Þingheimur verði að átti sig á áhrifum ákvarðana á fjárhag sveitarfélaga

Þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins segir að mörg sveit­ar­fé­lög eigi í erf­ið­leikum með sín stærstu verk­efni og sjái ein­fald­lega ekki fram á að ráða við þau þrátt fyrir góðan vilja.

Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins.
Ingi­björg Isaksen þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Ingi­björg Isaksen þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins segir að fjöldi og umfang verk­efna sem flutt hafa verið yfir á sveit­ar­fé­lög séu farin að hafa mikil áhrif á fjár­hag þeirra og séu jafn­vel farin að vera þeim ofviða og þá sér­stak­lega smærri sveit­ar­fé­lögum.

Þetta kom fram í máli hennar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í síð­ustu viku.

Hún sagði að það kæmi fyrir að þing­heimur sam­þykkti frum­vörp sem auka kostn­aðar- eða verk­efna­þunga sveit­ar­fé­laga með með­fylgj­andi kostn­að­ar­auka.

Ingi­björg sagði að henni sem fyrrum sveit­ar­stjórn­ar­full­trúa, en hún var í bæj­ar­stjórn Akur­eyrar áður en hún fór á þing, fynd­ist nauð­syn­legt að ræða hvað því fylgir þegar frum­vörp sem þessi fara í gegn án þess að þing­menn gerðu sér fulla grein fyrir hver áhrifin geta verið á ein­stök sveit­ar­fé­lög.

Sveitarfélög neyðst til þess að stækka stjórnsýsluna trekk í trekk

„Mörg sveit­ar­fé­lög eiga í erf­ið­leikum með sín stærstu verk­efni og sjá ein­fald­lega ekki fram á að ráða við þau þrátt fyrir góðan vilja. Fjöldi og umfang verk­efna sem flutt hafa verið yfir á sveit­ar­fé­lög eru farin að hafa mikil áhrif á fjár­hag þeirra og eru jafn­vel farin að vera þeim ofviða og þá sér­stak­lega smærri sveit­ar­fé­lögum. Sveit­ar­stjórn­ar­menn þvert yfir landið hafa ítrekað bent á þessa þróun og nei­kvæðu hlið­arnar,“ sagði Ingi­björg.

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga hefði einnig bent á þessa þróun en nýlega gerði sam­bandið sam­an­tekt á fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga þvert yfir landið. „Þar er því spáð að þau verði rekin með miklum halla og sam­an­lagðar skuldir komi til með að aukast veru­lega. Sá kostn­að­ar­liður sem fer síhækk­andi með hverju ári eru launa­út­gjöld og tengd gjöld til starfs­manna, en sveit­ar­fé­lög hafa neyðst til þess að fjölga starfs­mönnum og stækka stjórn­sýsl­una trekk í trekk til að mæta auknum verk­efna­þunga. Launa­kostn­aður verður því sífellt hærra hlut­fall útgjalda sveit­ar­fé­laga.

Á sama tíma hefur kostn­aður við fræðslu­mál auk­ist með nýjum reglu­gerðum og kröfum síð­ustu ár ásamt öðrum verk­efnum. Sér­fræði­þjón­usta, NPA, skóli án aðgrein­ingar, mötu­neyti og fleira eru vissu­lega allt jákvæð verk­efni og mik­il­væg þróun en kostn­að­ur­inn þegar allt er lagt saman er orð­inn veru­legur fyrir sveit­ar­fé­lögin,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Telur Ingi­björg það mik­il­vægt að þing­heimur átti sig á raun­veru­legum áhrifum ákvarð­ana hans á fjár­hag sveit­ar­fé­lag­anna ásamt afleiddum kostn­aði af þeim ákvörð­unum. „Því mun ég leggja fram mál á næstu dögum sem fjallar um að umfjöllun um áhrif stjórn­ar­frum­varpa á fjár­hag sveit­ar­fé­laga skuli vera tekin fyrir í grein­ar­gerð­inni. Með því geta þing­menn unnið og tekið ákvarð­anir með fullri vit­und um slík áhrif.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár