­­sent í fyrra.

Þetta þýðir að ráð­­stöf­un­­ar­­tekjur efsta tekju­hóps­ins hækk­­uðu mun meira hlut­­falls­­lega en ann­­arra tekju­hópa ofan á það að tekjur þess hóps voru meiri fyr­­ir. Krón­unum í vasa þeirra sem höfðu miklar fjár­­­magnstekjur fjölg­aði því umtals­vert meira en í vasa þeirra sem þáðu fyrst og síð­­­ast launa­­tekjur á síð­­asta ári.

Skatt­­byrði efsta tekju­hóps­ins dróst saman

Fjár­­­­­­­­­magnstekjur dreifast mun ójafnar en launa­­­­­tekj­­­­­ur. Þær lendi mun frekar hjá tekju­hæstu hópum lands­ins, sem eiga mestar eign­­­­­ir.

Alls um níu pró­­­­sent þeirra sem telja fram skatt­greiðslur á Íslandi fá yfir höfuð fjár­­­­­­­magnstekj­­­­ur. Fjár­­­­­­­magnstekju­skattur er líka 22 pró­­­­­­sent, sem er mun lægra hlut­­­­­­fall en greitt er af t.d. launa­­­­­­tekj­um, þar sem skatt­hlut­­­­­­fallið er frá 31,45 til 46,25 pró­­­­­­sent eftir því hversu háar tekj­­­­­­urnar eru.

[adspot]Í nýlegu Mán­að­­­ar­yf­­­ir­liti ASÍ kom fram að skatt­­­byrði hafi heilt yfir auk­ist í fyrra þegar hún er reiknuð sem hlut­­­fall tekju- og fjár­­­­­magnstekju­skatts af heild­­­ar­­­tekj­­­um. Hún fór úr 22,4 pró­­­sent af heild­­­ar­­­tekjum í 23,4 pró­­­sent.

Skatt­­byrði efstu tíund­­­ar­innar dróst hins vegar sam­­­an. Árið 2020 borg­aði þessi hópur 28,9 pró­­­sent af tekjum sínum í skatta en 27,3 pró­­­sent í fyrra. Skatt­­­byrði allra ann­­­arra hópa, hinna 90 pró­­­sent heim­ila í land­inu, jókst á sama tíma.

Í minn­is­­­­­blaði um áður­­­­­­­nefnda grein­ing­u sem lagt var fyrir rík­­­­­is­­­­­stjórn í síð­­­­asta mán­uði var þetta stað­­­­­fest. Þar kom fram að hækk­­­­­andi skatt­greiðslur efstu tekju­­­­­tí­und­­­­­ar­innar séu fyrst og síð­­­­­­­­­ast til­­­­­komnar vegna þess að fjár­­­­­­­­­magnstekjur þeirra hafa stór­­­­­auk­ist, enda greiðir þessi hópur 87 pró­­­­­sent af öllum fjár­­­­­­­­­magnstekju­skatti.

Ofurhagnaður banka

Hug­myndir um svo­kall­aðan hval­reka­skatt hafa líka verið umtals­vert ræddar hér­lendis, eftir að Lilja D. Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, viðr­aði hug­myndir um álagn­ingu hans í febrúar. Hún sagð­ist þá hafa þegar rætt málið við Sigurð Inga, for­mann síns flokks, og að þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins styddi hug­mynd­ina. „Ég er í stjórn­málum til þess að breyta rétt. Ég tel að þegar það er ofur­hagn­aður ein­hvers staðar þá eigi að skatt­leggja hann.“

[links]Tilefnið var að stóru bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Arion banki og Íslands­banki högn­uð­ust um 81,2 millj­arða króna á síð­asta ári og um 111 millj­arða króna á eins og hálfs árs tíma­bili á tímum þar sem heims­far­aldur geis­aði. Seðla­banki Íslands og rík­is­stjórnin lögð­ust í ýmsar örv­un­ar­að­gerðir vegna far­ald­urs­ins. Þær aðgerðir mynd­uðu und­ir­stöð­una fyrir hagnað bank­anna þriggja. Lilja sagð­ist hissa á því hvað sumir væru við­kvæmir fyrir umræðu um aukna skatt­lagn­ingu þegar verið væri að tala um svona mik­inn hagn­að.

Sjáv­ar­út­veg­ur­inn hefur líka skilað gríð­ar­legum hagn­aði á und­an­förnum árum. Sam­tals hagn­að­ist sjá­v­­­ar­út­­­veg­­ur­inn um 468 millj­­arða króna frá byrjun árs 2009 og til loka árs 2020. Frá árinu 2009 hafa sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tæki greitt 126,3 millj­­arðar króna í arð til eig­enda sinna. Auk þess sátu eftir 325 millj­­arðar króna í eigið fé í útgerð­­ar­­fyr­ir­tækj­unum um síð­­­ustu ára­­mót. Það jókst um 28 millj­­arða króna í fyrra þrátt fyrir metarð­greiðsl­­ur. Hagur sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja í heild vænk­að­ist því um næstum 50 millj­­arða króna á síð­­asta ári.

Á árinu 2020 greiddu sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tæki lands­ins, þ.e. þau sem stunda útgerð, alls 17,4 millj­­arða króna í opin­ber gjöld. Þar er um að ræða tekju­skatt, trygg­inga­gjald og hið sér­­tæka veið­i­­gjald, sem sam­tals nam 4,8 millj­­örðum króna. Sama ár greiddu eig­endur sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja sér út arð upp á 21,5 millj­­arða króna. Það var hæsta arð­greiðsla sem atvinn­u­­greinin hefur greitt til eig­enda sinna á einu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár