Ræddi um að útsvar verði hækkað um 0,26 prósentustig en tekjuskattur verði lækkaður

Sveit­ar­fé­lögin telja að það vanti tólf til þrettán millj­arða króna á ári til að tekjur vegna mál­efna fatl­aðs fólks standi undir kostn­aði. Inn­við­a­ráð­herra segir vand­ann það stóran að til­efni gæti verið til að mæta honum með ráð­stöf­unum til bráða­birgða.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra. Mynd: Eyþór Árnason

Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra segir ljóst að umfang þess fjár­hags­vanda sem sveit­ar­fé­lög lands­ins glíma við vegna auk­ins kostn­aðar í tengslum við mál­efni fatl­aðs fólks sé orðið af þeirri stærð­argráðu að til­efni gæti verið til að mæta honum sem fyrst með ráð­stöf­unum til bráða­birgða, þar til fulln­að­ar­upp­gjör og grein­ing liggur fyrir af hálfu sér­stakrar nefndar sem hefur málið til umfjöll­unar. „Þannig gæti komið til álita að hækka útsvars­hlut­fallið enn frekar á móti sam­svar­andi lækkun tekju­skatts­hlut­falls­ins sem næmi umtals­verðum hluta vand­ans í því skyni að gera sveit­ar­fé­lögum kleift að standa við þau meg­in­mark­mið um þróun afkomu og skulda sem gert var sam­komu­lag um í aðdrag­anda gild­andi fjár­mála­á­ætl­unar.“ Þar sé um aukn­ingu upp á fimm til sex millj­arða króna í tekjur á ári fyrir sveit­ar­fé­lögin að ræða.

[links]Þetta kom fram í ræðu hans á fjár­mála­ráð­stefnu sveit­ar­fé­laga í morgun.

Sveit­ar­fé­lög lands­ins hafa reiknað sig niður á það að gliðnun tekna og útgjalda í mál­efnum fatl­aðra, sem voru færð frá ríki til sveit­ar­fé­laga í byrjun árs 2011, hafi verið orðin níu millj­arðar árið 2020. Nýverið hefur komið fram af hálfu sveit­ar­fé­laga að gliðn­unin stefni í 12-13 millj­arða króna á ári. Sveit­ar­fé­lögin segj­ast ekki hafa neina getu til að takast á við þessa gliðnun og því þurfi ríkið að koma til með því að tryggja þeim meira fjár­magn.

Um tveir þriðju af frá­viki tekna og gjalda mála­flokks­ins er hjá Reykja­vík­ur­borg. Þannig nam þetta frá­vik 5,7 millj­örðum króna árið 2020 en var 2,6 millj­arðar króna. árið 2018.

Þarf niðurstöðu fyrir 1. desember

Í setn­ing­ar­ræðu ráð­stefn­unnar kom Heiða Björg Hilm­is­dóttir, for­maður stjórnar Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og borg­ar­full­trúi í Reykja­vík, inn á þá stöðu sem er uppi vegna mála­flokks fatl­aðs fólks og sagði van­fjár­mögnun á honum vera meg­in­or­sök fjár­hags­vanda margra sveit­ar­fé­laga. „Við höfum það nú skjal­fest að gríð­ar­legur vöxtur útgjalda í þessum mála­flokki er einkum til kom­inn vegna auk­inna krafna í lög­gjöf og reglum um hærra þjón­ustu­stig. Hallinn á mála­flokknum árið 2020 nam 8,9 millj­örðum króna og ætla má að hall­inn nemi nú um 12 til 13 millj­örðum króna.“

Í yfir­stand­andi við­ræðum sveit­ar­fé­laga og rík­is­ins leggi sam­bandið þunga áherslu á að þetta verði leið­rétt og sveit­ar­fé­lögum verði gert kleift að veita fötl­uðu fólki fyr­ir­myndar þjón­ustu án þess að það ógni sjálf­bærni fjár­mála sveit­ar­fé­laga. „Mik­il­vægt er að nið­ur­staða við­ræðna liggi fyrir eigi síðar en 1. des­em­ber 2022 og sveit­ar­fé­lögum verði strax bætt van­fjár­mögnun mála­flokks­ins.“

Gera þurfi sam­komu­lag um fjár­mögnun þjón­ust­unnar í heild og um frek­ari inn­leið­ingu NPA þjón­ustu, og einnig um kostnað vegna barna með fjöl­þættan vanda. Sveit­ar­fé­lögin vænti þess að Alþingi skilji þessa stöðu og bregð­ist við áður en það afgreiðir fjár­lög í des­em­ber. „Ég vil ekki hugsa það til enda hvaða áhrif það kann að hafa á líf íbúa okkar ef við leiðum ekki þetta mik­il­væga mál til lykta, þarna eru líf fólks og fjöl­skyldna undir. “

Vill varna því að hægt verði að efna aftur til ágreinings

Í ræðu sinni sagði Sigurður Ingi að ef gripið verði til þess­ara ráð­staf­ana ætti eft­ir­stand­andi vandi að verða við­ráð­an­legri. „Einnig gæf­ist meira svig­rúm til að ákvarða fulln­að­ar­upp­gjör og þar með hvort rétt­mætt sé að ríkið taki á sig frek­ari stuðn­ing að aflok­inni skoðun nýs vinnu­hóps um kostn­að­ar­skipt­ingu í mál­efnum fatl­aðs fólks. Hópnum er ætlað að ljúka störfum í des­em­ber á þessu ári en hætt er við að það drag­ist.“

[adspot]Hug­myndin sem Sigurður Ingi viðr­aði felst í því að hækka útsvarspró­sent­una sem sveit­ar­fé­lög inn­heimta um 0,26 pró­sentu­stig til að skila þeirri tekju­aukn­ingu sem til þarf til að brúa bilið í mála­flokknum. Á móti yrðu öll skatt­þrep í tekju­skatti rík­is­ins lækkuð um 0,26 pró­sentu­stig til að allir skatt­greið­endur væru jafn­settir eftir sem áður.

Hann sagði líka að öll hækkun útsvarspró­sent­unnar þyrfti að ganga til hækk­unar á hlut­deild Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga í útsvars­tekj­unum. „Eins og í fyrri sam­komu­lögum væri til­gang­ur­inn með þessu sam­komu­lagi að öll sveit­ar­fé­lög sjái sér hag í að hækka útsvarið sem og að tryggja að tekj­urnar fari í mála­flokk­inn með því jöfn­un­ar­fyr­ir­komu­lagi sem felst í sjóðnum [...] Að slíku upp­gjöri og styrk­ingu tekju­stofna afloknu kemur það í hlut sveit­ar­fé­laga að axla ábyrgð á sinni fjár­mála­stjórn og áfram­hald­andi útgjalda­þróun mála­flokks­ins.“

Mik­il­vægt sé að slík fyr­ir­greiðsla væri gerð með traustum umbún­aði í sér­stöku und­ir­rit­uðu sam­komu­lagi með við­eig­andi skil­málum til að tryggja að sveit­ar­fé­lögin veiti við­eig­andi fjár­munum í mála­flokk­inn „og til að útkljá að ríkið sé þar með búið að tryggja ákveðna þætti til að varna því að hægt verði að efna aftur til ágrein­ings“.

Aukinn launakostnaður sveitarfélaga stór breyta

Inn­við­a­ráð­herra sagði að skýr­ing­arnar á hinum auknu útgjöldum í mála­flokknum væru af ýmsum toga. Vafa­laust mætti benda á að auknar kröfur rík­is­ins í gegnum laga­setn­ingu skýri ein­hvern hluta þeirrar aukn­ingar. „Á móti þarf að hafa í huga að útgjöld mála­flokks­ins eru fyrst og fremst launa­kostn­aður. Sá kostn­aður hefur vaxið gríð­ar­lega síð­ast­liðin ár en líkt og kemur fram í skýrsl­unni hafa laun og launa­tengd gjöld auk­ist um 5,3 millj­arða króna. eða 33,5 pró­sent frá árinu 2018 til árs­ins 2020. Má þar ætla að til við­bótar fjölg­unar stöðu­gildum hafi lífs­kjara­samn­ing­ur­inn verið mála­flokknum afar íþyngj­andi. Það verður þó að ætla sveit­ar­fé­lögum að þau standi straum af kostn­aði launa­hækk­ana sinna starfs­manna hvort sem það er í þessum mála­flokki eða öðrum, enda er uppi­staða tekna þeirra byggð á sköttum sem fylgja launa­þróun.“

Hann benti svo á að frá árinu 2014 hafi tekjur sveit­ar­fé­laga vaxið um 31 pró­sent á föstu verð­lagi en tekjur rík­is­sjóðs dreg­ist á sama tíma saman um eitt pró­sent. Á sama tíma hafi gjöld sveit­ar­fé­laga vaxið um 33 pró­sent á föstu verð­lagi en gjöld rík­is­sjóðs um 28 pró­sent. Frá árinu 2019 til 2021 uxu tekjur sveit­ar­fé­laga um þrjú pró­sent á föstu verð­lagi á sama tíma og tekjur rík­is­sjóðs dróg­ust saman um sjö pró­sent. „Í ljósi þess að ágætur vöxtur hefur verið í tekju­stofnum sveit­ar­fé­laga, einnig á tíma­bili kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, er ekki annað hægt að segja að sá fjár­hags­vandi sem snýr að mála­flokki fatl­aðs fólks er ekki tekju­vandi heldur fyrst og fremst útgjalda­vandi. Í því sam­bandi má benda á að auknar aðrar tekjur en þær sem mark­aðar eru mála­flokknum ættu að gera þeim kleift að veita auknu fjár­magni þangað, t.d. stór­auknar tekjur af fast­eigna­sköttum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár