Hugmynd innviðaráðherra um hækkun útsvars hefur ekki farið í gegnum ríkisstjórn

For­sæt­is­ráð­herra segir end­an­lega útfærslu á til­lögu inn­við­a­ráð­herra um hækkun útsvars en lækkun tekju­skatts ekki liggja fyrir. Formaður Sam­fylk­ingar spyr hvort ekki sé kom­inn tími til að lát­lausum yfir­lýs­ingum frá ráð­herrum Fram­sókn­ar­flokks­ins linni?

Sigurður Ingi Jóhansson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhans­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Tillaga Sigurðar Inga Jóhanns­sonar inn­við­ráð­herra um að útsvar verði hækkað um 0,26 pró­sentu­stig en tekju­skattur lækk­aður hefur ekki verið borin undir rík­is­stjórn­ina.

Þetta kom fram í máli Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag þegar Logi Ein­ars­son, for­maður og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði út í áformin sem inn­við­a­ráð­herra ræddi á fjár­mála­ráð­stefnu sveit­ar­fé­laga í síð­ustu viku.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, sagði í ræðu sinni á ráð­stefn­unni að ljóst væri að umfang þess fjár­hags­vanda sem sveit­ar­fé­lög lands­ins glíma við vegna auk­ins kostn­aðar í tengslum við mál­efni fatl­aðs fólks sé orðið af þeirri stærð­argráðu að til­efni gæti verið til að mæta honum sem fyrst með ráð­stöf­unum til bráða­birgða, þar til fulln­að­ar­upp­gjör og grein­ing liggur fyrir af hálfu sér­stakrar nefndar sem hefur málið til umfjöll­un­ar.

Hug­myndin sem Sig­urður Ingi viðr­aði felst í því að hækka útsvarspró­sent­una sem sveit­ar­fé­lög inn­heimta um 0,26 pró­sentu­stig til að skila þeirri tekju­aukn­ingu sem til þarf til að brúa bilið í mála­flokkn­um. Á móti yrðu öll skatt­þrep í tekju­skatti rík­is­ins lækkuð um 0,26 pró­sentu­stig til að allir skatt­greið­endur væru jafn­settir eftir sem áður.

[links]Sveit­ar­fé­lög lands­ins hafa reiknað sig niður á það að gliðnun tekna og útgjalda í mál­efnum fatl­aðra, sem voru færð frá ríki til sveit­ar­fé­laga í byrjun árs 2011, hafi verið orðin níu millj­arðar árið 2020. Nýverið hefur komið fram af hálfu sveit­ar­fé­laga að gliðn­unin stefni í 12-13 millj­arða króna á ári. Sveit­ar­fé­lögin segj­ast ekki hafa neina getu til að takast á við þessa gliðnun og því þurfi ríkið að koma til með því að tryggja þeim meira fjár­magn.

Útfærslan kemur á óvart

Logi sagði áform inn­við­a­ráð­herra um 5-6 millj­arða inn­spýt­ingu í mála­flokk­inn gleði­lega. Útfærslan, að hækka hámarks­út­svarspró­sentu sveit­ar­fé­laga um 0,26 pró­sentu­stig en lækka á móti tekju­skatt sem ríkið inn­heimtir á móti sem því nemur, hafi hins vegar komið á óvart þar sem hún hafi ekki verið rædd áður. „Hvorki í fjár­laga­nefnd eða efna­hags­nefnd og þing­menn stjórn­ar­flokk­anna virt­ust koma af fjöllum,“ sagði Logi á Alþingi í dag.

Hann sagð­ist jafn­framt trúa „svona afger­andi yfir­lýs­ingu frá ráð­herra“ og beindi í fram­hald­inu þremur spurn­ingum að for­sæt­is­ráð­herra.

„Í fyrsta lagi: Hvenær var þetta sam­þykkt í rík­is­stjórn?“

Í öðru lagi: Af hverju birt­ust þessar fyr­ir­ætl­anir ekki strax við fram­lagn­ingu fjár­laga fyrr í haust þar sem þessi vandi hefur blasað við í svo langan tíma?“

„Í þriðja lagi: Þar sem ljóst er að útfærsla sem inn­við­a­ráð­herra til­kynnti mun lækka tekjur rík­is­sjóðs umtals­vert, sér for­sæt­is­ráð­herra fyrir sér nýja tekju­stofna sem munu bæta þetta upp? Á að skila rík­is­sjóði með meiri halla en áður var gert ráð fyrir eða verða útgjöld skorin niður og hver þá?“

Vinna starfshóps um málaflokkinn hefur dregist á langinn

Í svari sínu benti Katrín á að í máli Sigurðar Inga á fjár­mála­ráð­stefn­unni hefði komið fram að það kæmi til greina að hækka hlut útsvars­ins. Hópur hefur verið að störfum undir for­ystu félags­mála­ráð­herra sem átti að skila af sér frek­ari grein­ingu á þeim kostn­aði sem fellur á sveit­ar­fé­lögin vegna mála­flokks fatl­aðra í haust. Það hefur dreg­ist og mun hóp­ur­inn lík­lega ekki skila af sér fyrr en í febr­úar, að sögn Katrínar.

Heiða Björg Hilm­is­dóttir, for­maður stjórnar Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, sagði í setn­ing­ar­ræðu fjár­mála­ráð­stefnu sveit­ar­fé­lag­anna í síð­ustu viku að van­fjár­mögnun á mála­flokki fatl­aðs fólks væri meg­in­or­sök fjár­hags­vanda margra sveit­ar­fé­laga.

Í yfir­stand­andi við­ræðum sveit­ar­fé­laga og rík­is­ins leggi sam­bandið þunga áherslu á að þetta verði leið­rétt og sveit­ar­fé­lögum verði gert kleift að veita fötl­uðu fólki fyr­ir­myndar þjón­ustu án þess að það ógni sjálf­bærni fjár­mála sveit­ar­fé­laga. „Mik­il­vægt er að nið­ur­staða við­ræðna liggi fyrir eigi síðar en 1. des­em­ber 2022 og sveit­ar­fé­lögum verði strax bætt van­fjár­mögnun mála­flokks­ins,“ sagði Heiða Björg.

Tekjustofnar séu fullnýttir áður en komi til frekari fjárveitinga

Katrín sagð­ist, líkt og lík­lega allir þing­menn hafi kynnst í nýlið­inni kjör­dæma­viku, að staða sveit­ar­fé­lag­anna sé þung og að bregð­ast þurfi hratt við. Katrín sagði málin ennþá í vinnslu og þess vegna hafi þessi til­laga ekki verið hluti af fjár­laga­frum­varpi og hafa ekki farið end­an­lega í gegnum rík­is­stjórn.

„Ég leyfi mér hins vegar að segja að það er skiln­ingur hjá öllum for­ystu­mönnum rík­is­stjórn­ar­flokk­anna á að það þurfi að ein­hverju leyti að mæta sveit­ar­fé­lög­unum vegna mála­flokks fatl­aðra,“ sagði Katrín og nefndi Jöfn­un­ar­sjóð sveit­ar­fé­laga í því sam­hengi. Sigurður Ingi sagði í ræðu sinni á ráð­stefn­unni að öll hækkun útsvarspró­sent­unnar þyrfti að ganga til hækk­unar á hlut­deild Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga í útsvars­tekjum.

Katrín sagði mik­il­vægt að nýta jöfn­un­ar­sjóð­inn til að tryggja að fjár­mun­irnir nýt­ist þar sem þeirra er þörf. „Einnig þarf að skoða það þegar sveit­ar­fé­lögin eru ekki að full­nýta sína tekju­stofna. Við getum rætt um útsvarspró­sentur, við getum líka rætt fast­eigna­gjöld. Við þurfum auð­vitað að taka afstöðu til þess hvort þá sé eðli­legt að auknir fjár­munir renni til þeirra sveit­ar­fé­laga sem hafa kosið að full­nýta ekki sína tekju­stofna. Ég hef skýra sýn á það að mér finnst eðli­legt að þeir tekju­stofnar séu full­nýttir áður en til frek­ari fjár­veit­inga kemur,“ sagði Katrín.

Ekki hugmynd sem „dettur ofan í hausinn“ á innviðaráðherra

„Þetta hefur sem sagt ekki verið ákveðið,“ sagði Logi, sem bað for­sæt­is­ráð­herra um að tala skýrar þar sem hann hafi ekki „hitt eina mann­eskju sem kom út af fjár­mála­ráð­stefn­unni sem átt­aði sig á því að þetta væri svona ein­hver hug­detta hæst­virts ráð­herra“. Þá spurði Logi hvort það væri ekki kom­inn tími til þeim linni, þessum lát­lausum yfir­lýs­ingum frá ráð­herrum Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem eru ekki hugs­aðar til neins ann­ars en að setja vænt­ingar fólks í hæstu hæðir?

Katrín sagði að ekki væri um að ræða hug­mynd sem dettur ofan í haus­inn á inn­við­ráð­herra. „Auðvitað er það ekki svo. Hann talar ekki með slíkum óábyrgum hætti. Það sem kom fram í máli hans er að þetta er til skoð­unar, þetta er ekki að fullu útfært,“ sagði Katrín.

For­sæt­is­ráð­herra sagði fullan skiln­ing á þungri stöðu sveit­ar­fé­lag­anna vegna mála­flokks fatl­aðs fólks en sagði mik­il­vægt að það sé algjör­lega skýrt að end­an­leg útfærsla liggur ekki fyrir. „Þess vegna kom þetta ekki fram við fram­lagn­ingu fjár­laga­frum­varps og hefur ekki verið end­an­lega afgreitt úr rík­is­stjórn. Vissu­lega er málið ekki full­búið en ríkur skiln­ingur fyrir hendi á að staðan sé þung og það skiptir máli að við komum til móts við hana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár