Sveitarstjórnarfólk fái skammirnar fyrir það sem er á forræði ríkisins

Þing­maður Við­reisnar segir að sveit­ar­fé­lag­anna bíði veru­leg fjár­fest­ing í innviðum og því sé brýnt að end­ur­skoðun á tekju­stofnum þeirra gangi bæði hratt og vel fyrir sig.

Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar.
Guð­brandur Ein­ars­son þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­brandur Ein­ars­son þing­maður Við­reisnar segir að kerfið sé hannað þannig að flest sveit­ar­fé­lög eigi erfitt með að standa undir þeim verk­efnum sem þeim er gert að sinna og mörg þeirra eigi erfitt með að skila jákvæðri rekstr­ar­nið­ur­stöðu.

Þetta kom fram hjá Guð­brandi undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Þá bíði sveit­ar­fé­laga veru­leg fjár­fest­ing í innviðum, svo sem skóla- og íþrótta­mann­virkjum, í frá­rennsl­is­málum og bygg­ingu nýrra hverfa sam­hliða íbúa­fjölgun. Því sé brýnt að end­ur­skoðun á tekju­stofnum sveit­ar­fé­laga gangi bæði hratt og vel fyrir sig.

Hóf hann mál sitt á að segja að almenn­ingur á Íslandi velti því sjaldn­ast fyrir sér þegar hann nýtir sér opin­bera þjón­ustu hver greiði fyrir hana – og haldi bara að þessi þjón­usta sé til staðar.

„Stað­reyndin er hins vegar sú að sá sem veitir nær­þjón­ust­una tekur nær alltaf höggið þegar skortur er á þjón­ustu­úr­ræði sem íbúar þurfa á að halda. Sveit­ar­stjórn­ar­fólk fær skammir ef ekki er til staðar almenni­leg heil­brigð­is­þjón­usta og úrræði fyrir eldra fólk þó að þessi þjón­ustu­úr­ræði séu á for­ræði rík­is­ins.“

Velti Guð­brandur í fram­hald­inu fyrir sér verka­skipt­ingu ríkis og sveit­ar­fé­laga, sem og tekju­skipt­ingu. „Það er engum vafa und­ir­orpið að rétt er að veita þjón­ustu við íbúa eins nærri þeim og hægt er. Það gerir þjón­ust­una mann­legri og auð­veldar öll sam­skipti. Sveit­ar­fé­lögin tóku yfir mál­efni grunn­skól­anna árið 1996 og mál­efni fatl­aðra árið 2011 og síðan þá hafa þessir mála­flokkar bara vaxið og vaxið. Með auknum þjón­ustu­kröfum og hærri launum geta þessir mála­flokkar ekki gert neitt annað.

Þá sinna sveit­ar­fé­lög ýmsum mála­flokkum sem ekki er lög­bundið að þau sinni, svo sem leik­skólum, að byggja mann­virki fyrir íþrótta- og tóm­stunda­starf og sinna ýmiss konar þjón­ustu sem þykir bæði eðli­leg og sjálf­sögð. Því hefur umræðan um tekju­stofna sveit­ar­fé­laga verið hávær án þess að það hafi skilað ásætt­an­legri nið­ur­stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár