Ríkustu tíu prósent landsmanna juku virði sitt í verðbréfum um 93 milljarða í fyrra

Efsta tekju­tí­undin á næstum 90 pró­sent af öllum verð­bréfum í eigu ein­stak­linga á Íslandi. Verðbréf hennar voru bók­færð á 628 millj­arða króna í lok síð­asta árs en sú tala er van­metin þar sem bréfin eru bók­færð á nafn­virði, ekki mark­aðsvirði.

Rík­ustu tíu pró­sent Íslend­inga juku eign sína í verð­bréfum um 93,4 millj­arða króna á árinu 2021. Það er mun meira en hóp­ur­inn jók þá eign árið 2020, þegar virði verð­bréfa­eignar hans jókst um 53,8 millj­arða króna.

Heild­ar­aukn­ing í eign á verð­bréf­um, sem eru að uppi­stöðu hluta­bréf og skulda­bréf, á meðal allra lands­manna var upp á 105,3 millj­arða króna. Því eign­að­ist efsta tíund­in, rúm­lega 23 þús­und ein­stak­ling­ar, í tekju­stig­anum 89 pró­sent af virði nýrra verð­bréfa á síð­asta ári.

Þetta má lesa út úr tölum Hag­stofu Íslands um eignir og skuldir lands­manna sem birtar voru í vik­unni. Þær tölur taka ekki með í reikn­ing­inn hlut­deild lands­manna í eignum líf­eyr­is­sjóða, sem eiga stóran hluta allra verð­bréfa á Ísland­i.

Efsta tekju­tí­undin á alls verð­bréf sem bók­færð voru á 628 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Hún á tæp­lega 86 pró­sent af öllum verð­bréfum í eigu ein­stak­linga á Íslandi. Frá árinu 2010 hefur bók­færð verð­bréfa­eign þessa hóps auk­ist um 316 millj­arða króna. Heild­ar­aukn­ing á bók­færðu virði verð­bréfa á tíma­bil­inu jókst um 359 millj­arða króna. Það þýðir að 88 pró­sent af allri aukn­ing­unni á virði þessa eigna­flokkar hefur lent hjá efstu tekju­tí­und­inni.

[adspot]Kjarninn greindi frá því á fimmtu­dag að á árinu 2021 hafi orðið til 608 nýir millj­arðar króna í eigið fé hjá íslenskum heim­il­um. Sá hópur lands­manna sem til­heyrir þeim tíu pró­sentum sem höfðu hæstu tekj­urnar jók eign sína á árinu um 331 millj­arð króna. Það þýðir að 54,4 pró­sent af nýjum auð sem varð til í fyrra lenti hjá þessum hópi.

Þessi auður varð fyrst og síð­ast til vegna ofan­greindar aukn­ingar á virði verð­bréfa, hækk­unar á virði fast­eigna í eigu hóps­ins og stór­auk­inna fjár­magnstekna, sem inni­halda meðal ann­ars sölu­hagnað og arð­greiðslur verð­bréfa.

Dróst saman í hruninu

Árið 2010 var heild­ar­eign þjóð­ar­innar í verð­bréfum metin á 374 millj­arða króna. Af þeirri tölu átti efsta tíundin 312 millj­arða króna í slíkum eign­um, eða rúm 83 pró­sent. Upp­gefið virði allra verð­bréfa í eigu Íslend­inga hafði þá dreg­ist saman um fjórð­ung síðan í árs­lok 2007, enda banka­hrun átt sér stað í milli­tíð­inni. Þar er þó ein­ungis um tap að nafn­virði að ræða þegar kemur að hluta­bréf­um. Þorri þeirra var met­inn mun hærra að mark­aðsvirði og bók­halds­legt tap þeirra sem héldu á bréfum í skráðum félögum þegar þau urðu verð­laus í hrun­inu mun hærra.

Út á þær bók­halds­legu tölur – hækk­anir á virði hluta­bréfa – höfðu margir tekið ný lán sem þeir gátu keypt sér raun­veru­lega hluti fyrir sem halda betur verð­mæt­i.

Á ára­tug, frá 2010 til 2020, jókst heild­ar­virði verð­bréfa sem gefin eru upp í skatt­skýrslu lands­manna um 253,2 millj­arða króna. Af því heild­ar­virði höfðu 222,3 millj­arðar króna lent hjá efstu tíund­inni, eða 88 pró­sent.

Hlutabréfaverð rauk upp í faraldrinum

Sama hlut­falls­lega þróun hélt áfram í fyrra, en þá áttu sér stað tvær stórar skrán­ingar á aðal­markað Kaup­hallar Íslands þegar Síld­ar­vinnslan og Íslands­banki voru skráð á markað. Miklar örv­un­ar­að­gerðir stjórn­valda og Seðla­banka Íslands spil­uðu þar stóra rullu. Öll félögin sem skráð eru á aðal­markað Kaup­hall­ar­innar hækk­uðu í virði í fyrra. Mest hækk­aði Arion banki, en mark­aðsvirði hans tvö­fald­að­ist á einu ári. Fyrir utan líf­eyr­is­sjóði lands­ins, sem eiga um og yfir helm­ing allra hluta­bréfa, eru íslensk hluta­bréf að uppi­stöðu í eigu rík­ustu tekju­tí­undar lands­manna.

[links]Það sást skýst í grein­ingu á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­l­inga eftir tekju­­tí­undum sem Bjarni Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti á rík­­is­­stjórn­­­ar­fundi 22. júní síð­­ast­lið­inn.

Þar kom fram að þau tíu pró­­sent lands­­manna sem höfðu mestar fjár­­­magnstekjur á síð­­asta ári tóku til sín 81 pró­­sent allra fjár­­­magnstekna ein­stak­l­inga á árinu 2021. Alls höfðu ein­stak­l­ingar 181 millj­­arð króna í fjár­­­magnstekjur í fyrra og því liggur fyrir að efsta tíund­in, sem telur nokkur þús­und fjöl­­skyld­­ur, var með tæp­­lega 147 millj­­arða króna í fjár­­­magnstekjur á síð­­asta ári.

Heild­­ar­fjár­­­magnstekjur ein­stak­l­inga hækk­­uðu um 57 pró­­sent milli ára, eða alls um 65 millj­­arða króna. Mest hækk­­­aði sölu­hagn­aður hluta­bréfa sem var 69,5 millj­­­arðar króna á árinu 2021. Ljóst má vera að þorri þeirrar aukn­ingar lenti hjá efstu tekju­­tí­und­inni, sem er sá hópur sem á meg­in­þorra hluta­bréfa í eigu ein­stak­l­inga á Íslandi.

Ráð­­stöf­un­­ar­­tekjur efstu tekju­­tí­undar hækk­­uðu mest

Fjár­­­magnstekjur dreifast mun ójafnar en launa­­tekj­­ur. Þær lendi mun frekar hjá tekju­hæstu hópum lands­ins, sem eiga mestar eign­­ir.

Í minn­is­­blaði um áður­nefnda grein­ing­u sem lagt var fyrir rík­­is­­stjórn er þetta stað­­fest. Þar kemur fram að hækk­­andi skatt­greiðslur efstu tekju­­tí­und­­ar­innar séu fyrst og síð­­­ast til­­komnar vegna þess að fjár­­­magnstekjur þeirra hafa stór­­auk­ist, enda greiðir þessi hópur 87 pró­­sent af öllum fjár­­­magnstekju­skatti. Þessar auknu tekjur gerðu það að verkum að inn­­heimtur fjár­­­magnstekju­skattur jókst um 73 pró­­sent, eða 16,3 millj­­arða króna, milli áranna 2020 og 2021.

Heild­­ar­­tekj­­ur, hvort sem þær eru laun vegna vinna eða fjár­­­magnstekjur mynda, auk bóta, ráð­­stöf­un­­ar­­tekjur ein­stak­l­inga. Kaup­máttur ráð­­stöf­un­­ar­­tekna hækk­­aði að með­­al­tali um 5,1 pró­­sent á árinu 2021 og náði sú aukn­ing yfir allar tekju­­tí­und­­ir. Í minn­is­­blaði ráðu­­neyt­is­ins segir hins veg­­ar: „Mikil aukn­ing fjár­­­magnstekna gerir það að verkum að með­­al­­tal efstu tíund­­ar­innar hækkar mest.“

Þessar upp­­lýs­ing­­ar, að með­­al­­tal ráð­­stöf­un­­ar­­tekna hafi hækkað mest hjá tekju­hæstu tíu pró­­sent þjóð­­ar­inn­­ar, var ekki að finna í umfjöllun um grein­ing­una á vef stjórn­­­ar­ráðs­ins. Þess í stað voru birtar upp­­lýs­ingar um mið­­gildi kaup­máttar ráð­­stöf­un­­ar­­tekna, sem sýndu allt aðra mynd en með­­al­­tal myndi sýna.

Í umfjöll­un­inni var heldur ekki minnst á að 81 pró­­sent allra fjár­­­magnstekna hafi ratað til efstu tekju­­tí­und­­ar­innar á árinu 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár