Landsbankinn hagnaðist um 29 milljarða og ætlar að greiða 14,4 milljarða í arð

Þókn­ana­tekjur Lands­bank­ans juk­ust um 25 pró­sent milli ára og vaxta­munur hans var 2,3 pró­sent í fyrra. Kostn­að­ar­hlut­fall hans var 43,2 pró­sent á síð­asta ári og bank­inn náði mark­miði sínu um arð­semi eigin fjár, sem var að hún yrði yfir tíu pró­sent.

Höfuðstöðvar Landsbankans.
Höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lands­bank­inn, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, hagn­að­ist um 28,9 millj­arða króna á síð­asta ári. Það er 18,4 millj­örðum krónum meiri hagn­aður en bank­inn skil­aði á árin 2020. Því jókst hagn­að­ur­inn um 175 pró­sent milli ára.

Arðsemi eigin fjár bank­ans, sem er stærsti banki lands­ins, var 10,8 pró­sent sam­an­borið við 4,3 pró­sent á árinu 2020. Það þýðir að Lands­bank­inn var yfir arð­sem­is­mark­miði sínu, sem var tíu pró­sent. Þar skipti mestu að rekstr­ar­tekjur juk­ust úr 38,3 millj­örðum króna í 62,3 millj­arða króna milli ára, eða um 63 pró­sent.

Vegna þessa árang­urs mun banka­ráð Lands­bank­ans leggja til við aðal­fund að greiddur verði út 14,4 millj­arðar króna í arð vegna árs­ins 2021. Verði þessi til­laga sam­þykkt munu arð­greiðslur bank­ans á árunum 2013-2022 sam­tals nema um 160,6 millj­örðum króna. Bankaráð er jafn­framt með til skoð­unar að leggja til að greiddur verði út sér­stakur arður á árinu 2022. Ekki er til­greint hversu há sú greiðsla gæti orðið.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Lands­bank­ans vegna árs­ins 2021 sem birtur var í dag.

Eigið fé bankans um 283 milljarðar

Tekju­módel íslenskra banka byggir helst á tvenns konar tekjum: vaxta­tekjum sem byggja á mun­inum á þeim vöxtum sem bank­arnir borga fyrir að fá pen­inga að láni og þeim vöxtum sem þeir rukka fyrir að lána ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum fjár­muni, og þókn­ana­tekjum fyrir t.d. eigna­stýr­ingu og fyr­ir­tækja­ráð­gjöf.

[adspot]Vaxta­munur var 2,3 pró­sent hjá Lands­bank­anum sem skil­aði honum 39 millj­örðum króna í hreinar vaxta­tekjur. Það er 63 pró­sent af öllum rekstr­ar­tekjum hans. Um er að ræða svip­aða upp­hæð og bank­inn hafði í vaxta­tekjur á árinu 2020, þegar þær voru 38,1 millj­arður króna. Mark­aðs­hlut­deild á ein­stak­lings­mark­aði, sem er að uppi­stöðu til­komin vegna hús­næð­is­lána, var 39,5 pró­sent í lok síð­asta árs og hefur aldrei verið hærri.

[links]Stóri vöxt­ur­inn í tekjum bank­ans í fyrra var í þókn­ana­tekjum, sem stundum eru líka kall­aðar þjón­ustu­tekjur. Þær fóru úr 7,6 í 9,5 millj­arða króna og juk­ust því um 25 pró­sent milli ára. Þar skipti meðal ann­ars máli að samn­ingum um eigna­stýr­ingu fjölg­aði um fjórð­ung milli ára.

Kostn­að­ar­hlut­fall Lands­bank­ans, sem mælir hvað kostn­aður er stór hluti af tekjum, var 43,2 pró­sent og lækk­aði mynd­ar­lega mill ára. Ein­faldasta leiðin til að ná kostn­að­ar­hlut­falli niður er að fækka starfs­fólki.

Eignir Lands­bank­ans voru um 1.730 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót og efna­hags­reikn­ing­ur­inn stækk­aði um ell­efu pró­sent á árinu 2021. Eigið fé bank­ans var 282,6 millj­arðar króna í lok síð­asta árs og eig­in­fjár­hlut­fallið 26,6 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár