Arion banki hagnaðist um 28,6 milljarða og borgar 1,6 milljarð í bónusa

Hluthafa Arion banka fá yfir 58 millj­arða króna í arð­greiðslur eða vegna end­ur­kaupa hluta­bréfa frá byrjun síð­asta árs. Starfs­menn fá vænan bónus og kaup­réttir þeirra tryggja þeim tvö­földun á fjár­fest­ingu sinni að óbreyttu.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka. Mynd: Arion banki

Arion banki hagn­að­ist um 28,6 millj­arða króna á síð­asta ári. Alls greiddi bank­inn út arð eða keypti eigin bréf af hlut­höfum fyrir 31,5 millj­arða króna ​á síð­asta ári. Til stendur að greiða 79 pró­sent af hagn­aði árs­ins út sem arð, alls 22,5 millj­arða króna, og kaupa eigin bréf fyrir að minnsta kosti 4,3 millj­arða króna á kom­andi ári. Gangi þessi áform eftir mun Arion banki vera búinn að skila hlut­höfum sínum 58,3 millj­örðum króna frá byrjun síð­asta árs. Bankinn hefur áform um að greiða um 30 millj­arða króna ofan á það til hlut­hafa í nán­ustu fram­tíð þannig að heildar útgreiðslur nemi allt að 88 millj­örðum króna.

Vaxta­munur Arion banka var 2,8 pró­sent í fyrra, sem er aðeins minna en árið áður þegar hann var 2,9 pró­sent. Kostn­að­ar­hlut­fall var 44,4 pró­sent og lækk­aði úr 48,1 pró­sent í fyrra.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Arion banka.

Arðsemi eigin fjár bank­ans var 14,7 pró­sent á árinu. Með því náð­ist það mark­mið að vera með hærri en vegin arð­semi eigin fjár hjá helstu sam­keppn­is­að­ilum bank­ans (Lands­bank­anum, Íslands­banka og Kviku), sem þýðir að kaup­auki verður greiddur til starfs­manna. Sá kaup­auki er upp á 1.580 millj­ónir króna en útgreiddur kaup­auki á árinu 2020 var 70 millj­ónir króna.

„Hærri en það sem gengur og gerist“

Í kaupauka­kerf­inu, sem kall­ast einnig bónus­kerfi, felst að allt fast­ráðið starfs­­­­fólk Arion banka fær allt að tíu pró­­­­sent af föstum árs­­­­launum sínum á árinu 2021 í kaupauka.

Þeir stjórn­­­­endur og það starfs­­­­fólk sem hefur hvað mest áhrif á tekjur og kostnað bank­ans fá allt að 25 pró­­­­sent af föstum árs­­­­launum í kaupauka­greiðslu, en í formi hluta­bréfa í bank­­­­anum sem verða ekki laus til ráð­­­­stöf­unar fyrr en að þremur árum liðn­­­­­­­um. Í til­felli Bene­dikts Gísla­sonar, banka­stjóra Arion banka, þýðir það kaupauka upp á 17,5 millj­ónir króna en hann var með 69,8 millj­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð á síð­asta ári.

[adspot]Kaupauka­kerfið var sam­þykkt á aðal­fundi Arion banka í mars í fyrra. Gildi líf­eyr­is­sjóð­ur, næst stærsti hlut­haf­inn í Arion banka, greiddi atkvæði gegn til­­lögu stjórnar Arion banka um starfs­kjara­­stefnu bank­ans. Í bókun sem sjóð­­ur­inn lagði fram sagði að hann teldi að stjórnin hafi ekki „með full­nægj­andi hætti rök­­stutt þörf­ina og til­­­gang þess að nýta heim­ild til að koma á fót árang­­urstengdu launa­­kerfi, aukn­ingu kaup­rétta og áskrift­­ar­rétt­ind­­um. Laun stjórn­­enda bank­ans virð­­ast að mati sjóðs­ins, þegar til­­lit er tekið til mög­u­­leika á árang­­urstengdum greiðsl­um, kaup­réttum og áskrift­­ar­rétt­ind­um, hærri en það sem gengur og ger­ist hjá öðrum íslenskum bönkum og skráðum fyr­ir­tækjum sem starfa á íslenskum mark­að­i.“

Kaupréttir tvöfaldast í virði

Á aðal­fundi Arion banka í fyrra var stjórn bank­ans líka veitt heim­ild til að breyta kaup­rétt­ar­á­ætlun hans þannig að hámark þess sem hver fast­ráð­inn starfs­maður má kaupa á ári var hækkað um 150 pró­sent, í sam­ræmi við breytt ákvæði tekju­skatts­laga. Að mati stjórnar var æski­legt að hafa heim­ild til að „nýta hið nýja hámark til að kaup­rétt­ar­á­ætl­unin nái því mark­miði að sam­þætta hags­muni starfs­manna við hags­muni bank­ans með mark­tækum hætt­i.“

[links]Kaup­rétt­­­ar­á­ætl­­­un­in, sem nær til allra fast­ráð­inna starfs­­­manna, var fyrst sam­­­þykkt á aðal­­­fundi Arion banka í mars 2020 og mark­mið hennar er sagt vera að „sam­þætta hags­muni starfs­­­fólks við lang­­­tíma­hags­muni bank­ans.“

Í febr­­úar síð­­ast­liðnum 2021 var svo greint frá því að allir 628 fast­ráðnir starfs­­­menn Arion banka sem eiga rétt á að gerð kaup­rétt­­­ar­­­samn­ing við bank­ann hafi gert slík­­­­­an. Í samn­ingnum felst að starfs­­­menn­irnir áttu að geta keypt hluta­bréf í bank­­­anum fyrir alls 600 þús­und krónur einu sinni á ári í fimm ár. Sú upp­hæð var svo hækkuð í 1,5 millj­ónir króna í fyrra. Fyrsti nýt­ing­­­ar­­­dagur er nú í febr­­­úar en sá síð­­­­­asti í febr­­­úar 2026.

Kaup­verð starfs­­­manna Arion banka á hlutum í bank­­­anum er vegið með­­­al­verð í við­­­skiptum með hluta­bréf félags­­­ins tíu við­­­skipta­daga fyrir samn­ings­dag, sem var 3. febr­­­úar 2021, eða 95,5 krónur hver hlut­­­ur. Mark­aðs­gengi Arion banka er 98 pró­sent yfir því gengi í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár