Gagnrýnir akstursgreiðslur til bæjarstjóra Kópavogs

Bæj­ar­full­trúi Pírata í Kópavogi segir að engin rök séu fyrir háum akst­urs­greiðslum Ásdísar Krist­jáns­dótt­ur bæj­ar­stjóra. „Það er engin þörf fyrir bæj­ar­stjóra Kópavogs til að keyra svona mikið vegna starfa sinna.“

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir Mynd: Píratar

Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir bæj­ar­full­trúi Pírata í Kópavogi gerir ráðn­ing­ar­samn­ing nýs bæj­ar­stjóra, Ásdísar Krist­jáns­dótt­ur, að umtals­efni í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag en þar bendir hún að í samn­ingnum sé kveðið á um fasta mán­að­ar­lega greiðslu vegna akst­urs sem nemi 1.250 kíló­metrum – að upp­hæð 158.750 króna, skatt­frjálst – í hverjum mán­uði út kjör­tíma­bilið.

Fram kemur í drögum að ráðn­ing­ar­samn­ingi að laun bæj­ar­stjóra skuli vera 2.380.021 krónur á mán­uði miðað við 1. júní 2022. Auk laun­anna fær bæj­ar­stjóri greitt fyrir setu í stjórnum eins og stjórn SSH og slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

„Þetta er rosa­lega mik­ill akstur og engin rök fyrir slíku ákvæði. Þetta jafn­gildir um 60 kíló­metra akstri hvern ein­asta vinnu­dag. Hvern. Einasta. Vinnudag. Það er engin þörf fyrir bæj­ar­stjóra Kópavogs til að keyra svona mikið vegna starfa sinna, en þess má jafn­framt geta að Kópa­vogs­bær á og rekur nokkra raf­bíla sem standa starfs­fólki stjórn­sýsl­unnar til boða þegar það þarf að fara úr húsi til að reka erindi,“ skrifar hún.

[links]Bæj­ar­full­trú­inn segir að ákvæðið stingi jafn­framt í stúf við bæði yfir­mark­mið Kópa­vogs­bæjar, Heims­mark­mið sam­ein­uðu þjóð­anna, og mál­efna­samn­ing meiri­hlut­ans þar sem fjallað sé um mik­il­vægi þess að vanda vel til verka þegar kemur að umhverf­is­málum, og að vist­vænir ferða­mátar og virð­ing gagn­vart umhverf­inu leiki þar lyk­il­hlut­verk. „Það að bæj­ar­stjóri Kópavogs fyr­ir­hugi að aka 60.000 kíló­metra á kjör­tíma­bil­inu setur ekki gott for­dæmi.“

Hún bætir því við að engan skuli kannski undra að í umræddum mál­efna­samn­ingi Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks sé ekki orði minnst á borg­ar­línu, strætó eða almenn­ings­sam­göngur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár