Ásdís verður bæjarstjóri í Kópavogi

Ásdís Krist­jáns­dóttir tekur við bæj­ar­stjóra­stólnum í Kópavogi. Sjálf­stæð­is­flokkur og Framsókn hafa náð sam­komu­lagi um áfram­hald­andi sam­starf í bæj­ar­stjórn og kynntu mál­efna­samn­ing sinn í dag.

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í kópavogi
Ásdís Krist­jáns­dóttir, bæj­ar­stjóri í kópa­vogi Mynd: Aðsend

Ásdís Krist­jáns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópavogi, verður nýr bæj­ar­stjóri Kópavogs. Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur hafa náð sam­komu­lagi um myndun meiri­hluta í Kópavogi og kynntu mál­efna­samn­ing flokk­anna á blaða­manna­fundi á Gerð­ar­safni síð­degis.

Meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokk hélt í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 14. maí. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði full­trúa en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætti við sig einum.

Íbúa­hóp­ur­inn Vinir Kópavogs kom af krafti inn í kosn­inga­bar­átt­una. Um er að ræða nýtt fram­boð sem hefur m.a. lagt áherslu á breytta skipu­lags­stefnu í bæj­ar­fé­lag­inu. Flokk­ur­inn fékk tvo full­trúa kjörna og mun mynda minni­hluta í bæj­ar­stjórn ásamt full­trúum Við­reisnar, Pírata og Sam­fylk­ingar, en hver flokkur fékk einn full­trúa kjör­inn. Hvorki Vinstri græn né Mið­flokk­ur­inn náðu kjöri í kosn­ing­unum að þessu sinni.

Orri Hlöðvers­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Kópavogi, verður for­maður bæj­ar­ráðs. Embætti for­seta bæj­ar­stjórnar mun skipt­ast á milli flokk­anna og mun full­trúi frá hvorum flokki sinna emb­ætt­inu helm­ing kjör­tíma­bils­ins.

Ásdís tekur við stöðu bæj­ar­stjóra af Ármanni Kr. Ólafs­syni sem hefur verið bæj­ar­stjóri í Kópavogi síð­ustu tíu ár. Ármann var fyrst kjör­inn í bæj­ar­stjórn árið 1998 og á að baki um 480 fundi í bæj­ar­stjórn. Í upp­hafi árs til­kynnti hann að hann ætl­aði ekki að sækj­ast eftir end­ur­kjöri í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor.

Ásdís til­kynnti í lok jan­úar að hún ætl­aði að bjóða sig fram í fyrsta sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópavogi. Hún varð efst í próf­kjöri flokks­ins í mars þar sem hún fékk 1.881 atkvæði í fyrsta sæti. Alls tóku 2,521 þátt í próf­kjör­inu. Ásdís er hag­fræði- og verk­fræði­menntun og hefur starfað sem aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri frá því í maí 2020. Þar áður var hún for­stöðu­maður efna­hags­sviðs sam­tak­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár