Víða „pottur brotinn“ í fjárhagslegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga

Tíu þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar, Pírata, Flokks fólks­ins og Við­reisnar vilja að Reykja­vík­ur­borg fái fram­lög úr Jöfn­un­ar­sjóð sveit­ar­fé­laga til rekst­urs grunn­skóla. „Burt með úti­lok­un­ar­regl­una gegn Reykja­vík,“ segir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar.
Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og níu aðrir Reykja­vík­ur­þing­menn úr sama flokki, Viðreisn, Pírötum og Flokki fólks­ins vilja að Jöfn­un­ar­sjóður sveit­ar­fé­laga „hætti að úti­loka Reykja­vík­ur­borg frá skóla­stuðn­ingi“ og hafa lagt fram frum­varp um að sér­reglan gegn Reykja­vík í lögum um tekju­stofna sveit­ar­fé­laga verði afnumin.

Þetta kom fram í stöðu­upp­færslu hjá Jóhanni Páli á Facebook á dög­unum, sem er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins.

Í grein­ar­gerð­inni með frum­varp­inu er bent á að Reykja­vík­ur­borg sé eina sveit­ar­fé­lagið á Íslandi þar sem íbúar eru 70 þús­und eða fleiri og þannig eina sveit­ar­fé­lagið sem ekki nýtur fram­lag­anna úr Jöfn­un­ar­sjóði. Að mati flutn­ings­manna felur þetta í sér sér­tæka úti­lokun gagn­vart einu sveit­ar­fé­lagi sem ekki bygg­ist á mál­efna­legum sjón­ar­miðum og sé til þess fallin að veikja grunn­þjón­ustu við íbúa.

Reykjavíkurborg gerir kröfu um 5,4 milljarða króna greiðslu frá ríkinu

Fram kemur í grein­ar­gerð­inni að um sé að ræða almenn jöfn­un­ar­fram­lög, fram­lög vegna sér­þarfa fatl­aðra nem­enda, fram­lög vegna nem­enda með íslensku sem annað mál og fram­lög til Barna- og fjöl­skyldu­stofu vegna kennslu barna sem eru að beiðni barna­vernd­ar­nefndar lög­heim­il­is­sveit­ar­fé­lags vistuð utan þess á með­ferð­ar­heim­ili á vegum Barna- og fjöl­skyldu­stofu.

Bent er á að áður en fyr­ir­komu­lagið var lög­fest með lögum sem tóku gildi þann 4. jan­úar 2020 hafi Reykja­vík­ur­borg verið úti­lokuð frá fram­lög­unum á grund­velli ákvæða í reglu­gerðum, en Reykja­vík­ur­borg hefur stefnt rík­inu og gert kröfu um 5,4 millj­arða króna greiðslu sem svarar til þeirrar fjár­hæðar sem borgin hefði ellegar fengið úthlutað úr Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga á tíma­bil­inu 2015 til 2019.

„Jöfn­un­ar­sjóður sveit­ar­fé­laga hefur það lög­bundna hlut­verk að jafna mis­mun­andi útgjalda­þörf og skatt­tekjur sveit­ar­fé­laga. Sjóðnum eru tryggðar fastar tekjur á ári hverju með fram­lagi úr rík­is­sjóði, hlut­deild í útsvars­tekjum sveit­ar­fé­laga og vaxta­tekjum. Þótt stærri og fjöl­menn­ari sveit­ar­fé­lög búi yfir hærri heild­ar­tekju­stofnum en þau minni og geti notið meiri stærð­ar­hag­kvæmni við rekstur þjón­ustu rétt­lætir það ekki að eitt sveit­ar­fé­lag sé með öllu úti­lokað frá því að hljóta ein­stök fram­lög úr Jöfn­un­ar­sjóði óháð útgjalda- og þjón­ustu­þörf vegna lög­bund­inna verk­efna,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Vilja tryggja að öll sveitarfélög sitji við sama borð

Þá telja flutn­ings­menn frum­varps­ins að pottur sé víða brot­inn í reglu­verki Jöfn­un­ar­sjóðs og fjár­hags­legum sam­skiptum ríkis og sveit­ar­fé­laga. „Brýnt er að tekju­skipt­ing ríkis og sveit­ar­fé­laga verði end­ur­skoðuð, rekstr­ar­grunnur Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga styrktur og sveit­ar­fé­lögum um allt land tryggðir nauð­syn­legir tekju­stofnar í sam­ræmi við umfang verk­efna sem þeim eru falin með lögum.“

Fram kemur í grein­ar­gerð­inni að frum­varp­inu sé ekki ætlað að hafa áhrif á fram­lög Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga til ann­arra sveit­ar­fé­laga en Reykja­vík­ur­borgar og telja flutn­ings­menn mik­il­vægt að hugað verði að því við með­ferð máls­ins og í fjár­laga­gerð næstu ára. „Er frum­varpið aðeins eitt skref af mörgum sem nauð­syn­legt er að taka til að tryggja að öll sveit­ar­fé­lög sitji við sama borð og horfið verði frá þeirri til­hneig­ingu að fela sveit­ar­fé­lögum aukin verk­efni og leggja á þau auknar skyldur án þess að fjár­magn fylgi og nauð­syn­legir tekju­stofnar séu tryggðir.“

Enn fremur er bent á fram­lög til rekst­urs grunn­skóla sem kveðið er á um í lögum um tekju­stofna sveit­ar­fé­laga bygg­ist á því grund­vall­ar­sjón­ar­miði að börn eigi rétt á sam­bæri­legri þjón­ustu óháð upp­runa, búsetu og félags­legri stöðu. Því verði ekki haldið fram með mál­efna­legum hætti að sveit­ar­fé­lög með íbúa á bil­inu 12.000 til 69.999 þurfi á sam­bæri­legum stuðn­ingi að halda vegna rekst­urs grunn­skóla en Reykja­vík­ur­borg þurfi engan slíkan stuðn­ing.

„Við ákvörðun fram­laga til rekst­urs grunn­skóla verður að fylgja sann­gjörnum og hlut­lægum við­miðum sem taka til allra sveit­ar­fé­laga á land­inu,“ segir að lokum í grein­ar­gerð­inni.

Sjóðurinn greiði 130 þúsund króna framlag með börnum af erlendum uppruna í öðrum sveitarfélögum

Jóhann Páll tjáði sig um málið á Facebook í stöðu­upp­færslu þann 19. mars síð­ast­lið­inn, eins og áður segir. Hann bendir á að í dag fái borgin hvorki almenn fram­lög til grunn­skóla né sér­stök fram­lög vegna barna með annað móð­ur­mál en íslensku. Jöfn­un­ar­sjóður greiði hins vegar 130 þús­und króna fram­lag með börnum af erlendum upp­runa í öðrum sveit­ar­fé­lögum.

„Til allrar ham­ingju er borgin rekin af félags­hyggju­fólki sem leggur sig fram um að verja börnin fyrir þess­ari fjár­hags­legu mis­munun rík­is­valds­ins, en nem­endur með íslensku sem annað mál eru hvergi fleiri en einmitt í Reykja­vík.

Íbúar Reykja­víkur verja miklu meiri fjár­munum til félags­þjón­ustu heldur en aðrir íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Borgin stendur undir miklum meiri­hluta allrar fjár­hags­að­stoðar sveit­ar­fé­laga á Íslandi og hér eru greiðsl­urnar líka hærri en í öðrum sveit­ar­fé­lögum. Loks er Reykja­vík­ur­borg í for­ystu­hlut­verki þegar kemur að því að liðka fyrir félags­legri hús­næð­is­upp­bygg­ingu,“ skrifar hann.

Slagorðið „x-b fyrir börn“ tekur ef til vill ekki til barna í Reykjavík

Þá segir Jóhann Páll að þetta frum­varp sé ein­ungis eitt skref af mörgum sem þurfi að taka til að tryggja jafn­ræði milli íbúa og leið­rétta ósann­gjarna tekju­skipt­ingu ríkis og sveit­ar­fé­laga.

„Ég vona að þing­menn allra flokka treysti sér til að styðja málið þótt hingað til hafi rík­is­stjórnin beitt sér af hörku fyrir áfram­hald­andi úti­lokun Reykja­víkur frá skóla­stuðn­ingi. Slag­orðið „x-b fyrir börn“ tekur e.t.v. ekki til barna í Reykja­vík, ekki frekar en að það tekur til barn­anna sem bíða mán­uðum saman eftir nauð­syn­legri heil­brigð­is­þjón­ustu vegna þess að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur vill ekki for­gangs­raða í þágu vel­ferðar.

Við flutn­ings­menn erum sam­mála um að við ákvörðun fram­laga úr jöfn­un­ar­sjóði verði að fylgja sann­gjörnum og hlut­lægum við­miðum. Öll börn eiga rétt á sam­bæri­legri þjón­ustu óháð upp­runa, búsetu og félags­legri stöðu. Burt með úti­lok­un­ar­regl­una gegn Reykja­vík!“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár