Vill skattleggja ofurhagnað sjávarútvegs og banka og segist hafa stuðning Framsóknar

Vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks og ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands vill leggja hval­reka­skatt á þá sem skila ofsa­gróða og nefnir sér­stak­lega banka og sjáv­ar­út­veg. Hún segir allan þing­flokk Fram­sóknar styðja nálgun hennar.

Lilja Alfreðs­dóttir, ferða­mála-, við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins sem situr í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál, segir að hún vilji mögu­lega láta leggja á hval­reka­skatt. „Ef það er ofsa­gróði eða ofur­hagn­aður hjá ein­hverjum aðilum, þá eigum við að gera það. Ég er líka á þeirri skoðun að þetta ætti að eiga sér stað varð­andi sjáv­ar­út­veg­inn. Þar sem við sáum ofur­hagnað í ein­hverjum greinum þá á að skatt­leggja það.“

Þetta sagði Lilja í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í morgun. Áður hafði Lilja greint frá því að hún vildi hækka banka­skatt í ljósi þess að stóru bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Arion banki og Íslands­banki högn­uð­ust um 81,2 millj­arða króna á síð­asta ári og um 111 millj­arða króna á eins og hálfs árs tíma­bili á tímum þar sem heims­far­aldur geis­aði. Seðla­banki Íslands og rík­is­stjórnin lögð­ust í ýmsar örv­un­ar­að­gerðir vegna far­ald­urs­ins. Þær aðgerðir mynd­uðu und­ir­stöð­una fyrir hagnað bank­anna þriggja. Lilja sagð­ist hissa á því hvað sumir væru við­kvæmir fyrir umræðu um aukna skatt­lagn­ingu þegar verið væri að tala um svona mik­inn hagnað. Ef við setjum það í eitt­hvað sam­hengi þá væri hægt að reka alla fram­halds­skóla lands­ins í þrjú ár. Það væri hægt að reka alla menn­ing­una í tíu ár. Við erum að tala um þannig fjár­hæðir.“

Sjáv­ar­út­veg­ur­inn hefur líka skilað gríð­ar­legum hagn­aði á und­an­förnum árum. Sam­tals hagn­að­ist sjáv­ar­út­veg­ur­inn um 468 millj­arða króna frá byrjun árs 2009 og til loka árs 2020. Frá árinu 2009 hafa sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki greitt 126,3 millj­arðar króna í arð til eig­enda sinna. Auk þess sátu eftir 325 millj­arðar króna í eigið fé í útgerð­ar­fyr­ir­tækj­unum um síð­ustu ára­mót. Það jókst um 28 millj­arða króna í fyrra þrátt fyrir metarð­greiðsl­ur. Hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja í heild vænk­að­ist því um næstum 50 millj­arða króna á síð­asta ári.

[adspot]Á árinu 2020 greiddu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, þ.e. þau sem stunda útgerð, alls 17,4 millj­arða króna í opin­ber gjöld. Þar er um að ræða tekju­skatt, trygg­inga­gjald og hið sér­tæka veiði­gjald, sem sam­tals nam 4,8 millj­örðum króna. Sama ár greiddu eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sér út arð upp á 21,5 millj­arða króna. Það var hæsta arð­greiðsla sem atvinnu­greinin hefur greitt til eig­enda sinna á einu ári.

Búin að tala við formanninn og með stuðning þingflokksins

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttir lækk­aði bæði veiði­gjöld og banka­skatt á síð­asta kjör­tíma­bili. Enn sem komið er hefur eng­inn ráð­herra í rík­is­stjórn­inni stigið fram og lýst opin­ber­lega stuðn­ingi við til­lögur Lilju um að hækka banka­skatt eða leggja hval­reka­skatt á þá sem hagn­ast með af gengi banka og á sjáv­ar­út­vegs.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði við vef Frétta­blaðs­ins í gær að hann væri alfarið á móti hug­mynd­inni um banka­skatt.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra minnt­ist ekk­ert á banka­skatt þegar rætt var við hana um hlut­verk bank­anna í end­ur­upp­bygg­ingu hér­lendis eftir far­aldur í hádeg­is­fréttum RÚV á föstu­dag. Enn fremur sagði við vef Frétta­blaðs­ins sama dag að Lilja hefði ekki rætt hug­myndir sínar um banka­skatt í rík­is­stjórn.

[links]Kristján Krist­jáns­son, umsjón­ar­maður Sprengisands, þrá­spurði Lilju í morgun hvort hún hefði stuðn­ing innan rík­is­stjórnar við áform sín. Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, var einnig gestur þátt­ar­ins. Hún sagði yfir­lýs­ingar Lilju frá­bærar og að gott væri að áhrifa­mann­eskja í rík­is­stjórn tal­aði með þessum hætti. Kristrún vildi hins vegar sjá aðgerðir strax og vildi, líkt og Kristján, fá að vita hvort þær væru á teikni­borð­inu.

Aðspurð um hvar Vinstri græn og for­sæt­is­ráð­herr­ann stæði í mál­inu svar­aði Lilja því ekki með skýrum hætti. Hún svar­aði því heldur ekki hvort hækkun banka­skatts eða hval­reka­skattur hefði verið ræddur í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál. Lilja sagð­ist hins vegar vera búin að tala við for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sigurð Inga Jóhanns­son, um málið og ræða það við allan þing­flokk­inn. „Allur þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins styður þessa nálgun.“

Hún sagð­ist ætla að sækja stuðn­ing við til­lög­urnar í rík­is­stjórn. „Ég er í stjórn­málum til þess að breyta rétt. Ég tel að þegar það er ofur­hagn­aður ein­hvers staðar þá eigi að skatt­leggja hann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár