Skuldir sveitarfélaga stóraukast vegna nýrra útreikninga

Líf­eyr­is­skuld­bind­ingar nær allra sveit­ar­fé­laga juk­ust tölu­vert í fyrra, þar sem þær voru end­ur­metnar með til­liti til hærri með­al­ald­urs líf­eyr­is­þega. Vegna þess­arar breyt­ingar aukast meðal ann­ars skuldir Ísa­fjarð­ar­bæjar um tæpan fimmt­ung.

Skuldir Ísafjarðar aukast um 17 prósent vegna nýrra reikninga á lífeyrisskuldbindingum.
Skuldir Ísa­fjarðar aukast um 17 pró­sent vegna nýrra reikn­inga á líf­eyr­is­skuld­bind­ingum. Mynd: Visit Westfjords

Skulda­staða flestra sveitaré­laga hér­lendis versn­aði til muna í fyrra, þar sem nýir útreikn­ingar um meiri líf­eyr­is­skuld­bind­ingar vegna hækk­andi með­al­ald­urs voru bók­færðar þá. Bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðar hefur kallað eftir því að rík­is­valdið stígi inn til að létta þessum auknu álögum af sveit­ar­fé­lögum og Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga gagn­rýnir lít­inn tíma­frest sem sveit­ar­fé­lögin fengu til að bregð­ast við þessum útreikn­ingum.

Gamlir útreikningar en nýlega samþykktir

Umræddir útreikn­ingar voru fyrst gefnir út árið 2015 af Félagi íslenskra trygg­inga­stærð­fræð­inga, en þær miða við spár um þróun dán­ar­tíðni á næstu ára­tugum í stað dán­ar­tíðni und­an­far­innar ára.

Á þeim tíma ákvað fjár­mála­ráð­herra að stað­festa þær ekki og þurftu því sveit­ar­fé­lögin ekki að taka til­lit til þeirra í eigin líf­eyr­is­skuld­bind­ingum. Hins vegar ákvað Reykja­vík­ur­borg að gera það á þeim tíma, en líf­eyr­is­skuld­bind­ingar sveit­ar­fé­lags­ins hækk­uðu því um 6,5 millj­arða króna.

Fjár­mála­ráðu­neytið skipti svo um skoðun rétt fyrir síð­ustu jól, en þann 22. des­em­ber í fyrra var til­kynnt að nýju útreikn­ing­arnir voru sam­þykktir, sem leiddi til þess að sveit­ar­fé­lögin þurftu að bók­færa þau í sínum árs­reikn­ingum.

Hækkunin mikill skellur

Heilt yfir er búist við því að líf­eyr­is­skuld­bind­ingar hækki um fimm pró­sent vegna þess­ara nýju útreikn­inga, en hækk­un­inni er þó ójafnt dreift á milli sveit­ar­fé­laga.

Frétta­mið­ill­inn Bæjarins besta greindi frá því fyrr í vik­unni að líf­eyr­is­skuld­bind­ingar Ísa­fjarð­ar­bæjar hækk­uðu langt umfram áætl­anir árið 2021 vegna sam­þykktar á nýju útreikn­ing­unum. Samkvæmt fjár­mála­stjóra bæj­ar­fé­lags­ins aukast skuldir þess um 390 millj­ónir króna vegna þeirra, úr 1,89 millj­örðum króna í 2,2 millj­arða króna. Þetta jafn­gildir 17 pró­senta hækkun.

Birgir Gunn­ars­son, bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðar, segir hækk­un­ina vera mik­inn skell fyrir bæj­ar­fé­lagið í sam­tali við Kjarnann. Hann bætir þó við að skulda­aukn­ingin sé ekk­ert eins­dæmi hjá Ísa­fjarð­arbæ, önnur sveit­ar­fé­lög finni einnig fyrir henni. Í sam­tali við Bæjarins besta segir að hann að það væri ekki óeðli­legt að rík­is­valdið horfi til þess að létta þessum nýtil­komnu álögum af sveit­ar­fé­lögum.

Kann að vera ágætt að taka skellinn núna

Sigurður Ármann Snævarr, sviðs­stjóri hag- og upp­lýs­inga­sviðs Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, greinir frá áhrifum nýrra líf­eyr­is­út­reikn­inga á fjár­hag sveit­ar­fé­lag­anna í minn­is­blaði sem hann sendi nýlega frá sér. Samkvæmt því gefst sveit­ar­fé­lögum ekki kostur á frestun á að taka til­lit til þess­ara útreikn­ing­ana, svo líf­eyr­is­skuld­bind­ing­arnar hækka strax.

Í sam­tali við Kjarnann segir Sigurður þó að hann telji ólík­legt að þessi aukna skuld­bind­ing muni leiða til skertrar þjón­ustu hjá sveit­ar­fé­lög­unum, sem hafi heilt yfir skilað góðum rekstri á síð­asta ári. Einnig mætti segja að þetta sé að ein­hverju leyti heppi­leg tíma­setn­ing til að taka til­lit til þess­ara breyttu útreikn­inga núna, þar sem fjár­mála­reglum sveit­ar­fé­lag­anna hefur verið tíma­bundið vikið til hliðar til árs­ins 2026.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár