Fátt bendir til þess að hugmyndir Lilju um bankaskatt hafi stuðning innan ríkisstjórnar

Hækkun á banka­skatti var síð­ast lögð til í des­em­ber síð­ast­liðnum á Alþingi. Þá lá þegar fyrir að bankar lands­ins myndu skila miklum hagn­aði á síð­asta ári. Til­lög­unni var hafnað. Vaxta­munur banka er enn hár í alþjóð­legum sam­an­burði.

Innan ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur er ekki sýnilegur vilji til að hækka bankaskatt á ný.
Innan rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur er ekki sýni­legur vilji til að hækka banka­skatt á ný. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Alfreðs­dótt­ir, ferða­mála-, við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra sem situr í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál, sagði við Morg­un­blaðið í gær að ef bankar lands­ins myndu ekki sjálfir mæta heim­ilum lands­ins í vaxta­verð­lagn­ingu gæti þurft að „end­­ur­vekja banka­skatt, eins og við gerðum á sín­um tíma, til að dreifa þess­um byrð­u­m.“ Tilefnið var það sem hún kall­aði „ofur­hagnað“ kerf­is­lega mik­il­vægu bank­ana hér­lendis. Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn högn­uð­ust sam­tals um 81,2 millj­arða króna á síð­asta ári. Það er 170 pró­sent meiri hagn­aður en þeir skil­uðu árið 2020.

Banka­skatt­ur­inn er reyndar enn við lýði, þótt hann hafi verið lækk­aður úr 0,376 í 0,145 pró­sent í fyrsta efna­hag­s­pakka rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Þetta rýrði tekjur rík­is­sjóðs vegna skatts­ins um meira en sex millj­arða króna á ári. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur verið opin­skár með þá skoðun sína á und­an­förnum árum að banka­skatt­ur­inn þyrfti að lækka. Í kjöl­far þess að hann kynnti frum­varp um að lækka skatt­inn í skrefum haustið 2019 sagði Bjarni í stöðu­upp­færslu á Twitter að banka­skatt­ur­inn þyrfti að fara.

Enginn annar ráð­herra í rík­is­stjórn­inni hefur opin­ber­lega tekið undir hug­myndir Lilju um frek­ari skatt­lagn­ingu á banka vegna „ofur­hagn­aðar“ þeirra og þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Óli Björn Kárason, sagði við vef Frétta­blaðs­ins í gær að hann væri vond hug­mynd. „Ég ætla að full­yrða það að það er eng­inn hljóm­grunnur fyrir slíkri skatt­heimtu í þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“ Bjarni sagði svo sjálfur við sama vef í dag að hann væri alfarið á móti hug­mynd­inni um banka­skatt.

Hækkun bankaskatts lögð til í desember en tillögunni hafnað

Við­mæl­endur Kjarnans innan, úr stjórn­málum og fjár­mála­geir­anum, telja engar líkur á því að rík­is­stjórnin muni standa að hækkun banka­skatts á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili. Hún sé að ein­beita sé að því að selja eft­ir­stand­andi 65 pró­sent hlut í Íslands­banka og að hærri banka­skattur gæti haft áhrif á þá sölu.

[adspot]Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra minnt­ist til að mynda ekk­ert á banka­skatt þegar rætt var við hana um hlut­verk bank­anna í end­ur­upp­bygg­ingu hér­lendis eftir far­aldur í hádeg­is­fréttum RÚV í dag. Hún sagði það mik­il­vægt að þeir sýndu við­skipta­vinum sínum svig­rúm og að arð­greiðslur út úr Lands­bank­anum, sem er að öllu leyti í eigu rík­is­ins, og Íslands­banka, sem er enn í 65 pró­sent eigu rík­is­ins, yrðu að hluta nýttar í mik­il­vægar félags­legar aðgerðir að loknum far­aldri. Hún sagði enn fremur við vef Frétta­blaðs­ins að Lilja hefði ekki rætt hug­myndir sínar um banka­skatt í rík­is­stjórn.

[links]Það við­mót fær stuðn­ing í því að stutt er síðan að lögð var fram til­laga innan þings um að hækka banka­skatt­inn, sem fékk ekki fram að ganga. Um er að ræða breyt­ing­ar­til­lögu við band­orm vegna fjár­laga­frum­varps 2022 sem Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, þing­maður Flokks fólks­ins, lagði fram í des­em­ber. Á þeim tíma lá þegar fyrir að kerf­is­lega mik­il­vægu bank­arnir myndu hagn­ast gríð­ar­lega á síð­asta ári. Hagnaður þeirra á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021 var enda 60 millj­arðar króna.

Ást­hildur Lóa vís­aði í grein­ar­gerð sinn í að lækkun banka­skatts hafi ekki skilað þeim árangri sem stjórn­völd hefðu von­ast eftir, þ.e. að vaxta­munur myndi lækka skarpt. Það hefur ekki gerst. Árið 2020 var vaxta­munur banka 2,5-2,9 pró­sent en í fyrra 2,3-2,8 pró­sent. Til sam­an­­­burðar þá var vaxta­munur nor­ræna banka sem eru svip­aðir að stærð og þeir íslensku 1,68 pró­­­sent á árinu 2020. Hjá stórum nor­rænum bönkum er hann undir einu pró­­­senti, sam­­­kvæmt því sem fram kom í árs­­­riti Sam­­­taka fjár­­­­­mála­­­fyr­ir­tækja fyrir það ár.

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar gerði þrátt fyrir það ekk­ert með til­lögu Ást­hildar Lóu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár