Frumvarp sem lætur fjármagnseigendur borga útsvar til sveitarfélaga lagt fram í apríl

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra ætlar að leggja fram frum­varp á yfir­stand­andi þingi sem felur í sér að þeir sem hafa ein­göngu fjár­magnstekjur reikni sér end­ur­gjald og greiði þannig útsvar. Hingað til hefur þessi hópur ekki greitt skatta til sveit­ar­fé­laga.

Áform um að leggja útsvar á þá sem eru einvörðungu með fjármagnstekjur rataði inn í stjórnarsáttmálann. Bjarni Benediktsson mun leggja fram frumvarp þess efnis næsta vor.
Áform um að leggja útsvar á þá sem eru ein­vörð­ungu með fjár­magnstekjur rataði inn í stjórn­ar­sátt­mál­ann. Bjarni Bene­dikts­son mun leggja fram frum­varp þess efnis næsta vor. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hyggst leggja fram frum­varp til breyt­inga á lögum um tekju­skatt í apríl næst­kom­andi sem felur meðal ann­ars í sér að þeir sem hafa ein­göngu fjár­magnstekjur verði gert að greiða útsvar til sveit­ar­fé­laga.

Þetta kemur fram í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar fyrir kom­andi þing­vetur. Þar segir að með frum­varp­inu verði lagðar til end­ur­skoð­aðar og ein­fald­ari reglur um reiknað end­ur­gjald í atvinnu­rekstri eða sjálf­stæðri starf­semi aðila í eigin rekstri með það að mark­miði að varna mis­munun í skatt­lagn­ingu úttekta eig­enda úr félögum. „Þá verður reglu­verk í kringum tekju­til­flutn­ing tekið til end­ur­skoð­unar til að tryggja að þau sem hafa ein­göngu fjár­magnstekjur reikni sér end­ur­gjald og greiði þannig útsvar.“

Lengi hefur verið kallað eftir því víða að ráð­ist verði í þessa kerf­is­breyt­ingu og þeir sem hafi ein­vörð­ungu fjár­magnstekjur, og greiða af þeim 22 pró­sent skatt, verði líka gert að greiða útsvar. Á meðal þeirra sem það hafa gert er Drífa Snædal, þáver­andi for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands. Árið 2019 lét hún hafa það eftir sér að það væri „óþol­andi að sumir séu í aðstöðu til að bein­línis velja að greiða ekki skatta til sveit­­ar­­fé­laga. Við hin borgum þá í stað­inn leik­­skóla, grunn­­skóla, göt­u­lýs­ingu, gist­i­­skýli, menn­ing­­ar­­stofn­an­ir, umönnun aldr­aðra og veikra og allt annað sem útsvarið okkar fer í.“

[adspot]Þar var Drífa að bregð­ast við til­lögu Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, borg­ar­full­trúa Sós­í­alista­flokks Íslands, sem lögð var fram í borg­ar­stjórn og í fólst að fela þeim borg­ar­full­trúum sem sitja fyrir hönd Reykja­vík­ur­borgar í stjórn Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga að leggja fyrir stjórn þess, til­lögu um álagn­ingu útsvars á fjár­magnstekj­ur. Borg­ar­stjórn sam­þykkti til­lög­una fyrir þremur árum síðan.

Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins lögð­ust gegn til­lög­unni. Í bókun þeirra sagði: „Þessi til­laga er skatta­hækk­un­ar­til­laga.“

Katrín segir tíma aðgerða kominn

Málið var tekið upp í síð­ustu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Það rataði í kjöl­farið inn í stjórn­­­­­­­­­­­ar­sátt­­­­­­mála rík­­­­­­is­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­ar­innar frá 30. nóv­­­­­­em­ber 2021. Þar segir að reglu­verk í kringum tekju­til­­­­­­flutn­ing yrði „tekið til end­­­­­­ur­­­­­­skoð­unar til að tryggja að þau sem hafa ein­­­­­­göngu fjár­­­­­­­­­­­magnstekjur reikni sér end­­­­­­ur­­­­­­gjald og greiði þannig útsvar.“

Katrín Jak­obs­dóttir, for­manns Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra, ræddi þetta mál í ræðu á flokks­ráðs­fundi flokks síns á Ísa­firði í síð­asta mán­uði. Þar sagði hún að Vinstri græn myndu halda áfram að vinna að rétt­lát­­ara skatt­­kerfi á Íslandi. „Nú er kom­inn tími til að breyta skatt­lagn­ingu þeirra sem fyrst og fremst hafa fjár­­­magnstekjur og tryggja að þau greiði sann­­gjarnan hlut í útsvar til sveit­­ar­­fé­lag­anna til að fjár­­­magna þau mik­il­vægu verk­efni sem þau sinna ekki síst í félags- og vel­­ferð­­ar­­þjón­ust­u. Um það hefur verið talað í tutt­ugu ár en nú er kom­inn tími aðgerða.“

Efsta tíundin tekur til sín 81 pró­sent fjár­magnstekna

Fjár­­­­­­­magnstekjur eru þær tekjur sem ein­stak­l­ingar hafa af eignum sín­­­­um. Þær eru til að mynda vext­ir, arð­­­­ur, sölu­hagn­aður eða leig­u­­­­tekjur af lausafé og af útleigu á fast­­­­eign­­­­um. Þeir sem fá mestar fjár­­­­­magnstekjur á Íslandi eru því sá hópur ein­stak­l­inga sem á flest hluta­bréf og flestar fast­­­eign­­­ir. Sá hópur sem hefur sankað að sér flestum eign­­­um.

Sá hópur sem jók fjár­­­magnstekjur sínar mest í fyrra var allra tekju­hæsta tíund lands­­manna. Kjarn­inn greindi frá því í júlí að í grein­ingu á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­l­inga eftir tekju­­­­tí­und­um, sem Bjarni kynnti á rík­­­­is­­­­stjórn­­­­­­­ar­fundi 22. júní síð­­­­ast­lið­inn, hafi komið fram að þau tíu pró­­­­sent lands­­­­manna sem höfðu mestar fjár­­­­­­­magnstekjur á síð­­­­asta ári hafi tekið til sín 81 pró­­­­sent allra fjár­­­­­­­magnstekna ein­stak­l­inga á árinu 2021.

Alls höfðu ein­stak­l­ingar 181 millj­­­­arð króna í fjár­­­­­­­magnstekjur í fyrra og því liggur fyrir að efsta tíund­in, sem telur nokkur þús­und fjöl­­­­skyld­­­­ur, var með tæp­­­­lega 147 millj­­­­arða króna í fjár­­­­­­­magnstekjur á síð­­­­asta ári. Heild­­­­ar­fjár­­­­­­­magnstekjur ein­stak­l­inga hækk­­­­uðu um 57 pró­­­­sent milli ára, eða alls um 65 millj­­­­arða króna. Mest hækk­­­­­aði sölu­hagn­aður hluta­bréfa sem var 69,5 millj­­­­­arðar króna á árinu 2021.

Ráð­stöf­un­ar­tekjur fjár­magns­eig­enda hækk­uðu mest

Hjá þeim heim­ilum í land­inu sem höfðu hæstar tekjur hækk­­uðu ráð­­stöf­un­­ar­­tekjur að með­­al­tali um ríf­­lega tíu pró­­sent, að lang­­mestu leyti vegna auk­inna fjár­­­magnstekja.

Tekju­hækkun hjá öðrum hópum sam­­fé­lags­ins var mun minni, en kaup­máttur ráð­­stöf­un­­ar­­tekna ein­stak­l­inga hækk­­aði að með­­al­tali um 5,1 pró­­sent í fyrra.

Þetta þýðir að ráð­stöf­un­ar­tekjur efsta tekju­hóps­ins hækk­uðu mun meira hlut­falls­lega en ann­arra tekju­hópa ofan á það að tekjur þess hóps voru meiri fyr­ir. Krón­unum í vasa þeirra sem höfðu miklar fjár­magnstekjur fjölg­aði því umtals­vert meira en í vasa þeirra sem þáðu fyrst og síð­ast launa­tekjur á síð­asta ári.

Skatt­byrði efsta tekju­hóps­ins dróst saman

Fjár­­­­­­­magnstekjur dreifast mun ójafnar en launa­­­­tekj­­­­ur. Þær lendi mun frekar hjá tekju­hæstu hópum lands­ins, sem eiga mestar eign­­­­ir.

Alls um níu pró­­­sent þeirra sem telja fram skatt­greiðslur á Íslandi fá yfir höfuð fjár­­­­­magnstekj­­­ur. Fjár­­­­­magnstekju­skattur er líka 22 pró­­­­­sent, sem er mun lægra hlut­­­­­fall en greitt er af t.d. launa­­­­­tekj­um, þar sem skatt­hlut­­­­­fallið er frá 31,45 til 46,25 pró­­­­­sent eftir því hversu háar tekj­­­­­urnar eru.

[links]Í nýlegu Mán­að­­ar­yf­­ir­liti ASÍ kom fram að skatt­­byrði hafi heilt yfir auk­ist í fyrra þegar hún er reiknuð sem hlut­­fall tekju- og fjár­­­magnstekju­skatts af heild­­ar­­tekj­­um. Hún fór úr 22,4 pró­­sent af heild­­ar­­tekjum í 23,4 pró­­sent.

Skatt­byrði efstu tíund­­ar­innar dróst hins vegar sam­­an. Árið 2020 borg­aði þessi hópur 28,9 pró­­sent af tekjum sínum í skatta en 27,3 pró­­sent í fyrra. Skatt­­byrði allra ann­­arra hópa, hinna 90 pró­­sent heim­ila í land­inu, jókst á sama tíma.

Í minn­is­­­­blaði um áður­­­­­nefnda grein­ing­u sem lagt var fyrir rík­­­­is­­­­stjórn í síð­­­asta mán­uði var þetta stað­­­­fest. Þar kom fram að hækk­­­­andi skatt­greiðslur efstu tekju­­­­tí­und­­­­ar­innar séu fyrst og síð­­­­­­­ast til­­­­komnar vegna þess að fjár­­­­­­­magnstekjur þeirra hafa stór­­­­auk­ist, enda greiðir þessi hópur 87 pró­­­­sent af öllum fjár­­­­­­­magnstekju­skatti.

Mestar á Nes­inu og í Garðabæ

Með­­­al­tals­fjár­­­­­magnstekjur íbúa á Sel­tjarn­­­ar­­­nesi og í Garðabæ voru umtals­vert hærri á síð­­asta ári en í öðrum stærri sveit­­­ar­­­fé­lögum á höf­uð­­­borg­­­ar­­­svæð­in­u. Á Sel­tjarn­­ar­­nesi voru þær 1.585 þús­und krónur á hvern íbúa í fyrra en 1.556 þús­und krónur í Garða­bæ. Á sama tíma voru þær 679 þús­und krónur á hvern íbúa Reykja­vík­­­­­ur, 746 þús­und krónur á íbúa í Kópa­vogi, 554 þús­und krónur á íbúa í Mos­­­fellsbæ og 525 þús­und krónur í Hafn­­­ar­­­firð­i.

Alls var með­­­al­­­tal fjár­­­­­magnstekna á land­inu 709 þús­und krónur og því voru með­­­al­fjár­­­­­magnstekjur á íbúa á Sel­tjarn­­­ar­­­nesi tæp­­­lega 124 pró­­­sent hærri en hjá meðal Íslend­ingn­um og næstum 130 pró­­sent hærri en hjá íbúum Reykja­vík­­­ur, Þess sveit­­ar­­fé­lags sem liggur að Nes­in­u.

Þetta má lesa úr nýlegum tölum frá Hag­­stofu Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár