Reykjavík segir tugi milljarða vanta inn í fjármögnun ríkisins á verkefnum sveitarfélaga

Í umsögn Reykja­vík­ur­borgar um fjár­laga­frum­varp næsta árs er dregið saman að borgin telji sig eiga inni yfir 19 millj­arða hjá rík­inu vegna van­fjár­mögn­unar verk­efna sem hún sinnir. Þar spilar mála­flokkur fatl­aðs fólks stærsta rullu.

Frá fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í vor. Í forgrunni ræðast við þær Árelía Eydís Guðmundsdóttir og Heiða Björg Hilmisdóttir, sem er formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Frá fundi borg­ar­stjórnar Reykja­víkur í vor. Í for­grunni ræð­ast við þær Árelía Eydís Guð­munds­dóttir og Heiða Björg Hilm­is­dóttir, sem er for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga. Mynd: Bára Huld Beck

Reykja­vík­ur­borg segir að ríkið hafi ógnað sjálf­bærni sveit­ar­fé­laga á Íslandi með því að van­fjár­magna ýmis verk­efni sem rík­is­valdið ætlar sveit­ar­fé­lögum að sinna. Þar beri van­fjár­mögnun á mála­flokki fatl­aðs fólks hæst. Þetta kemur fram í umsögn sem fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­svið Reykja­vík­ur­borgar hefur gert við fjár­laga­frum­varp árs­ins 2023.

Í umsögn­inni er dregið saman að borgin líti svo á að van­fjár­mögnun rík­is­ins á hinum ýmsu verk­efnum sem borgin sinni, stundum í sam­starfi við önnur sveit­ar­fé­lög, nemi yfir 19 millj­örðum króna. Þar af sé þjón­usta við fatlað fólk, sem færð­ist frá ríki til sveit­ar­fé­laga árið 2011, van­fjár­mögnuð um 10,8 millj­arða króna.

Umsögn borg­ar­innar er nokkuð hvassyrt, en meðal ann­ars segir þar að sveit­ar­stjórn­ar­lög og lög um opin­ber fjár­mál renni styrkum stoðum undir þær leik­reglur sem gildi um fjár­hags­leg sam­skipti ríkis og sveit­ar­fé­laga.

„Fram­kvæmd rík­is­ins á þessum skýru laga­á­kvæðum hefur ekki verið í sam­ræmi við laga­skyldur og hefur í mik­il­vægum ákvörð­unum litið fram­hjá þeirri skyldu að meta fjár­hags­leg áhrif laga­frum­varpa og ann­arra áforma rík­is­ins á fjár­hag sveit­ar­fé­laga og tryggja þeim fjár­muni til að mæta breyttum skyldum,“ segir í umsögn borg­ar­innar.

Í kjöl­farið er svo farið yfir hina ýmsu mála­flokka, sem borgin segir að hafi um ára­bil verið til umræðu í sam­skiptum ríkis og borgar og séu van- eða ófjár­mögnuð. Í umsögn borg­ar­innar segir að list­inn sé ekki tæm­andi, en hann er þrátt fyrir það ansi langur.

Langstærsti lið­ur­inn er þjón­usta við fatlað fólk, sem færð­ist sem áður segir frá ríkis til sveit­ar­fé­laga árið 2011. Borgin segir að þrátt fyrir mikið kostn­að­arað­hald hafi þjón­usta við mála­flokk­inn kostað mun meira en fram­lög Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga og við­bót­ar­út­var sveit­ar­fé­lags­ins hafi staðið undir – og upp­hæðin hafi numið allt að 25,7 millj­örðum króna umfram tekjur á tíma­bil­inu 2011-2021.

Hallinn hefur auk­ist mikið síð­ustu ár og bendir borgin á að gjöld umfram tekjur hafi numið 5,7 millj­örðum árið 2020 og 6,7 millj­örðum króna á árinu 2021. Segir borgin að auknar kröfur um þjón­ustu, sem til koma vegna breyt­inga á lögum og reglu­gerðum og alþjóð­legum sam­þykktum, hafi valdið því að mis­munur tekna og gjalda hafi vaxið.

Reykja­vík­ur­borg er síður en svo eina sveit­ar­fé­lagið sem er í þess­ari stöðu, og bendir á að nið­ur­staða starfs­hóps sem skip­aður var til að meta kostnað við mála­flokk­inn hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að hall­inn á lands­vísu hafi verið um 8,9 millj­arðar á lands­vísu árið 2020 og að búast megi við því að hann hafi verið allt að 12-13 millj­arðar á síð­asta ári.[links]

„Þar til við­bótar er mikil upp­söfnuð þörf fatl­aðs fólks fyrir búsetu­úr­ræði við hæfi. Sam­an­lagt er talið að við­bót­ar­út­gjöld sveit­ar­fé­lag­anna vegna upp­safn­aðrar þarfar fyrir búsetu­úr­ræði geti var­lega áætlað verið 10 ma.kr. í árlegan rekstr­ar­kostnað til nán­ustu fram­tíðar. Þar af nemi rekstr­ar­kostn­aður vegna upp­bygg­ingar á sér­tæku hús­næðisúr­ræði og nið­ur­lagn­ing her­bergja­sam­býla í Reykja­vík 3,7 ma.kr.,“ segir í umsögn Reykja­vík­ur­borgar, sem gerir kröfu um að tryggð verði full fjár­mögnun í sam­ræmi við þær nið­ur­stöður sem fyrir liggi um van­fjár­mögnun þjón­ust­unnar.

Borgin vill fá jöfnunarframlög til grunnskólastarfs

Í umsögn Reykja­vík­ur­borgar er einnig farið yfir kröfur borg­ar­innar um fram­lög úr Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga vegna rekst­urs grunn­skóla og íslensku­kennslu barna af erlendum upp­runa. Eins og fram hefur komið rekur Reykja­vík­ur­borg nú mál fyrir dóm­stólum vegna almennra jöfn­un­ar­fram­laga, þar sem gerð er krafa um að borgin sé ekki úti­lokuð þeim fram­lögum á grund­velli stærðar borg­ar­innar. Sú krafa sem borgin gerir vegna þessa nemur rúmum 5,4 millj­örðum króna.

[adspot]

Til við­bótar gerir Reykja­vík­ur­borg svo kröfu um að fá fram­lög um Jöfn­un­ar­sjóði vegna íslensku­kennslu barna af erlendum upp­runa, en borgin rekur að greiddar séu um 150 þús­und krónur með hverju barni til sveit­ar­fé­laga um land allt, utan Reykja­víkur.

„Það að börn af erlendum upp­runa í Reykja­vík njóti ekki sömu jöfn­un­ar­fram­laga og ann­ars­staðar á land­inu er óásætt­an­legt og þess kraf­ist að þetta verði leið­rétt,“ segir í umsögn borg­ar­innar, en mat borg­ar­innar er að 412,5 millj­ónir króna þyrfti til að Reykja­vík­ur­borg væri jafn­sett öðrum sveit­ar­fé­lögum hvað þetta varðar.

Farsældarlögin kosti borgina 800 milljónir ofan á framlag ríkisins

Hin svoköll­uðu far­sæld­ar­lög, sem Ásmundur Einar Daðason ráð­herra barna­mála beitti sér mikið fyrir á síð­asta kjör­tíma­bili og sam­þykkt voru í fyrra, hafa tekið gildi. Reykja­vík­ur­borg segir að í kostn­að­ar­mati rík­is­ins og mati á áhrifum á fjár­hag sveit­ar­fé­laga hafi aðal­lega verið horft til útgjalda vegna mál­stjóra og tengiliða, en horft hafi verið fram­hjá kostn­aði við að veita aukna þjón­ustu.

„Í fjár­lögum fyrir árið 2022 var 1,1 ma.kr. veitt til Jöfn­un­ar­sjóðs til að auka snemmtæka íhlutun í mál­efnum barna sbr. lög um sam­þætt­ingu vel­ferð­ar­þjón­ustu í þágu barna. Það er mat sveit­ar­fé­lag­anna að fram­lagið sé langt undir þörfum og telja þau fjár­þörf­ina á lands­vísu vera nær 3 – 4 ma.kr.,“ segir í umsögn borg­ar­innar, sem sjálf metur það sem svo að 800 millj­ónir króna vanti upp á að ríkið fjár­magni þá þjón­ustu sem nýju lögin skyldi sveit­ar­fé­lagið til að sinna.

Til við­bótar segir borgin að tvö hjúkr­un­ar­heim­ili, á Drop­laug­ar­stöðum og í Selja­hlíð, sem rekin eru fyrir ríkið á grunni daggjalda, séu ekki full­fjár­mögnuð af rík­is­ins hálfu. „Halla­rekstur 2011-2020 nam sam­an­lagt 2.684 mkr og á einkum rætur að rekja til þess að ríkið greiddi ekki hluta af stofn­kostn­aði en miðar dag­gjöld til borg­ar­innar við að ríkið hafi greitt 85% stofn­kostn­aðar. Árið 2021 nam mis­munur tekna og útgjalda 337 m.kr.,“ segir í umsögn borg­ar­innar.

Einnig er sagt mik­il­vægt að ríkið komi „með afger­andi hætti að því að treysta fjár­hags­legan grunn Strætó vegna þeirra fjár­hags­lega áfalla sem rekst­ur­inn hefur orðið fyrir á tímum heims­far­ald­urs kór­óna­veiru og komi áfram að rekstri almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með mynd­ar­legum hætti,“ en fjár­hags­legt tap Strætó, vegna tap­aðra far­gjalda­tekna í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum, er sam­tals metið á 1,7 millj­arða króna sam­kvæmt umsögn borg­ar­innar.

Borgin vill hlutdeild í fleiri tekjustofnum

Reykja­vík­ur­borg leggur fram ýmsar til­lögur um fjár­hags­leg sam­skipti ríkis og sveit­ar­fé­laga. Meðal ann­ars vill borgin að tekjur af gistin­átta­skatti eða brott­far­ar­gjaldi renni að minnsta kosti að stærstum hluta til sveit­ar­fé­laga „vegna stór­auk­ins álags og við­halds­þarfar á sam­göngu­mann­virkjum, kostn­aðar vegna hreins­unar gatna, göngu­leiða og almenn­ings­rýma í kjöl­far mik­illar fjölg­unar ferða­manna“, auk þess sem borgin vill að ríkið greiði sveit­ar­fé­lögum með beinum hætti tap útsvars­tekna vegna skatt­frjálsrar úttektar á sér­eigna­sparn­aði. Fram kemur í umsögn borg­ar­innar að tekju­tap sveit­ar­fé­laga vegna þess­arra úttekta frá árinu 2014 nemi tæp­lega 16 millj­örðum króna að nafn­virði.

Í umsögn Reykja­vík­ur­borgar um fjár­laga­frum­varpið er einnig vikið að því að aldrei hafi verið sýnt fram á raun­kostnað sem sveit­ar­fé­lög greiða rík­inu fyrir það að inn­heimta útsvar fyrir sveit­ar­fé­lögin, en inn­heimtu­þókn­unin nemur 0,5 pró­sentum af útsvars­stofni. Vill borgin að þetta verði tekið til end­ur­skoð­unar.

Einnig leggur Reykja­vík­ur­borg áherslu á það Alþingi end­ur­skoði lög um tekju­skatt, með það fyrir augum að fella niður fjár­magnstekju­skott af láns­við­skiptum innan sam­stæðu borg­ar­innar. „Í þessu sam­hengi er rétt að benda á að eitt af mark­miðum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins er að end­ur­lána rík­is­fyr­ir­tækjum í stað þess að heim­ila þeim lán­tökur með rík­is­á­byrgð. Eðlilegt væri að gera sveit­ar­fé­lög jafn­sett rík­inu og fyr­ir­tækjum þess að þessu leyti,“ segir í umsögn borg­ar­innar um þetta efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár