Katrín vill hækka skatta á fjármagnstekjur – Bjarni segir að það standi ekki til

Fjár­magns­eig­endur, sem til­heyra rík­ustu tíu pró­sent lands­ins, juku ráð­stöf­un­arfé sitt langt um meira í fyrra en aðrir tekju­hópar en skatt­byrði þeirra lækk­aði. Ekki er sátt á meðal leið­toga rík­is­stjórn­ar­innar um hvort hækka eigi álögur á fjár­magns­eig­endur.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að ekki standi til að hækka fjár­magnstekju­skatta. Það sé ekki gert ráð fyrir skatta­hækk­unum í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar. Þetta kemur fram í svari Bjarna við fyr­ir­spurn Við­skipta­Mogg­ans, fylgi­blaðs Morg­un­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, sem greint er frá í dag.

Þar er Bjarni að bregð­ast við orðum Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra, sem sagði í ræðu á flokks­ráðs­fundi flokks síns á Ísafirði á laug­ar­dag að Vinstri græn myndu halda áfram að vinna að rétt­lát­ara skatt­kerfi á Íslandi. „Nú er kom­inn tími til að breyta skatt­lagn­ingu þeirra sem fyrst og fremst hafa fjár­magnstekjur og tryggja að þau greiði sann­gjarnan hlut í útsvar til sveit­ar­fé­lag­anna til að fjár­magna þau mik­il­vægu verk­efni sem þau sinna ekki síst í félags- og vel­ferð­ar­þjón­ust­u. Um það hefur verið talað í tutt­ugu ár en nú er kom­inn tími aðgerða.“

Í stjórn­­­­­­­­­ar­sátt­­­­­mála rík­­­­­is­­­­­stjórn­­­­­­­­­ar­innar frá 30. nóv­­­­­em­ber 2021 sagði að reglu­verk í kringum tekju­til­­­­­flutn­ing yrði „tekið til end­­­­­ur­­­­­skoð­unar til að tryggja að þau sem hafa ein­­­­­göngu fjár­­­­­­­­­magnstekjur reikni sér end­­­­­ur­­­­­gjald og greiði þannig útsvar.“

Efsta tíundin tekur til sín 81 prósent fjármagnstekna

Fjár­­­­­magnstekjur eru þær tekjur sem ein­stak­l­ingar hafa af eignum sín­­­um. Þær eru til að mynda vext­ir, arð­­­ur, sölu­hagn­aður eða leig­u­­­tekjur af lausafé og af útleigu á fast­­­eign­­­um. Þeir sem fá mestar fjár­­­magnstekjur á Íslandi eru því sá hópur ein­stak­l­inga sem á flest hluta­bréf og flestar fast­­eign­­ir. Sá hópur sem hefur sankað að sér flestum eign­­um.

[adspot]Sá hópur sem jók fjár­magnstekjur sínar mest í fyrra var allra tekju­hæsta tíund lands­manna. Kjarn­inn greindi frá því í júlí að í grein­ingu á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­l­inga eftir tekju­­­tí­undum, sem Bjarni kynnti á rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­fundi 22. júní síð­­­ast­lið­inn, hafi komið fram að þau tíu pró­­­sent lands­­­manna sem höfðu mestar fjár­­­­­magnstekjur á síð­­­asta ári hafi tekið til sín 81 pró­­­sent allra fjár­­­­­magnstekna ein­stak­l­inga á árinu 2021.

Alls höfðu ein­stak­l­ingar 181 millj­­­arð króna í fjár­­­­­magnstekjur í fyrra og því liggur fyrir að efsta tíund­in, sem telur nokkur þús­und fjöl­­­skyld­­­ur, var með tæp­­­lega 147 millj­­­arða króna í fjár­­­­­magnstekjur á síð­­­asta ári. Heild­­­ar­fjár­­­­­magnstekjur ein­stak­l­inga hækk­­­uðu um 57 pró­­­sent milli ára, eða alls um 65 millj­­­arða króna. Mest hækk­­­­aði sölu­hagn­aður hluta­bréfa sem var 69,5 millj­­­­arðar króna á árinu 2021.

Ráðstöfunartekjur fjármagnseigenda hækkuðu mest

Hjá þeim heim­ilum í land­inu sem höfðu hæstar tekjur hækk­uðu ráð­stöf­un­ar­tekjur að með­al­tali um ríf­lega tíu pró­sent, að lang­mestu leyti vegna auk­inna fjár­magnstekja.

[adspot]Tekju­hækkun hjá öðrum hópum sam­fé­lags­ins var mun minni, en kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna ein­stak­linga hækk­aði að með­al­tali um 5,1 pró­sent í fyrra.

Þetta þýðir að ráð­stöf­un­ar­tekjur efsta tekju­hóps­ins hækk­uðu mun meira hlut­falls­lega en ann­arra tekju­hópa ofan á það að tekjur þess hóps voru meiri fyrir. Krónunum í vasa þeirra sem höfðu miklar fjár­magnstekjur fjölg­aði því umtals­vert meira en í vasa þeirra sem þáðu fyrst og síð­ast launa­tekjur á síð­asta ári.

Skattbyrði efsta tekjuhópsins dróst saman

Fjár­­­­­magnstekjur dreifast mun ójafnar en launa­­­tekj­­­ur. Þær lendi mun frekar hjá tekju­hæstu hópum lands­ins, sem eiga mestar eign­­­ir.

[links]Alls um níu pró­­sent þeirra sem telja fram skatt­greiðslur á Íslandi fá yfir höfuð fjár­­­magnstekj­­ur. Fjár­­­magnstekju­skattur er líka 22 pró­­­­sent, sem er mun lægra hlut­­­­fall en greitt er af t.d. launa­­­­tekj­um, þar sem skatt­hlut­­­­fallið er frá 31,45 til 46,25 pró­­­­sent eftir því hversu háar tekj­­­­urnar eru.

Í nýlegu Mán­að­ar­yf­ir­liti ASÍ kom fram að skatt­byrði hafi heilt yfir auk­ist í fyrra þegar hún er reiknuð sem hlut­fall tekju- og fjár­magnstekju­skatts af heild­ar­tekj­um. Hún fór úr 22,4 pró­sent af heild­ar­tekjum í 23,4 pró­sent.

Skatt­byrði efstu tíund­ar­innar dróst hins vegar sam­an. Árið 2020 borg­aði þessi hópur 28,9 pró­sent af tekjum sínum í skatta en 27,3 pró­sent í fyrra. Skatt­byrði allra ann­arra hópa, hinna 90 pró­sent heim­ila í land­inu, jókst á sama tíma.

Í minn­is­­­blaði um áður­­­nefnda grein­ing­u sem lagt var fyrir rík­­­is­­­stjórn í síð­­asta mán­uði var þetta stað­­­fest. Þar kom fram að hækk­­­andi skatt­greiðslur efstu tekju­­­tí­und­­­ar­innar séu fyrst og síð­­­­­ast til­­­komnar vegna þess að fjár­­­­­magnstekjur þeirra hafa stór­­­auk­ist, enda greiðir þessi hópur 87 pró­­­sent af öllum fjár­­­­­magnstekju­skatti.

Mestar á Nesinu og í Garðabæ

Með­­al­tals­fjár­­­magnstekjur íbúa á Sel­tjarn­­ar­­nesi og í Garðabæ voru umtals­vert hærri á síð­asta ári en í öðrum stærri sveit­­ar­­fé­lögum á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­in­u. Á Sel­tjarn­ar­nesi voru þær 1.585 þús­und krónur á hvern íbúa í fyrra en 1.556 þús­und krónur í Garða­bæ. Á sama tíma voru þær 679 þús­und krónur á hvern íbúa Reykja­vík­­­ur, 746 þús­und krónur á íbúa í Kópa­vogi, 554 þús­und krónur á íbúa í Mos­­fellsbæ og 525 þús­und krónur í Hafn­­ar­­firð­i.

Alls var með­­al­­tal fjár­­­magnstekna á land­inu 709 þús­und krónur og því voru með­­al­fjár­­­magnstekjur á íbúa á Sel­tjarn­­ar­­nesi tæp­­lega 124 pró­­sent hærri en hjá meðal Íslend­ingn­um og næstum 130 pró­sent hærri en hjá íbúum Reykja­vík­ur, Þess sveit­ar­fé­lags sem liggur að Nes­in­u.

Þetta kemur fram í nýlegum tölum frá Hag­stofu Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár