Halli sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk þrefaldaðist á þremur árum

Rekstr­ar­halli íslenskra sveit­ar­fé­laga vegna þjón­ustu við fatlað fólk þre­fald­að­ist á jafn­mörgum árum og var tæpir 9 millj­arðar árið 2020. Til stendur að skipa starfs­hóp um til­lögur varð­andi kostn­að­ar­skipt­ingu ríkis og sveit­ar­fé­laga vegna mála­flokks­ins.

Samkvæmt sam­komu­lagi milli ríkis og sveit­ar­fé­laga um til­færslu þjón­ustu við fatlað fólk frá 2010 var álagn­ing­ar­pró­senta útsvars í lögum um tekju­stofna sveit­ar­fé­laga hækkuð um 1,2 pró­sentu­stig til að mæta þeim kostn­aði sem félli til hjá sveit­ar­fé­lög­unum við yfir­töku á þjón­ustu við fatlað fólk. Tíu árum síðar, árið 2020, var rekstr­ar­nið­ur­staða íslenskra sveit­ar­fé­laga vegna þjón­ust­unnar orðin nei­kvæð um 8,9 millj­arða króna og hafði rekstr­ar­hall­inn þre­fald­ast frá árinu 2018.

Þetta kemur fram í skýrslu starfs­hóps um grein­ingu á kostn­að­ar­þróun í þjón­ustu við fatlað fólk árin 2018-2020 sem birt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins í gær, en hún var hluti af stærri skýrslu um heild­ar­end­ur­skoðun laga um þjón­ustu við fatlað fólk með langvar­andi stuðn­ings­þarfir. Skýrsl­urnar voru birtar með yfir­lýs­ingu um stofnun nýs starfs­hóps sem á að móta til­lögur varð­andi kostn­að­ar­skipt­ingu ríkis og sveit­ar­fé­laga vegna þjón­ustu við fatlað fólk. Stofnun starfs­hóps­ins var sam­þykkt á rík­is­stjórn­ar­fundi í gær, föstu­dag, og mun Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra sjá um að skipa starfs­hóp­inn.

Hækkun álags­pró­sentu útsvars í lögum um tekju­stofna sveit­ar­fé­laga árið 2010 grund­vall­að­ist á mati á kostn­aði hjá rík­i­s­jóði við þjón­ust­una árin 2008 og 2009 og áætl­aðri fjölgun not­enda, en þá var gert ráð fyrir að jafn­vægi yrði náð með 1.100 not­endum, sem var fjölgun um rúm 20% frá 2009 þegar not­endur voru 919, en vegna mik­ils kostn­að­ar­auka hjá sveit­ar­fé­lög­unum hefur síðan meðal ann­ars útsvarspró­sentan verið hækkuð, auk þess sem rík­is­sjóður jók hlut­fall skatt­tekna til Jöfn­un­ar­sjóðs til úthlutnar til sveit­ar­fé­laga vegna mála­flokks­ins.

Notendum fjölgaði um 3 prósent en gjöld jukust um 35

Á árunum sem skýrsla um kostn­að­ar­þróun í þjón­ustu við fatlað fólk fjallar um, 2018 til 2020, fjölg­aði not­endum um minna en 3% úr 1.241 árið 2018 í 1.275 árið 2020, en eins og áður segir jókst rekstr­ar­hall­inn þrefalt, um 300% úr tæpum 3 millj­örðum í tæpa 9 millj­arða króna. Gjöld vegna þjón­ustar við fatlað fólk juk­ust um 35,1% á sama tíma og tekjur juk­ust aðeins um 12,9%.

Í auknum kostn­aði á tíma­bil­inu vega einna hæst laun og launa­tengd gjöld, sem hækk­uðu um 34% úr 15,8 millj­örðum í 21,1 millj­arð króna, og í skýrsl­unni er sú ályktun dregin að magn­breyt­ingar og auknar kröfur um þjón­ustu vegi þungt í auknum launa­kostn­aði, en laun eru langstærsti útgjalda­liður sveit­ar­fé­laga vegna þjón­ustu við fatl­aða í búsetu­úr­ræðum, eða 84-85%. Þá er gert ráð fyrir tals­verðri hækkun útgjalda í mála­flokknum á næstu árum vegna áætl­ana um að leggja niður her­bergja­sam­býli og gefa fötl­uðu fólki þess í stað kost á að búa í eigin íbúð með það að mark­miði að ein­stak­ling­svæða þjón­ust­una.

Það er því ljóst að útsvar og greiðslur úr Jöfn­un­ar­sjóði standa ekki undir þeirri þróun sem á sér stað í mál­efnum fatl­aðs fólks, en áætlað er að starfs­hópur um kostn­að­ar­skipt­ingu ríkis og sveit­ar­fé­laga vegna þjón­ustu við fatlað fólk skili til­lögum fyrir 15. októ­ber 2022.

Í skýrslu starfs­hóps um heild­ar­end­ur­skoðun laga um þjón­ustu við fatlað fólk með langvar­andi stuðn­ings­þarfir koma fram fjöl­margar til­lögur sem skipt­ast á mörg mála­svið, þ.e. hús­næðis- og búsetu­mál, atvinnu­mál, not­enda­stýrða per­sónu­lega aðstoð (NPA), hvernig staðið er að sam­ráði aðila og mat á stuðn­ings­þörf. Mun félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið rýna efni þeirra til­lagna og gera til­lögu um frek­ari úrvinnslu og næstu skref, að því er fram kemur í til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins. Við þá vinnu verði ákvæði í samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks og Heims­mark­miða Sam­ein­uðu þjóð­anna höfð til hlið­sjónar. „Skýrsla starfs­hóps­ins er mik­il­vægt inn­legg í vinnu við lög­fest­ingu samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks, en kveðið er á um lög­fest­ingu hans í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár