Ráðherra segir banka eiga að nota „ofurhagnað“ til að lækka vexti

Lilja Alfreðs­dóttir segir að ef bank­arnir útfæri ekki sjálfir leið til að nota mik­inn hagnað sinn til að styðja við heim­ili og fyr­ir­tæki í land­inu komi til greina að hækka banka­skatt að nýju.

Lilja Alfreðsdóttir.
Lilja Alfreðs­dóttir. Mynd: RÚV/Skjáskot

Lilja Alfreðs­dóttir, ferða­mála-, við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra sem situr í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál, segir að vaxta­munur sé orð­inn of mik­ill á Íslandi, að bankar lands­ins eigi að lækka vexti á lánum heim­ila og fyr­ir­tækja í ljósi þess sem hún kallar ofur­hagnað þeirra. „ Ég tel óá­byrgt að rík­is­sjóður borgi all­an reikn­ing­inn fyr­ir far­ald­ur­inn og tel að bank­arn­ir eigi að styðja við þau heim­ili og fyr­ir­tæki, sér í lagi í ferða­þjón­ustu, sem koma einna verst út úr far­aldr­in­um. Þá vísa ég í þá sam­fé­lags­legu ábyrgð sem fjár­mála­stofn­an­ir í land­inu þurfa að sýna þegar vaxta­stigið er farið að hækka.“ Geri bank­arnir það ekki sjálfir gæti þurft að „end­ur­vekja banka­skatt, eins og við gerðum á sín­um tíma, til að dreifa þess­um byrðum.“

Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Hagnaðurinn verður nálægt 80 milljörðum

Tveir af þremur kerf­is­lega mik­il­vægum bönkum lands­ins, Arion banki og Lands­bank­inn, hafa birt upp­gjör sín fyrir árið 2021 og sá þriðji, Íslands­banki, gerir það í dag. Arion Banki hagn­að­ist um 28,6 millj­arða króna á síð­asta ári og ætlar sér að greiða 79 pró­sent þess hagn­aðar út í arð til hlut­hafa. Til við­bótar ætlar bank­inn að kaupa eigin bréf fyrir að minnsta kosti 3,4 millj­arða króna á árinu 2022. Hann skil­aði alls 31,5 millj­arði króna til hlut­hafa sinna í gegnum arð­greiðslur eða end­ur­kaup á bréfum í fyrra og hefur áform um að greiða þeim um 30 millj­arða króna til við­bótar í nán­ustu fram­tíð. Gangi þau áform eftir munu hlut­hafar bank­ans hafa fengið allt að 88 millj­arða króna greidda út úr honum frá byrjun árs 2021. Arion banki hefur líka tekið upp kaupauka- og kaup­rétt­ar­kerfi fyrir starfs­menn. Bankinn bók­færði tæp­lega 1,6 millj­arða króna kostnað vegna kaupauka­greiðslna í fyrra.

[adspot]Lands­bank­inn hagn­að­ist um 29 millj­arða króna í fyrra og ætlar að greiða eig­anda sínum, rík­is­sjóði, 14,4 millj­arða króna í arð hið minnsta. Bankinn heldur því opnu að ráð­ast í sér­staka arð­greiðslu til við­bótar.

Íslands­banki birtir sitt árs­upp­gjör í dag. Hann hagn­að­ist um 16,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum síð­asta árs og því er sam­an­lagður hagn­aður þess­ara þriggja banka kom­inn upp í 74,1 millj­arða króna áður en að hagn­aður Íslands­banka á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins 2021 er tal­inn með, en hann mun alltaf hlaupa á millj­örðum króna. Til sam­an­burðar högn­uð­ust allir bank­arnir þrír sam­an­lagt um 29,8 millj­arða króna á árinu 2020. Í fyrra högn­uð­ust bæði Arion banki og Lands­bank­inn um þá upp­hæð hvor.

Vaxtamunur miklu hærri en á Norðurlöndunum

Vaxta­munur banka er mun­ur­inn á þeim vöxtum sem bank­arnir greiða fólki og fyr­ir­tækjum fyrir inn­lán sem þau geyma hjá þeim og vöxt­unum sem þeir leggja á útlán. Sam­an­dregið þá borgar bank­inn lægri upp­hæð fyrir að fá pen­inga á láni og rukkar álag fyrir að taka þá pen­inga og end­ur­lána á hærri vöxt­um. Það álag stendur undir rekstr­ar­kostn­aði bank­ans og myndar hluta hagn­aðar hans, en almennt hafa um 70 pró­sent tekna kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna á Íslandi verið hreinar vaxta­tekj­ur.

Vert er að taka fram að bankar fjár­magna sig líka með skulda­bréfa­út­gáfu sem fag­fjár­festar kaupa, ekki ein­ungis með inn­lánum almenn­ings, líf­eyr­is­sjóða og fyr­ir­tækja.

Þeir sem greiða þá vexti eru að uppi­stöðu íslensk heim­ili og fyr­ir­tæki.

[links]Bank­arnir kvört­uðu lengi yfir því að hinn svo­kall­aði banka­skattur gerði það að verkum að vaxta­munur þyrfti að vera hár. Með því gáfu þeir til kynna að heim­ilin og fyr­ir­tækin í land­inu væru látin greiða skatt­inn. Banka­skatt­ur­inn var lækk­aður úr 0,376 í 0,145 pró­sent árið 2020 sem hluti af fyrsta efna­hag­s­pakka rík­is­stjórn­ar­innar til að bregð­ast við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Þetta rýrði tekjur rík­is­sjóðs vegna skatts­ins um meira en sex millj­arða króna á ári. Skörp lækkun banka­skatts­ins, hefur ekki skilað því að vaxta­munur banka hafi lækkað sem neinu nemur. Vaxta­munur Arion banka á síð­asta ári var 2,8 pró­sent og lækk­aði úr 2,9 pró­sent árið 2020. Vaxta­munur Lands­bank­ans var 2,3 pró­sent. Til sam­an­­burðar þá var vaxta­munur nor­ræna banka sem eru svip­aðir að stærð og þeir íslensku 1,68 pró­­sent á árinu 2020. Hjá stórum nor­rænum bönkum er hann undir einu pró­­senti, sam­­kvæmt því sem fram kom í árs­­riti Sam­­taka fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja fyrir það ár.

Lækkun banka­skatts­ins hefur hins vegar spilað inn í miklar hækk­anir á virði hluta­bréfa í þeim bönkum sem skráðir eru á mark­að. Arion banki tvö­fald­að­ist til að mynda í mark­aðsvirði í fyrra.

Kemur til greina að endurvekja bankaskattinn

Lilja segir í við­tal­inu við Morg­un­blaðið að eigna­verð hafi hækkað mikið í far­aldr­in­um, bæði hluta­bréf og fast­eign­ir, og við þær aðstæður sé ekki óeðli­legt að bank­ar skili mikl­um hagn­aði. „Þetta er hins veg­ar of­ur­hagn­aður og til þess að við öll, sam­fé­lagið, kom­um vel út úr far­aldr­in­um þurf­um við að jafna byrðarn­ar.“

Hækkun á hús­næð­is­verði drífi áfram verð­bólgu og það muni skila vaxta­hækk­unum. „Ég tel því mjög mik­il­vægt að ákveðin heim­ili, sér­stak­lega ungs fólks og tekju­lágra, sitji ekki eft­ir með svarta pét­ur. Það er því betra að bank­arn­ir komi strax inn í þetta og fari að huga að heim­il­un­um í land­inu og ef bank­arn­ir finna ekki ein­hverja lausn á því tel ég að við ætt­um að end­ur­vekja banka­skatt­inn.“

Níu þing­menn frá Sam­fylk­ingu, Viðreisn, Flokki fólks­ins og Pírötum hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að stjórn­völd greini þann vanda sem hafi skap­ast á hús­næð­is­mark­aði og grípi í kjöl­farið inn í stöð­una með mót­væg­is­að­gerðum.

Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir í Frétta­blað­inu í dag að hringl með hag­stjórn, sem birt­ist í því að vextir voru lækk­aðir hratt en síðan hækk­aðir hratt skömmu síðar, hafi skapað ójafn­vægi. Um þriðj­ungur þeirra sem keypti fast­eign í þessu ástandi séu fyrstu kaup­endur, að stærstum hluta ungt fólk sem er í fyrsta sinn að kom­ast í gegnum greiðslu­mat. „Hættan er sú að neyð­ar­á­stand geti skap­ast hjá þeim sem hafa skuld­sett sig hátt á dýrum fast­eigna­mark­aði [...] Við höfum sér­tækar leiðir til að koma pen­ingum til þeirra sem þess þurfa, svo sem vaxta­bætur, barna­bætur og húsa­leigu­bætur. Ef ástand­inu er leyft að grass­era er hættan sú að það komi miklu almenn­ari krafa um launa­hækk­anir sem verða mun dýr­ari fyrir fyr­ir­tæki og ríkið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár